Morgunblaðið - 03.02.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.02.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1982 23 hans, Guðrún Björnsdóttir frá Veðramóti. Meðal annars, sem við starfs- menn hans gerðum, var að grafa holu allvíða ca. 2—3 metra djúpa til þess að finna hvort heppilegt væri að byggja hælið á Kristnesi, en hann hafði allan undirbúning þar og ég held framkvæmdir við þá byggingu, sem þar var reist. Og þar komst einmitt í framkvæmd fyrsta hugdetta hans, að leiða kalt vatn ofan úr fjallinu í gegnum rör og síðan eftir „spiral" í gegnum laugarnar niður við veginn, sem voru við suðuhita, og leiða vatnið aftur upp í hælið til hitunar því. Skal ekki farið nánar út í það, og vona ég að iðnaðarmenn á Akur- eyri og víðar, en þar var hann í broddi fylkingar um langt skeið, muni minnast afreka hans á því sviði. Kynni okkar Sveinbjörns hófust aftur árið 1970 við flutning okkar hjóna hingað til Reykjavíkur. Þau höfðu reyndar aldrei slitnað alveg, en nú voru þau endurvakin, og alltaf var gamla hugsjónin um af- neitun áfengis aflvakinn og það sem batt okkur tryggðaböndum. Og eitt sinn kom hann með stóra og þykka bók, sem hann sagði að yrði mér áreiðanlega kærkomin til yrkisefnis, því að hann hafði gaman af ljóðum, og vildi stuðla að því að gefin væri út ljóðabók, sögulegs efnis, þar sem leitað væri fanga fyrir og um vissa þætti að undirbúningi kristnitöku á Islandi. Skal það ekki rakið hér nánar, það yrði of langt mál. Ég hefi misst mikinn og tryggan vin við fráfall Sveinbjörs, en enda þessi orð mín með þakklæti til hans fyrir margar og góðar sam- verustundir og bið afkomendum hans og þeirra fjölskyldum allrar blessunar, því að þær hafa misst mikinn og góðan dreng og leið- toga. Stefán Agúst Öldungurinn Sveinbjörn Jóns- son í Ofnasmiðjunni hefði orðið 86 ára 11. febr. nk., ef honum hefði enst aldur. Óneitanlega er þetta hár aldur. Samt sem áður var ég óviðbúinn, þegar vinur minn og starfsfélagi Björn, sagði mér fyrir nokkrum dögum að í tvísýnu stefndi með líf föður hans. Ekki er lengra síðan en um síðustu ára- mót, að ég hitti Sveinbjörn, hress- an og kátan að venju. Eins og endranær snerist umræðan um hugðarefni hans á sviði iðnaðar, vandamál líðandi stundar og framtíðarverkefni. Hér verður hvorki rakinn ævi- né starfsferill Sveinbjörns, enda mun það gert af öðrum. Eftir 40 ára kunningsskap við hann, lang- ar mig hins vegar að minnast hans með nokkrum kveðjuorðum, því að þessi sérstæði samferðamaður á það vissulega skilið að minningu hans sé haldið á loft. Flest fólk á sér einhverja drauma og hugsjónir. Algengast er, að hvort tveggja snúist um eig- in persónu og nánustu fjölskyldu, eigin hag og vellíðan. I sjálfu sér er þetta eðlilegt og mannlegt. í þessu tilliti skar Sveinbjörn sig úr eins og fleiri, sem lagt hafa grundvöllinn að atvinnulífi og tækniþróun þessarar þjóðar á 20. öldinni. Hugðarefni hans voru með afbrigðum fjölbreytileg og mörg. Er mér nær að halda, að Sveinbirni hafi verið nautn að þvi að brydda upp á og koma í fram- kvæmd