Morgunblaðið - 12.09.1982, Qupperneq 28
76
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982
Fljót, kiktu.| \)ab & einhi/er ndung\
d& bera sjónv/arpstðekic) ut 6r hús-
iou okkar."
ást er...
.. að haldast hönd
í hönd.
TM Reg U S Pat OH -ill rights reservod
• 19«? Los Angdes Times Syndtcate
___________•>
HÖGNI HREKKVÍSI
Óvinum lífeyrissjóð-
anna berst liðsauki
— erlendis frá
Jói skrifar:
„Fyrir skömmu var brugðið
mynd á skjáinn af forsætisráð-
herra Dana, Anker Jörgensen,
ásamt forsætisráðherra okkar,
Gunnari Thoroddsen, þar sem þeir
sátu á blaðamannafundi og í sam-
ræðum sín á milli. Fram kom að
sá danski var að kynna fyrir okkur
þær ljótu hugsanir danskra krata
að skattleggja vaxtatekjur lífeyr-
issjóðanna.
Eg fékk samstundis ótrú á þess-
um manni og virtist hann harla
skuggalegur og varhagaverður. Þá
var nú einhver munur að sjá
Gunnar okkar, verndara lífeyr-
issjóðanna, sitja keikan með
hreinan svip, ósnortinn af þessum
freistingum. En það var Gunnar,
sem á sínum tíma tryggði íslensk-
um lífeyrissjóðum raunvexti. Von-
andi bægir hann þessum ljótu
hugsunum og freistingum einnig
frá öðrum íslenskum valda-
mönnum, sem sækja að lífeyris-
sjóðunum úr öllum áttum.
-O -
Þessar vangaveltur forystu-
manna þjóðanna um ráðstöfun og
skattlagningu á sparifé almenn-
ings leiða hugann að því hvort
ekki sé orðið tímabært að endur-
skoða allt þetta fulltrúafár sem nú
tröllríður öllu á íslandi. Með því
að sá hatri og tortryggni á milli
aðila vinnumarkaðarins, hefur
svokölluðum fulltrúum þjóðarinn-
ar tekist að raka til sín stærsta
hlutanum af þjóðartekjunum, til
þess eins að leika sér að í innbyrð-
is valdabrölti án nokkurs tillits til
umbjóðenda sinna. Nýlegar efna-
hagsráðstafanir og sérstaklega
aðdragandi þeirra eru glöggt vitni
þessa. Efnahagur almennings er
gegnumboraður og margnagaður
af sífelldum rottugangi alls kyns
fulltrúa almennings, fulltrúum
verkalýðs- og atvinnurekenda,
fulltrúum Framkvæmdastofnun-
ar, Byggðasjóðs, byggingasjóðs,
lífeyrissjóða og svo framvegis og
svo framvegis. Enginn fær notið
neins af lífsins gæðum nema út-
hlutað í gegnum einhverja af öll-
um þessum fulltrúum sem oftast
eru hálaunaðir akademikerar rán-
dýrra stofnana.
Það er tími til kominn að hið
opinbera skili almenningi aftur
eignum sínum og tekjum og leyfi
honum að ráða meira sínum eigin
örlögum. Hann er til þess fær. Al-
Ber allt árið
Kristján Sæmundsson mat-
reiðslumaður hafði samband við
Velvakanda vegna fyrirspurnar
Jóhanns Guðmundssonar hér í
þættinum á föstudag, um geymslu
berja og frágang til seinni nota:
„Það er mikilvægt að berin séu
vel þroskuð," sagði Kristján, og í
öðru lagi þarf að hreinsa þau vel.
Síðan er ágætt að láta berin í skál
og strá sykri yfir; um 150—300 g
sykurs á hvert kíló af berjum.
Gott er að hella á milli tveggja
skála til að tryggja að berin þekist
öll af sykrinum. Eftir það er óhætt
að setja þau í glerkrukkur, pappa-
öskjur eða sellófanpoka og frysta,
en gæta þess jafnframt að skilja
eftir svo sem 2 sm þenslubil. Þetta
á jafnt við um bláber sem kræki-
ber.
Svo er til önnur aðferð sem ég
hef einnig góða reynslu af. Þá er
soðinn sykurlögur; um 400—700 g
af sykri sett í hvern lítra af vatni
og soðið upp á þessu. Berin eru
sett í kaldar, hreinar krukkur og
leginum hellt yfir, um 5—6 dl á
hvert kíló af berjunum, og þess
gætt sem fyrr að hafa þenslubil."
Skrifið eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til
föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Vísa vikunnar
Mkisstjómin:
jI0 millj. til fækk
unar sauðfjár
FFullt grundyallarverð komi fyrir kjöt af fulM
[orðnu fé, sem er umfram eðlilega slátrun
sambvkkti á neytinu, að rlkisstjórnin muni|
Sauðkindinni er þannig launuð þrautabjörgin:
leggja fé til höfuðs henni
hökusigin dusilmenni.
Hákur
Ástríður Thorarensen
„Snobb
er eitur
í mínum
beinum“
Álftnesingur skrifar 6. septem-
ber:
„Velvakandi!
Ég keypti tímaritið „Líf“ 3. tbl.
og las ég þar viðtal við Ástríði
Thorarensen, hina ungu og vel
gefnu borgarstjórafrú. Það er
gaman að lesa viðtal sem þetta,
sem lýsir greind og mannúð ungr-
ar konu er á stór verkefni fyrir
höndum. Hún segir eins og yfir-
skriftin: ,Snobb er eitur í mínum
beinum. Eg dreg ekki fólk í dilka
eftir stöðu þeirra eða stjórnmála-
skoðunum, og vona ég eigi aldrei
eftir að gera það.“
Ég vissi engin deili á Ástríði
fyrr en ég las þessa grein og fær
hún mikið hrós frá mér. Ég er ein
þeirra sem hún dregur ekki í dilka,
því ég er ekki alveg sammála
sjálfstæðismönnum í einu og öllu.
Ég vildi að fleiri sjálfstæðismenn
hefðu þennan hugsunargang, þá
hefði margt farið betur í vor. Eg
þakka Ástríði innilega fyrir við-
talið.“