Morgunblaðið - 13.03.1982, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982
29
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
til sölu
>VL/v*—*Mt.
Keflavík — einbýlishús
Höfum fengiö í sölu 120 fm ein-
býlishús viö Langholt. Möguleiki
aö taka upp í eign á bilinu 700 til
800 þús.
Eignamiölun Suöurnaaja,
Hafnargötu 57,
sími 3868.
Heimatrúboöið
Óðinsgötu 6a
Almenn samkoma á morgun,
sunnudag kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
vn-st Hjálpræðis-
herinn
Kirfcjustræti 2
Sunnudag kl. 10.30, sunnudaga-
sköli. Kl. 20.30, samkoma.
Brigader Ingibjörg talar. Vel-
komin.
ísafjörður
Spilavist og dans á eftir, laug-
ardaginn 13. mars.
Sjálfstæöisfélögin Isafiröi
UTIVISTARFERÐIR
Sunnudagur 14. mars
Kl. 11.00 Kjðlur. Skiöa- og
gönguferö yfir Kjöl i Hvalfjörö.
Verö 90 kr. Fararstjóri Þorleifur
Guömundsson.
Kl. 13.00 Kraklingaljara og létt
strandganga í Hvalfiröi Steikt á
staönum. Verö 100 kr. Farar-
stjóri Einar Egilsson. Fariö frá
BSÍ, bensínsölu. Fritt f. börn m.
fullorönum.
Þóramörk i vetrarskrúöa um
næstu helgi.
Páakarnir nálgaat:
8. apr. kl. 09.00 Snæfellsnes 5
dagar.
8. apr. kl. 9.00 Tindfjöll - Þórs-
mörk (skíöaf.) 5 dagar.
8. apr. kl. 09.00 Þórsmörk. 5
1 dagar.
8. apr. kl. 09.00 Fimmvöröuháls
- Þórsmörk. 5 dagar.
10. apr. kl. 09.00 Þórsmörk. 3
dagar. Sjáumst.
Útivist, Lækjargötu 6a,
s. 14606
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR117» oo 19533.
Gönguferöir aunnudaginn
14. mara:
1. kl. 10. Skíöaferö um Kjósar-
skarö. Fararstjórar: Guömundur
Pétursson og Guölaug Jónsdótlir.
2. kl. 13. Meöalfell (363) og Meö-
alfellsvatn, gengiö kringum vatn-
iö. Fararstjórar: Siguröur Krist-
insson og Þórunn Þóröardóttir.
Fariö frá Umferöarmiöstööinni,
austanmegin. Farmiöar viö bil.
Verö kr. 80,-
Feröafélag Islands.
Ath. Skiliö Feröa- og Fjallabók-
um á skrifstofuna.
Krossinn
Æskulýössamkoma í kvöld kl.
20.30 aö Auöbrekku 34, Kópa-
vogi. Hunt-hjónin frá USA taká
þátt í samkomunni. Allir hjartan-
lega velkomnir.
FERDAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR117» og 19533.
Aðalfundur Ferðafélags
íslands
veröur haldinn þriöjudaginn 16.
marz, kl. 20.30 aö Hótel Heklu.
Rauöarárstig 18. Venjuleg aöal-
fundarstörf. Félagar þurfa aö
sýna skirleini 1981 viö inngang-
inn. Aö ioknum fundarstörfum
sýnir Oddur Sigurösson vetr-
armyndir frá íslandi teknar úr
flugvel
Feröafélag islands
Skíöaskólí Skíöafélags
Reykjavíkur
Kennsla fyrir og, eftir hádegi
laugardaginn 13. og sunnudag-
inn 14. mars viö skíðaskálann í
Hveradölum. Skráning á skrif-
stofu félagsins á 1. hæö í skíöa-
skálanum.
Skiöafélag Reykjavikur.
Elím, Grettisgötu 62,
Reykjavík
Á morgun, sunnudag, verður
sunnudagaskoli kl. 11.00 og al-
menn samkoma kl. 17.00. Veriö
velkomin.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
ýmislegt
v.T • Skíðaskáli Vals
/
Sleggjubeinsdal verður til sýnis sunnudaginn
14. marz nk. eftir verulegar endurbætur.
Valsmenn og aðrir komiö og skoðið skálann.
