Morgunblaðið - 19.09.1982, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
54
Sextugur:
Páll Pálsson hrepp-
stjóri á Borg
í dag er Páll Pálsson, bóndi og
hreppstjóri á Borg í Miklahoits-
hreppi, sextugur. Verðugt væri að
skrifa góða grein um svo ágætan
samferðamann og sveitarhöfð-
ingja, en stutt afmæliskveðja
verður að nægja að þessu sinni.
Ýmir munu ætla, að Páll sé borinn
og barnfæddur Snæfellingur, en
svo er ekki. Hann er fæddur og
uppalinn við ísafjarðardjúp. For-
eldrar hans voru bændahöfðing-
inn Páll Pálsson í Þúfum og Björg
Andrésdóttir, kona hans. En eig-
inkona Páls á Borg er Inga Ás-
grímsdóttir Þorgrímssonar á Borg
í Miklaholtshreppi og þar hafa
þau hjón búið allan sinn búskap.
Börn þeirra eru Páll verkstjóri í
Reykjavík, kvæntur Hafdísi Hall-
dórsdóttur Benediktssonar frá
Hellissandi; Ásgrímur bifreiða-
stjóri, sem býr í Gröf, ásamt
heitkonu sinni Helgu Tryggva-
dóttur frá Vöglum í Eyjafirði;
Auðunn húsasmiður á Borg,
kvæntur Rósu Einarsdóttur;
Arndís og Björgvin heima á Borg
hjá foreldrum sinum. — Þeir, sem
leið eiga um Miklaholtshrepp og
eitthvað líta í kringum sig, komast
varla hjá því að veita Borg sér-
staka athygli, svo og Minni-Borg,
þar sem mágur Páls, Halldór Ás-
grímsson, býr með sinni fjöl-
skyldu. Á þeim jörðum er stór-
mannlega hýst og vel búið. Ofar
túnum rís klettaborgin sjálf, tign-
arleg náttúrusmíð, mótuð af
meistarahöndum, fegurst á þá hlið
sem að fjallinu veit, segir Ásgrím-
ur á Borg. Og yfir byggðinni
gnæfa Ljósufjöll í allri sinni dýrð.
Páll á Borg hefur auk mikilla
umsvifa og búsýslu heima fyrir
unnið mörg og mikilvæg störf í
þágu sveitar sinnar og sýslufélags.
Hann hefur setið í hreppsnefnd og
lengi verið hreppstjóri Miklhrepp-
inga. Árum saman markavörður
héraðsins og unnið m.a. í fast-
eignamats-, úttektar- og jarða-
nefndum. Hann hefur átt sæti á
aðalfundum Stéttarsambands
bænda og búnaðarþingi. Öll störf,
sem Páll tekur að sér, rækir hann
af samvizkusemi, trúmennsku og
reglusemi í hvívetna. Páli hefur
hlotnazt sú gæfa að eignast góða
konu og einstaklega samhenta og
trausta fjölskyldu, sem lítur á
Borg sem óðal, heimkynni og at-
hvarf, þó að leiðir kunni að liggja
að heiman á stundum.
Á þessum tímamótum sendum
við hjónin afmælisbarninu beztu
þakkir fyrir góð kynni og vináttu
og árnum fjölskyldunni á Borg
allra heilla á komandi árum.
Friðjón Þórðarson
Getur borgað sig
að sóða ekki út
f SAMVINNU við Flugleiðir hefur
Pylsuvagninn í Austurstræti ákveðið
að brydda upp á nýjung til að reyna
að stuðla að auknu hreinlæti í mið-
borginni.
Fær hver viðskiptavinur pylsu-
vagnsins, sem hendir pylsubréfun-
um í þar til gerðar ruslatunnur við
vagninn, afhentan sérstakan
happdrættismiða, sem gerður hef-
ur verið af þessu tilefni.
Miðar þessir gilda í happdrætti
sem dregið verður í síðar á árinu.
Fær vinningshafinn að launum
helgarferð til Luxemborgar og
ókeypis máltið á veitingahúsinu
Cockpit Inn, sem er í eigu Valgeirs
Sigurðssonar.
