Morgunblaðið - 13.03.1982, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982
Útgefandi itlilnb tt» hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, stmi 10100. Auglýsingar: Aö-
- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 110 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 7 kr. eintakiö.
Síðbúinn boðskapur,
sem segir ekkert
Iðnaðarráðherra lagði fram, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, tillögu til
þingsályktunar um virkjunarframkvæmdir og orkunýtingu, 11. des-
ember á sl. ári. Síðan líða vikur og mánuðir og það er fyrst 11. marz sl. sem
hann mælir fyrir tillögunni. Það var því með nokkurri eftirvæntingu sem
þing og þjóð beið framsögu ráðherra í þessum þýðingarmesta málaflokki
líðandi stundar; hvern veg skuli staðið að næstu stórvirkjunum og hvern
veg arðsemi þeirra og framtíðaratvinnuöryggi verði treyst með nýjum
orkuiðnaði.
Ræða ráðherra olli afgerandi vonbrigðum.
Hún spannaði að vísu fjölþættar upplýsingar um virkjunarrannsóknir og
orkunýtingarmöguleika, viðræður og nefndastörf, sem þingmenn höfðu
þegar á borðum sínum, og höfðu lengi haft, sem og allir þeir, er fylgst hafa
með þessum málaflokki. Hinsvegar skorti allt það í ræðu ráðherra, sem og
þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar, sem eftir var beðið. Ráðherra var
ekki að kunngjöra þingi og þjóð að ákvörðun hefði verið tekin um næsta
stóra virkjunarkost, Blönduvirkjun, Sultartangavirkjun eða Fljótsdalsvirj-
un. Hann var ekki að kunngera ákveðin skref í orkuiðnaði, þ.e. hvern veg
orkumarkaður skuli tryggður fyrir hinar nýju stórvirkjanir.
Raforkuframleiðsla landsins, að aflokinni Hrauneyjafossvirkjun, nægir
til að fullnægja eftirspurn almenns iðnaðar, heimilisnota og þeirrar stór-
iðju, sem fyrir er í landinu, jafnvel til loka þessa áratugar. Allt tal um
stórátök í íslenzkum orkubúskap, nýjar stórvirkjanir, er út í hött, ef ekki er
jafnframt tryggður markaður fyrir þær, nýr orkuiðnaður, sem jafnframt
eykur á fjölbreyttni atvinnutækifæra og skýtur nýjum stoðum undir lífs-
kjör í landinu. A sviði orkumarkaðar hefur orkuráðherra brugðizt jafnvel
enn rækilegar en í öðrum þáttum orkubúskapar okkar.
Ræða ráðherra vakti vissulega athygli. Ekki fyrir það, hvað í henni fólst,
heldur hitt, sem í hana skorti. Hann er maður hinna mörgu orða, það
sannaðist enn og aftur. Ákvarðanir og athafnir virðast honum hinsvegar
lítt að skapi.
Réttaröryggi á
sviði skattamála
Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokks, Matthías Á Mathiesen, Geir Hall-
grímsson og Halldór Blöndal, hafa lagt fram frumvarp til stjórnskip-
unarlaga, sem leggur bann við afturvirkri skattheimtu. Frumvarpið felur í
sér, ef samþykkt verður, að hvorki megi setja íþyngjandi reglur um skatta
á tekjur eða eignir liðins árs né afturvirkar og íþyngjandi reglur um
breytta eða nýja skattstofna. Tilgangur frumvarpsins er að auka réttarör-
yggi á sviði skattamála og setja sem gleggstar skorður við afturvirkni
skatta.
Afturvirkni skatta, sem dæmi eru um, hafa valdið skattþegum, bæði
einstaklingum og fyrirtækjum, verulegum erfiðleikum, ekki sízt þegar
gerðar hafa verið ráðstafanir um fjármál í réttmætu trausti á gildandi
skattalög.
Eins og allt er í pottinn búið með skattheimtu stjórnvalda hin síðari árin
er knýjandi að auka á réttaröryggi einstaklinga og fyrirtækja á sviði
skattamála. Þetta frumvarp er því tímabært. Vonandi fær það góðan byr í
gegnum þingið.
Auglýst eftir lánsfjáráætlun
Lánsfjárlög og lánsfjáráætlun ber að afgreiða samhliða fjárlögum. Það
fórst fyrir, eins og fleira, hjá núverandi ríkisstjórn.
