Morgunblaðið - 19.09.1982, Side 29

Morgunblaðið - 19.09.1982, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 77 iftL^AKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI Þessir hringdu . . . Hvernig væri að reisa kæfu verksmiðju? H.Þ. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Ég hef verið að lesa um það í blððunum, að við Íslendingar eig- um svo mikið kjöt og ættum að gefa eitthvað af því til fátækra landa. Mér fyndist svo sem ekkert að því, ef við mættum einhvers í missa, en mér heyrist á flestum að svo sé ekki. Þess vegna hefur mér dottið í hug, hvort ekki sé hægt að gera betur í markaðsöflun fyrir kjöt og kjötvörur okkar erlendis, sérstaklega unnar kjötvörur. Væri ekki t.d. hægt að reisa hér verk- smiðju til þess að búa til kæfu úr einhverju af þessu kindakjöti og selja á markaði erlendis, þótt ekki sé hægt að selja það í heilum skrokkum. Veitir nokkuð af því, að við reynum að grynna eitthvað á erlendum skuldum þjóðarinnar. Svona þjónusta er fyrir neðan allar hellur Sesselja Ingimundardóttir, Kefla- vík, hringdi og hafði eftirfarandi að segj a: — Ég hef unnið við trygg- ingastörf og veit hversu mikið er í húfi að sjúklingum þyki vel um sig sinnt, hvort sem er á því stigi eða úti í heilsugæslunni sjálfri. Mig langar til að segja frá nýlegri reynslu minni, heldur óskemmti- legri, þar sem ég Jjurfti sjálf á þjónustu að halda. Eg átti pantað- an tíma á heilsugæslustöðinni. Þar sem viðkomandi læknir sem ég átti pantaðan tíma hjá var ekki viðlátinn, var mér komið að hjá öðrum lækni. Ég er ævi-blóðþrýst- ingssjúklingur og mig vantaði lyf, auk þess sem ég ætlaði að láta mæla þrýstinginn, en það tekur ekki nema örskamma stund. Ég þáði því boðið með þökkum og fór til læknisins. Þegar ég kem til hans neitar hann að mæla hjá mér blóðþrýstinginn, segist aðeins hafa tekið að sér að skrifa upp á lyfseðil, en ekkert meir. Og mann- inum varð ekki þokað í þessari ákvörðun sinni. Ég hafði tekið mér frí í vinnu til að komast í þennan viðtalstíma, svo að mér sárnaði þetta, auk þess sem maðurinn var ekkert að reyna að dylja óþolin- mæði sína: „Þú getur látið þinn lækni mæla þinn blóðþrýsting," sagði hann með þjósti. Þó eru eng- ir heimilislæknar í Keflavík og maður vitjar aðeins vakthafandi lækni heilsugæslustöðvarinnar hverju sinni. Mér finnst svona þjónusta fyrir neðan allar hellur og langar til að vita, hvort fleiri Keflvíkingar hafa fengið móttök- ur í þessum dúr. Stórgóður og lif- andi flutningur 6350-7148 hringdi og hafði eftir- farandi að segja: — Fyrst af öllu langar mig til að þakka framúrskarandi flutning á Bangsímon í Morgunstund barn- anna. Þar sannast það ótvírætt, að ungir og aldnir geta haft ómælda ánægju af sömu hlutum. Ég las þessa sögu upp til agna fyrir drengina mína, sem nú eru upp- komnir menn, og man eftir ógleymanlegum upplestri Helgu Valtýsdóttur á sögunni, hinnar miklu listakonu. Hjalti Rögn- valdsson leikari á þakkir minar og annarra fyrir stórgóðan og lifandi flutning. Hvers vegna fáum við ekki fleiri leikara sem upplesara í útvarpið? Ég þarf ekki að taka fram þann mismun sem er á flutn- ingi þeirra á efni, af hvaða tagi sem er, og flutningi óreyndra les- ara. Og hér er önnur spurning og svar óskast: Hver er munur á tón- leikum og stórtónleikum? Ég minnist þess ekki að hafa heyrt þetta fyrr. Eða voru Pavarotti- tónleikarnir auglýstir þannig á sinum tima? Setjum flúor- inn í gosið Olafur í Kópavogi hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég hef svolítið verið að fylgj- ast með þessu tannskemmdamáli og flúortali. Mér hefur dottið í hug ráð við því öllu saman. Það er að blanda flúor í gosdrykkina. Stað- reyndin er nefnilega sú að krakkar hér lifa vart á öðru en gosdrykkj- um og sælgæti, og það er að sjálf- sögðu meginástæðan fyrir þessum miklu tannskemmdum: sælgæt- isát og gosdrykkjaþamb. Það kem- ur að litlu gagni að setja flúor í vatn, því að þetta fólk smakkar aldrei vatn. Setjum því þetta undraefni bara í gosið. Þá kemst það til skila. Hvað er á bak við þessa gffur legu ásókn? Dr. átján hringdi og hafði eftir- farandi að segja: — Ég er hérna með eina stutta spurningu eftir að hafa hlustað á viðræðuþáttinn í sjónvarpinu á þriðjudagskvöldið. Mig langar hálfpartinn til að vita, hvernig stendur á þessari gífurlegu ásókn útgerðarmanna í að fá að halda áfram þessum bullandi taprekstri, sem virðist engin smuga til út- göngu úr? Mér fyndist forvitnilegt fyrir almenning að fá að vita hvað er á bak við það að menn sækjast eftir þessu. Vísa vikunnar Ó, maður, hve minningar sveima eins og myndir á hvítri voð. I hænsnakofanum heima var haninn æðsta goð. Hákur 1K.arli»að' UI skóla- stjón EiriWMO® hefw Ere»»* I 1 rerik H»»» fcetw I ,i***to»» 20*1« 1 GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Jón rétti fram vinstri hendina, þegar Páll lyfti hægri hendi. Rétt væri: Jón rétti fram vinstri höndina, þegar Páll lyfti hægri hendi. SlGeA v/öGA g A/LVtRAU ýú ví/m 'ftÚA Wíffi YIÉtf WK/ OVt SUÍ tíýftjm 40 VASTftWA V/A/VA Wou MT/tf A WföTOTÖW/ 06 OW- p5/K AD V/Ó/V 6TT/ V4W WWVTÁm WAUPLfáGimi Alúöarþakkir fœri ég öllum þeim, sem glfíddu mig meö margvíslegum hætti á áttrœöisafmæli mínu 29. ágúst sL og geröu mér daginn ógleymanlegan. GuÖ blessi ykkur öU. ANNA ÓLAFSDÓTTIR FRÁ GUNNHILDARGERÐI. POLYFONKORINN Lærið að syngja Auöveld leiö aö hefja söngnám, Kórskóli Pólýfónkórsins tekur til starfa 4. október. Pólýfónkórinn óskar einnig eftir góóu söngfólki, einhver tónlistarmenntun áskilin. Innritun og uppl. í síma 21424 á skrifstofutíma og símum 82795 og 45799 á kvöldin. ALLTAF Á tRIÐJUDÖGUM MáA*' MCENROE MILLJÓNAMÆRINGUR MEÐ MINNIMÁTTARKENND DÆMA ÍSLENSKIR KNATTSPYRNUDÓMARAR MEÐ EYRUNUM? ENSKA OG ÞYSKA KNATTSPYRNAN Itarlegar og spermandi íþróttafréttir s

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.