Morgunblaðið - 13.03.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982
23
Rupert Murdoch, eigandi London Times:
Reynir ad bola rit-
stjóra blaðsins frá
London, 12. marz. AP.
BRESK blöð skýrðu frá því í morg-
un að ástralski auðkýfingurinn, Rup-
et Murdoch, eigandi stórblaðsins
Times reyndi nú sem ákafast að
losna við ritstjóra blaðsins Harold
Evans. Murdoch, sem er eindreginn
hægrimaður vill að blaðið túlki þá
stefnu í skrifum sínum.
í útvarpsviðtali við Anthony
Holden, einn 10 aðstoðarritstjóra
blaðsins, kom fram að Murdoch
hefði reynt að þröngva skoðunum
sinum upp á Evans. Sagði Holden
Evans ætíð hafa verið þeirrar
skoðunar, að ritstjóri jafn út-
breidds blaðs í Englandi ætti að
vera óháður í skoðunum. Sex að-
stoðarritstjórar blaðsins standa í
vegi fyrir því að Evans verði rek-
inn að því er segir í breskum blöð-
um.
Deila þessi kemur upp aðeins
nokkrum dögum eftir að Murdoch
lýsti því yfir að fjárhagsgrund-
velli blaðsins og systurblaðs þess,
Sunday Times, hefði verið bjargað
með niðurskurði á prenturum og
skrifstofufólki.
Carl Marks gerir
kröfiir á Rússana
Flugslysið f Noregi:
Flaksins leitað
á þrítugu dýpi
<)sló, 12. mars. Al*.
FIMMTAN manns fórust þegar Twin Otterflugvél, sem var í innanlands-
flugi, hrapaði í sjóinn undan ströndum Finnmarkar í NorðurNoregi í gær,
fimmtudag. Ekki hefur enn tekist að finna lík mannanna, sem voru allir
Norðmenn, og ekkert er enn vitað um orsakir slyssins.
Flugvélin var í eigu Widerös-
flugfélagsins og voru með henni 13
farþegar og tveir flugliðar. Vélin
hafði farið frá Berlevogi á Finn-
mörku til annars bæjar, Mehamn,
sem er aðeins 25 mínútna flug, en
kom ekki fram á réttum tíma.
Undir kvöld fundu sjómenn hjóla-
búnað vélarinnar og farangur á
floti og litlu síðar varð vart við
olíubrák á sjónum.
í dag hefur verið leitað að vélar-
flakinu en vont veður hefur gert
mönnum erfitt fyrir. í ráði er að
fá kafara til að leita í sjónum en
talið er, að flakið liggi á 50 metra
dýpi. Sérfræðingar frá De Havill-
and-flugvélaverksmiðjunum í
Kanada eru nú komnir til Noregs
til að vinna að rannsókn slyssins,
en vélin var framleidd í Kanada.
Finnar ánægðir með
austurför Koivistos
llelsinki, 12. mars.
Frá llary (iranberg, fréttaritara Mbl.
SAMBUÐ Finna og Sovétmanna
mun áfram einkennast af þeim
góða grannskap, sem verið hefur
Snjallir bensín-
þjófar f Bangkok
Bangkok, 12. mars. AP.
UPP HEFUR komist um stórtæka
bensínþjófa í Bangkok. Aðferð
þeirra var í meira lagi óvenjuleg. A
tveggja ára tímabili náðu þeir að
steia, sem nemur einni milljón lítra
bensíns.
Þjófarnir leigðu sér hús í ná-
grenni höfuðstöðva Shell i Bang-
kok. Tókst þeim að tappa af neð-
anjarðarleiðslu fyrirtækisins í
stórum stíl áður en upp um þá
komst.
Starfsmenn Shell hafði lengi
grunað, að ekki væri allt með
felldu. Um 3.000 lítrar hurfu ann-
an hvern dag. Með því að dæla
vatni í gegnum leiðsluna tókst
þeim að koma upp um þjófana.
Þar til gerður öryggisloki var í
einu kjallaraherbergi hússins og
hleypir hann aðeins vökva í aðra
áttina. Húsið fór því bókstaflega á
flot og þannig var endi bundinn á
þetta annars snjalla úrræði þrjót-
með þjóðunum um nærri þriggja
áratuga skeið. Um það voru þeir
sammála, Leonid I. Brezhnev, for
seti Sovétríkjanna, og Mauno Ko-
ivisto, forseti Finnlands, sem nú
er heimkominn úr Garðaríki.
