Morgunblaðið - 23.09.1982, Síða 1

Morgunblaðið - 23.09.1982, Síða 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI 210. tbl. 69. árg. FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982 PrentsmiÖja Morgunblaösins Friðargæzlusveitir komnar til Beirút simamynd - ap Sveitir franskra friðargæzluliAa komu til Beirút í gærkvöldi, en á þessari mynd stíga þeir um borð í flugvél, sem flutti þá frá Frakklandi til Kýpur, en þaðan voru þeir fluttir sjóleiðis til Beirút. Einnig stigu bandarískir friðargæzluliðar um borð í flugmóðurskip i Napólí í gær og er búist við þeim til Beirút árla á laugardag. Friðargæzlusveitirnar koma aftur til Beirút til að forða atburðum af því tagi, sem urðu þegar framin voru fjöldamorð í flóttamannabúðum Palestínumanna í borginni í lok síðustu viku. Belgrad, 22. september. AP. MIÐNEFNI) júgóslavneska kommúnistaflokksins kemur saman til fundar á fostudag, en ýmislegt bendir nú til þess að klofningur haft aukist i flokksforyst- unni og að enginn afturbati hafi orðið í efnahagsmálum þjóðarinnar. Mitja Ribicic flokksleiðtogi sagði á fundi í skóla flokksins í Kumrovec, fæðingarstað Títós fyrrurn forseta, að grundvallar ágreiningur vaeri innan forystunnar um hvernig leiða mætti þjóðina út úr aðsteðjandi efnahagsörðugleikum, og hvernig gera mætti flokkinn virkari. Ribicic sagði einnig að um væri að ræða ólíka og gagnstæða afstöðu ýmissa leiðtoga til undirstöðuatriða kommúnismans. Hann lagði áherzlu á að nást yrði „eining" á miðstjórn- arfundinum um úrræði til að leysa efnahagsörðugleika þjóðarinnar. Jafnframt sagði Ribicic að allir yrðu að átta sig á hversu alvarlegir örðugleikarnir væru, og að aðgerð- ísraelar hyggjast fara frá arleysi væri á góðri leið með að gera efnahagskreppuna að pólitískri kreppu einnig. Hann sagði ennfremur að flokkur- inn mætti ekki fjarlægjast grundvöll sinn, verkamennina, ef forða ætti samskonar hörmungum og átt hefðu sér stað í Póllandi. Hann lagði áherzlu á nauðsyn mikils flokksaga. Ribicic gaf í skyn að þeim tilfell- um fækkaði þar sem einn maður væri í framboði til embætta og í ábyrgðarstöður, og sagði að þurft hefði að endurtaka ýmsar kosningar í miðstjórninni, þar sem frambjóð- endur hefðu ekki fengið tilskilinn stuðning í fyrstu atrennu. Birst hafa greinar í júgóslavnesk- um blöðum, þar sem efnahagsað- gerðir hafa verið gagnrýndar. Er- lendar skuldir Júgóslava nema 18 milljörðum dollara og 12,5% at- vinnuleysi ríkir í landinu, en flestir atvinnuleysingjanna er ungt fólk. Milka Planinc forsætisráðherra hef- ur nýlega varað við auknum örðug- leikum á næsta ári. Vestur-Beirút fyrir helgi ^ Beirút, Tel Aviv, Wa«hington, 22. september. AP. ÍSRAELAR hafa gefið í skyn við stjórnina í Líbanon, að þeir muni draga sveitir sínar frá Vestur-Beirút fyrir helgi, að því er Larry Speakes, formælandi Bandaríkjastjórnar, sagði í kvöld. Tugir araba og lögregluþjóna særðust þegar til átaka kom milli lögreglu og ísraelskra araba, sem efndu i dag til aðgerða til að mótmæla fjölda- morðunum í Líbanon. Jafnframt urðu snarpar umræður um morðin í þingi ísraels, þar sem felld var tillaga stjórnarandstöðunnar um opinbera rannsókn á morðunum. Tillagan um rannsókn var felld með 48 atkvæðum gegn 42, en einn ráðherra samsteypustjórn- arinnar greiddi atkvæði með stjórnarandstöðunni, og einnig Yitzhak Berman orkuráðherra, sem sagði af sér í dag. Eftir brotthlaup Bermans hefur sam- steypustjórn Begins níu sæta meirihluta á þingi. Þung orð féllu þegar Begin og Simon Perez leiðtogi Verkamannaflokksins skiptust á skeytum, en þingfund- urinn varð róstusamur og varð bæði að flytja þingmenn og fólk á áhorfendapöllum á brott með valdi. I átökum araba og lögreglu í Nazareth slösuðust 39 arabar og 25 lögreglumenn. Tólf arabanna voru særðir skotsárum og 14 ára piltur liggur milli heims og helju. Þá slösuðust fjórir lögregluþjón- ar og 34 arabar í Jaffa, en víðar kom til átaka. Yfirmaður borgaralegu stjórn- arinnar á Vesturbakkanum, Menachem Milson, sagði í dag af sér til að mótmæla þeirri ákvörð- un stjórnar Begins að setja ekki á laggirnar rannsóknarnefnd til að kanna viðbrögð ísraelsku sveitanna við fjöldamorðunum. Larry Speakes sagði að sumar sveitir ísraela hefðu þegar verið fluttar á brott frá vesturhluta Beirút í dag og í gær, og að ísra- elar hefðu lagt fram áætlanir um brottflutning sveitanna, sem eft- ir væru. Hefðu þeir afhent stjórnarhernum ýmsar stöðvar sínar í borginni. Austurríkismenn hvöttu til þess að