Morgunblaðið - 19.09.1982, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.09.1982, Blaðsíða 12
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 Bíóið inn í bækurnar Höfundur þeirrar bókar sem að undanfornu hefur verið söluhæst í Bandaríkjunum er, eins og venja er um slika menn, afskaplega ríkur og hefur víst nálægt tveimur milljónum dala í irstekjur. Hann heitir Steph- en King og skrifar í hasar- og hryll- ingsmyndastíl. Kvikmyndir hafa og verið gerðar eftir mörgum sögum hans og fleiri eru á leiðinni. Af þeim sem þegar hafa litið dagsins Ijós má nefna „Carrie", „The Shining" og „Cujo“. Nýja bókin heitir „Different Seasons" og er yfir 500 bls. að stærð. Hún hefur að geyma fjórar sögur, en aðeins ein þeirra er þó alvöru hryllingssaga. Höfundur- inn virðist vera að leita eftir við- urkenningu gagnrýnenda sem eitthvað annað og meira en æsi- sagnahöfundur. Ekki er vitað um viðbrögð þeirra enn. Hins vegar hefur stíll Kings verið nefndur „eftirlæsis-stíll" (Postliterate Prose) og er þá átt við það, að lesandi bóka hans eða annarra höfunda, sem skrifa á þennan hátt, þurfi ekki að vera sérlega skarpur eða frjór í hugsun til að hafa full not af sögunum, þar eð hann þurfi ekki að geta sér í hugarlund nema agnarlítið brot af því sem sagt er frá. Nánast öllu er lýst með tilvísun til kvikmynda eða sjónvarpsþátta sem lesandinn Stephen King Umsjón: Sveinbjörn I. Baldvinsson hefur séð eða teiknimyndablaða sem hann hefur skoðað. Stephen King lýsir því hvernig einni sögupersónu sinni er inn- anbrjósts þegar hún þarf að leysa úr einhverjum vanda, á eftirfar- andi hátt: „Honum varð hugsað til teiknimyndafígúru með steðja festan á höfuðið." Stundum setur hann nánast hljóðrás inn í sögur sínar: „Ég tók að heyra fyrir mér uggvænlega fiðlutónlist." Þegar menn í einni sagna hans finna lík, sem þeir hafa leitað lengi, veltir sögumaðurinn fyrir sér hvernig þeir myndu koma líkinu fyrir sjónir, væri það ekki liðið: „Éins og líkburðarmenn í hryllings- mynd“. Stephen King er ekki fyrstur rithöfunda til að innleiða popp- menninguna í verk sín. Thomas Pynchon og Donald Barthelme hafa einnig leikið sér að þessari hugmynd, svo einhverjir séu nefndir. King er ánægður með vinsældir þess sem hann skrifar, en jafnframt leiðist honum þegar hann er sakaður um að vera, að vandlega yfirlögðu ráði, að mjólka gjöfulan markað. „Ég tek skriftir mínar jafn alvarlega og mér fram- ast er unnt," segir Stephen King, höfundur sjö skáldsagna, eigandi nútímalegs húss í litlu þorpi í Maine og tuttugu og þriggja her- bergja hallar annars staðar í fylk- inu. Á hvorum staðnum sem hann dvelur í hvert sinn með fjölskyld- unni, framleiðir hann 1500 orð á dag. Gróft reiknað fær hann tæpa fjóra dollara fyrir hvert þeirra, svo það er kannski ekki nema von að hann taki skriftirnar alvarlega. — Byggt á TIME Listinn yfir mest seldu skáldverkin í Banda- ríkjunum leit þannig út í vikuritinu Time 13. september sl. Listinn er byggður á upplýsingum frá 1000 bóka- verslunum þar í landi. Tölurnar í svigum tákna stööuna næstu viku á undan. 