Morgunblaðið - 04.04.1982, Síða 46

Morgunblaðið - 04.04.1982, Síða 46
94 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. APRÍL 1982 arskráin fengi ekki gæðastimpil herforingjanna, hún verður einnig að hljóta samþykki í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Ef henni er hafnað af öðrum tveggja þessara aðila, yrðu þeir fimmtán vísu menn sem vinna að gerð hennar að setjast á ný á rökstóla og það þýddi, að frestað yrði kosningum, a.m.k. til vors 1984, þar sem óhugsandi er að halda kosningar í Tyrklandi að vetrarlagi. Meiri- hluti Austur-Anatolíu er þá sam- bandslaus við aðra landshluta vegna snjóa. En í sjónmáli er þó, að Tyrkir snúi aftur til lýðræðis og margir velta því fyrir sér, hvað felast muni í ákvæðum hennar. Stjórn- arskrárnefndin er undir forsæti Orhan Aldikacti, virts prófessors. Flestir stjórnmálafréttaritarar telja, að þjóðhöfðingi landsins muni fá mun meiri völd en fyrir- rennarar hans, að minnsta kosti ef og þegar einhvers konar neyðar- ástand kemur upp í landinu. Og að herinn muni verða hafður meira til ráðuneytis en nú. Margir álíta, að Evren hers- höfðingi verði fyrsti forseti skv. þessum nýja stíl (hvernig forseta- kjör fer fram, er enn óákveðið), en deildar meiningar eru um þetta efni. Sumir spá, að hann muni kjósa að stíga virðulega af vett- vangi eftir að hafa þjónað landi sínu vel og dyggilega á erfiðum tímum. Stjórnarskrárnefndin hefur við margan vanda að glíma í starfi sínu og sá er þeirra mestur að reyna að tryggja að ekki komi öll gömlu vandamálin upp á nýjan leik. Oft hefur það verið svo í lið- inni tíð, að hávaðasamir smá- flokkar öfgamanna hafa haft lyk- ilaðstöðu í stjórn landsins vegna þess að samsteypustjórnir hafa orðið að treysta á stuðning þeirra og orðið að ganga á stundum býsna langt til að sá stuðningur héldist. Ný kosningalög í kjölfar nýrrar stjórnarskrár kynnu að verða í ætt við kosningalög Vestur-Þjóð- verja, þar sem flokkur þarf að hljóta tíu prósent heildaratkvæða til að koma manni á þing. En auð- vitað eru allar vangaveltur um störf nefndarinnar mjög óljósar og margir menntamenn og rithöf- undar og blaðamenn óttast, að hinu væntanlega lýðræðisfyrir- komulagi verði mjög strangar skorður settar. Alíti herforingj- arnir það bráðnauðsynlegt til þess að þeir geti dregið sig í hlé og allaðhaldssöm stjórnarskrá gæti ein tryggt að herinn yrði ekki að koma til skjalanna eina ferðina enn. Þrátt fyrir að Evren er augljós- lega staðráðinn i að endurreisa lýðræðisfyrirkomulag í Tyrklandi, íliííil Nú er liðið hálft annað ár síðan tyrkneski herinn tók völdin af vanmáttugri stjórn Suleyman Demirels. Á þessum tíma hefur herforingjastjórninni tekizt að uppræta hryðjuverk og koma á lögum og reglu að nýju. Efnahagslíf landsins, sem var í rústum, er að byrja að hjarna við og tímasett hefur verið hvenær kosningar fara fram til að kjósa nýtt þing. En þetta hefur ekki unnizt þrauta- laust, einkum og sér í lagi hefur það verið á kostnað mannréttinda. Brezka blaðið Times gaf út sér blað á dögunum um Tyrkland og hafa blaðamenn þar kannað málið frá ýmsum hliðum. Grein þessi er byggð á útgáfu svo og öðrum tiltækum heimildum greinar höfundar. Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr og þrátt fyrir mikinn þrýsting, sem stjórnin hefur sætt, benda öíl sól- armerki til þess að Kenan Evren og fimm manna herstjórn hans ætli að halda öllum stjórnartaum- um Tyrklands í hendi sér, að minnsta kosti hálft annað ár til viðbótar. Allar herforingjastjórn- ir, hvort sem þær sitja í Tyrklandi eða Póllandi eða annars staðar, eru ósamrímanlegar vestrænum meginreglum, að ekki sé nú minnzt á rithöfunda og mennta- menn í Tyrklandi sjálfu. En væru Tyrkir leiddir að kjörborðinu nú og látnir greiða atkvæði um hvort þeir vildu hafa herforingjastjórn- ina við völd, þangað til hún hefði lokið ætlunarverki sínu, ellegar snúa aftur til borgaralegrar stjórnar, er nokkuð víst, að meiri- hluti þeirra myndi greiða atkvæði með herforingjastjórninni. Kjarni málsins er, að þessa 18 mánuði, sem þeir hafa setið að völdum, hafa herforingjarnir komið ótrúlega miklu til leiðar, ekki aðeins bundið endi á hryðju- verkaölduna sem skall á almenn- ingi mörgum sinnum daglega, heldur einnig og kannski ekki sízt í að reisa við efnahag landsins, sem var í þvílíku öngþveiti að engu var líkt. Mannréttindamálin (nú er taiið, að um 25 þúsund manns sitji í fangelsi) og fréttir um pyntingar vekja miklu meira uppnám utan Tyrklands en innan, hinn rétti og slétti Tyrki tekur satt bezt að segja fjarska létt fréttum um ofbeldi við fanga, hvort sem herforingjastjórn er við völd eða ekki. En væru sem sagt haldnar kosn- ingar nú meðal 45 milljóna íbúa Tyrklands um vinsældir herfor- ingjanna, eru töluvert skiptar skoðanir á því hvað þeir myndu fá mikinn meirihluta. Ilhan Oztrak prófessor, einn ráðherranna, sagði í viðtali við Peter Hopkirk, blaða- mann Times, að yfir níutíu pró- sent þjóðarinnar myndu greiða at- kvæði með því að herforingja- stjórnin sæti unz hún hefði lokið ætlunarverki sínu. Aftur á móti sagði reyndur vestrænn diplómat, að líklega myndu 75 prósent vera nær lagi. Þekktur tyrkneskur blaðamaður, sem ekki vildi láta nafns getið, sagði aftur á móti, að hann teldi að hveitibrauðsdagar herforingjastjórnarinnar væru ...og Tyrkir þjappa sér æ betur saman ad baki þeim hátt dregizt inn í deilurnar. Fólk með hófsamar stjórnmálaskoðanir varð að taka afstöðu með ann- aðhvort vinstri eða hægri, en eiga annars á hættu beggja bræði og hefnd. Meira að segja innan lög- reglu og opinberra starfsmanna gætti þessarar skiptingar milli senn á enda. „Fólk var yfirkomið af þakklæti og létti þegar þeir gripu í taumana og þurrkuðu upp hryðjuverkastarfsemina. En al- menningur hefur ekki langt minni. Nú er fólk farið að muldra. Það dæmir stjórnina rétt eins og hverja aðra sem setið hefur við stjórn hálft kjörtímabilið." vinstri og hægri fylkinga. Margir Tyrkir óttuðust, að landið stefndi að valdaráni nýfasískra afla. Það eina sem gæti komið í veg fyrir að kosningar yrðu haustið 1983 — því að flestir eru sann- færðir um að Evren vilji halda heit sitt — er, að nýja stjórn- Frá Istanbul, við höfnina. Hugrökk, róleg og þrjósk þjóð Allar bollaleggingar 'um þjóð- aratkvæði um setu ríkis- stjórnarinnar eru í sjálfu sér út í bláinn, því að það er alveg ljóst, að Evren hershöfðingi hefur ekki nokkur áform á prjónunum um að kanna vinsældir sínar í Tyrklandi (jafnvel þótt niðurstað- an kynni að verða til þess að draga niður í andstæðingum hans á Vesturlöndum) fremur en Jaruz- elski í Póllandi. En þar með lýkur og því sem hliðstætt má telja með Tyrklandi og Póllandi, Jaruzelski hrifsaði völdin þegar Pólverjar voru að njóta smáræðis af pólitísku frelsi, en þegar Evren kom til skjalanna í Tyrklandi, voru skotárásir, sprengingar og hryðjuverk dagleg- ur viðburður og raunar meira en það, undir lokin er talið að um 20 manns hafi látið lífið á hverjum degi, ýmist vinstri eða hægri öfga- menn. Það er margra mat, að nánast hver maður hafi á einn eða annan Herforingjarnir sæta sífellt meiri gagnrýni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.