Stjórn skíöadeildar.
^ÉFélagsstarf
Sjálfstœðisfíokksins \
Akranes
Félags- og stjórnunarnámskeiö veröur haldiö i Sjálfstæöishúsinu
Heiöarbraut 20 dagana 14—16 mars.
Námskeiöiö hefst kl. 14, sunnudaginn 14. mars. Kennt veröur ræöu-
mennska, fundarsköp og félagsstörf. Flutt veröur erindi um sjálfstæö-
isstefnuna.
Leiöbeinandi á námskeiöinu veröur Inga Jóna Þóröardóttir.
Þátttaka tilkynnist til Ragnheiöar Ólafsdóttur i sima 2448.
Fræöshinefnd Sjéltstæöisflokksins
Hvað er framundan í
orkumálum Reykvíkinga?
Landsmálafélagiö Vöröur heldur almennan
fund um orkumál, miövikudaginn 17. marz
nk.
Fundurinn veröur haldinn i Valhöll, Háaleit-
isbraut 1 og hefst kl. 20.30.
Frummælandi: Birgir jsleifur Gunnarsson,
alþingismaöur.
Reykvikingar hvattir til aö fjölmenna.
Stjórnln
Sjálfstæðisfólk
á Patreksfiröi og
stuðningsmenn
Prófkjöriö til uppstlllingar fyrir sveitarstjórnakosninga i vor veröur á
sunnudaginn kemur, 14. mars.
Viö viljum hvetja ykkur öll til þess aö mæta vel tll þátttðku í prófkjör-
inu og gera okkar hlut sem bestan.
Kosningin er bindandl í 5 efstu sætin, ef viö náum 33% af atkvæöa-
magni flokksins frá síöustu sveitarstjórnakosningum og aóilar fái 50%
greiddra atkvæöa.
Fjölmennum i prófkjöriö á sunnudaginn og gerum hlut Sjálfstæöis-
flokksins sem stærstan.
Sjálfstæöistélagiö Skjöldur.
Skólanefnd Heimdallar
Fundur veröur haldinn mánudaginn 16. marz
nk. kl. 20.00 í Valhöll við Háaleitisbraut. Áríð-
andi, að sem flestir mæti.
Miðneshreppur
Sjálfstæðisfélag Miðneshrepps heldur al-
mennan félagsfund, sunnudaginn 14. marz
kl. 14.00 í barnaskólanum í Sandgeröi.
Fundarefni: Tillaga að framboöslista vegna
hreppsnefndakosninga 1982.
Önnur mál.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfélag Árbæjar
og Selás
heldur spilakvöld þriðjudaginn 16. mars kl.
20.30 í húsi félagsins Hraunbæ 102. Glæsileg
verðlaun. Enginn aðgangseyrir.
Nefndin.
Island og þróunarríkin
Utanríkismálanefnd SUS
efnir til ráöstefnu um ísiand og jjróonarrfkln. Hefst ráöstefnan kl.
10.00 laugardaginn 13. mars aö Hótei Esju.
Dagskrá:
Setning: Geir Hallgrimsson, formaöur Sjálfstssóisflokkslns
FAO í þróunarlöndunum og þátttaka Islendlnga í þvi starfl: Agn-
ar Erlingsson, skipaverkfræöingur.
Hvernig á og hvernig á ekki aö aöstoóa þróunarrikin: Ólafur
Björnsson prófessor.
.Undrin" meöal þróunarríkjanna: Björn Matthiasson, hagfræö-
ingur. Brandt-skýrslan: Guömundur H. Frimannsson, mennta-
skólakennari.
Skyldur vesturlanda viö þróunarrikin: Einar K. Guöfinnsson.
stjórnmálafræöingur.
Friörik Sóphusson. varaform. Sjálfstæöisflokksins mun ávarpa ráö-
stefnugesti i matarhléi. Á ráöstefnunni veröur dreift gögnum um
þróunaraöstoó Islendinga. Geir H. Haarde formaöur SUS slitur ráö-
stetnunni. Ráöstefnustjórar veröa Ólafur isleifsson, hagfr. og Anders
Hansen, blaöamaöur.
Guðjón Einarsson
Eskifirði - Minning
Fæddur 16. júní 1901
Dáinn 6. marz 1982
I dag verður til moldar borinn á
Kskifirði Guðjón Einarsson, fyrr-
um verkstjóri þar.
