Morgunblaðið - 12.09.1982, Qupperneq 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982
Umsjón: Séra Karl Sigurbjömsson
Séra AuÖur Eir Vilhjálmsdóttir
AUDRÖTTINSDEGI
Bœn um frið
Frá því að sprengjan sprakk yfir Hiroshima í ágúst 1945, þegar 300.000
manna borg breyttist í einni andrá i rjúkandi rúst með ólýsanlegum
hörmungum fyrir þá sem af lifðu, jafnvel í margra kilómetra fjarlægð frá
borginni sjálfri, hefur mannkyn lifað undir sortaskýi helsprengjunnar. Sú
ógn má aldrei verða að raunveruleika.
Drottinn,
við erum fólk,
sem þekkir vel angist daganna
undir skuggaskýi hel-
sprengjunnar.
Við lifum í forsælu óttans,
án sólaryls í sálum okkar.
Drottinn,
jörðin þín hefur kulnað.
Við erum að gleyma því,
að friður hefur í för með sér
hamingju, vellíðan, eining.
Menn vilja fá okkur til að
trúa því,
að friður sé hið sama og
ógnarjafnvægi.
Okkur er ætlað að trúa því
að það að lifa af
sé hið sama og að lifa.
Drottinn,
það er orðið áliðið.
I eitraðri hversdagstilveru okkar
eru til kjarnorkuvopn,
sem nægja til að afmá okkur öll
tuttugu sinnum.
Þó eigum við aðeins eitt líf.
Drottinn,
það er örðugt að horfast í augu
við sjálfan sig.
Það er með öllu ómögulegt
að líta í augu barnsins.
Hvers vegna? spyrjum við.
Hvers sök er þetta?
Drottinn,
við viljum helst trúa því
að það séu hinir,
sem eru vitfirrtir.
Þó vitum við vel,
að í okkur sjálfum
er það fólgið.
Það er skelfileg staðreynd
en þó okkar eina von,
því við hljótum að viðurkenna,
að baráttan fyrir friði
hefst hjá okkur sjálfum
til að breiðast síðan út
eins og gárur
á sléttum haffleti
uns henni skolar inn
yfir Pentagon og Kreml.
Drottinn,
manstu eftir því
að spámenn þínir boðuðu
þann frið
sem engan enda tekur?
Hvenær, spyrjum við,
verða smíðuð plógjárn úr
sverðunum
og brýr úr bombunum?
Hvenær
mun úlfurinn ganga með
lambinu?
Drottinn,
manstu eftir því,
að þú hefur talað frið
til lýðs þíns?
Hvenær, spyrjum við,
mun trúfesti og sannleikur
mætast?
Hvenær
munu réttlæti og friður kyssast?
Drottinn,
minnstu loforða þinna!
Við sleppum þér ekki
fyrr en þú blessar okkur.
Drottinn,
sælir eru friðflytjendur.
Gef okkur eld þinn,
svo við getum tendrað ljós
í myrkrinu.
Ljá okkur rödd þína
svo við getum yfirgnæft
hávaðann
og hrópað gegn skarkalanum
að við verðum að voga
að treysta hver öðrum.
Drottinn,
gef okkur kærleika þinn,
að við getum heilgað hið sundraða
og brætt hatrið.
Einn sneri aftur
14. sunnudagur eftir trinitatis
Lúkas 17, 11—19
Guöspjallið í dag segir frá hinum 10 líkþráu mönnum, sem
Jesús læknaði af líkþrá. Við munum það mætavel að aðeins einn
þeirra snéri aftur til að þakka Jesú. Hvílíkt vanþakklæti, segjum
við og meinum það svo innilega. En æ, því miður erum við nú
svona vanþakklát sjálf.
Einu sinni átti þessi þjóð í stríði við fátækt, kulda og hungur.
Það er liðin tíð, Guði sé lof. Sú fátækt, sem margir áttu við að
stríða á fyrri hluta aldarinnar, er meira að segja úr sögunni. En
við vitum það vel að fáir einir hafa snúið sér til Drottins til að
þakka honum framfarirnar og velgengnina.
öll erum við sek um vanþakklæti við Drottin okkar og öll líðum
við vegna þessa vanþakklætis. Það gerir okkur óánægð og smá í
sniðum. Við megum til með að taka guðspjallið til okkar strax í
dag og fara tafarlaust að æfa okkur i þakklæti. Við skulum taka
okkur tíma til þess fyrir kvöldið að telja upp gjafir Guðs til okkar,
sérdeilis þær, sem hann hefur gefið okkur núna í síðustu viku. Það
er ekki að efa að við verðum hýrari á brúnina og hlýrri í hjarta
þegar við sjáum allt það, sem Guð hefur gefið okkur.
Þá fáum við að vera í sporum hins eina, sem kom til Jesú og
þakkaði honum lækninguna. Við fáum þá eins og hann að lofa
Jesú hárri raustu og þakka honum. Og við fáum að heyra Jesúm
segja við okkur: Trú þin hefur bjargað þér.
I dag byrjar ný vika. Við megum nú æfa okkur ( þakklæti á
hverjum degi alla þessa viku. Og á laugardaginn kemur skulum
við muna eftir því að líta inn í huga okkar og sjá hvort þar er ekki
bjartara eftir þessa nærveru okkar við Drottin okkar og Frelsara,
gjafara alls, Hka þess þakklætis, sem við eigum oft svo erfitt með
að höndla.
Friðar- og þakkar-
gjörðardagur
í dag sameinast kirkja íslands i þakkargjörð fyrir ástgjafir Guðs,
mildi hans og hlifð yfir lýði og landi. og jafnframt í bæn fyrir friði og
sáttargjörð milli manna og þjóða. I ályktun Prestastefnunnar 1982
segir svo í III kafla:
„Vér hvetjum söfnuði landsins til þess að leggja aukna áherslu
á uppeldi til friðar með því að:
a) Ástunda slíkt uppeldi innan fjölskyldunnar sjálfrar og í sam-
skiptum milli heimila á þann hátt m.a. að sýna sáttfýsi, sann-
girni, hógværð og umburðarlyndi.
b) Vekja menn til vitundar um skaðsemi ofbeldis í fjölmiðlum,
myndböndum, leikföngum og á fleiri sviðum.
c) Vekja til umhugsunar um sáttaleiðir í deilumálum, stórum og
smáum, og minnast gildis hins fórnandi kærleika.
d) Byggja upp gagnkvæmt traust milli einstaklinga og hópa og
vinna gegn fordómum með því að hvetja menn til þess að virða
skoðanir annarra.
framtíð
— og gef okkur trú,
að við getum saman flutt
þau fjöllin öll,
sem tálma för okkar
til friðar.
Drottinn,
hjálpa okkur
að vera salt jarðar
sem ber henni frið þinn.
Gef okkur von,
svo við getum búið börnum
okkar
Drottinn,
heyr þá bæn.
AMEN
(ílr dönsku)
I stíl Lúðvíks 15.
Hágæðahúsgögn sem eiga sér ekki hliðstæðu.
Húsgögn fyrir fólk með hágæðakröfur
Opið í dag, sunnudag,
frá kl. 1.30-6.
húsgögn
Ármúla 44, símar 32035 — 85153.