Morgunblaðið - 13.03.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.03.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982 25 Rangá að lesta á Spáni fyrir nokkrum dögum, áður en skipið lagði upp { sína fyrstu för, en eins og sjá má er merki Hafskips á skipinu og nafn. Spsnskum skipverja af Rangá bjargað á land úr skipinu á strandstað við Counenoole-flóa á frlandi. Spænskt skip undir íslenzkum fána á vegum Hafskips: Hrakti vélarvana , upp í hamra írlandsstrandar Fimmtán manna spænskri skipshöfn bjargað af landi og úr lofti FIMMTÁN manna áhöfn, á nýsmíðuðu vöruflutningaskipi, sem Hafskip var að fá til landsins á kaupleigusamningi, var bjargað í land við illan leik þegar skipið strandaði við vestur- strönd Irlands í gærmorgun ,í illviðri sem gekk yfir á þeim slóðum. Var sjómönnunum, sem allir voru spænskir, bjargað af þyrlum og í björgunarstólum í línu sem skotið var út í skipið á strandstað. Foráttubrim var á strandstað í gær og var skipið þegar byrjað að liðast í Aðdragandi slyssins var sá, að bilun varð í skipinu þegar það var á leið með vestur- strönd Irlands og leitaði skip- stjórinn vars til þess að fram- kvæma viðgerð á vél. Var skip- inu siglt í skjól og ankerum varpað, en skyndilega breytti um vindátt og sjó ýfði snar- lega. Réðu skipverjar ekki neitt við neitt og skipið rak upp í klettaströnd þar sem það steytti á skerjum. Björgun- arsveitir brugðu skjótt við, og var 8 skipverjum bjargað um borð í þyrlur, en sjö voru dregnir í land í björgunarlínu og voru nokkrir þeirra sjó- sundur. dregnir í brimgarðinum við ströndina. Enginn slasaðist al- varlega. Skipið er í eigu spænska skipasmíðafélagsins, sem jafnframt er útgerðarfyrir- tæki og rekur margs konar starfsemi tengda siglingum á sjó. Það var leigt til Hafskips á svokölluðum kaupleigu- samningi, en skipið er metið á um 6 millj. dollara. Hafskip hafði ráðgert að fá reynslu á skipið áður en gengið yrði end- anlega frá kaupsamningum, að sögn Ragnars Kjartansson- ar forstjóra. Iscargo hefur enn flugrekstrarleyfi og starfar áfram — segir Kristinn Finnbogason og segir ad sölu- verðið á eignunum til Arnarflugs sé eðlilegt VEGNA misskilnings, sem ég hefi orðið var við langar mig að taka fram að hlutafélagið íscargo er enn við lýði, hefur enn flug- rekstrarleyfi og mun starfa áfram þrátt fyrir að það hafl skilað til samgönguráðuneytisins leyfum sem það hafði til reglubundins flugs með farþega og vörur til Ilollands og vörur til Englands og Danmerkur, því eftir sem áður hefur íscargo leyfl til að stunda óreglubundið flug, sagði Kristinn Finnbogason framkvæmdastjóri íscargo í samtali við Mbl. í gær. Kristinn Finnbogason sagði að íscargo ætti DC-6 vöruflutn- ingavél, sem yrði notuð til að sinna óreglubundnu fraktflugi, sem hann vonaðist til að gæti hafist innan mánaðar. Myndi íscargo opna nýja skrifstofu að Lindargötu 14 kringum 20. mars nk. Starfsfólki yrði fækk- að nokkuð, en nokkrir myndu áfram starfa á skrifstofu svo og flugmenn. — Okkur stendur t.d. til boða að hefja aftur flug til írans þegar stríðinu milli írans og Iraks lýkur, en þar höfðum við mikil verkefni. En þar sem erfiðleikar steðjuðu að fyrir- tækinu ákvað stjórnin að gera þessar breytingar og nú mun- um við snúa okkur að því að byggja reksturinn upp á ný. Fjármagnskostnaður DC-6 vél- arinnar er lítill og með minni fjármagnskostnaði og lítilli yf- irbyggingu höfum við fullan hug á að starfa áfram, sagði Kristinn ennfremur. Betri en aðrar vélar — Einnig langar mig að svara því sem Flugleiðamenn hafa haldið fram varðandi sölu- verð á