Samið var við stjórnarandstöðu um þetta mál og frestur til afgreiðslu
framlengdur til 28. janúar sl. Enn bólar hinsvegar ekkert á þessum málum
frá viðkomandi þingnefnd, þótt 28. janúar sé löngu liðinn — og raunar liðið
nokkuð á þriðja mánuð þess árs, er lánsfjáráætlunin á að gilda yfir.
„Ég satt að segja botna ekkert í því af hverju fjárhags- og viðskiptanefnd
hefur þurft að taka sér svona gríðarlega langan tíma til að ræða lánsfjár-
áætlunina," segir Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra, í viðtali við Mbl. í
gær — og þykist koma af fjöllum. Hér gerizt hann og svo „stórmannlegur"
að varpa sökinni yfir á þingnefnd, sem lýtur forystu Halldórs Ásgrímsson-
ar, sem síður en svo hefur orð á sér fyrir sleifarlag í vinnubrögðum. Enda
mun upplýsingavöntun. m.a. frá fjármálaráðherra, vera meginorsök drátt-
arins á afgreiðslu málsins — og ekki eru menn grunlausir um, að skiptar
skoðanir í stjórnarliðinu um lánastefnuna komi og við sögu.
Nýlega undirritaði fjármálaráðherra stórlán, 720 m.kr., í Lundúnum,
auðvitað afborgunarlaust fyrstu árin, til að vera þeirri stjórnarstefnu trúr,
að velta greiðsluvandanum yfir á framtíðina. Þetta lán hefur ekki verið
hægt að hefja vegna þess að til þess skortir heimild, þar eð lánsfjárlög og
lánsfjáráætlun er óafgreidd.
Það er margt sem vanda veldur hjá samstarfsaðilum í ríkisstjórn þessa
dagana. Ekkert fast land er undir fótum varðandi ákvarðanir í orkumálum,
hvorki virkjunarkosti né orkuiðnað. Stjórnarliðið hefur gagnstæðar skoð-
anir á því, hvort og hvernig eigi að taka á Blönduvirkjun. Allt virðist upp í
loft á stjórnarheimilinu varðandi Helguvíkurmál, flugstöð og flugskýli á
Keflavíkurflugvelli. Eitthvað virðast og skiptar skoðanir um flugtækni
samgönguráðherra, svo ekki sé meira sagt, í hans málaflokkum. Og loks
liggur við að auglýsa þurfi eftir lánsfjárlögum og lánsfjáráætlun ríkis-
stjórnarinnar. Það er stand á Goddastöðum, segir gamall orðskviður.
Forystugreinar
og Ríkisútvarpið
Á vegum fréttastofu út-
varpsins eru forystugreinar
dagblaðanna styttar til lest-
urs í morgunútvarpi. Sam-
kvæmt upplýsingum, sem
fram komu í svari Ingvars
Gíslasonar, menntamálaráð-
herra, við fyrirspurn frá
Vilmundi Gylfasyni á Alþingi
17. nóvember sl. kostaði það í
október sl. 8.422 kr. á mánuði
að stytta forystugreinar dag-
blaðanna. Frá 1. október 1981
var sú tillhögun ákveðin af
útvarpsráði, að forystugrein-
ar dagblaðanna skuli berast
útvarpinu fyrir klukkan 17 og
skal þá útdráttur úr þeim
ekki vera lengri en ca. ein og
hálf mínúta í lestri. Þeir rit-
stjórar, sem sjálfir stytta for-
ystugreinar sínar, þurfa ekki
að skila þeim fyrr en fyrir kl.
20,
I tilefni af þessari
ákvörðun útvarpsráðs sendi
Morgunblaðið útvarpinu bréf
hinn 7. október 1981. Þar seg-
ir; „Lestur leiðara í útvarp
var ekki hafinn að ósk Morg-
unblaðsins, heldur sam-
kvæmt ákvörðun útvarpsráðs
á sínum tíma. Leiðarar Morg-
unblaðsins eru skrifaðir til
birtingar í blaðinu fyrir les-
endur þess, en ekki til upp-
lestrar í útvarpi. Morgun-
blaðið getur ekki miðað skrif
leiðara sinna við þann tíma
sem hentar Ríkisútvarpinu.
Ef lestri leiðara er haldið
áfram vill Morgunblaðið því
benda Ríkisútvarpinu á að
lesa leiðara blaðsins daginn
eftir, enda komi það skýrt
fram að svo sé, og komi þetta
fyrirkomulag til fram-
kvæmda nú þegar."
