Morgunblaðið - 19.09.1982, Blaðsíða 18
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
Umsjón: Séra Karl Sigurbjörnsson
Séra AuÖur Eir Vilhjálmsdóttir
!iHPl
Áll DROTTINSDEGI
Má kasta föðurhlutverki
Guðs fyrir róða ?
Hver telur þú að sé staða
kvenna í kirkjunni? Athugun,
sem gerð var á hinum Norður-
löndunum, leiddi í ljós að karlar
eru þar ráðandi í öllum stjórn-
arstörfum. Konur starfa við hlið
þeirra sem ómissandi vinnuafl
en þeim er ekki hleypt þangað,
sem ákvarðanir eru teknar. Ef
víðar er litið um veröld kemur
hið sama í ljós sem og að í þjóð-
félögunum utan kirkjunnar er
hlutur kvenna víða lítill. Kirkjan
hefur hafið sókn til að bæta hag
kvenna og vinna að jafnrétti og
samvinnu karla og kvenna. Einn
liðurinn í því starfi er að halda
mót og ráðstefnur um gjörvalla
heimsbyggðina og í maí í sumar,
7.-9. maí, var ein slík ráðstefna
haldin í Járvenpáá í Finnlandi.
Séra Hreinn S. Hákonarson, sem
þá starfaði við Norrænu sam-
kirkjustofnunina í Sigtúnum,
NEI, sótti ráðstefnuna sem full-
trúi íslensku kirkjunnar.
Erindi Dr.
Constance Parvey
Við spyrjum séra Hrein um
fyrirlestra ráðstefnunnar og
hann segir okkur fyrst frá fyrir-
lestri dr. Constance Parvey. Hún
starfaði sem prestur í Banda-
ríkjunum en var kölluð til Genf-
ar til að annast mikið starf á
vegum Alkirkjuráðsins varðandi
samstarf karla og kvenna.
— Erindi dr. Parvey var mjög
skemmtilegt. Hún vitnaði í upp-
hafi í orð Dietrich Bonhoeffer:
Let us go forth and seek the
church together. Hún sagði að
þessi orð ættu að vera yfirskrift
þessarar umræðu, þetta væri
sameiginlegt verkefni kristinna
manna og enginn gæti dregið sig
í hlé í skjóli kynferðis.
Konur og karlar
í auglýsingum
Dr. Parvey fjallaði um það
hvernig konur væru notaðar í
auglýsingum og sagði að þar
væri niðurlæging konunnar hvað
augljósust. Konan væri þrykkt í
munstur ákveðinna hlutverka en
það sama væri í rauninni að ger-
ast með karlmanninn. Það er
farið að nota hann meira og
meira í auglýsingum og festa
Séra Hreinn S. Hákonarson út-
skrifaðist úr guðfræðideild ||j TOrið
1981. Hann er nú settur sóknar -
prestur í Söðulsholtsprestakalli.
hann í ákveðnum hlutverkum.
Þetta er slæmt fyrir bæði kynin.
Má kasta föðurhlut-
verki Guðs fyrir róða?
Hún ræddi um guðshugtakið
og velti því fyrir sér hvort ekki
mætti gefa föðurhlutverk Guðs
upp á bátinn. Faðirinn var áður
tákn styrkleika, trausts og ná-
vistar. Það gildir ekki lengur í
þjóðfélögum okkar. Feður eru að
heiman, þeir eru ekki hinir
traustu uppalendur, í uppeldinu
er treyst á miklu fleiri aðila. Dr.
Parvey minnti á Mary Daly, einn
af brautryðjendum kvenna-
guðfræðinnar, og taldi hana of
róttæka í þessum efnum. Hún
taldi að hjá henni gætti sterkrar
tilhneigingar í þá átt að snúa
hlutunum við en það væri ekki
ætlunin, heldur sú að draga
fram jafnstöðu.
Óréttlæti í garð kvenna
— almennt óréttlæti
Dr. Parvey telur að skoða beri
undirokun kvenna og karla í
nánum tengslum við almennt
óréttlæti er viðgangist í heimin-
um. Hún talaði um arðrán í
þriðja heiminum og kynþátta-
misræmi og sagði að öll þessi
mál bæri að skoða sem heild.
Erindi frá Norðurlöndum
Göran Agrell frá Stokkhólmi
kynnti athugun, sem gerð hefur
verið á hinum fjórum Norður-
löndunum á samfélagi kvenna og
karla í kirkjunni. Dr. Pirkko
Lethiö, einn hinna fjölmörgu
kvenguðfræðinga Finna, flutti
erindi um umræðu innan lút-
ersku kirkjunnar í Finnlandi um
konur og karla í kirkjunni.
Biblíulestrar voru haldnir undir
stjórn Ellen Juhl Christiansen
lektors frá Danmörku. Þeir voru
mjög skemmtilegir og umræður
voru fjörugar. Fjallað var um
textann í Gal. 3, 26—28. Þau,
sem lögðu orð í belg, undirstrik-
uðu öll að textinn væri afar mik-
ilvægur i umræðunni um stöðu
karla og kvenna í samfélagi
kristinna manna.
Hvað hindrar samfélag
karla og kvenna?
