Morgunblaðið - 04.04.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.04.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. APRÍL 1982 65 Arnar Guðmundsson: Almennt ganga rannsóknir nú hraðar og náms- og kynningarferðum er- lendis sem óhætt er að fullyrða að lögreglumenn hafa haft mjög mik- il not af.“ — Hvernig er starf rannsóknar- lögreglumannsins? „Þessari spurningu er mjög erf- itt að svara. Ég held að mér sé óhætt að segja að þetta sé mjög krefjandi starf, ef ég skil það hugtak rétt. Maður verður að gefa sig að þessu óskiptur og af sam- viskusemi. Maður verður að reyna að rækta með sér þekkingu á sálfræði og mannfræði ef svo má segja. Það tekur oft mjög á fínu taugarnar þegar verið er að glíma við hin ýmsu viðfangsefni og aldrei má rannsóknarlögreglu- maður missa taumhald á skapi sínu, vilji hann njóta trausts þess sem hann á samskipti við. Það er ekki hægt að neita því að það er meira af neikvæðum mál- um sem menn þurfa að fást við í þessu starfi en í mörgum öðrum, og það tekur oft á taugarnar að koma á vettvang þar sem stór- afbrot eð slys hafa skeð. Kannski eru það þyngstu sporin fyrir lög- reglumenn, þegar þarf að tilkynna viðkomandi aðstandendum frá sviplegu láti ættingja eða vinar. Menn verða að þola ýmis óþæg- indi í þessu starfi. Sannleikurinn er sá að rannsóknarlögreglumaður sem er trúr sínu starfi losnar illa við það þótt vinnudagur sé að kvöldi kominn. Þar við bætist að hringt er í hann á hvaða tíma sól- arhrings sem er og stundum hellt úr skálum reiðinnar yfir hann og haft í hótunum. Svo eru aðrir sem hringja til að láta vita um eitt og annað og líka eru til menn sem finnst þeir verða að létta á áhyggjum sínum og telja sig þá þurfa að ræða málin við lögreglu- menn. Þetta er ekki svo lítill þátt- ur í starfinu og af minni reynslu í lögreglunni, þá tel ég að rann- sóknarlögreglumenn verði að sjá af einhverjum tíma sínum í þess- um tilgangi. Það er ákaflega mik- ils virði að eignast ekki óvini í þessu starfi." Arnar Guðmundsson, lögfræðing- ur, er deildarstjóri 3. deildar. Hann kom til starfa hjá Rannsóknarlög- reglu ríkisins árið 1978, var áður fulltrúi dómara í sakadómi í ávana- og fikniefnamálum. „Meginrannsóknarsvið 3. deild- ar er að fást við önnur lagabrot en þau, sem koma fyrir 1. og 2. deild. Þar kemur víða við í almennu hegningarlögunum, skjalafals, brunar, nauðgunarbrot og annars konar skírlífisbrot og skemmdar- verk, svo nokkuð sé talið. Jafn- framt koma hingað sérrefsilaga- brot, svo sem smygl, brot á fjar- skipta- og útvarpslögum, dýra- verndunarlögum, brot á lögum um innflutning og skipan gjaldeyr- ismála, verðlagsmál, svo dæmi séu tekin," sagði Arnar. „Jafnframt þessu fáumst við við afbrot unglinga. Öll brot barna og unglinga eru rannsökuð í 3. deild. Þau eru oft ansi tímafrek og geta verið umfangsmikil. Til að mynda kom fram í fréttum fyrir skömmu, að upp hefði komist um afbrota- flokk 10 pilta á aldrinum 13—14 ára. Á aðeins tveimur vikum frömdu þeir á milli 40 og 50 af- brot. Afbrot unglinga eru iðulega viðkvæm. Við vinnum að þessum málum í samvinnu við félagsmála- stofnanir. Brunarannsóknir krefjast oft mikillar vinnu og oft þarf að leita sérfræðiaðstoðar. Við eigum gott samstarf við