Sunnudaginn 7. mars sl.
gerðist það, að í útvarpi var
lesinn útdráttur úr forystu-
grein Morgunblaðsins, sem út
kom þann dag. Nýr útdráttur
úr sömu forystugrein var les-
inn í útvarpi þriðjudaginn 9.
mars. Hins vegar var forystu-
grein blaðsins, sem birtist
laugardaginn 6. mars aldrei
lesin í útvarp. Tveir frétta-
menn útvarpsins sömdu út-
drættina. Lesendum blaðsins
til fróðleiks er umrædd for-
ystugrein birt hér í heild
ásamt mati fréttamannanna
á því, hvernig hún skyldi
kynnt á öldum ljósvakans.
Morgunblaðið lætur lesend-
um sínum eftir að leggja dóm
á túlkanir fréttamanna út-
varpsins, en eitt er víst: af-
staða blaðsins til þessa við-
kvæma alþjóðamáls kom ekki
fram í Ríkisútvarpinu, hvorki
sunnudaginn 7. mars né
þriðjudaginn 9. mars — og
óvíst er hvort hún kemst
nokkurn tíma til skila á þeim
vettvangi, þrátt fyrir að hún
sé afdráttarlaus í forystu-
grein blaðsins.
Útdráttur lesinn
7. mars eftir Hall-
grím Thorsteinsson
Morgunblaöið segir meðal ann-
ars í forystugrein: Undanfarna
mánuði hefur verið háð tvíþætt
stríð um smáríkið E1 Salvador.
Annars vegar um völdin í landinu.
Hins vegar áróðursstríð á al-
þjóðavettvangi. í áróðursstríðinu
eru Bandaríkin og Sovétríkin
helstu þátttakendur. Bandaríkja-
stjórn styður stjórnina í E1 Salva-
dor opinberlega og þar eru 55
bandarískir hernaðarráðgjafar.
Sovétstjórnin kýs þær aðferðir,
sem henni eru kærastar í öllum
löndum öðrum en Afganistan og
Austur-Evrópu: Hún leitast við að
dylja hernaðarlegan stuðning
sinn við öfgamenn til vinstri,
kommúnista og aðra. Allir frjáls-
huga menn hljóta að vona, að lýð-
ræðissinnaðir vestrænir jafnað-
armannaflokkar tapi ekki áttum í
þessum átökum, því að þeir hafa
til þessa verið í fylkingarbrjósti
þeirra, sem staðið hafa vörð um
frið og frelsi á Vesturlöndum.
Fyrir réttri viku flutti Jóhannes
Páll páfi annar ræðu á Péturs-
torginu í Róm og tók undir eftir-
farandi áskorun biskupanna í E1
Salvador vegna borgarastríðsins:
„Við teljum að deilan, sem á sér
innlendar orsakir, hafi verið færð
yfir á alþjóðavettvang, þannig að
það sé ekki lengur á valdi E1
Salvador-manna sjálfra að leysa
deiluna. Staðreynd er að stórveld-
in leggja sitt af mörkum til að
viðhalda ágreiningnum." Páfi tók
einnig undir hvatningu biskup-
anna að sem flestir tækju þátt í
kosningunum eftir þrjár vikuf.
Þetta er alvarleg áminning til
allra þeirra, sem telja sér það til
dæmis til pólitísks framdráttar í
heimalöndum sínum að hampa
borgarastríðinu í E1 Salvador.
Þetta var úr forystugrein Morg-
unblaðsins.
Útdráttur lesinn
9. mars eftir Einar
Örn Stefánsson
MORGUNBLAÐIÐ segir meðal
annars í forystugrein í fyrradag:
Undanfarna mánuði hefur verið
háð tvíþætt stríð um smáríkið E1
Salvador í Mið-Ameríku. Annars
vegar borgarastríð um völdin í
landinu. Hins vegar áróðursstríð
á alþjóðavettvangi. í áróðurs-
stríðinu eru Bandaríkin og Sov-
étríkin helstu þátttakendur.
Bandaríkjastjórn styður ríkis-
stjórnina í EI Salvador opinber-
lega og þar eru 55 bandarískir
hernaðarráðgjafar. Sovétstjórn-
in kýs þær aðferðir, sem henni
eru kærastar, í öllum löndum
öðrum en Afganistan og Aust-
ur-Evrópuríkjunum: hún leitast
við að dylja hernaðarlegan
stuðning sinn við öfgamenn til
vinstri, kommúnista og aðra.
