Morgunblaðið - 20.08.1982, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.08.1982, Blaðsíða 11
HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA? MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1982 39 Tónleikar í Norræna húsinu Sunnudaginn 22. ágúst kl. 17.00 veröa haldnir tónleikar í Norræna húsinu. Flytjendur eru: Staffan Larson, fiöla; Chrichan Larson, selló, og Anna Guöný Guömunds- dóttir, píanó. Flutt veröa verk eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Hans Eklund, Brahms og Beethoven. Bræöurnir Larson eru fæddir t Stokkhólmi og hlutu menntun sína þar fyrst viö Tónlistarháskólann. Þeir héldu áfram námi utanlands, Chrichan í París og Sviss, en Staff- an í London. Kennarar Chrichans hafa veriö G. Gröndahl, P. Boufil, R. Flachot og M. Rostropovitj, en Staffan naut leiösagnar M. Pariki- an og W. Pleeth í London. Anna Guöný hefur lokiö þriggja ára námi viö Guildhall School of Music and Drama í London þar sem kennarar hennar voru James Gibb og Gordon Back. Hún hlaut post-graduate diploma í kamm- ermúsík síöasta vor. „Eyeless in Gaza“ meö tónleika í Tjarnarbíói Hér á landi er staddur dúettinn „Eyeless in Gaza". Hann er skipaö- ur þeim Martyn Bates og Peter Becker. Þeir munu halda tónleika f Tjarnarbtoi, sunnudaginn 22. ág- úst nk. Á hljómleikunum kemur einnig fram hljómsveitin Fan Hout- ens Kókó. Forsala aögöngumiöa er í Fálkanum, Laugavegi, og f Stuöi og Gramminu, Vesturgötu. Þátttakendur á Zukofsky-námskeiði: Flytja 5. sinfóníu Mahlers í Háskólabíói Nú stendur yfir sjötta Zukofsky- námskeiöiö á vegum Tónlistar- skólans í Reykjavík. Laugardaginn 21. ágúst veröa aörir hljómsveitartónleikar nám- skeiðsins haldnir. Þá verður flutt í fyrsta skipti hér á landi sinfónía nr. 5 eftir Gustav Mahler. Um 100 manns munu taka þátt f þessum tónleikum, og tekur verkið 75 mín- útur í flutningi. Flestir þátttakendur á nám- skeiöinu eru fslenskir, en auk þess hafa um 20 manns komið erlendis frá. Þátttakendur eru á aldrinum frá 12 ára. Þessi óvenjustóra hljómsveit hefur æft sex tíma á dag í Haga- skóla til undirbúnings þessum tón- leikum, og mun árangurinn koma i Ijós laugardaginn 21. ágúst kl. 14.00 í Háskólabíói. Aögangur er ókeypis og öllum heimill. Fyrirhugaöir eru ennfremur tvennir kammertónleikar í næstu viku og lokahljómsveitartónleikar veröa laugardaginn 28. ágúst kl. 14.00 í Háskólabfói þar sem m.a. verður flutt, í fyrsta skipti hér á landi, Vorblót eftir Igor Stravinsky. Útivistarferðir um helgina Tvær helgarferöir eru hjá Útivist um helgina. Er brottför í þær báð- ar í kvöld kl. 20 (föstudag). Fariö veröur í Þórsmörk og gist í nýja Útivistarskálanum í Básum. Farnar veröa gönguferöir um Mörkina og á laugardagskvöldiö veröur hefö- bundin Útivistarkvöldvaka. Komið er til baka um kvöldmatarleytið á sunnudag. Hin helgarferöin er á nýjar og minna þekktar slóöir. Þaö er svæöiö upp með Þjórsá vestan- veröri innaf Þjórsárdal og nefnist Gljúfurleit. Þar eru tilkomumiklir fossar í Þjórsánni t.d. Gljúfurleit- arfoss og Dynkur. Einnig eru þarna gróöursælir hvammar, blóma- brekkur og berjalautir. Gist