Morgunblaðið - 13.03.1982, Side 22

Morgunblaðið - 13.03.1982, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982 Moammar Khadafy, Lfbýuleiðtogi: Segir stefnu Banda- ríkjamanna þá sömu og Hitlers \ínarborg, 12. mars. Al\ MOAMMAR Khadafy, Lfbýuleidtogi, lýsti því yfir í Vínarborg, að stefna Handaríkjamanna í útanríkismálum væri sambæriieg við stefnu Hitlers á valdatíma hans. Lét Khadafy svo um mælt, að „þjóð hans myndi aldrei láta knésetja sig af Bandaríkjamönnum“. Yfirlýsing Khadafys kom í kjölfar þeirrar ákvörðunar Banda- ríkjamanna að setja innflutn- ingsbann á olíu frá Líbýu. Hafa Bandaríkjamenn ásakað Líbýu um þátttöku í alþjóðlegri hryðju- verkastarfsemi. Um það sagði Khadafy, að skæruliðahreyfingar væru bundnar við Evrópu, einkum Spán, Ítalíu og V-Þýskaland. „Ég fordæmi þessar hreyfingar, en ég skil afstöðu þeirra," sagði hann. „Mér þykir miður að stórveldi á borð við Bandaríkin skuli grþa til banna og hafta gagnvart erlend- um ríkjum. Slíkt er vissulega hættulegt fordæmi," lét Khadafy hafa eftir sér í formlegu kvöld- verðarboði í gær. „Stefna Banda- ríkjamanna er hin eina sanna hryðjuverkastarfsemi," sagði hann ennfremur. Bruno Kreisky, kanslari Aust- urríkis, hefur sætt gagnrýni í heimalandi sínu fyrir að eiga við- ræður við Khadafy. Kreisky hefur reynt að bera í bætifláka fyrir sig og sagt, að hann og Khadafy væru ósammála um fjöldamörg atriði. Þá hefur hann einnig borið fyrir sig að Austurríki sé nauðsyn að eiga góða samskipti við Líbýu vegna hugsanlegra olíukaupa. Nýtt samband olfusölurfkja l'hoenix, Arizona, 12. marz. AP. FULLTRÚAR Venezúela og Mex- íkó ræða möguleika á stofnun olíusölusamtaka ríkjanna og það gæti útvegað Bandaríkjunum og Kanada þunga hráolíu að sögn ráðunautar Venezúelaforseta í Sex ættliðir og allir á lífi KedwtHKÍ ('ity, Kaliforníu, 12. marz. Al\ FJÓRTÁN marka stúlka leit í dag, (ostudag, dagsins Ijós á sjúkrahúsi í Kaliforníu og þó að það sæti í sjálfu sér ekki tíðindum, er hitt merki- legra, að nú eru sex ættliðir, í beinan kvenlegg, á lífi í fjöiskyldunni. Móðirin heitir Kimberly Kath- leen Peters og er 19 ára að aldri. Eiginmaður hennar, George A. Peters, 21 árs gamall, var við- staddur fæðinguna og einnig kvikmyndatökumenn, sem eru að gera heimildarmynd um fjölskyld- una. Þegar litla stúlkan var komin í heiminn heil á húfi, var Frankie Underwood, sem nú stendur á ní- ræðu, orðin langa-, langa-, langa- langamma. „Þegar barnið fæddist varð gíf- urlegur fögnuður í fæðingarstof- unni,“ sagði Michael Colozzi, vinur fjölskyldunnar, sem stendur fyrir gerð myndarinnar. olíumálum, Leonardo Montiel Ortega. Ortega sagði í dag að nóg væri til af þungri hráolíu í Norður- og Suður-Ameríku til að gera Vest- urheim óháðan olíu frá Aröbum. Hann sagði að meira væri til í heiminum af þungri hráolíu en léttri eða meðalþungri og þung hráolía ætti framtíðina fyrir sér. Sömu olíuafurðir er hægt að vinna úr þungri hráolíu og léttri eða