nýstárlegum hugmyndum. Um þetta bera vott mörg fyrir- tæki, sem hann hafði forgöngu um að stofna og ýmsar tækninýjung- ar, sem hann beitti sér fyrir á langri ævi. Gleðin yfir árangri fólst í því að geta bætt hag þjóðar sinnar, að vísa öðrum veginn til þroska og bjargálna og gera mannlífið betra. Að hagnast í eig- in þágu var ekki ein af hugsjónum Sveinbjörns. Afrek Sveinbjörns Jónssonar verða einkar athyglisverð, þegar haft er í huga, að á köflum átti hann við mikla vanheilsu að stríða. Einbeitni, þrautseigja og ósérhlífni eru því meðal einkunn- arorða, sem koma fram í hugann nú við brottför þessarar kempu. Handa við móðuna miklu mun bíða lífsförunauturinn Guðrún Björnsdóttir frá Veðramóti. Einn- ig hún var brautryðjandi á sína vísu, fyrsta menntaða garðyrkju- konan með þjóð okkar. Þau hjón verða mörgum minnisstæð fyrir margra hluta sakir, ekki síst þeim, sem þau réttu hjálparhönd, þegar erfiðleika bar að garði. í dag leitar hugur okkar Helgu á Háteigsveg 14 til Björns og Guð- taugar. Við þessi þáttaskil sendum við ykkur, afkomendum og vensla- fólki Sveinbjörns og Guðrúnar inniiegar samúðarkveðjur. Sveinn Björnsson verkfr. Þegar hinn sívökuli og hug- kvæmi framkvæmdamaður, Sveinbjörn Jónsson, er allur, er í senn ljúft og skylt að tjá honum þökk og virðingu stjórnar Minja- safnsins á Akureyri, því að hann má í senn kallast guðfaðir þess og verndarvættur. Allt frá upphafi undirbúnings munasöfnunar í Eyjafirði og stofnunar Minja- safnsins og til æviloka vakti Sveinbjörn yfir hag þess og heill, fyigdist með störfunum, lagði til holl ráð, skaut að ferskum hug- myndum og gaf stórgjafir. Ahugi hans og kapp komu fram í smáu og stóru. Hann studdi safnið og málefni þess af alhug, leynt og ljóst, sennilega oftar í leynum eða án þess að mikið bæri á. Margt hefir ráðið þessari af- stöðu Sveinbjarnar og óvenjulegri rækt í garð Minjasafnsins og þess starfs, sem þar hefir verið reynt að vinna. Þar má iyrst telja al- mennan og óeigingjarnan áhuga hans á verndun og eflingu þjóð- legrar menningar, andlegrar og verklegrar, að hætti og hugarfari þeirrar kynslóðar, sem spratt úr grasi um aldamótin síðustu og af- komendur hennar eiga svo margt að þakka, en kunna alltof lítið að meta. í öðru lagi, hygg ég, að nokkuð hafi ráðið sú von Svein- bjarnar, að innan safnsins kæmist upp öflug iðnminjadeild, þar sem lesa mætti meginþættina í þróun- arsögu iðnaðar í bæ og héraði, einkum heimilisiðnaðar og hand- iðna. Sú von hans hefir að mörgu leyti ræst, þó að sá mikli og ára- tugagamli draumur hans að flytja smíðahús Þorsteins Daníelssonar á Skipalóni til safnsvæðisins sé enn fjarlægur. í þriðja lagi vó þungt gömul og gróin vinátta hans og ýmissa frumkvöðla safnstofn- unarinnar, ekki síst Jónasar Kristjánssonar, sem fyrst og lengst var formaður safnstjórnar. Víða má sjá verkin hans Sveinbjarnar. Svo undarlega vill til, að það var einmitt hann, sem teiknaði og byggði það hús, sem löngu síðar varð aðsetur og safn- hús Minjasafnsins, Kirkjuhvol. Hann annaðist smíði þess í gömlu trjáræktarstöðinni