Morgunblaðið - 04.04.1982, Síða 4

Morgunblaðið - 04.04.1982, Síða 4
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. APRÍL 1982 L—-T Pottarím Umsjón: SIGRUN DAVÍÐSDÓTTIR Þá höldum við áfram með páskamatseðilinn ... og áframhaldandi góða skemmtun! Gráðaostspæar (Handa sex) Gráðaostur er hrærður með rjóma og settur í bakaða pæa- botna. Botnana getið þið bakað deginum áður, eða allt að tveim- ur vikum fyrirfram og fryst. Hitið botnana með því að setja þá frosna í heitan ofninn. Einnig getið þið útbúið deigið og fryst. Reyndar er ágætt að það fái að hvílast í um sólarhring í kæli- skáp, áður en það er bakað, en annars gjarnan í um klst. Hvíld- in er þó ekki nauðsynleg. Bakið pæabotnana í litlum formum t.d. múffuformum (muffinsformum), eða einhverj- um öðrum litlum formum, t.d. úr áli eða postulíni. Osturinn er svo settur í bakaða pæabotnana, þeir hitaðir í ofni, svo osturinn bráðni og allt hitni vel í gegn. Mér finnst pæinn beztur volgur, en það er væntanlega smekks- atriði hvort þið kjósið hann þannig eða rjúkandi heitan beint úr ofninum. 4 dl hveiti, helzt óhvíttað 200 gr smjör 1 eggjarauða (1—2 msk kalt vatn) 1. Hellið hveitinu á borð, saxið smjörið saman við og notið síðan fingurna þar til blandan er orðin eins og fíngerður sandur. Bætið þá eggjarauðunni saman við og hnoðið þar til þið hafið sam- hangandi deig. Ef deigið vill ekki almennilega loða saman bætið þá 1—2 msk af köldu vatni í það. En gætið þess að deigið á að vera fremur þurrt og alls ekki klístr- að. Látið það nú hvílast á köld- um stað, gjarnan í um 1 klst. 2 Takið bita af deiginu og þrýst- ið inn í smurð formin. Það þarf ekki að vera mjög jafnt, þvi mis- fellurnar hverfa í bakstrinum. í stað þess að þrýsta deiginu í formin getið þið flatt það út. Það er auðveldast að gera það milli tveggja smjörpappírsarka, því þá festist deigið ekki við borðið, og keflið. Stingið síðan eða sker- ið út hringi sem passa í formin. Látið nú formin gjarnan standa í kæli eða bregðið þeim í fryst- inn, svo deigið fari kalt í ofninn. Deigafganga getið þið og hrært saman við pædeig næst þegar þið búið það til. 3. Setjið ofninn á 200°. 4. Þegar ofninn er orðinn heitur setjið þið formin með deiginu inn og látið það bakast í um 15—20 mín. eða þar til deigið' er gullið og greinilega bakað í gegn. Látið kólna í formunum. Þegar þetta er kalt er hægt að taka pæskeljarnar úr, því þær harðna þegar þær kólna. Ostahræran: 300 gr gráðaostur 1 'k dl rjómi 5. Rífið eða stappið ostinn og hrærið saman við rjómann. Jafnið ostinum í bakaðar og helzt kaldar pæaskeljarnar, og hitið þetta í ofninum þar til osturinn er bráðnaður. Jöklasalat med vínberjum (Handa sex) Hugmyndin er sú að ostapæ- arnir séu bornir fram á diskum fyrir hvern og einn og við hliðina á þeim sé þetta salat haft. Eins og ég nefndi áðan finnst mér pæarnir mun betri volgir, því þannig er ostabragðið mildara en um leið greinilegra. Þið getið þvegið salatið fyrr um daginn eða jafnvel deginum áðúr og geymt í plastpoka. Sker- ið það þó ekki niður fyrr en skömmu áður en borðað er. Dreypið sósunni á það um leið og Páskamáltíð II það er borið fram, því edikið í sósunni gerir salatið mjúkt og leiðinlegt undir tönn. Ef þið náið ekki í jöklasalat, notið þá venju- legt blaðsalat. 