Morgunblaðið - 25.06.1982, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1982
49
fclk í
fréttum
Lífíð brosir aftur við Birni
Borg og Mariönu konu hans
+ Síðasta ár var erfitt ár
fyrir tennisstjörnuna Björn
Borg og Maríönu konu hans.
Björn tapaði í Wimbledon-
og Flushing Meadow-
keppnununuog Maríana var
mikið veik af nýrnasteinum.
I nóvember var hún svo skor-
in upp í Stokkhólmi og gekk
uppskurðurinn mjög vel.
Maríana fékk aftur heilsu
sína og Björn Borg tók aftur
gleði sína. Björn er nú
bjartsýnn á framtíðina og
hefur í hyggju að vinna aftur
sína fyrri stöðu í tennisheim-
inum. Þau segjast nú stefna
að því að eignast barn.
Björn og Maríana hala aldrei veriö ástfangnari.
Langarí
kvikmynda-
leik aftur
Grace, furstynja af Mónakó,
vill fara að leika í kvikmyndum
aftur, það eina sem heldur aft-
ur af henni er að hún er hrædd
um að það gæti haft slæm áhrif
á dætur hennar, Karólínu og
Stefaníu. Þótt hún hafi verið
furstynja af Mónakó í u.þ.b. 25
ár, þá hefur Grace aldrei getað
fyllilega losnaö við kvikmynda-
bakteríuna úr blóðinu. Og þótt
að Karólína prinsessa virðist
nú vera að róast er Stefanía
prinsessa, yngri dóttir Grace,
orðin ennþá villtari en Karó-
lína nokkurn tíma var og Grace
er hrædd um, að ef hún myndi
dvelja langdvölum í burtu frá
dætrum sínum þá myndi hún
missa þau áhrif sem hún hefur
á þær.
Síðastliðið ár lék Grace
prinsessa sjálfa sig í sjón-
varpsleikriti um blómahátíðina
í Mónakó og er það í fyrsta sinn
sem hún leikur í kvikmynd síð-
an hún varð furstynja af Món-
akó. Náinn vinur Grace furst-
ynju segir, að Grace hafi sóst
eftir að leika sjálfa sig í þessari
kvikmynd og síðan leyft með
Grace furstynja af Mónakó. Prinsessa Stefanía er órólegri.
glöðu geði að myndin væri seld
til Bandaríkjanna. Hún bíður
nú í ofvæni eftir því hvaða mót-
tökur myndin fær þar og hún
vonast eftir því að geta hafið
aftur kvikmyndaleik í fram-
haldi af þessari mynd.
En aöaláhyggjuefni Grace í
þessu sambandi eru dætur
hennar. Hún veit vel að þær
eru báðar veikar fyrir kvik-
myndaheiminum. Karólína er á
kafi í ástarævintýri með syni
Ingrid Bergmann, Roberto
Rosselini, og Stefanía og Paul
Belmondo, sonur Jean Paul
Belmondo, eru óaðskiljanleg.
Grace reynir af fremsta megni
að koma í veg fyrir vináttu
þeirra Stefaníu og Paul Bel-
mondo og hún er hrædd um að
ef hún færi að leika í kvik-
myndum myndi það hafa þau
áhrif að Stefanía sleppti gjör-
samlega fram af sér beislinu.
Stefanía hefur valdið móður
sinni miklu hugarangri upp á
síðkastið. Hún var rekin úr
mjög fínum einkaskóla fyrir
stúlkur í París, eftir að hafa
aðeins verið þar í tvo daga, sök-
um slæmrar hegðunar. Hún
stundar diskótekin í París,
drekkur mikinn bjór, keyrir um
á mótorhjóli og gengur oft um
með útvarp á fullu á götum úti.
Karólína aftur á móti virðist
vera að róast og Grace er að
vona að hún giftist Roberto
Rosselini og lifi rólegu fjöl-
skyldulífi í Mónakó eftir það.
Grace er líka hrædd um að ef
hún fari að leika í kvikmyndum
aftur muni það eyðileggja fyrir
Karólínu, sem reynir nú af
fremsta megni að draga sig út
úr sviðsljósinu.
GEísiP
FLYMO GLE-S
Fljúgandi furðuhlutur eða hvað?
1. Flymo GLE-S er lauflétt loftpúðasláttuvél búin 1400w rafmótor
(fæst einnig með bensínmótor).
2. Flymo GLE-S slær í allar áttir undir þinni stjóm, jafnt hávaxið
gras sem lágvaxið, blautt eða þurrt.
3. Flymo GLE-S slær kanta og toppa milli garðhellnanna eins og
ekkert sé og smýgur undir runna og tré án þess að skiJja eftir
sig sár.
4. Flymo GLE-S er jafn auðveld í garðinum eins og ryksuga innan
dyra því hún er með rafmagnstengingu sem hægt er að fram-
lengja.
5. Flymo GLE-S er öflugasta rafmagnssláttuvélin á markaðnum.
6. Flymo GLE-S tekur sama og ekkert pláss í geymslunni því þú
leggur handfangið alveg saman.
7. Flymo GLE-S hefur marga fleiri kostir.Líttu inn í verslun okkar
að Nýbýlavegi 6 og kynntu þér þá.
SÉRTILBOÐ
Við tökum gaznla Flymo sláttuvól sem 20% greiðslu upp í
nýja Flymo GLE-S 1400 w sláttuvél.
FLYMO - Er það nokkur spurning?
/V^<S BYGGINGAVÖRUVERZLUN
byko KÓPAVOGS SF
NÝBÝLAVEGI 6 SÍMI 41000
EFÞAÐER FRÉTT-
NÆMTÞÁER ÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480