Morgunblaðið - 13.03.1982, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.03.1982, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982 og samfélag Hétt læðuval: Sykur eftir dr. Jón Úttar Ragnarsson dósent Leit mun að þjóð sem tók eins vel á móti sykrinum og Islend- ingar. Og fáir hafa borðað þessa fæðutegund með meiri hjartans lyst og jafnframt orðið eins fyrir barðinu á henni og einmitt þeir. Segja má að sykurinn hafi komið eins og holskefla þegar hann fór að fást á viðráðanlegu verði eftir miðja síðustu öld (sjá mynd). íslendingar voru ekki einir um að vilja sykur. Útbreiðsla syk- ursins eftir 1850 var alþjóðlegt fyrirbæri sem átti sér bæði líf- fræðilegar og félagslegar rætur. Fram að þessum tíma höfðu aðeins þeir ríku haft efni á að borða sykurinn. Hann var því orðinn stöðutákn. Auk þess var hann hvítur, en það var jú litur hreinlætis og heilbrigði. Hér heima var sykurinn vel þegin viðbót við einhæft fæði sem kom aðallega úr dýraríkinu. í salt- og kryddlausu landi varð sykurinn bæði bragðbót og gleði- gjafi. Fáa grunaði að í kjölfarið mundi sigla áður óþekktur sjúkdómur. Ekki var heldur vit- að um áhrif sykursins á aðra sjúkdóma, hvað þá um öll bæti- efnin sem hverfa við sykur- hreinsun. Tannviðgerðir hafa sennilega kostað Islendinga um 10 millj- FÆÐA <)(; HEILBHKiDI arða gamalla króna á síðasta ári. Til viðbótar þyrfti að reikna öll önnur heilsuspillandi áhrif syk- ursins, en þau er ennþá ógern- ingur að mæla. TANNÁTA Fyrstu merki um tannátu (tannskemmdir) hér á landi voru nokkrar holur í tönnum á haus- kúpu Jóns biskups Árnasonar í Skálholti (d. 1743). Hundrað ár- um síðar var þessi sjúkdómur orðinn landlægur. Um 1880 hafði tannátan breiðst til allra landsfjórðunga. Áttatíu árum síðar, árið 1962, sýndu rannsóknir að 37% kvenna á aldrinum 35—44 ára voru tannlausar með öllu og 19% karla. Snemma byrjaði menn að gruna að tannátan stæði í sam- bandi við sykurneysiuna. Það var þó ekki fyrr en eftir miðja þessa öid að þessi tengsl voru sönnuð. Sykurneyslan var orðin mikil um síðasta stríð, en hún hefur aukist töluvert síðan. Hins vegar hefur tíðni tannskemmda rénað nokkuð á síðustu árum, einkum vegna fyrirbyggjandi starfs tannlækna. SYKUR OG TANNHEILSA Tannátan á mesta sök á því að fólk missir tennur fyrri hluta ævinnar. Tannholdsbólga er hins vegar mun alvarlegra vandamál á fullorðinsárum. Frumorsök tannátu er sú að örverur eru eins mikið fyrir syk- ur og maðurinn. Þegar sykurs er neytt streymir hann um tenn- urnar. Gerlar í munninum gerja hann í sýru sem brýtur niður gler unginn. Þetta væri ekki svo slæmt ef sumir gerlar smituðu ekki frá sér efni sem myndar skán utan á tönn- unum. í henni halda gerlarnir til. Skánin ásamt gerlunum kallast tannsýkla. Tannsýklan er þykkust á tann- hálsinum og er það sterk að hún næst aðeins af með rækilegri burstun. Því þarf að hreinsa tenn- ur mjög rækilega við og við til að losna við tannsýkluna. Ef 1—2 mg af flúor er neytt dag- lega á tannmyndunarskeiði (1—12 ár) minnka tannskemmdir að jafn- aði um 50—70% Gengur flúorinn inn í glerunginn og styrkir hann gegn sýrum. Því miður hefur drykkjarvatn ekki enn verið flúorbætt hér á landi. Verður því að treysta á flúortöflur. Fá börnin þær af- hentar í skólunum, en foreldr- arnir eiga að sjá um flúorgjöf- ina. HVAÐAN KEMUR SYKURINN? Allur sykraður matur veldur tannskemmdum. Gildir einu hvort það er hvítur sykur, brúnn sykur, síróp, sælgæti eða gos. Undantekning eru afurðir með gervisykri (sýklamat og sakkar- ín). Þær fæðutegundir sem mest æta eða skemma tennurnar, þ.e. hafa mesta ætni, eru þær sem loða fastast við þær. I þessum flokki eru t.d. karamellur og brjóstsykur. I ferskum ávöxtum er talsvert Fljótsdalsvirkjun strax er besti valkosturinn eftir Sigurö Helgason, bœjarfógeta Lítið hefur verið rætt í fjölmiðl- um um kosti Fljótsdalsvirkjunar og er stundum látið í ljósi af áhyrgum aöilum að hefja megi framkvæmdir við Fljótsdalsvirkj- un samhliða öðrum virkjunar- framkvæmdum. Allar umræður um þessi mál eru svo óljósar og mér tjáð lítt kannaðar, og engar upplýsingar liggja fyrir um heildarkostnað fyrir Fljóts- dalsvirkjun, ef slík áfangaskipti verði viðhöfð. Ný verkhönnun