Brunamálastofnun. íkveikjur að yfirlögðu ráði eru al- varleg brot samkvæmt hegn- ingarlögunum og slík mál koma upp öðru hvoru, en fæstir brunar eru sem betur fer ásetningsverk. Nauðganir eru ákaflega við- kvæmur málaflokkur, því slík mál snerta viðkomandi illa. En það verður að segjast eins og er, að margar kærur, sem hingað berast, hafa ekki reynst á rökum reistar. Við höfum verið svo lánsamir að hafa lögreglukonur í starfi til að annast yfirheyrslur yfir kyn- systrum, sem kæra nauðgun því eðlilega er konum ekki sama um það við hverja þær ræða svo við- kvæm mál. Eigi er hjá því komist að yfirheyra kærendur í þessum málum ítarlega og læknisskoðun er nauðsynleg í framhaldi þar af. Þungar refsingar liggja við nauðg- unum og dæmi eru um alvarleg brot á þessu sviði." — Hvernig finnst þér RLR í stakk búin til að fást við þau verk- efni, sem í hlut stofnunarinnar falla? „Ég tel Rannsóknarlögreglu ríkisins sæmilega í stakk búna til að fást við þau verkefni sem hingað koma. Við höfum verið ágætiega heppnir með starfslið. Hitt er svo, að hingað þarf fleiri menn. Það er of mikið álag á þeim mönnum sem hér starfa, enda voru í upphafi hugmyndir uppi um fleiri starfsmenn. Þá hefur Hallvarður Einvarðs- son lagt sig fram um að rannsókn- arlögreglumönnum séu gefin tækifæri til að sækja námskeið hér heima og erlendis og hingað hafa oft komið sérfræðingar og miðlað af þekkingu sinni.“ — Nú koma inn á þitt borð ólík- ustu mál, frá alvarlegum brotamál- um til mjólkurmálsins fræga, svo dæmi sé tekið. Telur þú að RLR hafi of vítt starfssvið? „Þjóðfélagið er í stöðugri þróun og því skapast nýir málaflokkar. Hlutverk RLR er að rannsaka meiri háttar afbrot. Mjólkurmálið er dæmi um mál, sem er ekki stór- vægilegt sakamál, en um árabil hafði verið deilt um hvort reglu- gerðir hefðu verið brotnar. Loks var mál þetta kært til RLR. Við söfnuðum gögnum og málið var sent ríkissaksóknara. Ekki kom tii opinberrar málshöfðunar en reglugerðarbreytingar munu hafa átt sér stað. Þá má nefna kærur frá Verð- lagsstofnun vegna brota á verð- stöðvunarákvæðum laga eða lög- um um óréttmæta viðskiptahætti, en slík mál koma hingað eftir að verðlagsdómur var lagður niður." — Hve margir rannsóknarlög- reglumenn eru í deild 3? „Hér eru sex rannsóknarlög- reglumenn og það gefur auga leið, að við erum of fáliðaðir. Þetta hef- ur þær afleiðingar að mál verða oft lengur í vinnslu en æskilegt mætti telja. Hver rannsóknarlög- reglumaður hefur of mörg mál á sínum herðum." — Hvert er hlutverk deildar- Samkvæmt lögum um RLR skulu deildarstjórar vera löglærð- ir. Þeir annast úthlutun mála til rannsóknarlögreglumanna og leggja til ákveðinn rannsóknar- farveg. Deildarstjórar fara yfir skýrslur lögreglumanna og meta hvaða aðgerðir séu nauðsynlegar. Þá mæta deildarstjórar á dóm- þingum og gera þar nauðsynlegar kröfur til öflunar dómsúrskurða, t.d. um gæsluvarðhald, handtöku, húsleit eða geðrannsókn. Allt mið- ar þetta að því að tryggja það að mál fari þannig fullrannsökuð til embættis ríkissaksóknara, að hægt sé í framhaldi þar af að taka afstöðu til opinberrar ákæru. Með tilkomu RLR og þeim breytingum sem þá urðu á réttar- farslögum var stigið stórt skref í þá átt, að skilja á milli lögreglu- stjórnar og dómsvalds. Ég tel að þessar lagabreytingar hafi fylli- lega sannað gildi sitt og stað- reyndir tala sínu máli. Ég tel að rannsóknir gangi almennt hraðar fyrir sig en áður var og rannsókn- argögn séu nú aðgengilegri fyrir ákæruvaldið en áður. Þá má nefna þá staðreynd, að gæsluvarðhalds- úrskurðum hefur farið fækkandi og úrskurðartími hverju sinni styttur verulega frá því sem áður var.