við Aðalstræti fyrir þau heiðurshjón, Gunnhildi og Balduin Ryel. Þegar þau árið 1962 fluttust suður og seldu húsið, keypti Jónas Kristjánsson eignina handa safninu fyrir eigið fé, því að ekki vannst tími til að afla heim- ildar frá væntanlegum eigendum safnsins til húsakaupanna. Síðar gekk safnið inn í kaupin á sama verði. Ég veit, að til þessa dreng- skaparbragðs naut Jónas fullting- is ýmissa góðra manna. Einn þeirra var Sveinbjörn Jónsson, sem vegna tengsla sinna við báða aðilja greiddi mjög fyrir því, að þessi kaup tókust, safninu til ómetanlegs ávinnings, því að betra aðsetur hefði ekki verið unnt að fá því á þeim tíma. Árinu áður höfðu þeir Jónas fengið hingað norskan mann, Far- tein Valen-Sendstad, forstöðu- mann Sandvigsku safnanna í Lillehammer, til þess að gera til- lögur um skipulag, verksvið og staðsetningu safnsins á Akureyri, og hafði hann einmitt bent á Fjör- una sem safnsvæði. Sveinbjörn stóð algerlega straum af komu hans hingað. Einnig kostaði Sveinbjörn ferð Þórðar Friðbjarn- arsonar safnvarðar til Noregs, þar sem hann kynnti sér skipulag og starfshætti safna, einkum í Lille- hammer. Oft komu bréf frá Sveinbirni til safnsins, sum með ráðum og hugmyndum, sum með gjöfum eða tilkynningum um gjafir. Stundum gaf hann beinharða peninga, stundum hluti eða minjagripi, sem safnið gat gert sér mat úr, stund- um ómetanlega safngripi. Oft kom han á aðalfundi safnsins og flutti þá jafnan örvandi og hvetjandi ræður. Vakandi hugur hans fylgd- ist alltaf með störfunum af góð- vild og áhuga, og hann glæddi þann sama áhuga hjá öðrum. Hann spurði sjálfan sig sífellt, hvernig hann gæti orðið að liði með ráðum og dáð. Sem dæmi má nefna, að fyrir hér um bil tveimur árum kom Sveinbjörn til Akureyr- ar og færði Minjasafninu að gjöf merka heimildarkvikmynd um leiðangur hans og nokkurra félaga hans, sem farin var til Jan Mayen árið 1957 til að afla rekaviðar. Myndinni, sem þá hafði nýlega verið sýnd í íslenska sjónvarpinu, fylgdi ýmislegt, svo sem skjalleg gögn um leiðangurinn, bréf og af- rit af bréfum, blaðaúrklippur, myndir o.fl., sýningarréttur kvikmyndarinnar og peningaupp- hæð sú, sem Sveinbjörn hafði fengið frá Sjónvarpinu fyrir sýn- ingu myndarinnar þar. Svona var Sveinbjörn. Það var skemmtun hans og yndi að leggja lið þeim málefnum, sem hann hafði áhuga á og hann taldi þess virði að styðja, og það gerði hann, svo að um munaði. Slíkir menn eru of sjaldgæfir með þjóð vorri, en því meira þakkarefni. Minjasafnið á Akureyri kveður vin sinn og velgerðarmann að leið- arlokum með alúðarþökk og bless- unarósk. Sverrir Pálsson „Kldur er bezlur 1111*0 ýU sonum og sólar sýn. heilyndi sill. ef madur hafa náir, án vid lösl að lifa." í dag er Sveinbjörn Jónsson, byggingameistari, kvaddur hinstu kveðjur frá Dómkirkjunni í Reykjavík. — Vandfyllt verður sæti hans í röðum samtíðarmanna okkar, og vinum hans þykir sem dagarnir hafi brugðið lit við frá- fall hans. — En eins og endranær lætur dauðinn skammt stórra högga í milli, og þynnast nú óðum fylkingar þeirra manna, sem