Morgunblaðið - 24.12.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.12.1981, Blaðsíða 18
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1981 Þrautir - leikir - skrýtlur Skemmtilegur leikur Klippið pappakassa þannig til, að hann myndi fjögur hvöss horn, eins og greinilega kemur fram á myndinni. Klippið síðan pappahringi, sem þið notið til þess að kasta. Að þessu loknu skrifið þið stigatölur á hvert horn kassans og að því loknu getur leikurinn hafist. Góða skemmtun. Að blása fjöður Lítilli fjöður eða dún er blásið upp í loftið og þar taka þátttakendur við henni (helst eins margir og mögulegt er ... eftir vali) og eiga að reyna að halda henni á lofti eins lengi og mögulegt er. Katta- hljómlist Hvarflar það nokkurn tíma að þér, þegar þú horfir á Tomma og Jenna, að mýs geti sungið? Senni- lega eru það fáir, sem vita að mýs gefa frá sér hljóð, sem minna á söng kanarí- fugla. Tónarnir eru þó svo háir, að venjulega er ógerningur fyrir fólk að heyra þá. Agœtur sjónauki Er unnt að búa til sjón- auka, sem hefur hvorki lins- ur né stækkunargler? Vissulega. Finndu þér þunnan pappa og vefðu hon- um saman eins og sést á myndinni. Kíktu síðan í gegnum hann með öðru auga og þú verður sennilega öldungis hissa, þegar þú sérð hlutina skýrar en ella þrátt fyrir allt. Hver skoraði mark? Reykjavíkurmóti í knattspyrnu er lokið — íslands- mótið er hafið og ekki er að efa, að mörg mörk verða skoruð í sumar. Á myndinni sjáið þið fjóra leikmenn, sem fagna marki. En hver þeirra skoraði? Þú getur fundið það með því að fylgja strikun- um frá leikmönn- unum. - Búið til jólakort sjálf Þegar líður nær jólum þykir sjálfsagt að hugsa til þess að gleðja aðra. Þá sendum við m.a. vinum okkar jólakort og gefum vandamönnum og vinum gjafir. Ekki svo að skilja, að þetta eigi að vera eina tækifærið, sem gefur okkur tilefni til þess, síður en svo. En alla vega er þetta kærkomið tækifæri. Gerum ekki jólin óþarflega dýr og óróleg. Við getum dund- að sjálf við að búa til jólakort og e.t.v. einhverjar jólagjafir líka. Hér sýnum við eitt dæmi um einföld jólakort, þar sem „skuggamyndir" eru klipptar út úr svörtum pappír og límdar á hvítan pappír. Einnig er hægt að klippa út myndir og líma þær á sama hátt eða hreint og beint teikna þær sjálf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.