Morgunblaðið - 13.03.1982, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982
+
JÓN MAGNÚSSON
frá Bjargi, Ólafsvík,
andaöist 7. mars aö Hrafnistu, Reykjavik. Jaröarförin hefur farið
fram. Þeir sem vildu minnast hins látna láti Hrafnistu, Reykjavík,
njóta þess.
Aöstandendur.
Faðir okkar,
HARALDUR AOALSTEINSSON,
Miófúni 4, Seyöisfiröi,
andaðist í sjúkrahúsi Seyöisfjaröar föstudaginn 12. mars. Jaröar-
för ákveðin síöar.
Aöalbjörn Haraldsson,
Leifur Haraldsson.
+
Faðir okkar,
SIGURÐUR GÍSLASON
fyrrverandi bóndi, Hamarsendum,
andaöist að Elliheimilinu Grund þann 12. mars.
Börnin.
+ Faðir okkar.
LÝÐURJÓNSSON
fyrrverandí vegaverkstjóri.
Fannborg 1, Kópavogi,
varð bráökvaddur að heimili sínu 11. mars. Börnin.
+
MAGNÚSÞÓROARSON,
Bjarmalandi 6, Sandgeröi,
lést að heimili sínu 11. mars.
Sigrún og Garöar Eyjólfsson.
+
FRÚ ELÍSA KRISTÍN GUÐJÓNSDÓTTIR,
áöur til heimilis að Öldugötu 32,
en seinast í Lindarbæ vió Selfoss,
lést í Landsþítalanum 11. mars. sl.
Bergljót Snorradóttir, Lindarbæ,
Guörún Guómundsdóttir, Langagerði 56.
+
Útför móöur minnar,
SIGRÍÐAR J. TÓMASDÓTTUR,
Vogatungu 10, Kópavogi,
fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 15. mars kl. 15.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Björn Ólafsson.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim sem auösýndu okkur samúö
og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu
og langömmu,
SIGRÚNAR BENEDIKTSDÓTTUR,
áður til heimilis aó Laufásvegi 45B, Reykjavík.
Jón Veturliöason,
Halldór Á. Gunnarsson,
Elí Gunnarsson,
Jóhanna Gunnarsdóttir,
Steinþór M. Gunnarsson,
Veturliói Gunnarsson,
Guðbjartur Gunnarsson,
Benedikt Gunnarsson,
Gunnar Kr. Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
María Eyjólfsdóttir,
Eva Magnúsdóttir,
Elísa Björk Magnúsdóttir,
Ásdís Óskarsdóttir,
Jónína Guöbjörg Sigurgeirsdóttir,
Kristján K. Víkingsson
læknir - Minning
Fæddur 26. júní 1949
Iláinn 21. janúar 1982
Meðal indíánaþjóðflokka var
það siður þegar hetjur féllu í val-
inn, að þeir sem syrgðu hinn
fallna gengu fram hver af öðrum,
lýstu kynnum sínum af honum,
kostum hans og hryggð sinni
vegna fráfalls hans.
Þannig beinist hugurinn nú yfir
farinn veg, þegar vinur minn
Kristján Víkingsson er kvaddur.
Minningarnar kallaðar fram.
Hingað í húsið átti hann leið um
árabil sem einn í hópi vina og
skólafélaga sona minna. Þessir
ungu menn áttu hér afdrep, þar
sem þeir mættust oft til skrafs og
ráðagerða, eða áður en farið var á
dansleik. Þeim fylgdi glaðværð og
hlátur — frískur andblær í húsið.
Þeir voru enn frjálsir og óbundnir,
en lífið framundan, óráðið, heill-
andi, með vonir sínar og þrár.
Kristján gerði sér það að venju
að hverfa um stund úr hinum
glaða hópi inn til mín, að ræða
ýmislegt sem honum bjó í huga.
Þar kynntist ég þessum hægláta,
ljúfa dreng vel, og hin stuttu
augnablik urðu grundvöllur vin-
áttu sem er mér dýrmæt.
Hópurinn dreifðist smátt og
smátt eftir stúdentspróf, samkom-
urnar urðu fátíðari, menn bundust
öðrum böndum og tíminn leið. Úr
nokkurri fjarlægð fylgdist ég með
ferli Kristjáns og gladdist þegar
hann náði því marki sem hafði
virst svo fjarlægur draumur — að
verða læknir. Endrum og eins
sáumst við í önn dagsins á götu, á
göngum Borgarspítalans þegar
hann vann þar, og alltaf fundum
við okkur afdrep og töluðumst við
um stund.