hösl- uðu sér völl á morgni aldarinnar. Sveinbjörn Jónsson var Svarf- dælingur i ættir fram, fæddur að Syðra-Holti í Svarfaðardal 11. febrúar 18%. Foreldrar hans voru þau merkishjónin Sigríður María Jónsdóttir og Jón Þórðarson, bóndi og smiður. I ætt Sveinbjarn- ar er arfgengur mikill hagleikur og hugvit, og eru bræður hans og frændur margir þjóðahagasmiðir og landskunnir fyrir atgervi á ýmsum sviðum. Ungur fluttist Sveinbjörn með foreldrum sínum og bræðrum að Þóroddsstöðum í Ólafsfirði og ólst þar upp. Úr föðurgarði hlaut hann í veganesti góðar gáfur, framfara- hug og þann grandvarleika til orðs og æðis, sem ætíð einkenndi hann. Tryggð við æskustöðvar og átt- haga var jafnan ríkur þáttur í fari Sveinbjarnar, og gekkst hann fyrir ýmsum nýjungum í menn- ingar- og atvinnumálum í heima- byggð sinni, þótt sjálfur væri hann fluttur á brott. Má þar nefna hafnarframkvæmdir í Ólafsfirði og lagningu hitaveitu þar, sem mun vera sú fyrsta í þéttbýli á íslandi. Ennfremur var það fyrir hans atfylgi að ráðist var í að leggja veg fyrir Ólafsfjarðarmúla, sem var stórvirki á sinni tíð. — Úr foreldrahúsum lá leiðin í Gagn- fræðaskólann á Akureyri, en þar auðnaðist honum ekki að ljúka námi sökum heilsubrests. Síðar, árið 1917, sigldi hann til Noregs og nam þar byggingafræði um þriggja ára skeið. — Árin í Noregi urðu honum giftudrjúg. Þar lagði hann stund á þau fræði, sem hug- ur hans stóð til, og í Noregi varð honum vel til vina og batt órofa tryggð við land og þjóð. Að námi loknu starfaði Sveinbjörn um ára- bil sem byggingameistari á Akur- eyri, teiknaði og reisti þar ýmsar byggingar. Ekki verður í fljótu bragði komið tölu á öll þau við- fangsefni, sem Sveinbjörn valdi sér á þessum árum. Meðal annars stofnaði hann verksmiðjuna Iðju á Akureyri í félagi við Lárus Björnsson. Framleiddu þeir amboð úr áli, sem reyndust vel og urðu útbreidd um sveitir landsins. Árið 1921 kvæntist Sveinbjörn Guðrúnu Þ. Björnsdóttur frá Veðramóti í Skagafirði, hinni ágætustu konu, sem þá veitti for- stöðu Gróðrarstöðinni á Akureyri. Ungu hjónin reistu sér nýbýli í Kaupangslandi við Eyjafjörð og nefndu bæ sinn Knarrarberg. Þar fæddist þeim árið 1925 einkason- urinn, Björn, sem nú er verkfræð- ingur í Reykjavík. Á Knarrarbergi ríkti vorhugur og trú á landið. Guðrún ræktaði blóm og nytja- jurtir og hélt námskeið fyrir ung- ar konur í garðaprýði hvers konar. Sveinbjörn vann að nýjungum í verklegum framkvæmdum og beitti sé af alhug fyrir öllu því, sem koma mætti atvinnulífi þjóð- arinnar að gagni. Á Knarrarbergi man ég fyrst eftir mér, og þar steig ég fyrstu sporin í skjóli þess- ara elskulegu hjóna, sem ætíð reyndust mér sem beztu foreldrar. I huga mér er sífelld sólarbirta yfir þeim stað. Og þegar ég, barn . að aldri, lærði kvæði Guðmundar Guðmundssonar „Vormenn ís- lands“, þá þótti mér og jafnan síð- an sem kveðið væri um Guðrúnu frænku mína og Sveinbjörn og það mannlíf, sem lifað var á Knarr- arbergi og raunar alls staðar, þar sem þau hjón gerðu sér heimili. — Á kreppuárunum brugðu Guðrún og Sveinbjörn búi