Morgunblaðið - 04.04.1982, Qupperneq 2
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. APRÍL 1982
Washingtonbréf
ANNA BJARNADÓTTIR
býður mektarmönnum í Wash-
ington til fagnaðar, meðlimir
klúbbsins setja á svið leiksýn-
ingu og gera góðlátlegt grín af
pólitíkusum borgarinnar, yfir-
leitt við mikil fagnaðarlæti gest-
anna. Carter afþakkaði boðið
eitt árið þegar honum var
eitthvað í nöp við fréttamenn.
En Reagan lét sig ekki vanta í
veisluna á laugardaginn var.
Grín var óspart gert að honum
og ríkisstjórn hans og hann
skemmti sér konunglega. Há-
punktur kvöldsins var þó þegar
Nancy sjálf steig fram á sviðið
og söng; „Eg verla í notað og
nýtt“ og glopraði diski úr 200
þús. dollara matarstellinu út úr
höndunum.
Frammistaða frúarinnar þótti
frábær og hún vann sér vinsæld-
ir fjölmargra þetta kvöld. Hún
hefur verið gagnrýnd fyrir að
vera helst til merkileg með sig
og of mikið fyrir vellystingar á
tímum þegar þjóðin þarf að
horfa í hvern eyri. Það þykir
henni líkt að fá Reagan með sér
til Barbados um páskana þegar
hann ætti heldur að halda kyrru
fyrir í Hvíta húsinu og velta
vandamálum heimsins fyrir sér
en öðrum finnst hann eiga fríið
inni — auk þess sem hann mun
hitta nokkra þjóðhöfðingja í
ferðinni. Ar er liðið síðan hann
varð fyrir skotárásinni og hann
er stöðugt umkringdur lífvörð-
um og ráðgjöfum.
Hann hefur væntanlega gott
af að strjúka um frjálst höfuð í
nokkra daga í sumri og sól í
Karabíska hafinu.
Þegar hann kemur aftur til
Washington verður tími kirsu-
berjatrjánna við Jefferson-
minnismerkið liðinn en þau
blómstra snemma í apríl. Þá er
umferðaröngþveiti við minnis-
merkið og Potomac-ána. Ibúar
borgarinnar vilja njóta fegurðar
trjánna þegar hún er mest.
Kirsuberjaskrúðganga er farin
og vorinu fagnað.
Síðan tekur hitamolla sumars-
ins við og gáfulegast að halda sig
innan dyra í skjóli kælitækja og
bíða næsta vors — eins og
þvottabirnirnir í dýragarðinum
verða að gera en, tilraun þeirra
til að fjölga sér mistókst enn
einu sinni í síðustu viku.
Reagan fer á hestbak á miðvikudögum.
PÁSKALIUUR og fjólur eru í full-
um blóma i Washington og laufin
eru aö springa út á trjánum.
Ilaustlitum er ávallt hrósað uppi
hástert en fegurð vorsins virðist
sjaldan veitt sú athygli sem hún
verðskuldar. Þótt vetur séu frekar
mildir i Washington og dagarnir
mun lengri en vetrardagar á ís-
landi, þá er vorið velkominn gest-
ur. Það eru ekki margar vikur á ári
hverju sem hita- og rakastigið í
borginni er einmitt hið rétta fyrir
útivist og iangar gönguferðir.
Ibúar borgarinnar kunna að
meta vordagana. Þeir taka fram
sumarfötin, grilla 'úti og borða
samlokur á torgum og í almenn-
ingsgörðum í hádeginu. Þeir
henda á milli sín svokölluðum
frisbíum og fljúga flugdrekum.
Skokkurum fjölgar á gangstétt-
um en nóg er af þeim fyrir
hvernig sem viðrar. Það er
furðulegt að þeir virðast upp til
hópa kjósa heldur að hlaupa á
malbikuðum gangstígum með-
fram miklum umferðargötum en
á grasflötum og skógarstígum
sem eru þó jafn aðgengilegir og
auk þess lausir við umferðargný
og mengun. Kannski að ótti við
árásir haldi skokkurum á alfara-
slóðum þótt hætta á árekstrum
virðist jafn mikil við vegina og á
árásum inni á milli trjánna um
hábjartan daginn.
Ronald Reagan tekur sér frí
frá forsetaamstrinu á miðviku-
dagseftirmiðdögum og fer á
hestbak. Það rigndi á miðviku-
daginn svo hann hefur kannski
sleppt reiðtúrnum og notað tím-
ann í staðinn til að undirbúa sig
betur fyrir blaðamannafundinn
sem hann hélt þá um kvöldið.
