Morgunblaðið - 13.03.1982, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982
Saudárkrókur:
Listi sjálfstæðis-
manna ákveðinn
Sauðárkrokur, 10. marz.
Á fjölmennum fundi sjálfstæðisfélaganna á Sauðárkróki sem haldinn var í
gærkvöldi var framboðslisti flokksins við bæjarstjórnarkosningarnar í vor
ákveðinn. Fyrir fundinum lá samhljóða tillaga frá uppstillingarnefnd og var
hún samþykkt óbreytt. Tveir af núverandi bæjarstjórnarfulltrúum flokksins
höfðu ákveðið að gefa ekki kost á sér til framboðs að þessu sinni, þeir Árni
Guðmundsson og Friðrik J. Friðriksson, en þeir hafa setið í bæjarstjórn
síðustu tvö kjörtímabil. Voru þeim þökkuð mikil og farsæl störf.
Framboðslistinn sem samþykkt-
ur var á fundinum er þannig
skipaður: 1. Þorbjörn Árnason
dómarafulltrúi, 2. Aðalheiður
Arnórsdóttir snyrtifræðingur, 3.
Jón Ásbergsson framkvæmda-
stjóri. 4. Knútur Aadnegard bygg-
ingameistari, 5. Elísabet Kemp
hjúkrunarfræðingur, 6. Pálmi
Jónsson verktaki, 7. Páll Ragn-
arsson tannlæknir, 8. Árni Egils-
son verkamaður, 9. Birna Guð-
jónsdóttir húsmóðir, 10. Kristján
Ragnarsson skipstjóri, 11. Lilja
Þórarinsdóttir húsmóðir, 12.
Reynir Kárason skrifstofumaður,
13. Rögnvaldur Árnason bifreiða-
stjóri, 14. Bjarni Haraldsson
kaupmaður, 15. Minna Bang hús-
móðir, 16. Björn Guðnason húsa-
smíðameistari, 17. Árni Guð-
mundsson framkvæmdastjóri og
18. Friðrik J. Friðriksson héraðs-
læknir.
Friðriki Sophussyni varafor-
manni Sjálfstæðisflokksins var
sérstaklega boðið til þessa fundar
og flutti hann ræðu, er fjallaði
einkum um sveitarstjórnarmál og
Sjálfstæðisflokkinn í ljósi vænt-
anlegra kosninga. Var góður róm-
ur gerður að ræðu varaformanns-
ins. Listi sjálfstæðismanna er
fyrsti framboðslistinn sem ákveð-
inn hefur verið fyrir bæjarstjórn-
arkosningarnar í vor hér a Sauð-
árkróki.
Kári.
Almennur hverfafundur f Vogahverfi:
Lýst yfír andstöðu við
samþykkt fræðsluráðs
EFTIRFARANDI samþykkt var
gerð á almennum hverfafundi í
Vogahverfi 9. mars 1982:
„Almennur fundur íbúa Voga-
hverfis, haldinn á vegum For-
eldra- og kennarafélags Voga-
skóla 9. mars 1982, lýsir yfir
andstöðu sinni við samþykkt
fræðsluráðs Reykjavíkur frá 8.
mars 1982.
Fundarmenn krefjast þess, að
bekkjardeildum verði ekki
fækkað, að kennurum verði ekki
fækkað og að kennslustofur
verði ekki afhentar öðrum
stofnunum til frambúðar. Fund-
armenn álíta, að skólinn þurfi
að hafa góða möguleika á að
taka við nemendum þegar
grunnskólanemendum fjölgar í
hverfinu eða nýjum hverfum í
nágrenninu."
Þessi tillaga var samþykkt
með þorra atkvæða gegn 5.
Samþykktin er áskorun til
fræðsluráðs um að draga
ákvörðun sína til baka og taka
nýja, sem fylgir samþykkt, fund-
arins.
(Fréttatilkynning.)
Á kynningarfundi með fræðslunefnd BSRB. Til vinstri: Jóhann L. Sigurðsson, Þórir Marinósson, Haraldur
Steinþórsson, Kristín Hr. Tryggvadóttir, Sigríður Margrét Guðmundsdóttir og Sjöfn Ingólfsdóttir.
Nýjungar í fræðslustarfi BSRB:
Leshringir og út-
gáfa á efini tengt því
FRÆÐSLIJNEFND BSRB hefur
nú ákveðið að taka upp nýtt
fræðsluform eða svokallaða les-
hringi. Tilgangurinn með slíku
formi er að ná til sem flestra, sem
óska eftir að fræðast um ákveðin
efni og mynda sér skoðanir. Af
þessu tilefni lét fræðslunefndin út-
búa sérstakt lestrarefni, sem notað
verður í leshringunum og hefur nú
fyrsta útgáfan séð dagsins Ijós.
Fjallar hún um vinnustaðinn frá
hinum ýmsu sjónarhornum og ber
heitið „Vinnustaðurinn í brenni-
depli“. Er útgáfunni ætlað að örva
hópa á vinnustöðum til að hugsa
sín mál, taka ákvarðanir og koma
með ábendingar í þessum efnum. í
bókinni eru settar fram margar
hugmyndir og spurningar til um-
ræðu um þessi mál og leitað svara
við þeim.
Það er Loftur Magnússon, yf-
irkennari, sem tekið hefur efnið
saman og er það prýtt teikning-
um eftir Önnu Haraldsdóttur en
Kristín H. Tryggvadóttir náms-
stjóri BSRB ritstýrði verkinu.