á Knarrarbergi og fluttust til Revkjavíkur með tvær hendur tómar. Vormenn ís- lands söfnuðu aldrei gildum sjóð- um. Þrátt fyrir þjakandi heilsuleysi gerðist Sveinbjörn brátt umsvifa- mikill á sviði atvinnumála, þegar suður kom. Hann var skipaður í atvinnumálanefnd af Emil Jóns- syni, þáverandi ráðherra, og send- ur utan til að kynna sér stofnun og rekstur iðnfyrirtækja á Norður- löndum. Varð hann, þegar heim kom, einn af stofnendum Rafha í“ Hafnarfirði og Ofnasmiðjunnar í Reykjavík, sem hann veitti for- stöðu um áratuga skeið. í málefn- um íslenzks iðnaðar var hann jafnan í fylkingarbrjósti. Hann var skrifstofustjóri Landsam- bands iðnaðarmanna frá 1938 til 1944, og ritstýrði Tímariti iðnað- armanna á árunum 1939 til 1952. Hér eru aðeins nefndir fáir áfang- ar á löngum og fjölbreyttum starfsferli Sveinbjarnar Jónsson- ar. Eflaust munu aðrir, mér fær- ari, rekja störf hans og afrek svo sem vert væri. Marga góða menn hefur dreymt stóra drauma um vöxt og viðgang innlends atvinnulífs á íslandi. Það gerði Sveinbjörn Jónsson líka. En hans draumar voru engar skýja- borgir. Hann var raunsær hug- sjónamaður. Hann gekk fram, alls ótrauður, og framkvæmdi það sem fyrir honum vakti, með skapfestu sína og hugvit eitt að vopni. Þótt öðrum sýndust öll sund lokuð, kleif Sveinbjörn þrítugan hamar- inn, og komst leiðar sinnar. Um persónulegan gróða og ávinning af fyrirtækjum sínum sinnti hann lítt eða ekki. Markmið hans var að vinna þarft verk í þágu alþjóðar. Ég held að hann hafi verið prýdd- ur þeirri hetjulund, sem um má lesa á fornum bókum íslenzkum, og þeirri óbugandi seiglu, sem hélt lífinu í þjóðinni, þegar hún átti erfiðast uppdráttar. — Ekki var Sveinbjörn undanlátssamur í skaplyndi, en að baki bjó strangur heiðarleiki og rík réttlætiskennd. Og þótt hann gerði stundum kröf- ur til annarra, var hann jafnan kröfuharðastur við sjálfan sig. — Önnur hlið á Sveinbirni, sem margir munu hafa kynnst, var veglyndi hans og hjálpsemi. Vildi hann ætíð hvers manns vandræði leysa. Á heimili hans og Guðrúnar hér í Reykjavík ríkti sama gestrisnin og höfðingslundin og á Knarrar- bergi. Þar var gott að koma á góðri stundu, — og þar var skjól og óhult borg í raunum. Guðrún frænka mín var frændrækin að fornum sið, og var heimili þeirra hjóna jafnan opið okkur frænds- ystkinum og minnumst við þeirra stunda af þakklátum huga. — Guðrún Björnsdóttir andaðist í Reykjavík árið 1976. — Sveinbjörn hélt óskertu andlegu þreki sínu til hinstu stundar og var brennandi í andanum þar til yfir lauk. — Nú að leiðarlokum vil ég biðja honum Guðs blessunar og þakka honum allar velgjörðir við mig og mína. — Innilegar samúðarkveðjur sendum við mæðgurnar Birni Sveinbjörnssyni og hans ágætu konu Guðlaugu Björnsdóttur, en hjá þeim átti Sveinbjörn athvarf síðustu árin, og barnabörnunum fimm af fyrra hjónabandi Björns, sem er fríður hópur og mannvæn- legur. Þorbjörg Bjarnar Friðriksdóttir 80 26 ' "" " Veistu hvaöa litsiónvarpstæki hefiir tvigeisla hátalaraRerfi?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.