Morgunblaðið - 03.02.1982, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.02.1982, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1982 iKlæðum og bólstrumj <gomul húsgögn. Gott<( ^úrval af áklæðum BÓLSTRUNi ÁSGRÍMS, Bergstaðastræti 2, Simi 1 6807, Nýkomið Dömu og herra trékloss- ar í miklu úrvali. Margar - nýjar geröir. • Al <;|.VSIN<;ASIMINN KH: jZZZ 22480 jWorjjunblflöiti © Stefán Viktor Guö- mundsson - Sjötugur í dag, 3. febrúar 1982, er 70 ára sjómaðurinn Stefán Viktor Guð- mundsson, Álftamýri 24, Reykja- vík. Hann er sonur hjónanna Sól- veigar Stefánsdóttur, ættaðri úr Skaftafellssýslu og manns hennar Guðmundar Kristjáns Bjarnason- ar, skipstjóra, ættuðum frá Ön- undarfirði. Var hann einn af fyrstu togaraskipstjórum Islend- inga, og aflamaður góður. Þessi sæmdarhjón eignuðust átta born og er Stefán fimmti í röðinni. Stefán ólst upp í Reykjavík, en ungur að árum fór hann að stunda sjó, enda rann sjómannsblóð í æð- um hans. Hann byrjaði sjó- mennsku sína á togaranum Nirði frá Reykjavík og var skipstjóri þar Kolbeinn Finnsson, vel þekkt- ur skipstjóri í Reykjavík. Á þess- um árum var afli góður og mikil vinna lá að baki hvers manns á þessum togurum. Stefán þótti góð- ur verkamaður og eftirsóttur á togarana. Sérfag hans var neta- vinna og þótti hann með fljótustu mönnum við það verk, eins og öll önnur um borð. Á þessum árum ríkti vinsemd og virðing á meðal skipshafna og gekk hver maður að sínu verki. Gekk því vinna vel um borð í þessum skipum. Afli var oft fljóttekinn á þessum árum og var ekki óalgengt að skipin kæmu með fullfermi og jafnvel á þilfari. ■ Stefán var í áraraðir togara- sjómaður á skipum frá Reykjavík. Hann var til dæmis bátsmaður með frænda sínum Hallgrími Guðmundssyni á togurunum Gylli og Þórólfi frá Reykjavík. Mörgum fleiri togurum var hann á í tutt- ugu og fimm ár við góðan orðstír. Til Eimskipafélags íslands réðst Stefán þegar hann var búinn að fá nóg af vinnu á togaraflotanum og sigldi þar lengi. Einnig sigldi hann á olíuskipinu Hamrafelli frá Reykjavík til Batum og víðar. Alls staðar þar sem Stefán var, líkaði vel við hann, af því að hann var manna léttlyndastur og sífellt með brandara á vörum. Happadagur í lífi hans var 21. maí 1935 þegar hann giftist konu sinni Jónu Erlingsdóttur og bjó hún manni sínum hlýlegt heimili í Reykjavík. Eignuðust þau fimm mannvænleg börn. Barnabörnin eru orðin sautján talsins og lang- afabörn tvö. Sum af þessum börn- um eru framarlega á íþrótta- sviðinu og önnur eiga eftir að koma fram í sviðsljósið. Allir þeir sjómenn sem Stefán þekkja og hafa verið með honum til sjós, tala um hann sem góðan vin og félaga. Það veit ég að margir vinir og fé- lagar hugsa hlýtt til Stefáns í dag á þessum tímamótum hans. Geta má nærri að á svona löngum sjó- mannsferli hefur oft gefið á bát- inn og Stefán lent í svaðilförum, en hann minnist aldrei á það eins og góðum sjómanni hæfir og sæm- ir. Ég sem þetta rita og kona mín óskum Stefáni til hamingju og árnum honum heilla á þessum tímamótum í lífi hans. Ékki er Stefán búinn að leggja árar í bát, því enn starfar hann við barna- skóla í Reykjavík og fer vel á með börnunum og honum. Stefán er að heiman í dag. BBG Firmakeppni TR: Karl Þorsteins sigurvegari KARL Þorsteins sigradi í firmakeppni Taflfélags Reykjavíkur, sem lauk um helgina. Hann hlaut 12 vinninga, Helgi Ólafsson 11,5 og Jón L. Árnason og Margeir Pétursson 11 vinninga hvor. í frétt frá TR segir, að 306 fyrir- tæki og stofnanir hafi tekið þátt í keppninni og komust 36 þeirra í úr- slitakeppnina, en dregið var um fyrir hvaða fyrirtæki hver skákmað- ur keppti. Röð efstu varð þessi: Vinn. 1. Breiðfjörðs blikksmiðja hf., (Karl ÞorsteinS) 12 2. Ægisútgáfan (Helgi Ólafsson) 11 'k 3. -4. Letur hf., (Jón L. Árnason 11 3.-4. Blómabúðin Runni (Margeir Pétursson) 11 5.-6. Dagblaðið og Vísir (Benedikt Jónasson) 10 5.-6. Verkamannafélagið Dagsbrún (Ágúst S. Karlsson) 10 7. Rafgeymaþjónustan (Ásgeir Þ. Árnason) 9'/2 8. Kassagerð Reykjavíkur. (Sævar Bjarnason) 9 9. Hlaðbær hf. (Róbert Harðarson) 9 10. Sendibílastöðin hf. (Davíð R. Ólafsson) 9 11. Hurðaiðjan (Jóhann Örn Sigurjónsson) 8'á 12. Veitingahúsið Naust (Eiríkur Björnsson) 8'h Group MET HAGNAÐUR Útdráttur úr endurskoðuðum heildarreikningum. - ■*' 1980 £’000 ! 1981 £’000 59,693 50,763 1,163,830 / / »* Shareholders’ Funds (eigið fé) ú i Subordinated Loans (vikjandl lán) Total Deposits (heildarinnlán) 49,008 45,224 1,079,811 Loans and Advances (heildarútlán) 692,150 797,753 Total Assets (eigmr) 1,271,914 1,397,294 Profit beforeTaxation 10,274 11,407 (rekstrarhagnaður fyrir skaltgreiðslu) Scandinavian Bank Group Aðalskrifstofa: 36 Leadenhall Street, London EC3A1BH. Sími: 01-481 0565.Telex: 889093. Útibú: Bahrain, Bermuda, Hong Kong, Los Angeles, Madrid, New York, Sáo Paulo, Singapore, Tokyo. íslenzkur hluthafi: Landsbanki íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.