Guðjón Einarsson fæddist að
Ketilsstöðum á Völlum i Suður-
Múlasýslu 16. júní 1901. Foreldrar
hans voru hjónin Herdís Kol-
beinsdóttir og Einar Höskuldsson.
Guðjón átti tvo bræður, þá Sigurð
Einarsson, sem lézt á sl. ári, ní-
ræður að aldri, og Ingólf Einars-
son, en hann dvelur á Hrafnistu
og er 88 ára gamall.
Einar, faðir þeirra bræðra, féll
frá þegar Guðjón var aðeins 5 ára
gamall. Því má segja að lífsbarátt-
an hafi byrjað snemma hjá Guð-
jóni, en sjö ára gamall fór hann að
stunda smalamennsku á ýmsum
bæjum á héraði.
Árið 1911 fluttist hann til Eski-
fjarðar með móður sinni og Ingólfi
bróður sínum. Barnaskólinn þar
var þá að hefja göngu sína og var
Guðjón við nám í þeim skóla í tvö
ár. Hann fermdist í frikirkjunni á
Eskifirði en fluttist síðan aftur
upp á hérað. Um tvítugt lá leið
Guðjóns aftur til Eskifjarðar.
Hann fór þá til sjós og var á ýms-
um skipum og bátum um tuttugu
ára skeið. Um áratugarbil var
hann síðan verkstjóri hjá Hrað-
frystihúsi Eskifjarðar hf. og eftir
það verkstjóri um árabil hjá
Byggingafélaginu Snæfelli og
vann þá við ýmsar byggingar og
stauralagnir.
Síðustu árin, sem Guðjón var
við vinnu, vann hann hjá Útgerð-
arfélaginu Haföldunni á Eskifirði.
Guðjón var mikill söngmaður og
var í mörg ár í karlakórnum Glað
á Eskifirði.
í janúar árið 1939 kvæntist
Guðjón eftirlifandi konu sinni,
Halldóru Guðnadóttur. Hún er
dóttir hjónanna Guðrúnar Sigurð-
ardóttur og Guðna Sveinssonar,
verkamanns á Eskifirði. I upphafi
búskapar síns festu þau Guðjón og
Halldóra kaup á húsinu Brautar-
holti á Eskifirði. Þar áttu þau síð-
an heimili í yfir fjörutíu ár. Þau
eignuðust eina dóttur, Ernu, f. 25.
marz 1941. Hún átti Eirík S.
Bjarnason, vélstjóra á Eskifirði,
en hann fórst, er vélbáturinn
Hrönn SH 149 sökk skammt innan
við Vattarnes á Reyðarfirði 30.
apríl 1979.
Þau Eiríkur áttu tvö börn, Guð-
jón Inga, f. 8. október 1961 og
Önnu Herdísi, f. 11. mai 1968.
Seinni maður Ernu er sá sem þessi
kveðjuorð ritar.
Enda þótt kynni okkar Guðjóns
hafi aðeins varað í rúmt ár fannst
mér ég hafa þekkt hann miklu
lengur. Hann tók mér með svo
mikilli hlýju og góðvild. Það hafði
vissulega djúpstæð áhrif á mig að
kynnast þvílíkum mannkosta-
manni, sem Guðjón Einarsson var.
Það sem einkenndi hann framar
öðru var fádæma kjarkur, karl-
mennska og æðruleysi. Hann var
sannur maður, hógvær og raun-
góður.
Á síðastliðnu ári yfirgáfu þau
hjónin heimili sitt, Brautarholt,
og fluttust á elliheimilið, sem tók
til starfa á Eskifirði í september-
byrjun. Þar fór vel um þau, enda
allur aðbúnaður og aðhlynning
með bezta móti. Síðustu mánuðina
átti Guðjón við vanheilsu að
stríða, en ekkert var honum fjær
en að kvarta. Um sl. mánaðamót
fór hann á sjúkrahúsið í Neskaup-
stað og átti ekki afturkvæmt það-
an.
Ég bið guð að blessa minningu
Guðjóns Einarssonar og veita eft-
irlifandi konu hans og öðrum ætt-
ingjum styrk í sorg þeirra.
Helgi V. Guðmundsson