Morgunblaðið - 13.03.1982, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982
47
Anders Dahl búínn að skrifa
undir samning við KR
— þjálfar og leikur með meistaraflokki
félagsins í handknattleik næsta tímabil
„VIÐ HÖFUM nú fengið endanlegt
svar frá Anders Dahl og hann er
ákveðinn í því að koma til KR og
leika og þjálfa hjá okkur næsta
keppnistímabil. Hann hefur undirrit-
að samninga og það er búið að
ganga endanlega frá öllum þessum
málum," sagði Gunnar Hjaltalín er
Mbl. spjallaði við hann í gærdag.
Að sögn Gunnars hefur Anders
mikinn áhuga á því að koma
hingað til lands um páskana og
hefja þá allan undirbúning fyrir
næsta tímabil. En Anders mun
koma með fjölskyldu sína til
landsins um miðjan júní og byrja
þá á fullum krafti með leik-
mönnum KR að undirbúa næsta
keppnistímabil. Sjálfur mun hann
æfa af fullum krafti þar sem hann
verður lykilmaður KR-liðsins.
Anders mun þjálfa meistara-
flokk KR og 2. flokk. En jafnframt
mun hann hafa umsjón með þjálf-
un allra yngri flokka félagsins og
vera með námskeið fyrir þá þjálf-
ara sem starfa á vegum KR. Sér-
stakt leyfi mun þurfa hjá ÍSÍ til
þess að Anders geti leikið með KR
en Gunnar Hjaltalín, formaður
handknattleiksdeildarinnar, taldi
ekki nein vandkvæði á að fá það.
Þess má geta að á því keppnis-
tímabili sem nú er að ljúka eru
allir yngri flokkar KR í úrslitum í
íslandsmótinu i handknattleik.
Góður árangur það. Þannig að
ekki skortir efniviðinn hjá félag-
inu á handknattleikssviðinu. Nú
um helgina munu KR-ingar ganga
í hús í vesturbænum og selja
happdrættismiða til þess að
standa undir þeim mikla kostnaði
sem framundan er hjá deildinni.
— ÞR.
íslensku handknattleiksliði
boðið á stórmót í Þýskalandi
VKSTUR-þýska handknattleikssam-
bandið hefur boðið íslensku 1. deild-
ar liði til þátttöku á hinu árlega
Niedersaxe-cup sem haldið er í
Norður-Þýskalandi og fer næst fram
í janúar á næsta ári. KR tók þátt í
móti þessu í janúar síðastliðnum og
stóð sig bærilega þrátt fyrir að liðið
hafnaði í neðsta sætinu, tapaði leikj-
um sínum með litlum mun.
Niedersaxe-cup verður sem fyrr
segir haldið næst í janúar á næsta
ári, nánar tiltekið 5.-9. janúar.
Þau lið sem keppa næst verða, auk
einhvers íslensks liðs, Dankersen,
THV Kiel, Dukla Prag og Elektr-
omo Búdapest. Leikirnir fara fram
í Minden, Hildisheim, Alfeldt og
víðar. gg.
• Danski handknattleiksmaðurinn Anders Dahl mun leika í KR-búningi
næsta keppnistímabil. Ljóst er að KR er mikill fengur að fá þennan góða
leikmann í sínar raðir. En hann hefur um langt árabil verið besti leikmaður
Dana. Ljósm. Þórarinn Rarurwwn.
Panas
SVO SEM frá hefur verið greint,
fengu nokkrir pólskir handknatt-
leiksmenn leyfi til að verða eftir í
Vesturl»ýskalandi eftir heimsmeist-
arakeppnina í handknattleik á dög-
unum. Voru miklar vangaveltur um
til Kiel
hvaða lið myndu hreppa pólsku snill-
ingana. Sérstaklega voru Klempel
og Panas umsetnir. Úr varð að
Klempel iór til Göppingen, en Panas
fór að lokum til THV Kiel.
Stórleikur Víkings
og Valsmanna á morgun
— leikjum í dag flýtt vegna útsendingar
sjónvarpsins frá leik Tottenham og Liverpool
TVEIR leikir fara fram í 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik í dag
og einn á morgun. Leikjunum I dag
hefur verið flýtt vegna sjónvarpsút-
sendingar frá Wembley. Leikur HK
og KR að Varmá hefst klukkan
13.20, en viðureign Fram og Þróttar
í Laugardalshöllinni hefst kl. 13.00.
Öllum öðrum leikjum í Laugardals-
höllinni hefur verið frestað. Þá leika
KA og FH á Akureyri og samkvæmt
mótaskrá HSÍ á sá leikur að hefjast
klukkan 15.30. Ekki hefur Mbl.
fregnað um breytingar á leiktíma
þar, en ekki er þó ótrúlegt að svo
verði. Á morgun er svo einn stórleik-
ur í 1. deildinni, Valur og Víkingur
mætast í Laugardalshöllinni og hefst
leikurinn klukkan 20.00.