Fræðslunefndin fékk aukið
fjármagn frá ríkinu til þessarar
starfsemi. Ætlunin er að fram-
hald verði á útgáfustarfsemi
fræðslunefndarinnar og hefur
verið rætt um nokkur verkefni
til viðbótar og má meðal annars
nefna verkefni eins og efna-
hagsmál, fjölskyldan, jafnrétt-
ismál og skólakerfið.
Skilyrði til að hægt sé að
stofna leshring og fá sent náms-
efni er að þátttakendur séu að
minnsta kosti fimm og yfir sex-
tán ára aldri. Tímarnir séu frá
tuttugu og einum til tuttugu og
fjögurra. Tímunum sé dreift
þannig að þeir séu annaðhvort
tveir eða þrír í senn og ekki oftar
en tvisvar í viku. Skýrslu sé skil-
að í lokin með nöfnum og mæt-
ingum þátttakenda og helst
niðurstöðum leshringsins.
Þess má geta í lokin að aðrir
en félagar BSRB geta fengið efn-
ið keypt.
„Langar ekkert að lenda í svona aftur,“ sagði Jói á Andvara
Tveir Eyjabátar undir brotsjóum:
„Hélt að við vær-
um að fara yfir,“
segir Lýður á Ófeigi III
TVEIR netabátar í Vestmannaeyjum,
Ófeigur III. og Andvari, voru báðir
hætt komnir í foráttubrimi sem hefur
verið að undanförnu á miðunum við
Vestmannaeyjar eins og víðar um
landið. Ófeigur III. fékk á sig all
snarpan brotsjó sl. laugardag djúpt á
Kantinum suður af Vestmannaeyjum
og voru flestir skipverja á þilfari er
báturinn lagðist á hliðina en þeir
náðu að forða sér undan brimskaflin-
um og Andvari VE fékk á sig tvo
þunga brotsjói sem lunnungafylltu
skipið á Sandagrunninu sl. mánudag
og komst sjór bæði í lúkar og brú
skipsins, en engir menn voru þá á
þilfari.
„Sjólagið var hrikalegt þarna úti
í Kantinum, enda mjög slæmt veð-
ur og svo var sjólagið óeðlilegt að
ég þekkti ekki hreyfingar bátsins,“
sagði Lýður Ægisson skipstjóri á
Ófeigi III. í samtali við Mbl. „Það
var erfitt að leggja aftur vegna
veðursins og ég aetlaði að lensa
trossuna út, en þá fengum við mik-
inn hnút yfir skipið bakborðsmeg-
in og það skipti engum togum að
báturinn lagðist á hliðina. Eg hafði
náð að aðvara strákana svo þeir
gátu forðað sér undan skaflinum
og náð taki hér og þar og það var
löng biðin meðan skipið lá á hlið-
inni því ég gat ekki keyrt vélina
þar sem allt flaut af netum um-
hverfis skipið. Svo lengi lá bátur-
inn á hliðinni í þessari ólgu að ég
hafði tíma til að kalla í annan bát,
Glófaxa, okkur til hjálpar, því ég
hélt satt að segja að við værum að
fara yfir, að báturinn væri að fara
niður, datt ekki annað í hug, en svo
rétti hann sig af sjálfur í öldurót-
inu og strákarnir þustu til að losa
netin frá skipinu svo hægt væri að
keyra. Þeir stóðu virkilega vel að
því og einnig hafði trossa sem var
bakborðsmegin, farið út að hluta.
Kokkurinn sem var einn niðri stóð
bakborðsmegin þegar brotið reið
yfir og það náðist ekki að aðvara
hann, en hann náði taki á kýrauga-
keng í loftinu og hékk á honum
svo lengi sem hann þoldi, en við
það rifnaði á milli fingra hans og
hann marðist illa á öxl og var því
fluttur í sjúkrahús þegar við kom-
um í land. Þetta hefur verið leið-
inda veður að undanförnu, en allt-
af er róið til þess að reyna að
bjarga aflanum frá skemmdum.
Það er hins vegar erfitt við þessar
kringumstæður að sækja svona
djúpt á svona litlum bátum, en ef
til vill kemur að því að kerfið fær
trú á því að við þurfum að fá leyfi
fyrir stærri bátum," sagði Guðjón
Ægisson.
„Jú, við vorum á Sandagrunninu
inn af Eyjum þegar tveir hnútar
Ofeigur III.
Andvari
riðu yfir skipið í rykk og við vorum
ekki einu sinni búnir að jafna
okkur af fyrra brotinu þegar það
síðara fylgdi í kjölfarið," sagði Jó-
hann Halidórsson skipstjóri og út-
vegsbóndi á Andvara í samtali við
Mbl. í gærkvöldi. „Fyrri hnúturinn
lunningafyllti bátinn gjörsamlega
og það flæddi bæði niður í lúkar og
upp í brú og seinna brotið fylgdi
svo fast á eftir að það var ekki einu
sinni farið að renna út af þilfarinu,
en þá settum við á ferð til þess að
keyra skipið upp úr þessu og það
tókst. Það hafði verið hálffullt af
netum aftan á, flotum og öðru
drasli og þetta tók allt út og af
þilfarinu misstum við meðal ann-
ars netapallinn, svo við urðum að
fara í land um morguninn til þess
Lýður Ægisson
Jóhann Halldórsson
að láta lagfæra og gera klárt, en
við náðum að fara aftur út um
miðjan dag. Einhver sjór komst í
dýptarmælinn í brúnni, en það var
hægt að bjarga því. Jú, víst var
þetta svæsið, en það fór ágætlega
þótt mann langi ekkert til að lenda
í svona aftur og sem betur fer voru
engir menn á þilfari, því þá hefði
ekki verið að sökum að spyrja."