Öryggisráð SÞ sendi nefnd til Líbanon til að rannsaka fjöldamorðin. Þá hvöttu full- trúar á fundi alþjóðlegra þing- mannasamtaka í Rómaborg til þess að diplómatísk, menningar- og viðskiptaleg tengsl við ísrael yrðu takmörkuð. Mubarak forseti Egyptalands sagði í dag að fjöldamorðin væru afleiðing þeirra „mistaka" að flytja skæruliða PLO á brott án friðarsamkomulags. Brottflutn- ingurinn hefði ekki verið tengdur yfirgripsmeira samkomulagi um frið í Miðausturlöndum. Á neyð- arfundi utanríkisráðherra ar- abaríkja var samþykkt ályktun þar sem Bandaríkin voru for- dæmd fyrir „siðferðilega ábyrgð" á fjöldamorðunum, en hafnað var kröfum um refsiaðgerðir. Jafnframt fordæmdu fundar- menn Israela, og sögðu þá bera beina ábyrgð á morðunum. ísraelskir hermenn réðust inn í sendiráð íran og Alsír í Beirút og höfðu á brott með sér ýmis skjöl úr öryggisgeymslum og leynihólfum, að sögn starfs- manna sendiráðanna. Herstjórn- in í ísrael sagði vopnahléð í aust- urhluta Líbanon hafa verið rofið fjórum sinnum í nótt, og var sök- inni skellt á skæruliða á svæði Sýrlendinga við vatnið Qara- aoun. Fundist hafa lík 220, sem líf- látnir voru í fjöldamorðunum, og giska sérfræðingar Bandaríkja- stjórnar á að 300 manns hafi ver- ið myrtir, en frelsissamtök Pal- estínumanna telur þá vera nær 1.400. Haglél hrellir íbúa Rómar Komahorg, 22. september. AP. SKYNDILEG haglhríú olli miklum usla í Kómaborg i mesta annatím- anum í morgun, umferðarhnútar mynduðust og vatn flæddi inn í verzlanir og hús í miklum vatns- austri í kjölfar haglélsins. í Portuense féli aurskriða í kjölfar haglélsins og fyllti neð- anjarðarræsi með þeim afleið- ingum að fjórir menn, sem þar voru við vinnu, fórust. í austurhluta Primavalle slas- aðist kona þegar veggur féll yfir hana. Skelfing greip um sig þeg- ar haglélið dundi, og urðu slökkvilið borgarinnar og björg- unarsveitir að svara hundruðum neyðarútkalla. Miklar rigningar geisuðu einn- ig í hafnarborginni Genúa á Norður-Ítalíu og hlaust af því mikill vatnsaustur í borginni. Frjálslyndi flokkurinn kynni að þurrkast út Bonn, 22. september. AP. VINSÆLDIR Frjálslynda flokksins, sem er i oddaaðstöðu í vestur-þýzkum stjórn- málum, hafa aldrei verið minni, samkvæmt könnun, sem vikuritið Die Zeit birti i dag. í Ijósi þessa hefur verið aukinn þrýstingur á Hans-Dictrich Genscher um að frestað verði atkvæðagreiðslu um vantraustsyfirlýsingu á stjórn Schmidts, sem fyrirhuguð er í þinginu 1. október næstkomandi. Símamynd AP. Ariel Sharon varnarmálaráðherra ver stefnu stjórnar fsraels í Líbanon við snarpar umræður í þinginu í gær. Samkvæmt könnun Die Zeit nýtur Frjálslyndi flokkurinn (FDP) fylgis aðeins 2,3% þjóðarinnar, miðað við 5,1% í síðasta mánuði. Flokkurinn þarf að hljóta 5% atkvæða til að fá mann kjörinn á þing, en í kosningun- um 1980 hlaut Frjálslyndi flokkur- inn 10,6% atkvæða. Úrslit könnunarinnar hafa valdið því, að flokkurinn hefur klofnað í afstöðunni til vantraustsyfirlýs- ingar, og vilja ýmsir þingmanna, sem taldir voru fylgja Genscher, nú fresta eða leggja vantrauststillög- una á hilluna. Telja þeir óánægju þjóðarinnar með brotthlaup Gensch- ers augljósa og að of mikil hætta sé á að flokkurinn þurrkist út í vænt- anlegum kosningum, sem fram fara 6. marz nk., ef vantrauststillagan nær fram að ganga. Andstæðingar Genschers innan FDP koma saman til fundar næst- komandi laugardag til þess að ræða brotthlaup Genschers. Hefur hann orðið að beygja sig fyrir kröfum þeirra um sérstakan landsfund FDP um miðjan næsta mánuð, og er talið að Genscher verði að bíða fram yfir fundinn til að sjá hvort hann hefur fylgi til að mynda stjórn með Hel- mut Kohl. Einnig er sprottinn upp ágreining- ur milli kristilegra demókrata og bræðraflokksins í Bæjaralandi, sem talinn er geta spillt fyrir væntanlegu stjórnarsamstarfi mið- og hægri flokkanna. Samkvæmt könnun Die Zeit hefur SDP aukið við sig fylgi, úr um 30 prósentum í sumar og haust, í 36,7%. Fylgi CSU hefur hins vegar lækkað um eitt prósentustig, úr 53,7% í 52,7%, en flokkurinn gæti samt náð hreinum meirihluta, ef kosið yrði nú. Talið er að Strauss og ýmsir íhalds- samir fylgismenn hans muni leggja hart að Kohl að fallast á tillögur Schmidts um kosningar í nóvember, þar sem CSU gæti þá hugsanlega fengið hreinan meirihluta og losnað þannig við að mynda stjórn með Frjálslynda flokknum, sem mörgum demókrötum stendur stuggur af. Klofiiingur í Júgóslavíu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.