Koivisto átti viðræður við ýmsa
helstu frammámenn í Sovétríkj-
unum með Brezhnev í broddi fylk-
ingar og var einkum rætt um
ástand heimsmála og sambandið
milli Finna og Rússa, sem einhug-
ur var um að efla í þeim anda, sem
þar hefur ríkt. Auk þessara við-
ræðna áttu svo ýmsir embættis-
menn fund með sér um olíuvið-
skipti þjóðanna og samdist um, að
Rússar lækkuðu verðið á olíunni
til samræmis við það, sem nú ger-
ist á heimsmarkaði. Ekki er þó al-
veg ljóst hver lækkunin verður.
Um 85% olíunnar, sem Finnar
nota, kemur frá Sovétríkjunum og
er búist við að það hlutfall muni
hækka. Viðskipti þjóðanna eru
Finnum mjög hagstæð og til að
geta haldið uppi sama útflutningi
til Sovétríkjanna er hætt við að
þeir verði að auka innflutninginn
þaðan.
I Finnlandi er almennt litið svo
á, að Koivisto hafi gert góða för
austur til Moskvu og honum til
mikils álitsauka.
H/ETT ER við, að Rússana reki í
rogastans og að þeir trúi jafnvel
ekki sínum eigin augum þegar þeir
sjá kröfugerðina, sem hann Carl
Marks hefur búið á hendur þeim.
Marks lítur nefnilega á Október
byltinguna í Rússlandi sem hverja
aðra lögleysu og vill nú fá endur
greiddar 619 milljónir dollara og
vexti í 65 ár — helst í gulli, þakka
þér fyrir.
Karl Marx og Carl Marks eru
ekki eitt og hið sama, því að sá
síðarnefndi er kapitalisti í húð
og hár. Hann rekur skuldabréfa-
og fjárfestingafyrirtæki í New
York og hefur nú hafið mál fyrir
alríkisdómstólnum þar og gerir
þær kröfur, að endurgreitt verði
andvirði þeirra ríkisskuldabréfa,
sem keisarastjórnin rússneska
seldi í Bandaríkjunum árið 1916.
A sinni tíð þóttu þessi skulda-
bréf hin mestu kjarakaup, því að
þau báru 5Ví> % vexti, sem
greiddir voru í gulli. Vladimir
Ilyich Ulanov var þá líka bara
einhver óþekktur æsingamaður í
Vladimir Ilyich Ulanov — Er kom-
ið að skuldadögunum?
Sviss og engum ætlandi að láta
sér detta í hug, að andvirði eins
farseðils með Zúrich-Péturs-
borgar-lestinni dygði til að eyði-
leggja skuldabréfamarkaðinn í
Rússlandi.
Svo var heldur ekki með þá
3000 sakleysingja, sem Marks er
fulltrúi fyrir, en síðast þegar
1000 dollara keisaralegt skulda-
bréf var innleyst, fengust fyrir
það tvö sent. Þessu hafa skulda-
bréfaeigendurnir aldrei getað
kyngt, en það er ekki fyrr en nú,
með nýjum lögum, sem leyfa
bandarískum borgurum að höfða
mál á hendur erlendum ríkjum,
að þeir geta farið að gera eitt-
hvað í málinu.
Ef þeir vinna málið, mum
hvert 1000 dollara bréf með
vöxtum standa í 34.250 dölum —
allt í allt 21.819.750.000 dölum.
Það útleggst tæpir 22 milljarðar
dala eða 284 tonn af gulli. Eftir-
leikurinn ætti svo að verða auð-
veldur. Bara að birta dóminn og
krefjast fullnægingar hans
gagnvart niðjum og lögmætum
örfum V.I. Ulanov (sem sumir
kalla Lenin).
Skjóta nið-
ur þyrlu
San Salvador, 12. marz. AP.
SKÆRULIÐAR vinstri manna sögð-
ust í dag hafa skotið niður þyrlu
stjórnarhersins er flutti liðsauka til
átakasvæða í Morazan-héraði í norð-
austurhluta El Salvador.