veröur í nýlegu húsi f Gljúfurleitinni. A sunnudag eru tvær dagsferöir. Kl. 8.00 er ferö í Þórsmörk. Stansaö verður góöa stund í Mörkinni og hún skoöuö. Þessi ferö er tilvalin fyrir þá sem ekki hafa tfma til aö dvelja heila helgi í Þórsmörk. Kl. 13 er ferö á Selatanga, en þaö er gamall útróörastaöur vestan viö Krfsuvík. Þar eru merkar fornminj- ar t.d fiskabyrgi, refagildrur og verbúðir. Ennfremur eru hjá Sela- töngum klettaborgir miklar sem minna á Dimmuborgir viö Mývatn. Brottför í feröirnar er frá BSÍ, vest- anmegin. Ferðaleikhúsið: Sýningar fyrir erlenda ferðamenn Um helgina veröur Feröaieik- húsið meö sýningar sínar á Light Nights á Fríkirkjuvegi 11. Sýnt er fjögur kvöld vikunnar, þ.e. fimmtu- dags-, föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. Hefjast sýningar kl. 21. Efniö er einkum sótt í íslenskar þjóösögur, en er mestmegnis flutt á ensku. Meðal efnis eru þjóösög- ur af huldufólki, tröllum og draug- um, gamlar gamanfrásagnir og einnig er lesiö úr Egils sögu. Skyggnur af verkum íslenskra höf- unda eru sýndar og leikin íslensk tónlist af hljómplötum. Kristín G. Magnúss flytur allt talað efni. Sýnir í Eden í Hveragerði Ray Cartwright, sem er af ensk- um ættum, heldur málverkasýn- ingu i Eden í Hverageröi dagana 19.—31. ágúst. Er þetta fyrsta einkasyning Rays, en hann tók þátt í samsýningu í Eden í fyrra. Nú sýnir hann 12 olíumálverk og 18 „scraberboard". Sýna í Nýlistasafninu Föstudaginn 20. ágúst opna þeir Þór Vigfússon og Birgir Andrésson sýningu í Nýiistasafninu, Vatnsstíg 3b. Sýningin er opin daglega frá kl. 18 til 22. En henni lýkur á sunnu- dagskvöldiö 29. ágúst. Báöir hafa tekiö þátt í samsýn- ingum og haldiö einkasýningar hérna heima og í útlöndum. Orgelverk eftir J.S. Bach í Skálholtskirkju Á „Sumartónleikum í Skál- holtskirkju” um næstu helgi mun Orthulf Prunner flytja þætti úr Klavierúbung III eftir J.S. Bach. Dr. Orthulf Prunner er organisti viö Háteigskirkju í Reykjavík. Hann hefur haldiö fjölda tónleika á und- anförnum árum hér og erlendis, m.a. lék hann nú í sumar ofan- greint verk í St. Gallen-dómkirkju í Sviss og í Heidelberg i Þýskalandi, en þar hélt hann einnig orgeltón- leika á síöastliönu ári. Tónleikarnir veröa laugardag og sunnudag kl. 15 og er aögangur ókeypis. Veitingasala er í Lýöhá- skólanum að loknum tónleikum. Messað er í Skálholtskirkju sunnu- dag kl. 14. LAUGARDAGINN 28. AGUST i ÞEYR GRÝLURNAR BARA-FLOKKL'RfNN j TAPPI TÍKARRASS LOLA VONBRIGÐIQ4L j REFLEX STOCKFIKU) BIG NOSE BAND DE i THORVALDSENSTRIÓ BAND PLRRKL'R j PILLMKK EKH PUNGO & DAISY KOS i BANDÓDIRFR 1BBBIARMR i PRUMUVAGNINN O.fL. O.FL. O.FL ALLT Í i ALLTU.Þ.B. 85HUÓMLISTAMENN HEPPtNN GESTUR FÆR GLÆSILEGA STEREOSAMSTÆÐU AB GJÓF FRÁ HUÓMTÆKJ A- VERSLUN STEINA SKÚLAGÖTU il FRAKL. 14.00 TIL 23.30 FORSALA MIÐA ER t VERSLUNUM FÁLKANS KARNABÆ, GALLERYOG í VERSLUNINNI STUÐ SÓNGKERFIFRA ELECTRO A OICE-iBI HUÓÐMAÐUR VERÐUR GUNNAR SMÁRl FR. & KYNMR YTRDLR HAUVARÐUR E, ÞÓRSSON NÆGAR PIZZUR Á STAÐNUM STANSLAUST ROKK í # V2 KLl’KKUSTUND MIÐAVERÐ ER 209 KR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.