Kjörorð pylsuvagnsins hefur í
ár verið „hreint torg“ og hafa allir
starfsmenn hans verið klæddir
þar til gerðum vinnufötum með
þeirri áletrun á.
SÆNSKA 0DUX) HEILSURÚMIÐ
í dag eru allir helstu fagmenn á þessu sviði
á sama máli og DUX:
Fyrirmyndardýnan á að hafa mjúkt efra lag
og hart neðra lag, þannig að hryggurinn hvíl-
ist alltaf í eðlilegri stellingu.
DUX hefur ávallt framleitt dýnur í samræmi
við þessa reglu.
En það er fyrst með tækniframförum nú-
tímans, sem tekist hefur að sanna að DUX-
reglan býður upp á einstæðan svefn og betri
slökun.
Á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi
hefur umfangsmiklum rannsóknagögnum
verið safnað saman. í þeim kemur hvað eftir
annað í ljós að DUX-dýnan ber af öðrum.
Leyndardómur DUX-dýnunnar felst í tvö-
faldri fjöðrun úr sérstöku stáli.
Harður neðri hlutinn tryggir djúpfjöðrun
og tekur á móti öflugum hreyfingum.
Efri hlutinn, sem er mýkri, gefur eftir þar
sem hann verður fyrir þrýstingi og lagar sig
þannig að líkamanum. Hann lætur undan
þrýstingi frá öxlum og mjöðmum, en styður
þægilega við mitti og fótleggi.
Meira en 1000 gormar eru til taks að bregð-
ast við sérhverri hreyfingu líkamans.
Með tilliti til gæða er Dux einnig öðrum
dýnum fremri. Sérhver hlutur er valinn af
kostgæfni með hliðsjón af því hlutverki, sem
honum er ætlað. Dýnurnar gangast undir
prófanir, sem jafngilda meira en tuttugu ára
tillitslausri notkun. Prófraun felst í því, að
110 kg trébrúðu er velt án afláts fram og aft-
ur á dýnunni.
Eftir þessa óblíðu meðhöndlun verða
gormarnir engu að síður að vera sem nýir -
ekki aðeins heilir, heldur einnig með upphaf-
legri fjöðrun og mýkt. Þegar góð ending
DUX dýnunnar er höfð i huga má segja, að
hún sé ekki aðeins öðrum dýnum betri, held-
ur einnig ódýrari.
Þegar allt kemur til alls kosta notaleg ró
og einstakur svefn á DUX-dýnu aðeins
nokkra aura á nótt.
Má það ekki teljast viðunandi kostnaður
þegar í boði er að eyða þriðjungi ævinnar á
konunglega vísu?
Tilfinningin þegar þú liggur á DUX-dýnu
er sannarlega engu lík. Þegar þú liggur á
bakinu finnur þú hversu vel dýnan styður við
allan líkamann frá toppi til táar.
Þegar maður sofnar hvílist sérhver vöðvi í
fullkominni slökun.
Maður vaknar og byrjar nýjan dag ut-
hvíldur til líkama og sálar.
Ekkert húsgagn er eins mikið notað og
rúmið.
Enginn hlutur hefur eins mikil áhrif á það,
hversu miklu við fáum áorkað í.starfi og
leik.
Þú hefur sannarlega farið mikils á mis. Það
muntu þó ekki uppgötva fyrr en þú hefur
fengið þér DUX-dýnu.
DUX 2000 er DUX-dýnan sem uppfyllir
ýtrustu kröfur. Hún hefur djúpt efra lag
með sérstaklega mjúkri fyllingu. Breidd: 90
og 120 cm. Lengd: 200 cm.
DUX 484 er mest selda DUX dýnan. Hún
er framleidd í tveimur misjafnlega mjúkum
útgáfum. Breidd: 90-105-120-140-165 cm.
Lengd: 200/210 cm.
HRINGIDÍ
27560
_ .. .og við sendum þér að kostnaðarlausu nákvæmar
■ upplysingar um betri og dýpri sveln i sænsku DUX
■ heilsurúmi
DUX
AÐALSTRÆTI9 SÍMI27560