Ýmsir þeir, er hafna alræðis-
stjórnarfari Sovétmanna, vilja
hlut vinstri skæruliða í E1 Salva-
dor sem mestan. Til dæmis hefur
alþjóðahreyfing jafnaðarmanna
gengið mjög langt í stuðnings-
yfirlýsingum við vinstri skæru-
liða og heldur í raun með þeim
aðila í E1 Salvador, er berst við
stjórnarherinn. Allir frjálshuga
menn hljóta að vona að lýðræð-
issinnaðir, vestrænir jafnaðar-
mannaflokkar tapi ekki áttum í
þessum átökum. Kaþólska kirkj-
an hefur verið á mörkum þess að
teljast liðsmaður vinstri sinn-
aðra stjórnarandstæðinga í E1
Salvador. Borgarastríð í E1
Salvador verður ekki til lykta
leitt i átökum milli stjórnmála-
manna á Islandi eða annars
staðar, þar sem lýðræði ríkir og
borgararnir hafa rétt til að láta
skoðanir sínar í ljós. — Þetta
var úr forystugrein Morgun-
blaðsins í fyrradag.
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7 MARZ 1982
Utgefandi hf Arvakur, Reykjavfk.
Framk væmdastiori Haraldur Sveinsson
Ritstjórar Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson
Fulltruar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Johannsson
Frettastiorar Freysteinn Jóhannsson.
Magnus Finnsson.
Sigtryggur Sigtryggsson
Auglysmgastjóri Baldvin Jónsson
Ritst|orn og skrifstofur Aðalstraeti 6, simi 10100 Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, simi 22480 Afgreiósla: Skeifunni 19, simi 83033 Askrift-
argjald 110 kr á manuói -nnanlands ( lausasölu 7 kr eintakió
Salvador, þar sitja vinir Sov-
étríkjanna og Kúbu á valda-
stólum og verja fé or kröftum
til aö koma á fót ofluRasta her
i Mið-Ameríku.
Kf litið er til stöðunnar á
alþjoðavettvanRÍ, er raunar of
einfalt að draga mörkin ein-
vorðunRu á milli Bandaríkja-
manna ojj Sovétmanna. Ymsir
þeir, er hafna alræðsisstjórn-
arfari Sovétmanna, vilja hlut
vinstri skæruliða í Kl Salvador
sem mestan. Til dæmis hefur
alþjóðahreyfinR jafnaðar-
manna Rentfið mjö« langt í
stuðninjfsyfirlýsingum við
vinstri skæruliða or heldur í
raun með þeim aðila í Kl
Undanfarna mánuði hefur
verið háð tvíþætt strið
um smáríkið Kl Salvador í
Mið-Ameríku Annars ve^ar
Ujruarastrið um voldin í land-
inu llins vejfar áróðursstríd á
alþjí'jðavettvangi.
I borgarastríðinu takast á
þrir aðilar: Ofgamenn til
hæjtri, fulltrúar jfomlu land-
eigendanna, sem farið hafa
með oll vold í landinu með
stuðningi ólíkra fvlkinga í
hernum Kíkisstjórnin, sem
u|»iihaflega var mynduð sem
miðjuafl, en færst hefur yfir á
hæj»ri vænjíinn vejjna þess að
hinir vinstri sinnuðu hafa kos-
ið vopnin i stað ráðherrastóla
Ofjíamenn til vinstri, sem
stofnaö hafa skæruliðasveitir
ojí herja á stjórnarhermenn.
í ároðursstríðinu á alþjóða-
vettvanjfi eru Handaríkin ojí
Sovétríkin helstu þátttakend-
ur. Handaríkjastjórn styður
ríkisstjórnina í Kl Salvador
Tvíþætt stríð
um É1 Salvador
ojtinberleKa oj{ þar eru 55
handarískir hemaðarráðjyaf
ar. Sovétstjórnin kýs þær að-
ferðir, sem henni eru kærast-
ar, í öllum löndum öðrum en
Afganistan og Austur-Kvr-
ópuríkjunum: hún leitast við
að dylja hernaðarlej;an stuðn-
inj{ sinn við ofgamenn til
vinstri, kommúnista og aðra.