Einn leikur fer einnig fram í 1.
deild kvenna, Víkingur og Valur
mætast í Laugardalshöllinni á morg-
un klukkan 21.30. Þá mætast í Laug-
ardalshöllinni Týr og Fylkir í 2.
deild. Týr bókstaflega má ekki tapa
stigi vegna fallhættu í 3. deild. Leik-
urinn hefur hins vegar enga þýðingu
fyrir Fylki, sem er fallinn í 3. deild.
• Arni Indriðason hefur löngum þótt klókur línumaður, en ekki skal þó
fullyrt að þetta sé ein af brellum hans til þess að rjúfa varnarmúra andstæð-
inganna. Hvað um það, þá verður Árni í eldlínunni um helgina með félögum
sínum, en Víkingur mætir Val annað kvöld. Þess má geta, að Valur vann fyrri
viðureign félaganna í vetur, allt getur því gerst, ekki síst nú, er lokasprettur
inn er hafinn og leikmönnum Ijóst að stig mega ekki tapast.
Úrvalsdeildarleiknum flýtt
— vegna úrslitaleiks Liverpool og Tottenham
EINN leikur fer fram í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í dag. Er það
viðureign Vals og ÍS í Hagaskólan-
um. Til stóð að byrja leikinn klukk-
an 14.00 en vegna beinnar útsend-
ingar sjónvarpsins frá Wembley hef-
ur leiknum verið flýtt. Hann hefst
klukkan 13.00.
Annað kvöld fer fram einn leik-
ur samkvæmt mótaskrá. KR og
Fram eigast þá við í Hagaskólan-
um og hefst leikurinn klukkan
20.00. A morgun leika einnig
Haukar og Grindavík í 1. deild
suður í Hafnarfirði. Hefst leikur-
inn klukkan 14.00.
Breiðablik sigraöi
BREIÐABLIK sigraði lið Aftureld-
ingar með einu marki, 19—18, í 2.
deild í gærkvöldi. Leikur liðanna
sem fram fór að Varmá, var hörku-
spennandi allan tímann og ekki
mátti á milli sjá, hvort liðið myndi
ganga með sigur af hólmi. Staðan í
hálfleik var 11—10 fyrir Aftureld-
ingu.
Gífurleg barátta var í síðari
hálfleiknum. Varnarleikur lið-
anna var góður og fá mörk voru
skoruð. Jafnræði var með liðun-
um allan leikinn. Leikmenn UM-
FA voru með boltann síðustu 30
sekúndur leiksins. Og þegar að-
eins 3 sek. voru eftir, komst
Ingvar í dauðafæri, en skaut
beint í markvörðinn og tókst
ekki að jafna metin. En segja
má, að jafntefli hefði verið
sanngjörn úrslit í leiknum. Guð-
jón Magnússon var bestur í liði
UMFA, en bróðir hans, Stefán,
var bestur í liði UBK.
MÖRK UMFA: Guðjón 6, Jón 4,
Ingvar 3, Björn 2, Steinar, Lárus
og Sigurjón 1 mark hver.
MÖRK UBK: Stefán 7, Kristján
5, Björn 4, Hilmar 2, Gísli 1.
Staðan í
2. deild
Kambagangan:
Almenningsganga
á skíðum í dag
UM HELGINA fer fram almenn-
ingsganga á skíðum. Gangan hefst
á Kambabrún kl. 14.00. Gengið
verður niður í Hveradali. Göngu-
leiðin er um 8 km.
STAÐAN í 2. deild karla er nú þessi:
ÍR 12 9 0 3 218—203 18
Stjarnan 11 7 1 3 243—224 15
Þór V 12 6 1 5 238—227 13
Breiðabl. 12 5 3 4 233—235 13
Aftureld. 12 4 3 5 251—255 11
Týr V 12 4 0 8 266—278 8
Fylkir 11 1 2 8 218—252 4
Lið ÍR-inga hefur tryggt sér sæti í
1. deild á næsta ári.
Bjarni sigraði á
tveimur
BJARNI Kristjánsson, borðtennis-
kappi frá Keflavík, sigraði á tveimur
opnum mótum sem fram fóru í
Þórshöfn í Færeyjum í vikunni. Á
fyrra mótinu mætti Bjarni Færey-
ingnum Elíasi Mikkelsen í úrslitum
og sigraði Bjarni nokkuð örugglega.
mótum
Á síðara mótinu kepptu hins vegar
til úrslita Bjarni og Hilmar Konráðs-
son úr Víkingi. Var það spennandi
viðureign sem lauk með sigri
Bjarna, hann vann fyrst 24—22, tap-
aði síðan 21—23 en sigraði í úrslita-
lotunni 24—22.
Þjálfaranámskeið
Þjálfaranámskeiö, C-stig, veröur haldiö 26.—28.
marz, fyrri hluti, og 16.—18. apríl, seinni hluti.
Þátttökutilkynningar berist skrifstofu KSÍ, fyrir 19.
mars nk., sem veitir nánari upplýsingar í síma 84444
frá kl. 2—5.
Tækninefnd.