Morgunblaðið - 23.09.1982, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982
Uppsögn bókagerðarmanna á launalið andstæð samningi?;
Vinnuveitendur stefna
málinu til félagsdóms
BOKAGERÐARMENN og vinnuveitendur funduðu hjá ríkissáttasemjara í
gær og var fundurinn stuttur, en vinnuveitendur hafa lýst þeirri skoðun sinni
að uppsögn launaliða í kjarasamningi væri ólögleg og myndu þeir leggja
málið fyrir félagsdóm, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Guðlaugi
Þorvaldssyni ríkissáttasemjara í gær. Sagði Guðlaugur að ekki yrði boðað til
fundar á meðan þetta mál skýrðist ekki. Bókagerðarmenn sögðu upp launa-
liðnum vegna skerðingarákvæða í bráðabirgðalögunum sem sett voru í síð-
asta mánuði.
Þórarinn V. Þórarinsson, lög-
fræðingur hjá VSI, sagði í samtali
við Mbl. í gær, að ákvæði það sem
bókagerðarmenn byggðu uppsögn
sína á fæli það í sér, að launaliðn-
um væri fyrst hægt að segja upp,
þegar breyting á greiðslu verðbóta
á laun kæmi til framkvæmda.
Gagnvart samningi bókagerðar-
manna og annarra væri ljóst að
unnið yrði og laun greidd sam-
kvæmt gildandi samningi til 1.
desember. Ekki væri fullljóst
hvaða áhrif bráðabirgðalög ríkis-
stjórnarinnar frá í ágúst hefðu,
vitneskja um það fengist ekki fyrr
en 1. desember, þannig að forsend-
ur til uppsagnar gætu fyrst skap-
ast þá.
Þórarinn sagði, að viss venja
væri komin á túlkun uppsagnar-
ákvæðisins og hefði hingað til ver-
ið litið svo á, að nauðsynlegt væri
að áhrif breytinga á vísitölu væru
komin fram. Ef skerðing bráða-
birgðalaganna kæmi til fram-
kvæmda þá gætu samningar losn-
að 1. janúar. Því myndu vinnuveit-
endur nú leita til félagsdóms og
stefna þar inn málinu og gera
kröfu til þess að uppsögnin verði
dæmd andstæð samningsákvæð-
um, enda hefði ekkert annað
verkalýðsfélag á landinu sagt upp
samningi á þessari forsendu.
Magnús E. Sigurðsson, formað-
ur Félags bókagerðarmanna, sagði
í gær, að vinnuveitendur litu svo á
að uppsögn launaliða væri ólögleg.
Bókagerðarmenn litu hins vegar
svo á, eins og í samningi stæði, að
heimilt væri að segja upp samn-
ingnum ef sett yrðu lög, en þegar
væri búið að setja slík lög og þau
tekið gildi. Magnús sagðist ekki
eiga von á frekari viðræðum á
milli aðila á meðan úrskurður lægi
ekki fyrir.
Magnús sagði að viðbrögð at-
vinnurekenda kæmu bókagerðar-
mönnum mjög á óvart, vegna þess
að samningarnir væru skýrir að
þeirra mati. Við því væri hins veg-
ar ekkert að gera og væri nú sem
fyrr reynt að mistúlka samninga.
Nafn konunnar
sem fannst látin
KONAN, sem fannst látin í Brúss-
el á þriðjudag, hét Solveig Magn-
úsdóttir, ritari í sendiráði Islands
í borginni. Solveig var 24 ára göm-
ul, fædd 24. maí 1958. ítarlegri
lögreglurannsókn á dauða hennar
er haldið áfram.
35.000 pílagrímar
á vegum Flugleiða
STARKSKOI.K Klugleiða, sem unnið hefur við pílagrímaflut; milli Alsír og Saudi-
Arabíu, kom heim í gær. Þarna er um 97 manna hóp að ræða, flugfólk og
starfsmenn á jörðu niðri, sem unnið
september.
Það voru alls 35.000 pílagrímar
sem fluttir voru að þessu sinni. Flog-
ið var frá sjö stöðum í Alsír til Jedda
í Saudi-Arabíu. Tvær DC-8-flugvélar
Flugleiða voru í þessum flutningum,
en auk þess voru í þeim þrjár flug-
vélar frá SAS á vegum Flugleiða,
tvær DC-8 og ein Boeing 747.
Boeing-flugvélin getur flutt 475 far-
þega í hverri ferð, en DC-8 252. Lent
var með síðustu farþeganna í Jedda
seint í fyrrakvöld, en þá á miðnætti
hófust tíu daga Ramadan-hátiðahöld
múhameðstrúarmanna og meðan
þau standa yfir má ekki lenda í borg-
inni. Að hátíðahöldunum loknum
munu Flugleiðir flytja pílagrímana
aftur til síns heima og er gert ráð
hefur að þessum flutningum frá því 5.
fyrir að þeim flutningum ljúki 19.
október.