Sovétmenn oj{ Kúbumenn
þræta ekki lengur fyrir það, að
kúbanskir hermenn berjist
með „þj(>ðfrelsisöflum“ i Afr-
iku. Hins vejjar láta þessir
somu aðilar svo, sem hendur
þeirra séu hreinar af blóðbað-
inu í Kl Salvador ojí sömu sögu
er að sejya um ráðamenn i
Nicarajíua, nágrannariki K1
Salvador, er berst við stjórn-
arherinn. Má lesa þann stuðn-
ing út úr ýmsum yfirlýsinj?um
alþýðuflokksmanna hér á
landi ok þeim hefur tekiat í
þessu máli að vera á undan
Alþýðubandalajíinu meö yfir-
lýsinjíu, sem það hefði gjarnan
viljað hafa forgongu um. Má
líklejfa rekja viðhorf jafnað-
armanna til þessa máls til
þeirrar miklu atlogu. sem alls
kyns vinstri sinnar gera nú að
flokkum þeirra víða um lönd,
atloj;u, sem einkennist mjöj; af
almennt neikvæðu viðhorfi til
Handaríkjanna. Allir frjáls-
huga menn hljóta að vona að
lýðræðissinnaðir, vestrænir
jafnaðarmannaflokkar tapi
ekki áttum í þessum átökum,
því að þeir hafa til þessa verið
í fylkinjíarbrjósti þeirra, sem
staðið hafa vörð um frið .og
frelsi á Vesturlöndum. Enjjum
lýðræðislenum stjórnmála-
flokki íslenskum er unnt að
óska þess, að hann lendi í jafn
miklum ogongum i oryggis- og
sjálfstæðismálum or Alþýðu-
bandalajíið
Kaþolska kirkjan hefur orð-
ið leiksoppur í borjtarastriðinu
í El Salvador. Kirkjunnar
þjónar, biskupar, nunnur o«
prestar, hafa fallið fyrir vopn-
um launmorðinjoa oj» orðið að
þola hin verstu örlöj(. Kaþ-
ólska kirkjan hefur verið á
morkum þess að teljast liðs-
maður vinstri sinnaðra stjórn-
arandstæðinRa í El Salvador.
Við mat í því efni skiptir
miklu, hvaða afstoðu menn
hafa til kosninjtanna til
stjórnlaj(aþinj<s, sem fram
eij»a að fara í El Salvador 28.
mars næstkomandi. Vinstri
menn í El Salvador sej»ja þess-
ar kosninjjar marklausar og
vilja að sem fæstir kjósendur
láti álit sitt í Ijós, stjórn-
arskráin, sem hið nýja þinjg á
að semja, verði aðeins enn eitt
plagj'ið til að trygjya völd
hers, landeijjenda oj( yfirstétt-
ar. Ymislej(t bendir til þess, að
þessi aðför vinstri manna að
kosninjíunum njóti ekki al-
mennra vinsælda í El Salv-
ador, almenningur flykkist
ekki til stuðninKS við skæru
liða oj/ bændur eru alls ekki
alfarið andvíj;ir áætlun ríkis-
stjórnarinnar um skiptinjtu
landareigna gósseigenda
Fyrir réttri viku flutti Jó-
hannes Páll páfi II ræðu á
Péturstorginu í Róm oj; tók
undir þessa áskorun biskup-
anna í El Salvador vej»na
borgarastriðsins: „Við teljum
að deilan. sem á sér innlendar
orsakir, hafi verið færð yfir á
alþjóðavettvanj;, þannij; að
það sé ekki lenjjur á valdi Kl
Salvador-manna sjálfra að
leysa deiluna. Staðreynd er að
stórveldin lej»jya sitt af mörk-
um til að viðhalda á«reininj;n-
um.“ Páfi tók einnij; undir
hvatnmjíu biskupanna um að
sem flestir tækju þátt i kosn-
injjunum eftir þrjár vikur. Orð
páfa ok biskupanna í El Salv-
ador verða ekki skilin á annan
vck en þann, en þeir telji áróð-
ursstríðið á alþjóðavettvanKÍ
spilla fyrir friði í Kl Salvador.
Þetta er alvarle^ árninninK til
allra þeirra, sem telja sér það
til dæmis til pólitísks fram-
dráttar I heimalondum sínum
að hampa borKarastríðinu í El
Salvador. Hér á þessum stað
hefur áður verið spurt af því
tilefni: llvar er umhyKKja
þessara manna fyrir íbúunum
í Kl Salvador? „Vopnin koma
frá útlondum en hinir dauðu
eru allir af okkar þjóö,“ hafði
páfi eftir Rivera I. Damas,
biskupi i hofuðborj/inni San
Salvador.
BorKarastríðið í El Salvador
verður ekki til lykta leitt í
átökum milli stjórnmála-
manna á íslandi eða annars
staðar, þar sem lýðræði ríkir
ok borgararnir hafá rétt til að
lála skoðanir sínar i Ijós. í
þessum orðum felst alls ekki
krafa um að menn láti af um-
ræðum um stríðið í El Salv-
ador, hins ve^ar skulum við
taka undir með Jóhannesi Páli
páfa II ok biskupunum í El
Salvador og biðja þess, að
þjóðinni sjálfri takist að leiða
deilur sínar til friðsamleKra
lykta með frelsi til orðs ok æð-