1 lítið jöklasalathöfuð, eða 'k stórt um 30 vínber, eða svo mikið sem ykkur lízt 1 msk sesamfræ, eða um 50 gr gróft saxaðar heslihnetur 1. Ristið fræin eða hneturnar á þurri pönnu. Fræin fara að hoppa þegar þau eru hæfilega ristuð. Hneturnar hreyfa sig ekki, en taka lit, þó þær eigi alls ekki að sviðna eða brenna. Fræ- in og hneturnar verða mun bragðmeiri ef þetta er ristað. 2. Þvoið salatið og þerrið það vel. Vatnið spillir bæði salatinu og ostapæanum, svo það skiptir nokkru að þerra salatið vel. Skerið það í mjóar ræmur. Þvoið vínberin, skerið þau í tvennt að endilöngu og takið steinana úr þeim, ef þau eru ekki steinlaus. Þetta má reyndar gera deginum áður. Blandið jöklasalatinu og vínberjunum saman. Sósa: 3 tsk olía, gjarna sól- blóma-, vínberjasteina- eða maísolía 1 tsk vínedik (sama hvaða vín) nýmalaður pipar í hófi 3. Þeytið sósuna saman. Þetta er ekki mikið af sósu, enda á hún aðeins að gefa salatinu keim, en ekki kaffæra það. Setjið volga pæana á diska, hrærið sósunni saman við salatið og dreifið því á diskana við hliðina á pæunum. Strá'ð fræjunum eða hnetunum yfir salatið og berið fram. Karamellubúöingur (Handa sex) Þetta er einn af þessum hefðbundnu eftirréttum, einn úr fjölskyldu gufusoðinna búðinga, sem hafa löngum verið kenndir við enska matargerð, og taldir einkenna hana. Uppskriftir að honum eru margar og margvís- legar, en hér kemur ein sem er fljótleg og einföld í framkvæmd. Búðingurinn er nokkuð yfir- þyrmandi sætur finnst sumum. Mér finnst einkar gott að bera fram þeyttan, ósættan rjóma með honum og ný eða frosin ber. Ef þið eigið rifsber eða bláber á frysti þá eru þau kjörið meðlæti með. Bláberin fást reyndar fros- in og eru því handhæg, a.m.k. fyrir þá sem búa í Reykjavík og nágrenni. En sumum finnst að með karamellubúðing eigi ekki að bera fram neitt annað. Það eru þeir sem ekkert hafa á móti sætleikanum ... Búið búðinginn til í góðum tíma, svo hann nái að kólna. 250 gr sykur 1. Bræðið sykurinn á pönnu. Gætið þess að hann brúnist ekki um of. Líklega þurfið þið að taka pönnuna af plötunni öðru hverju undir lokin svo sykurinn sortni ekki. Sykurinn er notaður til að hella innan í formið sem þið ætl- ið að baka búðinginn í. Formið þarf að taka um 2 1 og má ekki vera með lausum, óþéttum botni. Hellið bráðnum sykrinum í ósmurt form, sem þolir mikinn hita, því sykurinn er um 170° heitur. Bezt er að formið sé volgt svo sykurinn renni auðveldlega um allt formið, en harðni ekki um leið og hann kemur í það. Rennið nú bráðnum sykrinum um formið, sem þið haldið á með þykka eldahanzka eða margfalt stykki, já, formið verður ótrú- lega heitt. Hafið ekki áhyggjur þó karamellulagið verði eitthvað ójafnt og hrjúft. Það jafnar sig allt í bakstrinum. Þegar karam- ellan verður þykkfljótandi í forminu, getið þið reynt að teygja úr henni með skeið eða gaffli. Aðalatriðið er að botninn sé sæmilega þakinn. Um aðra hluta formsins gerir minna til. 8 eggjarauður 4 eggjahvítur 75 gr sykur 5 dl rjómi 3 dl mjólk 1 tsk vanillusykur eða 1 vanillu- stöng 2. Hitið mjólkina og rjómann ásamt sykrinum eða vanillu- stönginni sem þið brjótið fyrst í tvo til þrjá hluta og kljúfið að endilöngu. Skafið svörtu kornin innan úr og sjóðið þau og sjálfa stöngina með mjólkinni. 