“ Arnar Guðmundsson stjóra? Tæknideild RLR: „Betur búin tækjum en sam- bærileg lögsagnarumdæmi í nágrannalöndunuma — rætt við Sævar Þ. Jóhannesson Axel Helgason rannsóknarlög- reglumaður stofnaöi árið 1945 vísi að þeirri tæknideild, sem nú er til húsa hjá RLR í Kópavogi og er búin öllum helstu tækjum til hvers konar rannsókna á mönnum og munum. 1945 var þetta eina tæknideildin, sem þekktist á landinu og var þá deild í Rannsóknarlögreglu Reykja- víkur. Það var aðallega Ijósmyndun, vettvangs- og fingrafararannsóknir, sem Axel vann að, og iengst af var hann einn meö deildina. En fljótlega bættust við fleiri menn og nú eru starfsmenn tæknideildar RLR fimm. Axel hætti störfum við tæknideild- ina í árslok 1956 og við tók Ragnar Vignir, aðstoðary firlögreglu þjónn. Það var 1957. 1. júli 1977 þegar Rannsóknarlögregla ríkisins var stofnuð varð tæknideildin ein af fjórum deildum innan hennar. Á upphafsárunum var tækni- deildin til húsa að Fríkirkjuvegi 11, en flutti í stærra húsnæði í Borgartúni 7, 1963. Það húsnæði varð fljótlega allt of lítið fyrir starfsemi deildarinnar svo það varð mikii búbót að húsi RLR í Kópavogi, þar sem húsnæði tækni- deildarinnar er þrefalt stærra en það var í Borgartúni. Tækjakostur deildarinnar hefur stórum aukist frá því sem áður var, en nýjasta og fullkomnasta tækið' er saman- burðarsmásjá, sem að sögn Sæ- vars Þ. Jóhannessonar, lögreglu- fulltrúa og yfirmanns tæknideild- er meðal þeirra fullkomnustu sinnar tegundar. Með henni er m.a. unnt að gera samanburð á byssukúlum og komast að því hvort skotið hafi verið úr tiltek- inni byssu eða ekki. í smásjánni, sem stækkar 80-falt, er einnig hægt að greina margs konar verk- færaför o.fl. Við smásjána er tengd myndavél og er hægt að taka myndir í gegn um linsur smásjárinnar. Sævar, sem hóf störf hjá tækni- deildinni árið 1963, sagði að það hafi orðið mikil breyting til batn- aðar á högum tæknideildarmanna við stofnun RLR, en auk húsnæðis, sem fékkst undir deiidina, var létt af mönnum tímafreku starfi. Þeir þurftu ekki lengur að taka myndir og rannsaka hvert einasta um- ferðarslys, sem varð á Reykjavík- ursvæðinu. Ljósmyndun og rann- sóknir umferðarslysa voru við breytinguna 1977 færðar yfir til lögreglustjóraembættisins í Reykjavík. „Tæknideildin," sagði Sævar, „sér um öflun allra gagna á vett- vangi, sem geta orðið til uppljóstr- unar á afbroti eða slysi og þá meina ég vinnuslysi, en á vett- vangi er það mest tæknivinna sem unnin er. Aðrir annast yfirheyrsl- ur og vettvangslýsingu. Við tökum myndir af staðnum og teiknum hann upp, en myndir og teikn- arinnar í fjarveru Ragnars Vi^nis, , ingfir.p^ ^afar^ n|ikilvægar t>af.sem saksóknari og dómarar, sem við sendum gögnin til, hafa engin tök á að koma á vettvang." í deildinni eru margar þar til gerðar töskur, sem tæknideild- armenn