Þyrluflugmönnum tókst að
lenda heilu og höldnu. Óljóst er
hvort um hafi verið að ræða þyrlu
af bandarískri gerð. Skæruliðarn-
ir sögðust hafa fellt „marga"
stjórnarhermenn i Morazan upp á
síðkastið, en aðeins misst tvo
menn sjálfir.
Skæruliðarnir kváðust hafa
sprengt mikilvæga brú á þjóðveg-
inum til Morazan í gær, og því
gert stjórnarhernum örðugara um
vik með aðföng. Við þetta eru fjöl-
mörg þorp á svæðinu einangruð.
Háttsettir
menn að baki bylt-
ingartilraun
SudurAfríku, 12. mars. AP.
FORINGI málaliðahóps hefur skýrt
frá því að sjö eða átta embættis-
menn suður-afrísku stjórnarinnar
hafi verið bendlaðir við byltingartil-
raun á Seychelles-eyjum.
Sagði hann frá þessu í samn-
ingaviðræðum á milli öryggislög-
reglu landsins og málaliðanna er
þeir sneru aftur frá eyjunum eftir
misheppnaða byltingartilraun.
Auk hans hafa 42 málaliðar ver-
ið ákærðir fyrir flugrán er þeir
reyndu að bjarga eigin skinni þeg-
ar Ijóst var að tilraunin hafði mis-
heppnast. Tóku málaliðarnir 65
gísla og ætluðu að freista þess að
flýja land.
José Napoleon Duarte, forseti El Salvador, (í miðið) er hér ásamt her
mönnum og háttsettum embættismönnum, þar sem þjóðsöngurinn er
leikinn. Að baki þeim er stytta hermanns af indíánaættstofni með M
16-riffil í hendi.
Uppreisn kveðin
niður í Surinam
Paramaribo, Surinam, 12. mars. AP.
HERFORINGJASTJÓRN vinstrimanna í Surinam kvaðst í dag hafa brotið á
bak aftur byltingartilraun hægrisinnaðra liðsforingja og hafa nú alla höfuð-
borgina á sínu valdi. Annar foringi uppreisnarmanna særðist og var handtek-
inn eftir klukkustundarlöng átök og hefur hann nú þegar komið fram í
sjónvarpi, þar sem hann hvatti menn sína til uppgjafar.
Þótt svo virðist sem uppreisnin hendi, en Desi Bouterse, forseti
hafi farið út um þúfur, eru her-
búðirnar enn öllum lokaðar og
heyra mátti að skipst var á skot-
um fram eftir degi. Það var um
klukkan fjögur í nótt að staðar-
tíma, að hermenn hollir stjórninni
réðust til atlögu gegn uppreisnar-
mönnum og gekk þá mikið á í
borginni. Wilfred Hawker, liðsfor-
ingi, annar byltingarleiðtoginn,
féll fljótt í hendur stjórnarher-
mönnunum og var hann strax lát-
inn koma fram í sjónvarpi, alblóð-
ugur, og skora á félaga sinn, Surin
Rambocus, liðsforingja, að slíðra
vopnin til að koma í veg fyrir frek-
ari blóðsúthellingar.
í fyrstu leit út fyrir, að upp-
reisnarmenn hefðu öll ráð í sinni
herforingjastjórnarinnar, og
helstu menn hans höfðu komist
undan og búið um sig í 300 ára
gömlu hollensku virki á bökkum
Surinam-ár. Þaðan stjórnaði hann
svo liðsaflanum.
Bouterse komst til valda í febrú-
ar 1980, þegar herinn rændi völd-
unum og afnam þingræðislegar
kosningar í landinu. Herforingj-
arnir kalla sig vinstrimenn og
þykja heldur hallir undir Kastró,
Kúbuleiðtoga, sem er talinn hafa
séð þeim fyrir vopnum. Haft er til
marks um það, að herinn, sem að-
eins hefur á að skipa 1000
mönnum, er búinn furðufullkomn-
um vopnum.
Surinam er fyrrum hollensk
nýlenda á norðausturhorni Suð-
ur-Ameríku, sem varð sjálfstætt
ríki árið 1975. Þar er mikil báxít-
vinnsla, sú fjórða mesta í heimi,
og er hún styrkasta stoðin undir
efnahag þjóðarinnar auk ríflegra
styrkja frá Hollendingum. í Sur-
inam búa 400.000 manns.