Að sögn Jóhannesar Óskarssonar,
flugrekstrarstjóra Flugleiða, mun
þessi samningur Flugleiða um píla-
grímaflugið við stjórnvöld í Alsír
vera sá stærsti sem gerður hefur
verið við eitt flugfélag. Þetta er
samningur upp á rúmar 9 milljónir
dollara og það voru milli 40 og 50
flugfélög, sem gerðu tilboð í flugið.
Taldi Jóhannes að það hefði ráðið
miklu um að Flugleiðir fengu samn-
inginn, að þeir hafa getið sér gott
orð í þessu pílagrímaflugi, sem og
SAS, sem vitað var að Flugleiðir
myndu leita til, ef þeir fengju samn-
inginn.
Gamla skýlið sem rífa á og skúr sem lögreglumenn hafa til bráðabirgða.
Ljósm. Mbl. Gunnar Si(ftrygi{sson
Keflavíkurflugyöllur:
Lögreglumenn fá
nýtt vardskýli
Keflavíkurflugvelli, 22. september.
ALLKLESTIR landsmenn hafa eflaust ekið framhjá varðskýli lögregl-
unnar í aðalhliði Keflavíkurflugvallar. Þarna hafa lögreglumenn haft
aðsetur dag og nótt um margra ára skeið við illan aðbúnað, þvi skýlið
hefur hvorki haldið vatni né vindum. Hafa lögreglumenn ítrekað óskað
eftir endurbótum.
Nú hefur verið ákveðið að rífa
þetta skýli og byggja nýtt.
Var byrjað að rífa skýlið í
gærmorgun og strax að því verki
loknu verður hafizt handa við að
reisa nýtt skýli fyrir lögreglu-
mennina. Verður það einnig
timburbygging, en mun vandaðri
en sú gamla. Eru lögreglumenn á
Keflavíkurflugvelli afar ánægðir
með það að fá nýtt og vandað
skýli í stað hins gamla.
Meðan á framkvæmdum
stendur færist innakstur á völl-
inn til og eru þeir sem leið eiga
inn á Keflavíkurflugvöll beðnir
að gæta að því.
FrétUriUri.
Hér má sjá starfsmenn Pósts og síma og starfsmenn varnarliðsins við
vinnu sína. Eins og sjá má, voru veggir skýlisins orðnir ansi fúnir.
Bráðabirgðalög um olíusjóð
fiskiskipa og hækkun fiskverðs
RÍKISSTJORNIN gaf á þriðjudaginn út bráðabirgðalög um Olíusjóð
fiskiskipa og hækkun fiskverðs. Var það gert í kjölfar samþykktar ríkis-
stjórnarinnar um lausn á vanda útgerðarinnar. Samkvæmt lögunum skal
Olíusjóður starfræktur í því skyni að greiða niður verð á brennsluolíu til
fiskiskipa á timabilinu 1. september til 31. desember 1982. Sjóðinn skal
fjármagna með 30 milljóna króna framlagi úr Tryggingasjóði fiskiskipa
og jafnframt er sjóðnum heimilt að taka lán allt að 30 milljónum króna.
Hvað fiskverðið varðar skal það hækka um fjóra af hundraði frá og meö
15. september síðastliðnum og gilda til 30. nóvember næstkomandi, þrátt
fyrir ákvæði bráðabirgðalaga frá 21. ágúst 1982 um efnahagsaðgerðir.
Vegna þessa ræddi Morgunblaðið við Ólaf G. Einarsson, formann
þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Sighvat Björgvinsson, formann þing-
flokks Alþýðuflokksins. Fara svör þeirra hér á eftir, svar Ólafs fyrst.
Ólafur G. Einarsson
„Allsendis
ófullnægjandi
brádabirgða-
aðgerðir“
„Sem fyrri daginn grípur rík-
isstjórnin til bráðabirgðaað-
gerða til þess að bjarga í horn.
Ekkert er gert sem dugar til að
grundvallaratvinnuvegirnir geti
staðið á eigin fótum. Ein björg-
unaraðgerð vegna útgerðarinnar
svo sem hækkun fiskverðs um
4% leiðir af sér nauðsyn annarr-
ar vegna fiskvinnslunnar. Varla
verður um annað að ræða en
áframhaldandi og hraðara geng-
issig.