Lockheed Electra flugvél okkar og öðrum eignum er seld- ar voru Arnarflugi, að það sé of hátt, sagði Kristinn. — Talað er um að nú séu fjölmargar slíkar vélar til sölu og markaðsverð þeirra sé á bilinu 700.000 til 1.900.000 dalir. Okkar vél var seld fyrir 2.350.000 dali, sem er sama verð og Perúmenn gátu keypt vélina á, en urðu að hætta við þar sem þeir fengu ekki lánafyrirgreiðslu. Vélin kostar þetta einfaldlega af því að hún er betri en aðrar vélar af þessari tegund. Flugvélin var nánast endur- byggð um það leyti sem Iscargo keypti hana. Vængir eru nýir, allar skrúfur eru nýjar, en hver þeirra kostar kringum 80 þús- und dali og þeir vélarhlutar sem háðir eru flugtíma eru lítið notaðir, enda var heildarflug- tími vélarinnar ekki mikill þeg- ar við keyptum hana. Arnar- flug keypti einnig varahluti sem kostuðu 200 til 300 þúsund dali, tæki og verkfæri á verk- stæði, lestunar- og losunarbún- að, lyftur og pallabúnað, gang- setningarbúnað, bíl og húseign- ir. Mér finnst því undarlegt að heyra það frá Flugleiða- mönnum að flugvélar séu metn- ar of hátt. Þeir meta eigin flugvélakost hátt og sem dæmi um það má nefna að DC-8 þotur þeirra þrjár eru metnar á 10,2, 10,6 og 13 milljónir dala, eldri Boeing 727 þoturnar á 2,3 og 4,6 millj. dala og sú nýjasta á 15,6 millj. dala. Eg fullyrði að DC-8 þoturnar myndu ekki seljast á meira en 6 til 6,5 millj. dala, gömlu Boeing þoturnar á um 2 millj. dala og sú nýja á 9,5 millj. dala. Mér finnst eðlilegt þegar flugvélar eru metnar að á þær sé horft með sömu gleraug- unum, sagði Kristinn Finn- bogason. Stöndum við skuldbindingar í stjórn íscargo eru auk Kristins, Árni Guðjónsson, sem er formaður, Jóhann Lyngdal, Lárus Gunnarsson, Reidar Kolsöe, Ljótur Ingason, Björg- vin Árnason og Sigurður Gísla- son. — Meginþorri þeirra eru starfsmenn og þetta eru stærstu hluthafarnir, sagði Kristinn. — Enginn á þó veru- legan meirihluta og ég fullyrði að við höfum ekki tekið að okkur meiri skuldbindingar en við höfum getað staðið við, enda hefur íscargo alltaf staðið á eigin fótum, tekið áhættu, menn gengið persónulega í ábyrgð fyrir skuldbindingum og við höfum ekki ríkið eða aðra sjóði til að styðja okkur, sagði Kristinn Finnbogason að lokum. Tollafgreiðslu- gjaldið veldur töfum í af- greiðslu Tollafgreiðslugjald ríkisstjórn- arinnar, 1%, sem samþykkt var á Alþingi fyrir skömmu veldur töf- um á tollafgreiðslu á Tollstjóra- skrifstofunni. Samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins hafa toll- afgreiðslur taflzt um allt að eina viku vegna þess hve útreikningur og framkvæmd gjaldsins eru flók- in. Morgunblaðið ræddi í gær við Karl F. Garðarsson, skrifstofu- stjóra Tollstjóraskrifstofunnar og sagði hann það rétt vera að framkvæmd gjaldsins væri mjög tafsöm og flókin og ætti að halda sama afgreiðsluhraða og verið hafi, þyrfti að auka starfslið skrifstofunnar frá því sem nú er. Karl sagði að ekki hefði verið óskað eftir neinum breytingum á þessari fram- kvæmd gjaldsins, hún væri bundin í lögum og reglugerð og það væri val stjórnvalda, hvert þjónustustig þeir vildu halda á skrifstofu tollstjóra. Karl F. Garðarsson kvað breytingar á framkvæmd gjaldsins hugsanlega geta orsakað tekjutap ríkissjóðs. Hann kvað tollstjóraskrifstof- una í raun ekki hafa neina sér- staka skoðun á lögunum og því sem að baki lægi, hún væri ein- ungis framkvæmdaaðili, sem færi að lögum og reglum, sem settar væru. Hitt væri stjórn- valda að ákveða, hvort það sætti sig við, á hvern hátt gjaldið framkvæmdist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.