liggur nú fyrir í nýbirtri skýrslu frá Verk- fræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf., sem send hefur verið til Raf- magnsveitna ríkisins, kemur fram, að verkhönnun er á loka- stigi. Gert er ráð fyrir, að virkjun- artilhögun verði í meginatriðum hin sama og síðustu áætlanir gerðu ráð fyrir. Heildarorku- vinnslugeta hefur þó breyst og er gert ráð fyrir 252 Mw virkjun í stað 290 Mw, sbr. eldri áætlun. Aðalbreyting er minnkun Eyja- bakkamiðlunar og aðrar minni- háttar breytingar, sem hafa komið •» „Adalgrundvöllur fyrir umræddri virkjun er, að nægur markaður verði fyrir orkuna. Að mínu mati eru á því góð- ir möguleikar, ef þeir sem hafa á höndum yfir- stjórn þessara mála, svo og aðrir sem mál þetta snertir, taki höndum saman og geri átak í þessum efnum.“ tíðkast hefur við slíkar fram- kvæmdir. I framangreindri heild- arfjárhæð er gert ráð fyrir kostn- aði við allar fyrirhugaðar fram- kvæmdir. Helstu liðir eru fjórar miðlanir, Eyjabakkamiðlun 540 Gl, Gilsárlón 103 Gl, Hólmalón 17 Gl, Hölknárlón 10 Gl, eða samtals 670 Gl, svo og aðrennslisskurði, fjallgöng, stöðvarhús, frárennslis- göng og frárennslisskurði. Einnig er meðtalin í heildarkostnaði kostnaður fyrir ófyrirséð, hönnun og umsjón, undirbúningskostnað- ar og fjármagnskostnaðar. Um- rædda skýrslu tóku saman Loftur Þorsteinsson og Sigmundur Frey- steinsson. í Ijós við mælingar og rannsóknir. Heildarkostnaður er áætlaður 2313 m.kr. miðað við verðlag og gengi í desember 1981. í þessum kostnaði er ekki gert ráð fyrir bót- um fyrir landspjöll né greiðslur fyrir vatnsréttindi, en samningar hafa verið gerðir um hvorttveggja að því ég best veit og er hér því ekki um óþekktar fjárhæðir að ræða og lögð er áhersla á það, að fullt samkomulag hefur náðst milli aðila, sem mál þetta snertir. Þá er gert ráð fyrir, að virkjunar- aðili verði undanþeginn greiðslu á söluskatti og aðflutningsgjöldum af vélum og rafbúnaði, eins og Kostir virkj- unarinnar Mörg sterk rök mæla með Fljótsdalsvirkjun og mun hér reynt að gera grein fyrir nokkrum þeirra. 1) Virkjun Jökulsár á Fljótsdal er sjálfstæður upphafsáfangi Austurlandsvirkjunar, en þar eru einhverjir bestu framtíðarmögu- leikar orkuvinnslu hér á landi og einn mesti framtíðarfjársjóður landsins er þar geymdur. Ekki liggur enn ljóst fyrir heildarorku- vinnsla, en frumathuganir gera ráð fyrir uppsett afl Brúarvirkj- * * • *' unar 882 Mw og Hafrahvamma- virkjunar 460 Mw og svo blasa við fleiri virkjunarmöguleikar. 2) Könnun með borunum á berginu á þessu svæði gefa ótví- rætt til kynna, að það sé tiltölu- lega þétt og er því lekahætta lítil, en það er eitt mesta vandamál við virkjunarframkvæmdir í dag. Tal- ið er, að sprunguhætta sé mjög lítið, eða nær engin, og engar hreyfingar á sprungum hafa fund- ist. Ekkert eldfjall er virkt á þessu svæði, en Snæfellið er talið út- dautt. Fullvíst má telja, að not- hæft byggingarefni sé á þessu svæði og gott efni í stíflugerðir er fyrir hendi. 3) Allt rennsli á vatnasviði Fljótsdalsvirkjunar utan jökul- hluta Jökulsár og Kelduár hefur einkenni dragár með óverulegri útjöfnun. Berggrunnur er þéttur og lindarrennsli því hverfandi. Umrædd miðlunarlón tryggja að gera má ráð fyrir litium sveiflum i orkuvinnslu, en það er mjög þýð- ingarmikið, enda er orkuskortur orðinn árviss hér á landi. Frá miðlunarlóni á Eyjabökkum er ráðgert að veita Jökulsá á Fljótsdal og öðrum ám er við sögu koma, um skurð á Fljótadalsheiði í inntakslón virkjunarinnar. Valin hefur verið skurðleið, svo og skurðsnið og mörg tæknileg vandamál leyst. Enda þótt gerð þessa skurðar sé eitt mesta tækni- vandamál þessarar virkjunar, þá hafa sérfróðir menn talið sig geta leyst þennan vanda, enda höfum við öðlast mikla reynslu við að glíma við erfiðar aðstæður og veðráttu í hálendi landsins. Getum við selt orkuna? Aðalgrundvöllur fyrir um- ræddri virkjun er að nægur mark- aður verði fyrir orkuna. Að mínu mati eru á því góðir möguleikar, ef þeir sem hafa á höndum yfirstjórn þessara mála, svo og aðrir sem mál þetta snertir, taki höndum saman og geri átak í þessum efn- um. Nánar verður hér gerð grein fyrir ýmsum möguleikum: *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.