meðalléttri, en meiri olíu- hreinsun er nauðsynleg. OPEC selur síðarnefndu tegundirnar og eru að verða uppiskroppa með þær að sögn Ortega. Stofnun olíusölusambands Venezúela og Mexíkó yrði ekki til þess að Venezúela segði sig úr OPEC, sem landið átti þátt í að stofna ásamt fjórum öðrum lönd- um 1960, sagði Ortega. Venezúela mundi halda áfram aðild sinni að OPEC, þar sem samtökin tryggðu jafnvægi í verðlagningu léttrar og meðalþungrar hráolíu. ERLENT Ungur knattspyrnuáhugamaður þeytir lúður sinn að baki tveggja pólskra hermanna, sem standa vörð við dyr að búningsklefum leikmanna, á knattspyrnuvelli í Varsjá í vikunni. Hermennirnir eru gráir fyrir járnum, vopnaðir sjálfvirkum hríðskotarifflum. Þrátt fyrir herlögin, hefur fþróttamótum verið fram haldið í Póllandi. Ahorfendum er þó ekki leyft að bera borða eða spjöld, og gífurlegur fjöldi hermanna og lögreglu tekur sér jafnan stöðu meðal áhorfenda. símamynd — ap. Sovétmenn neita notkun eiturefna Moskvu, 12. mars. AP. SOVÉTMENN hafa harðlega neitað þeim ásökunum Bandaríkjamanna að þeir beiti eiturefnum í hernaði í Afghanistan eða SA-Asíu. Walter J. Stoessel, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá því í vik- unni að sannanir hefðu fengist fyrir því að meira en 3000 manns hefðu látið lífið vegna eiturefna. Dómur Wilkes staðfestur Osló, 12.marz. AP. HÆSTIRÉTTUR Noregs staðfesti í dag úrskurð borgardóms Oslóar yfir Nýsjálendingnum Owen Wilkes og Norðmanninum Nils Petter Gled- itch, sem fundnir voru sekir um njósnir í fyrra og dæmdir í fangelsi og fjársektir fyrir að viða að sér upp- lýsingum um norsk öryggismál með ólöglegum hætti. Wilkes og Gleditch hlutu sex mánaða skilorðsbundinn dóm hvor. Þeir höfðu viðað að sér upp- lýsingum um leynileg hernaðar- mannvirki á árunum 1977 og 1978, og gáfu þær út í bók 1979 með heitinu „Kanínur Sáms frænda“. í dómsorði hæstaréttar sagði að út- gáfa þessara upplýsinga væri skaðleg fyrir varnir Noregs. Wilkes, sem starfað hefur hjá friðarrannsóknarstofnunum bæði í Osló og Stokkhólmi, hlaut fang- elsisdóma í janúar í Svíþjóð fyrir njósnir þar í landi. Heilbrigðismálaráðherra Sovét- ríkjanna, Nikolai Antonov, hefur lýst því yfir, að þar í landi séu ekki og hafi aldrei verið framleidd efni þau er Sovétmenn eru ásakaðir um að nota í eiturefnahernaði sín- um. Blaðafulltrúi sovéska utanrík- isráðuneytisins hefur sagt ásak- anir Bandaríkjamanna vera lygar einar. Washington, 12. marz. AP. FYRIRTÆKI, verkalýðsfélög og aðrir aðilar sem eru ekki undir hælnum á marxistum í Nicaragua fá 7,4 milljóna dollara aðstoð frá Bandaríkjunum svo lítið ber á að sögn bandaríska utanríkisráðuneyt- isins sem segir að tilgangurinn sé að auka „fjölræði" í landinu. Aðstoðinni hefur verið haldið áfram með vitund yfirvalda í Nic- aragua þótt aðstoð Bandaríkja- stjórnar við Sandinistastjórnina hafi verið hætt í apríl í fyrra vegna meintrar aðstoðar Nicar- aguamanna við uppreisnarmenn í E1 Salvador. „Þessar