Morgunblaðið - 20.08.1982, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1982
37
hæfingadaildanna tekid þessari
hugmynd?
„Þeir hafa tekið henni mjög vel
og við höldum aö þeir vænti ein-
hvers góös af þessu samstarfi.“
En hvaö um atvinnumálin, aru
þau ekki líka brýnt verkefni?
„Viö höfum í hyggju, að reyna
aö komast beint í samband viö at-
vinnurekendur, því viö teljum þaö
jafnvel árangursríkara en aö reyna
aö fá vinnu i gegnum atvinnumiöl-
un borgarinnar. Viö beinum þeim
tilmælum hér meö til atvinnurek-
enda aö gætu þeir hugsaö sér aö
taka mænuskaddaöa í atvinnu,
ættu þeir aö hafa samband viö
okkur.
Þaö þyrfti aö fræða atvinnurek-
endur meira um þá möguleika aö
nýta mænuskaddaða, sem starfs-
kraft, því þeir vita allt of lítiö um
þessi efni. Viö teljum til dæmis aö
nýta mætti starfskrafta okkar á
mun fjölbreyttari hátt en þegar er
gert. Viö teljum aö tölvurnar elgl
eftir aö veita mænusködduöum
aukin atvinnutækifæri."
Þið rædduó um þaö, aö þiö
beittuð ykkur fyrir ýmiss konar
upplýsingastarfi, hvað er þaó
helst?
„Hluti af starfi okkar hér á
skrifstofunni er aö komast í sam-
band viö hina ýmsu aöila bæöi hér
heima og erlendis, sem geta veitt
okkur aöstoö á einhvern hátt. Viö
erum núna aö skrifa svipuðum fé-
lögum, sem starfa erlendis og afla
okkur upplýsinga um starfshætti
þeirra og möguleika á samstarfi.
Þá eigum viö í bréfaskriftum viö
fyrirtæki sem framleiöa ýmis hjálp-
argögn fyrir mænuskaddaöa, tæki
sem ef til vill þekkjast ekki hór á
landi, en gætu auöveldaö okkur líf-
ið.“
Nú eruð þið að hefja hið fyrir-
byggjandi starf, leggst þaö ekki
vel í ykkur?
„Jú, við teljum að það sé nauö-
synlegt aö vekja meiri athygli á
þeim hættum, sem fylgja umferö-
inni og hvernig er hægt aö gera
það betur en meö því aö skýra frá
hvaöa afleiöingar slysin geta haft?
Þaö væri líka mjög æskilegt aö
láta gera kvikmynd um hvaö ger-
ist, þegar slys veröur, og hvaö
þeir, sem lenda í því, þurfa aö
ganga í gegnum."
En hvernig hyggist þiö fjár-
magna starfsemi ykkar?
„Viö höfum fengiö fjárframlag
frá borgarráöi, en þaö dekkar aö-
eins leiguna á skrifstofuhúsnæö-
inu. Viö verðum því aö lelta til fleiri
aöila, þó einkum ýmissa líknarfé-
laga, en viö höfum þegar haft sam-
band viö Rauöa kross Islands og
tóku þeir málaleitan okkar vel. Því
meöan viö erum aö koma okkur af
staö, þurfum við á fjárhagsaöstoö
aö halda, en vonandi getum viö
síöar meir komiö upp einhvers
konar fjáröflunarstarfsemi, sem
viö getum haft reglulegar tekjur
af.“
^VÉLADEILD
ÞJONUSTUMIÐSTÖÐ
Höfóabakka 9 r 85539
0
RB. BYGGINGAVÖRUR HF
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.