Þannig er vaðið áfram í sama
vítahringnum, og ekkert af
þessu dugar. Viðurkennt er að
útgerðin verður áfram rekin með
halla enda stefna stjórnvalda að
halda atvinnurekstrinum í helj-
argreipum ríkisvaldsins, enginn
má hafa hagnað af starfsemi
sinni. Um einstaka liði þessara
aðgerða er ekkert sérstakt að
segja, þeir kunna að hafa ein-
hverja þýðingu hver fyrir sig og
allir saman eins og málum er nú
komið hjá útgerðinni. En ég ít-
reka að hér er um hreinar bráða-
birgðaaðgerðir að ræða og alls
ófullnægjandi. Krafan er um
raunhæfar aðgerðir, en við
þeirri kröfu getur núverandi rík-
isstjórn ekki orðið. Til þess
skortir hana bæði dug og traust
nægilega margra," sagði Ólafur.
Sighvatur Björgvinsson
„Landinu
stjórnaÖ með
tilskipunum,
ekki þingræði"
„Það er ekki nú frekar en fyrr,
sem ríkisstjórnin hefur haft
fyrir því að láta stjórnarand-
stöðuna vita af þeim bráða-
birgðalögum, sem hún hefur
sett. Við höfum allar okkar
fréttir gegnum fjölmiðla og ég
hef ekki séð bráðabirgðalögin og
hef því ekki haft aðstöðu til þess
að skoða með neinni nákvæmni,
hvað í þeim felst.
Hins vegar sýnist mér það á
öllu, að hér sé aðeins um að ræða
í fyrsta lagi mjög takmarkaðar
ráðstafanir og í öðru lagi aðgerð-
ir, sem ekki séu til þess ætlaðar
að þær eigi að endast nema í
skamman tíma og í þriðja lagi
hef ég ekki enn séð neinar skýr-
ingar á því hvar eigi að útvega
það fjármagn, sem meðal annars
á að verja til niðurgreiðslna og
tilfærslna á skuldum. Hver á að
greiða það? Hvar á að útvega
það og hvaða kjör eiga að vera á
þessu fjármagni. Hver á að
greiða mismuninn á þeim kjör-
um, sem virðist eiga að bjóða
sjávarútveginum til skulda-
skipta annars vegar og hins veg-
ar þeim kjörum, sem vitað er að
fjármagn fæst á í þjóðfélaginu í
dag.
Þetta er varðandi efnisatriði
málsins, en hitt finnst mér þó
enn þá alvarlegra að ríkisstjórn-
in skuli núna, þegar enginn vafi
leikur lengur á því, að hún er
búin að missa starfhæfan meiri-
hluta á þingi, setja bráðabirgða-
lög án þess að blikna eða blána.
Bráðabirgðalög, sem hún hlýtur
að vita, að hún hefur ekki meiri-
hluta til að tryggja að fram nái
að ganga. Þetta finnst mér raun-
ar vera svo alvarleg athöfn af
hálfu ríkisstjórnarinnar, að
þingflokkar og þingmenn verði
að taka til sérstakrar yfirvegun-
ar hvaða viðbrögð eigi að sýna í
þessu tilviki. Það skiptir ekki
meginmáli hvort vöntunin á
þingmeirihluta nemur einum
þingmanni eða 10, það er stigs-
munur en ekki eðlismunur. Stað-
reyndin er sú að ríkisstjórnin er
farin að setja lög, vitandi það að
hún hefur ekki meirihluta til að
tryggja framgang þeirra. Þá eru
menn farnir að stjórna landinu
með tilskipunum, ekki þing-
ræði,“ sagði Sighvatur.
Beinum
afskiptum
af fisksöl-
um erlend-
is hætt
í KJÖLFAR þess, að tekist hefur
samkomulag um lausn á vanda út-
gerðarinnar og fiskveiðibanni hef-
ur verið aflétt, hefur viðskipta-
ráðuneytið ákveðið að fisksölur er-
lendis skuli fara fram á sama hátt
og áður. Það er, að ekki skuli fjall-
að sérstaklega um hverja einstaka
beiðni um fisksölur erlendis, held-
ur skipuleggi LÍÚ sölurnar alfarið
í umboði ráðuneytisins eins og
verið hefur. í gær og fyrradag
seldu fjögur fiskiskip afla sinn er-
lendis, 6 skip eiga eftir að selja
afla í þessari viku og bókaðar eru
13 sölur erlendis í næstu viku.
Skipin, sem seldu afla í gær
og fyrradag eru: Dalborg EA
seldi 101,2 lestir í Hull. Heildar-
verð var 1.388.800 krónur, með-
alverð 13,70 kr. Siglfirðingur SI
seldi 103,6 lestir í Hull. Heildar-
verð var 1.472.800 krónur, með-
alverð 14,21 kr. Katrín VE seldi
49.3 lestir í Grimsby. Heildar-
verð var 416.300 krónur, meðal-
verð 8,44 kr. Hákon ÞH seldi
67.3 lestir í Hull. Heildarverð
var 975.900 krónur, meðalverð
14,51 kr.