geta gripið með sér á vettvang, en þær þurfa að geyma hin ýmsu tæki og tól til að auð- velda gagnasöfnun. í einni tösku sem Sævar opnaði voru tæki og efni til að finna út númer, sem sorfin hafa verið af, til dæmis byssu eða reiðhjóli. í annarri tösku er ryksuga, sem nær upp ögnum, sem mannlegt auga fær ekki séð. Allt sem hún sýgur upp sest í fína síu, sem síðan er unnt að skoða í smásjá. I einni töskunni eða boxi er tæki sem getur skorið úr um hvort tiltekinn blettur, sem finnst, sé blóðblettur eða ekki. Enn annað tæki er til að rannsaka púður, en með því er unnt að ganga úr skugga um þáð hvort til- tekinn einstaklingur hafi skotið úr byssu, en alltaf vill eitthvað fest- ast á þeim sem hleypir af og getur tollað við hann lengi vel. Þá er í enn einni töskunni tæki og efni, sem notuð eru til að endurþekkja lík, sem fundist hafa óþekkjanleg. Og það eru margar fleiri töskur. „Það er mjög handhægt að hafa þessi tæki í töskum því hægt er að fara með þær hvert á land sem er,“ sagði Sævar. En á tæknideild- inni er fleira, eins og góður myndatökubúnaður og mynda- stofa þar sem m.a. afbrotamenn , eru myndaðir svo og ýmis gögn, ,l' 0£ xl Tfixjlo li irifpij ; rni ouíhú Sævar Þ. Johannesson lögreglufulltrúi í „stúdíói" tæknideildar RLR. sem notuð eru við rannsóknir. All- ar myndir taka rannsóknarlög- reglumennirnir sjálfir. Sævar var á sínum tíma við nám hjá Scotland Yard í Bretlandi og hjá lögreglu New York-borgar. Hver er helsti munurinn á tækni- deildum þessara stofnana og þeirrar sem er hér á landi? „Að sjálfsögðu er þar allt stærra í sniðum en munurinn er aðallega sá, að hér verða starfs- menn að vera meira alhliða, og vera inni í öllu, en úti er allt miklu sérhæfðara. Ein deild sér þar að- eins um byssu- og byssukúlu- rannsóknir, önnur deild tekur ljósmyndir, þriðja deild sér um fingrafararannsóknir og svo framvegis. Hér þarf hver og einn að geta unnið öll þessi störf. En þetta er mjög áhugavert starf sem unnið er hér í tækni- deildinni og fjölbreytilegt og það er ekki hægt að vinna það nema maður hafi geysilegan áhuga á því. Eg held að það megi fullyrða að þessi deild sé að mörgu leyti eins vel þúin tækjum og þær sem eru í 151 ,x l J í) '< !?.»< 06 l:ú sambærilegum lögsagnarumdæm- um í nágrannalöndum okkar. Hingað hafa lögreglumenn komið í heimsóknir frá öðrum löndum eins og Bretlandi, V-Þýskalandi og Norðurlöndunum og þeir hafa ver- ið sammála um það.“ í tæknideild RLR er miðstöð þeirra fingrafara sem til eru af einstaklingum 16 ára og eldri og hafa verið uppvisir að afbrotum. Aðspurður sagði Sævar að það væru 5328 fingrafarasett. til í tæknideildinni og væru þau af fólki hvaðanæva að af landinu. Með bættri vinnuaðstöðu og aukningu tækjakosts hafa mögu- leikarnir á því að ljúka tækni- rannsóknum að fullu hérlendis stóraukist, þótt enn sé nauðs.vn- legt að senda ýmis sýni utan til rannsókna. Það sem helst vantar er sérfræðikunnátta við rithand- arrannsóknir og þarf stundum að senda skriftarsýnishorn utan vegna rannsókna á skjalafölsun- um. Rétt er og að geta þess að starfsmenn RLR binda miklar vonir við hina nýstofnuðu deild í réttarlæknisfræði við rannsókn- astofu Háskóla íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.