Þá voru hringborðsumræður
um það hvað hindrar samfélag
karla og kenna. Flestir töldu að
höfuðhindrunin væri hin fast-
bundna hlutverkaskipting, sem
ætti sér margvíslegar rætur.
Ekki voru allir sammála um
hverjar þær rætur væru, sumir
töldu ða hindranirnar væru
þjóðfélagslegar, aðrir að þær
væru persónulegar og fólk gæti
kannski ráðið við þær með per-
Verið ekki áhyggjufullir
15. sunnudagur eftir þrenningarhátið
Matt 6, 24-34.
Áhyggjur þekkja allir, ungir sem aldnir. Þær fylgja lífi okkar
frá morgni til kvölds, og varna mörgum svefns og hvíldar um
nætur. Það eru bæði hinar smávægilegu, hversdagslegu áhyggj-
ur, og hin alvarlegri vandamál, stóru „krísurnar" í lífinu. Þetta
allt þekkir sá, sem flytur fjallræðuna og hvetur okkur þar og
uppörvar með hvatningunni dásamlegu: „Verið ekki áhyggju-
fullirf"
Áhyggjur hjálpa aldrei hið minnsta, og verða oft til að bregða
fæti fyrir lifsgleði og lífsvon alla. Við getum ekki komið í veg
fyrir að þær láti á sér kræla, en við getum aftrað þeim frá því að
búa um sig með okkur. Eða eins og Lúther sagði einhverju sinni:
JÞú getur ekki varnað fuglunum að fljúga yfir höfði þér, en þú
getur komið í veg fyrir það að þeir byggi sér hreiður í hári þínu!"
Hann sagði líka að andstæða trúarinnar væri ekki vantrú, held-
ur kvíði og áhyggjur. Vegna þess að það að trúa er að treysta
þeim Guði sem Jesús Kristur birtir sem himneskan föður, sem
veit og skilur og elskar. Gegn áhyggjum gefur Kristur okkur það
ráð, sem virkast er: að biðja föðurinn á himnum, og fela á
hendur honum allt sem áhyggjum veldur, jafnt hið smávægilega
sem og torleystu vandamálin. Og svo megum við vita og treysta
því, að hann muni vel fyrir sjá.
„Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir
yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður
Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og
hugsanir yðar í Kristi Jesú.“ (FiL 4, 6-7.)
sónulegu framtaki meira en gert
væri.
Yfirskriftir starfshópanna
Starfshópar unnu af kappi og
skiluðu áliti. Starfshóparnir
voru sex og verkefni þeirra voru
þessi: 1. Samfélag karla og
kvenna. 2. Guðsmyndin og tákn-
málið. 3. Mannskilningurinn —
karlinn. 4. Mannskilningurinn —
konan. 5. Hefðin í kirkjunni og
þýðing hennar fyrir samfélagið.
6. Hvernig birtist kvenna-
kúgunin í þjóðfélaginu?
Ég var í starfshópnum um
hefðina og það var, gagnstætt
því, sem ég átti von á, afar
skemmtilegur hópur. Kari
Börresen frá Noregi stjórnaði
hópnum. Hún flutti inngangs-
orð, þar sem hún ræddi m.a.
hvernig hefðin, bæði í Ritning-
unni og hjá kirkjufeðrunum,
hefði verið notuð til að undiroka
konuna. Hún taldi að hefðin
væri ónothæf, þó yrði henni ekki
kastað í einni svipan.
Ljóöalestur
Mörtu Tikkanen
Þessi ráðstefna var í rauninni
of fjölmenn, þarna voru um sex-
tíu manns, sem áttu ekki lengri
tíma saman en tæpa tvo daga.
Gestum ráðstefnunnar var boðið
til Helsinki og þar var skoðuð
sænsk-finnska menningarmið-
stöðin Hanaholmen. Við hlýdd-
um á lestur skáldkonunnar
Mörtu Tikkanen. Ljóð hennar
fjölluðu flest um undirokun kon-
unnar. Það var magnaður
kvæðalestur og mjög eftirminni-
legur.
Þessir andstæð-
ingar kvenpresta
halda greinilega
að Guð sé karl-
kyns.
Þennan mun sér Guð á kvenprestum og karlprestum.
Heilsuvika
á Húsavík
íslendingar leitiö ekki langt yfir skammt aö hvíld og
hressingu.
Heilsuvikur hafa veriö ákveönar frá 26.9.—28.11
1982 og frá 6.2.—10.4. 1983.
Upplýsingar á Hótel Húsavík, Feröaskrifstofu ríkisins,
Ferðaskrifstofunni Orval og Feröaskrifstofunni Útsýn.
Hótel Húsavík
Breiðholtsbúar
Aad Groeneweg
(sem áður rak Alaska í Breiöholti)
hefur opnaö nýja blómaverslun aö Arnarbakka 2,
Breiöholti.
Viö önnumst blómaskreytingar viö öll tækifæri og leggj-
um áherslu á góöa þjónustu.
Haustlaukar í úrvali. Póstsendum.
Opiö alla daga vikunnar frá 9—21.
BREIÐHOLTSBLÓM
ARNARBAKKA 2 SÍMI 79060 PÓSTHÓLF 9092 129 REYKJAVlK.