lygar eru hjákátlegar þegar það er haft í huga að einu eiturefnavopnin, sem notuð eru í Afghanistan eru handsprengjur, smíðaðar í Bandaríkjunum," sagði Chernyakov, blaðafulltrúi. „Sprengjur þessar eru notaðar af andstæðingum stjórnarinnar," bætti hann við. Ráðuneytið segir að einkaaðilar í Nicaragua hafi fengið 8,5 millj- ónir dollara í aðstoð í fyrra auk 1,9 milljónar dala í þróunaraðstoð. Á þessu ári er gert ráð fyrir að veita einkaaðilum 5 milljónir doll- ara í efnahagsaðstoð og 2,4 millj- ónir dollara í þróunaraðstoð. Ráðuneytið sagði að síðan Sand- inistar komu til valda hafi stefnan verið sú að styðja lýðræðisöfl í Nicaragua, t.d. kaupsýslufyrir- tæki, sölusamtök framleiðenda, sjálfboðaliðasamtök einkaaðila, sjálfshjálparfélög byggðarlaga og óháð verkalýðsfélög. Bandarískt fé til Nicaragua Kínverjar beita sér nú mjög fyrir bættri umferdarmenningu og hér sést hvar lögregluþjónn skráir hjá sér nafn ungs manns, sem var staóinn að því að vera á Ijóslausu reiðhjóli. Ungi maðurinn á von á sekt fyrir tiltækið, sem nemur einu yuan, en það eru um sex krónur íslenskar. Trúlega munar hann meira um það en jafnaldra hans hér á landi. APSímamynd Israel: Skurðaðgerðir til að breyta útliti mongólíta í ÍSRAELSKA blaðinu Jerusalem Post segir frá því að á næstunni verði gerðar skurðaðgerðir á tíu mongólítabörnum á Hadassah sjúkrahúsinu í Jerúsalem. Mongól- ítarnir hafa gengizt undir mjög rækilegar rannsóknir fyrir aðgerð- ina, en hún miðar að því að breyta útliti þeirra. Ástæðan, segir Reuv- en Feurstein, talsmaður Hadass- ahsjúkrahússins, sé að framkoma fólks við mongólíta sé allt öðruvísi en við aðra þroskahefta. Fólk tali ósjálfrátt öðruvísi, og aukin heldur komi fram hjá mörgum beinn við- bjóður á mongólítum, þó svo að þeir geti haft greind ekki minni en ýmsir þroskaheftir, sem bera það ekki jafn sterkt með sér í andliti sínu. Aðgerðin mun ekki breyta í neinu greind viðkomandi, en þar sem búast má við að fólk hegði sér á annan veg gagnvart þeim, ef tekst að draga úr mongólíta- útliti, gefur það hugsanlega rnöguleika á að mongólitarnir öðlist meiri þroska en þeir geta nú, þar sem umhverfið er svo mikill hemill á framfarir þeirra. Dr. Feurstein sagði að slíkar aðgerðir hefðu hvergi verið gerð- ar nema í Þýzkalandi 1977. For- eldrar mongólítatelpu hefðu fengið því framgengt að gerð var á henni skurðaðgerð, sem fjar- lægði allan mongólítasvip af andliti hennar. Töldu foreldr- arnir hreint ótrúlegt hversu mikil breyting varð hjá þeim sem umgengust hana á eftir, þó svo þeim væri kunnugt um að hún væri þroskaheft og bæri þess sýnileg merki. Hvöttu þess- ir viðkomandi foreldrar til að reynt yrði að hjálpa fleiri mong- ólítum á þennan hátt og er vitað að samtals hafa 250 mongólítar gengist undir þessa aðgerð í Þýzkalandi, með góðum árangri. Ekki er kunnugt um að skurðað- gerðir af þessu tagi hafi verið gerðar víðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.