Morgunblaðið - 12.09.1982, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982
77
„Ég fékk strai ótrú á þessum manni (Anker Jörgensen, forsætisráðherra
Dana,) og virtist hann harla skuggalegur og varhugaverður. Þá var nú
einhver munur að sjá Gunnar okkar, verndara lífeyrissjóðanna, sitja keikan
með hreinan svip, ósnortinn af þessum freistingum."
menningur getur mætavel talast
við án milligöngu allra þessara
fulltrúa. Þjóðin er meðhöndluð
eins og börn og óvitar. Þetta var ef
til vill skiljanleg afstaða áður en
almenn skólaskylda var fyrir
hendi. En nú eru aðrir tímar.
Þjóðin er vel menntuð og upplýst
og verðskuldar að komið sé fram
við hana sem slíka. Almenningi í
þessu landi er fullkomlega treyst-
andi fyrir eigin hag.“
Þessir hringdu . . .
Mannvirki á Straumnesfjalli:
í eigu Sölunefnd-
ar varnarliðseigna
Jón Gauti Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Náttúruvernd-
arráðs, skrifar 25. ágúst:
„I sambandi við fyrirspurn
Sigurjóns Hjaltasonar um
mannvirki á Straumnesfjalli er
birtist í Velvakanda 15. ágúst
sl., óska ég undirritaður að eft-
irfarandi komi fram:
Mannvirki þau á Straumnes-
fjalli, sem um er spurt, eru í
eigu Sölunefndar varnarliðs-
eigna, og rétt er hjá Sigurjóni,
að hér er um friðlýst land að
ræða.
Fljótlega eftir friðlýsingu
Hornstranda árið 1975 var
óskað eftir því við Sölunefnd-
ina að hreinsun færi fram. Var
vitnað í því sambandi í 15. gr.
náttúruverndarlaganna, en þar
segir m.a.:
„Hafi byggingar, skip í fjöru,
bifreiðir eða áhöld eða mann-
virki, þ.á m. girðingar verið
skilið eftir í hirðuleysi og
grotni þar niður, svo að telja
verði til lýta eða spjalla á nátt-
úru, er eiganda skylt að fjar-
lægja það.“
I framhaldi af því stóð Nátt-
úruverndarráð fyrir hreinsun í
Aðalvík sumarið 1978, en þar
voru þá ýmsir lausamunir frá
veru hersins. Greiddi Sölu-
nefndin kostnað sem var
hreinsun þessari samfara.
Hreinsun á sjálfu Straum-
nesfjalli hefur hins vegar ekki
farið fram, en Náttúruvernd-
arráð hyggst nú í vetur taka
upp viðræður við Sölunefndina
um það, og er vonandi að hægt
verði að hefjast þar handa um
hreinsun strax næsta sumar,
en hér er um mikið verk að
ræða og kostnaðarsamt."
Fyrirspurnir
til Heilbrigðis-
eftirlitsins
Ingibjörg Sigfúsdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mig
langar til þess að bera fram fyrir-
spurnir til Heilbrigðiseftirlitsins
vegna umræðna undanfarið um
rannsóknir sem gerðar hafa verið
á íslensku drykkjarvatni og flúor-
blöndun í því sambandi: Hver hef-
ur látið gera þessar rannsóknir?
Hver hefur framkvæmt þær? Ætl-
ar Heilbrigðiseftirlitið ekki að
kynna niðurstöður þeirra fyrir al-
menningi?
Til þess eru
rennurnar
Kristinn hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Ég var að
lesa klausu í þættinum hjá þér,
þar sem einhver 3287-9128 er að
fjargviðrast út af skyrpingum í
Sundlaugunum. Ég stunda nú
laugarnar mikið, bæði vesturfrá
og inni í Laugardal, og mér þætti
vænt um að fá að vita það hjá
þessum aðila, hvar fólkið á að
losa sig við þetta. Það er að fara
í laugar til þess að losa slím úr
lungum og innan úr sér yfirleitt,
og ég veit ekki betur en rennurn-
ar séu einmitt til þess að taka
við slíku. Fólk skyrpir í rennuna
og skvettir svo vatni á eftir, svo
að allt saman renni niður í
niðurfallið og út í sjó. Ég hef
aldrei séð fljóta þarna yfir renn-
urnar. Svo kom það illa við mig
þegar sami 3287-9128 fer að tala
um að hann hafi aldrei séð út-
lendinga gera þetta — eins og
þeir séu til svo mikillar fyrir-
myndar. Ég veit hins vegar ekki
betur en baðverðirnir eigi oft í
mesta basli með að fá þá til að
fara úr sundskýlunum og þrifa
sig almennilega áður en þeir
fara út í laugina. Þetta þarf
aldrei að nefna við okkur. Það er
leiðinlegt þegar verið er að gefa í
skyn að íslendingar séu ein-
hverjir dragbítar og sóðar. Ég er
nýkominn frá útlöndum og þar
blöskraði mér að sjá aðstæðurn-
ar á þessum sundströndum og
sóðaskapinn.
Um flúorblönd-
un og forsetann
María Markan skrifar:
„Vonandi fara íslendingar
ekki að eyðileggja okkar góðu
guðsgjöf, vatnið okkar, með
flúor eða öðru. Halda þeir
virkilega að unga ísland og
fleiri landar hætti við að borða
sitt prins-póló, drekka kók og
láta í sig önnur sykurefni og
fari allt í einu að drekka vatn
af því að búið sé að blanda flú-
or í það? Ég trúi því alls ekki.
Auk vatnsins megum við
vera þakklát fyrir forsetann
okkar. Allir okkar forsetar
hafa verið landsins heiður og
sómi, en hún Vigdís slær öll
heimsins met. Hvaða land í
heimi hefur nokkurn tíma átt
svo fagran forseta, fyrir nú
utan gáfurnar, menntunina og
allt hitt? Ef hægt væri að
springa af stolti, myndi ég lík-
lega gera það.“
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrst hefur: Þeir þekkja hvorn annan.
Rétt væri: Þeir þekkja hvor annan.
Oft færi best: Þeir þekkjast.
Bendum börnum á þetta!
SIG6A V/öGA £ 1/LVtRAW
FjðlskyldutOboð
á Esjubergi
Við bjóðum áfram sérstakt fjölskylduverð
um helgar.
Þríréttaður hádegisverður á kr. 125 og
þríréttaður kvöldverður á kr. 145.
Bömin fá sinn hamborgara ókeypis.
Á sunnudögum síðdegis, bjóðum við upp á
hlaðið borð af kökum. Töframaðurinn
kostulegi Ian Charles skemmtir börnunum
jafnt sem þeim fullorðnu á laugardags-
kvöldið og bæði í hádeginu og um kvöldið
á sunnudag.
Einnig fjölbreyttur sérréttaseðill
#HOfEL«
=isiiyjin
Aning í alfaraleið
ALLTAF Á ÞRIÐJUDÖGUM
URSLITIN
í 1. DEILDINNI
í KNATTSPYRNU
ENSKA OG ÞÝSKA
KNATTSPYRNAN
MBL. HEIMSÆKIR
REAL SOCIEDAD
MÓTHERJA VÍKINGS
í EVRÓPUKEPPNINNI
ítarlegar og spennandi íþróttafréttir
SXSuáGht
xa m «vi/ttA
xlÉtíflA
\IÚiWU c
xluQMu W9
& 0Áfeow/
K