3. Meðan mjólkurblandið er að hitna þeytið þá rauðurnar og hvíturnar saman, ásamt sykrin- um svo þetta verði ljóst og létt. Þegar suðan kemur upp hellið þá mjólkurblandinu í mjórri bunu og hrærið í á meðan. Fiskið bitana af vanillustönginni úr mjólkurblöndunni, áður en henni er hellt í eggjablönduna. 4. Hellið þessu í karamelluklætt formið. Nú getið þið valið um tvær leiðir. Önnur er sú að setja formið inn í ofn við 220° og láta það standa í vatnsbaði, þ.e. að vatnið nái ekki hærra en hálfa leið upp á formið. Hafið álpappír yfir forminu. Hin leiðin er sú að sjóða búðinginn upp á gamla mátann, þ.e. setja formið í pott, þannig að vatnið nái um hálfa leið upp á það og látið vatnið malla, en ekki bullsjóða, svo það skvettist ekki ofan í búðinginn. Reyndar er bezt að setja álpapp- ír yfir formið líkt og þegar það fer í ofninn. Þið veljið þá leið sem ykkur hentar betur. Upp á gæðin held ég það skipti engu máli hvor aðferðin er notuð. Búðingurinn er hátt í klst. að hlaupa saman. Hann er soðinn og fullbúinn þegar prjónn eða hnífsblað, sem stungið er í búð- inginn, kemur hreint úr honum aftur. Látið þá búðinginn á kald- an stað og látið hann kólna rækilega. Látið ykkur ekki bregða þegar þið lítið í formið. Hann fellur mjög saman þegar hann bakast, því hann þéttist og loftbólurnar fara úr honum. 5. Þegar búðingurinn er borinn fram þá er lagður diskur yfir formið og síðan er forminu steypt á diskinn. Þá fellur hann á diskinn og karamellan rennur fljótandi úr forminu og gefur búðingnum góða sósu, auk þess sem eitthvað af henni er fast við búðinginn og myndar ljósbrún- an karamelluhjúp utan um hann. Já, hann lítur ekki sem verst út skal ég segja ykkur — og ekki spillir fyrir að sumir kunna býsna vel að meta hann ... ViÖbót viö síðasta þátt Ég hef fengið fyrirspurnir um kjötið í síðasta þætti, hvort það sé virkilega ekki skorið neitt niður í gegnum kjötið niður að leggnum, þegar það er úrbeinað. Nei, það er ekki gert. Þegar læri er úrbeinað á venjulegan hátt er rist í gegnum kjötið niður á legginn. Skv. aðferðinni sem er lýst sl. sunnudag er alls ekki rist á kjötið langsum eftir lærleggn- um, heldur annar háttur hafður á. Þegar mjaðmabeinið, eða sá hluti þess sem fylgir lærinu, er skorinn burt, myndast op. Síðan er skorið í kringum lærlegginn, sem er áfastur mjaðmabeininu, þ.e. kjötið er losað frá honum, alveg upp að liðamótunum á leggnum (þ.e. skyggði hluti lær- leggsins er skorinn burt), á myndinni sl. sunnudag. Til þess að ná lærleggnum þarf ekki að skera í gegnum kjötið upp með leggnum, aðeins að losa kjötið af leggnum innan frá í gegnum opið sem verður eftir mjaðma- beinið. Þegar er búið að fjar- lægja leggbeinið, er aðeins op neðst á lærinu, op sem liggur þvert á legu leggsins sem er numinn brott. Síðan er svo reim- að fyrir, sbr. seinni myndina í þættinum sl. sunnudag. Þegar þið standið með lærið á borðinu og myndina fyrir framan ykkur rennur vafalítið upp fyrir ykkur ljós, ef þið eruð ekki búin að átta ykkur á skurðinum nú þegar ... söiui frásÖgn LATTL Mlö QR4TA Þríðja metsölubók Samhjálám* af konunni sem losnaði undan ofurvaldi eiturlyfjanna með hjálp Hans, konu svo harðsvíraðri að ekkert gat fengið hana til að tárfella. Sagan er sögð eins og hún raunvemlega gerðist, spennandi, kröftug og stundum ógnvekjandi. Metsölubækur Samhjálpar: Krossinn og hnífsblaðið 1978, Hlauptu drengur nlauptu 1980 og Láttu mig gráta 1981. ^

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.