Nú var von á Kristjáni heim frá
Eyjum. Erfiðustu árin að baki og
hann hlakkaði til óslitinnar sam-
veru með Elvu og litia syninum.
En kallið kom. Samviska hans og
skylda bauð honum að hlýða um-
yrðalaust því kalli, sem hugrakkir
menn hafa ávallt hlýtt án hugsun-
ar um eigið öryggi.
Við sem eftir stöndum spyrjum
enn, eins og Matthías Jochumsson
í sálminum „Hvað er hel?“
Þeirri óræðu spurningu verður
aðeins svarað frá sjónarholu eða
-hóli hvers okkar fyrir sig.
Skáldið svarar sjálfu sér: „Sól-
arbros, er birta él, heitir hel.“
Megi það sólarbros skína á vin
minn, þar sem hann er nú — í
heimi sem okkur er enn óþekktur.
Guð styðji ástvini hans gegnum
élin.
Ágústa Rétursdóttir Snæland
Kynni mín og fjölskyldu minnar
af Kristjáni Víkingssyni voru því
miður ekki löng. Við kynntumst
honum er hann og Elfa Gísladótt-
ir, frænka mín, fóru að vera sam-
an. Eg tel að Kristján hafi verið
frekar seintekinn maður, en því
betur sem við kynntumst honum,
því vænna þótti okkur um hann,
og alltaf fundum við þann mikla
styrk og miklu ró sem í honum
bjó. Við dáðumst að því, hve góður
hann reyndist yngri systkinum
Elfu, sem hingað komu frá Banda-
ríkjunum, hann bókstaflega vildi
allt fyrir þau gera og bar hag
þeirra fyrir brjósti. Einmitt um-
hyggja Elfu og Kristjáns fyrir
börnunum batt þau saman traust-
um böndum. Þetta trausta hjóna-
band hefur áreiðanlega veitt Elfu
styrk í hennar miklu sorg.
Það er árviss venja í fjölskyld-
unni að hittast á jóladag, hjá móð-
ur minni, ömmu Elfu, Vigdísi Jak-
obsdóttur, og einmitt síðastliðin
jól var síðasta skiptið, sem við
sáum Kristján. Hvert okkar hefði
órað fyrir því, að þegar við hlust-
uðum á hann spila á píanó bæði
fyrir fullorðna og börn og var
hrókur alls fagnaðar, að þetta
væri okkar siðasta samverustund.
Við öll fjölskyldan vottum Elfu,
Karli Axel, Steingerði, foreldrum
hans og allri fjölskyldunni okkar
innilegustu samúð. Vonandi eiga
þau eftir að komast yfir þennan
mikla missi, en vissulega mun
minningin um Kristján ætíð lifa í
þeirra hugum og okkar.
Anna Jóhanna Alfreðsdóttir
Mig setti hljóðan fimmtudaginn
21. janúar er þau hörmulegu tíð-
indi bárust, að Kristján væri dá-
inn. Tveir björgunarmenn höfðu
farist við björgun skipverja af
togaranum Pelagusi, sem strand-
aði austur á Eyju, og annar þeirra
Kristján læknir. Sama máli
gegndi um aðra þá á heilsugæzlu-
stöðinni og spítalanum, sem
þekktu Kristján. Allur bærinn var
sem lamaður yfir þessum voða-
fregnum. Eg held ég verði lengi að
átta mig á að þetta er raunveru-
leiki.
Það er skammt stórra högga á
milli á meðal okkar sem urðum
kandídatar frá læknadeild Há-
skóla íslands 1977. Ragnheiður
Skúladóttir læknir lézt seint á síð-
asta ári og nú Kristján — svo
skyndilega. — Þótt við værum
skólabræður, kynntist ég Krist-
jáni ekki náið fyrr en hann kom til
starfa hingað á heilsugæzlustöð-
ina í Vestmannaeyjum í júlí 1980.
