Morgunblaðið - 03.02.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1982
3
adidas
GOÐSAGAN UM
ADIDAS
Herbert von Karajan lét Adidas hanna
sérstaka hljómsveitarstjóraskó fyrir sig.
Indíánar í frumskógum Brasilíu ganga á
Adidas. Muhammed Ali og Joe Frazier
mættust í hringnum á Adidas. Þeirra pör
eru nú í skósafni Adidas. Hvað er þetta
Adidas?
Saga Adidas er raunar saga íþrótt-
anna í hnotskurn. í eina tíð var iðkun
íþrótta aðeins tómstundagaman örfárra
forréttindamanna — núna eru íþróttir al-
menningseign, fjöldahreyfing. Hvar sem
er í heiminum eru íþróttir af öllu tagi sú
frístundagleði, sem mestrar athygli og
þátttöku nýtur. Allra augu beinast að
Olympíuleikunum og heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu. Adolf Dassler
varð vitni að þessari þróun. Og sem
meira var — hann tók þátt í henni og ýtti
undir hana með nýjungum sínum og
uppfinningum. Þegar Adi, eins og hann
var kallaður, lést árið 1978, þá hafði
nafn hans órjúfanlega tengst þeirri
fjöldahreyfingu, sem iðkun íþrótta er
núna.
=f Vörumerkiö sem allir
vilja líkja eftir
Adolf Dassler ætlaöi í fyrstu að nefna
skóverksmióju sína Addas. En önnur
skóverksmiðja, Ada ada í Frankfurt
kærði það heiti á þeim forsendum að
þaö gæti valdið misskilningi. Ada Ada er
nú fyrir löngu horfið af sjónarsviðinu, en
það er broslegt til þess að hugsa, hversu
margir myndu öfunda Adi Adi að nafn-
inu nú, þegar fyrirtæki um allan heim
reyna eftir beztu getu að líkja eftir nafn-
inu Adidas, einmitt til aó valda misskilningi.
=f Rendurnar þrjár,
heimsfrægt vörumerki
Þegar Adi setti á stofn eigin verk-
smiðju, kom honum strax til hugar að
láta skóna bera vörumerkió utan á sér
— en slíkt hafði þá aldrei þekkst áður.
Og hann lagði heilann í bleyti svo
dögum skipti átti hann aö hafa rend-
urnar eina, tvær eöa þrjár? Hann vildi aö
skórnir þekktust á augabragöi. Hann
ákvaö aö hafa þær þrjár. Þessar þrjár
rendur reyndust adidas galdrastafur,
einfaldur en áhrifamikill. Lítið í kringum
ykkur og alls staðar eru rendurnar þrjár
áberandi.
=f Landsliöiö skorar í
Adidas
Sigurganga Adidas hófst með sigrum
þýzka landsliðsins í heimsmeistara-
keppninni í Bern 1954. Þjóðverjarnir fót-
uðu sig betur á blautum vellinum með
nýju skrúfutökkunum frá Adidas. Eftir
þann sigur var ekki aftur snúió. Olympíu-
leikarnir tala skýrustu máli, í Helsinki ’52
voru nær allir Þjóðverjarnir á Adidas,
Melborn ’56 flestir verðlaunahafar, Róm
'60 75% allra þátttakenda, Tokyo ’64
80%, Montreol 83% þátttakenda á
Adidas. Þar og síöar í Moskvu voru
meira að segja allir starfsmenn leikanna
í Adidas.
Nú eru til sérhannaðir skór fyrir nær
hverja einustu grein íþrótta, siglingar,
skíðastökk, körfubolta, kappaksturo.fi.
o.fl. Adidas á nú 700 einkaleyfi, 1800
vörumerki víösvegar um heiminn.
=f Frá toppi til táar
Adi Dassler lét sér þó ekki nægja að
hanna og smíöa skó. Árið 1952 komu
fyrstu töskurnar á markaðinn og árið
1967 voru fyrstu íþróttagallarnir sýndir á
vörusýningu í Þýzkalandi. Einn af sölu-
mönnum segir svo frá: Við þöntuðum
3000 galla frá verksmiðjunni en þá var
okkur sagt að 3000 gallar með þessum
þrem röndum myndu ekki seljast og við
fengum aðeins 500. Þeir seldust upp á
augabragði og síðan hefur nánast aldrei
verið hægt að anna eftirspurn.
=f Engin venjuleg saga
Framleiðsla Adidas nemur nú 300.000
pörum á dag. Adi Dassler óraði varla fyr-
ir þvílíkum tölum þegar hann stóð á
verksmiðjugólfinu í kjallaranum heima
hjá sér fyrir 60 árum. Hann vissi ekki að
hann var að leggja hornsteininn að al-
þjóðlegu risafyrirtæki. Hann einsetti sér
að vera skrefi á undan og það hefur tek-
ist. Og nú er Herzogenaurach, þetta
vinalega sveitaþorp orðið fyrirheitna
land íþróttastjarna alls staðar í heim-
inum. Stjörnurnar koma til að sjá
fæðingarbæ Adidas, þær árita skó sína
og ánafna þá myndasafni fyrirtækisins,
skóna sem komu þeim í mark á undan
hinum. En saga Adidas heldur áfram.
Aöalsmerki
Rendumar þrjár eru vörumerki
Adidas, en aðalsmerki Adidas eru
gæðin. Fyrirtækiö hefur ævinlega
framleitt vöru sína í samræmi við
þarfir þeirra sem lengst hafa
náð í íþróttum. Allir
íþróttavörukaupmenn
leggja metnað sinn í að,
hafa Adidas-vörur
á boðstólum.