Hann hefur átt eilítið erfitt upp-
dráttar í fjölmiðlum undanfarið.
Hann hefur ekki þótt standa sig
sem skyldi á blaðamannafund-
um — farið rangt með og stund-
um svarað út í hött. En þessir
fundir hafa verið haldnir um
miðjan dag þegar fáir horfa á
sjónvarp og almenningur hefur
því þurft að treysta dómgreind
og frásögnum fréttamanna i
stað þess að dæma fyrir sig
sjálfur. Reagan vekur ávallt
hrifningu áhorfenda þegar hann
flytur ræður og þess vegna var
ákveðið að halda þennan blaða-
mannafund um kvöld þegar sem
flestir sitja fyrir framan sjón-
varpið og sýna fólki að honum er
ekki farið að förlast eins og
mætti halda af sumum fréttum.
Reagan þarf að ráða fram úr
mörgu þessa dagana. Nú þegar
kosningarnar í E1 Salvador eru
yfirstaðnar þarf að fá þingið til
að samþykkja aukna og áfram-
haldandi efnahags- og hernaðar-
aðstoð við landið. Það getur
reynst nokkuð erfitt því kosn-
ingarnar leystu engan vanda.
Þær komu aðeins flokkunum,
sem Jimmy Carter hætti aðstoð
við á sínum tíma vegna ofbeldis-
verka og brota á mannréttind-
um, aftur til valda. Allir sem
fyigjast með fréttum vita að
D’Aubuisson er enginn engill og
bandaríska þjóðin er þreytt á að
hjálpa harðjöxlum með skatt-
peningum sínum, efnahagsvand-
inn heima fyrir er auk þess mik-
iil og þingkosningar framundan
í nóvember svo Reagan getur
reynst erfitt að vinna stefnu
sinni í E1 Salvador fylgi.
E1 Salvador hefur verið á allra
vörum síðustu vikurnar en efna-
hagsvandinn hefur þó ekki farið
varhluta af fréttaflutningi.
Fréttir af auknu atvinnuleysi í
iðnaði og vanda í landbúnaði
heyrast á hverjum degi. Þetta
fór í taugarnar á Reagan um
daginn og hann sagði að fjöl-
miðlar drægju upp allt of svarta
mynd af ástandinu. Þetta gaf
gagnrýnendum hans, sem segja
að hann átti sig ekki á hversu
alvarlegt ástandið er, byr undir
báða vængi og kalt var milli
Reagans og fjölmiðla nokkra
stund. En hann rétti fram sátt-
arhönd næst þegar hann kom
fram opinberlega og sagðist vera
sama sinnis og Thomas Jeffer-
son sem sagðist af tvennu illu
heldur vilja vera án ríkisstjóra
en dagblaða.
Það er árlegur siður á vori
hverju að Gridiron-klúbburinn,
sem þykir afar fínn og merki-
legur félagsskapur 60 blaða-
manna (konur fengu að ganga í
klúbbinn fyrir fáeinum árum).
Nancy söng um að hún verzlaði í „notað og nýtt“.
Grundirnar gróa
— en blikur á lofti
BENIDROM1982:11. MAÍ 1.& 22. JÚNÍ 13.JÚLÍ 3.&24ÁGÚST 14SEPT. 5.0KTÓBER
VORFERÐ TIL BENII KNUVI njtPML
i FERÐAMIÐSTÖDIN
AÐALSTRÆTI9
SÍM128133 11255
UMBODSMENN:
Sigurbjörn Gunnarsson,
Sporthúsió hf., Akureyri — simi 24350
Halgi Þorsteinsson,
Asvegi 2, Dafvik — sími 61162
Feróamióstöó Austurlands,
Anton Antonsson — Selás 5, Egilsstöóum —
simi 1499 og 1510
Vióar Þorbjörnssonn,
Noróurbraut 12, Höfn Hornafiröi — simi 8367
Friófinnur Finnbogason,
c/o Eyjabuó, Vestmannaeyjum — simi 1450
Bogi Hallgrímsson,
Mánagerói 7, Grindavik — simi 8119
Bjarni Valtýsson,
Aöalstöðinni Keflavík, Keflavík — sími 1516
Gissur V. Kristjánsson,
Breióvangi 22, Hafnarfiröi — simi 52963
Ólafur Guóbrandsson,
Merkurteig 1. Akranesi — simi 1431