1. Different Seasons (King) (D 2. Master of the Game (Sheldon) (-) 3. E.T: The E.T. Storybook (Koktzwinkle) (-) 4. The Valley of Horses (Auel) (-) 5. The Prodigal Daughter (Archer) (2) 6. The Parsifal Mosaic (Ludlum) (3) 7■ The Case of Lucy Bending (Sanders) (4) 8- Lace(Conran) (9) 9. The Man from St. Petersburg (Follett) (7) 10. The One Tree (Donaldson) (6) I Þrjár jólabækur frá Rifbjerg LÍKT og hér á landi, eru um þessar mundir að mótast úti í heimi útgáfu- áætlanir bókaforlaganna á komandi vertíð. Eitt stærsta bókaforlag f nágrannalöndum okkar, danska fyrirtækið Gyldendal, sendi nýlega frá sér útgáfulista sinn. Þar er að finna 148 væntanlegar útgáfubækur eftir þekkta og óþekkta höfunda Hér verða nefndar fáeinar. Einhver þekktasti og mikilvirk- asti rithöfundur Dana á hvorki fleiri né færri en þrjár bækur á þessum lista. Sá er Klaus Rifbjerg. Að þessu sinni gefur Gyldendal út eftir hann eina skáldsögu, eitt leikrit og eina ljóðabók. Skáldsag- an ber nafnið „Jus og/eller Den Gyldne Middelvej" og fjallar um huggulegan eiginmann sem verður gripinn löngun til að myrða konu sína eftir silfurbrúðkaupið. Leik- ritið nefnist „Sangen om sengen" og verður frumsýnt í Konunglega leikhúsinu nú í desember. Ljóða- bókin heitir „Landet Atlantis". Poul 0rum sendir í haust frá sér bókina „Ravnen mod Aften" en þar lýsir hann líðan sinni eftir að hann missti konu sína í janúar 1980. Svipað efni tekur Dea Trier Morch til meðferðar í nýrri skáldsögu sinni sem heitir „Áft- enstjernen" og verður gefin út af Vindrosen-forlaginu. í fyrra kom út skáldsagan, „Klokken í Makedonien" eftir bókasafnsfræðinginn Knud H. Thomsen og hlaut hún mjög góða dóma ekki síst fyrir gamansemina sem í henni fólst. Nú hefur Thomsen sagt upp starfi sínu og helgað sig ritstörfum eingöngu. Afraksturinn af því er ný skáld- saga, Roverne í Skotland" sem mun vera í svipuðum anda og fyrsta bókin. Thomsen hefur lagt mikla vinnu í gagnasöfnun fyrir þessa sögu og meðal annars farið fimm ferðir til Skotlands þeirra erinda. Sagan gerist á árunum fyrir orrustuna á Culloden-heiði 1746. Fella- og Hólasókn Aöalfundur Fella- og Hólasafnaðar veröur haldinn sunnudaginn 26. sept. í safnaðarheimilinu Keilufelli 1, aö lokinni guösþjónustu sem hefst kl. 11 árdegis. Sóknarnefnd. LÆRID BRIDGE LÆRIÐ BRIDGE BRIDGESKÓLINN BORGARTÚNI 18 BYRJENDANÁMSKEIÐ 28. sept.—30. nóv. 10 skipti. þriðjudagskvöld kl. 20.00, 3 klst. í senn. LENGRA KOMNIR FRAMHALDSNÁMSKEIÐ: 27. sept.—29.nóv. 10 skipti mánudagskvöld kl. 20.00, 3 klst. í senn. SPILAKLÚBBUR BRIDGESKÓLANS, öll miövikudagskvöld frá 29. sept., opnaö kl. 19.30. HAUSTIÐ ER RÉTTI TÍMINN TIL AÐ BYRJA BRIDGESKÓLINN uppl. og skráning í síma 19847. Örn Clausen, hrl., Barónsstíg 21,101 Reykjavík. S. 12994 — 18499. Húseign Verzlunarmannafólags Reykjavíkur aö Hagamel 4, Reykjavík er til sölu. Eignin er aö grunnfleti 137 m2, kjallari og tvær hæöir. í risi er salur ca. 100 m2. Eigninni hefur ætíö verið haldiö vel viö og er í mjög góöu ásigkomulagi. Eignin er til sýnis á venjulegum skrifstofutíma, frá kl. 09:00—17:00, eöa utan skrifstofu- tíma eftir nánara samkomulagi. Tilboðum í eignina skal skilaö á skrifstofu undirritaös fyrir kl. 12:00 þann 30. september nk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.