En þá eignaðist ég líka tryggan
félaga og góðan vin. Manni leið vel
í návist Kristjáns. Hann var ætíð
reiðubúinn að ræða lausn vanda-
mála, sem ég bar undir hann, og
fús að veita aðstoð. Söknuður
minn og sorg er mikil er ég sé á
eftir svo góðum dreng. Því er erf-
itt að setja sig í spor náinna ást-
vina hans. Eg bið Guð að styrkja
og blessa konu hans og börn, svo
og aðra nána ástvini í sorg þeirra
og missi.
Asmundur Magnússon
Vetrardagur. Dimmur og kaldur
vetrardagur. Bæði dimmari og
kaldari en aðrir dagar. Ekki vegna
veðráttunnar einnar. Dauðans
kalda hönd hefur verið að verki.
Höggvið þar skarð sem fæstir áttu
á von. Félaginn sem í gær var með
okkur, fullur áhuga fyrir öllum
góðum hlutum, alltaf reiðubúinn
að leggja góðu máli lið, alltaf til-
búinn til hjálpar. Hann er horfinn
og það er erfitt að gera sér grein
fyrir því að hann kemur ekki aft-
ur.
En orðstír deyr aldreigi. Og þótt
vinur okkar Kristján verði okkur
ekki lengur samferða í þessu lífi,
getur enginn frá okkur tekið
minninguna um hann. Þá minn-
ingu er gott að eiga og geyma.
Hér áður þegar sögur voru rit-
aðar, þótti það oft merki um hug-
rekki og hreystiskap ef maður vó
annan. Er ár liðu breyttist sú
hetjumynd og nú þykja þeir bestir
drengir er öðrum bjarga. Kristján
Víkingsson var einn þeirra
manna. Hans lífsstarf var að lina
þjáningar og bjarga mannslífum.
Það er táknrænt að við það starf
urðu hans ævilok. Hann hopaði
ekki af hólmi, hann hélt ótrauður
móti óvissunni, hann vissi að hans
var þörf, þetta var hluti af hans
starfi. Meira hugrekki getur eng-
inn sýnt, stærri fórn getur enginn
fært. Slíkur maður var Kristján
Víkingsson.
Við trúum því að sá heimur sem
við þekkjum sé aðeins brot af
sköpunarverki meistarans. Og
einn er sá er öllu ræður. Ef til vill
var verk að vinna annars staðar.
Ef til vill var þörfin brýnni þar en
hér. Hans vegir eru órannsakan-
legir. — Allt hefur sinn tilgang
þótt við fávísir menn skiljum
sjaldnast þann tilgang.
Við biðjum þann sem öllu
stjórnar að gefa Elfu og börnun-
um styrk og huggun. Megi sú
minning sem þið eigið megi verða
ykkur til styrktar. Sú minning
fölnar ekki né gleymist. Slíka
minningu er gott að eiga.
Auróra og Bjarni.
Kristján Víkingsson læknir er
horfinn og mig langar til að þakka
honum störfin, greiðvikni, sam-
stöðu og bróðurlega framkomu
alla tíð frá því við hófum störf hér
í Eyjum sumarið 1980.
Við gerðum okkar ávallt far um
að taka á hverjum vanda sameig-
inlega og með okkur ríkti sam-
staða og jafnræði.
+
Kveðjuathöfn um móöur okkar,
FRIDEL BJARNASON
frá Siglufirði,
veröur í Háteigskirkju mánudaginn 15. mars kl. 10.30. Jarösett
veröur frá Siglufjaröarkirkju þriöjudaginn 16. mars kl. 14.00.
Börnin.
+
ODDNÝ MAGNUSDÓTTIR,
Stigprýði, Eyrarbakka,
verður jarösungin laugardaginn 13. mars kl. 4. Rútuferö frá Um-
ferðarmiöstöðinni kl. 14.30.
Börn og tengdabörn.
+
Elsku móöir okkar, tengdamóðir og amma,
HÓLMFRÍÐUR GUDMUNDSDÓTTIR,
Hrauntungu 49, Kópavogi,
andaöist í Heilsuverndarstööinni viö Barónsstíg 28. febrúar. Jarö-
arförin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum
hjúkrunar- og starfsfólki Heilsuverndarstöövarinnar fyrir frábæra
hjúkrun og vinum og vandamönnum auösýnda samúö.
Guðmunda Þórarínsdóttír.Bragi Stefánsson,
Jensína Þórarinsdóttir, Andrés Sigurösson
og barnabörn.