Morgunblaðið - 23.09.1982, Page 5

Morgunblaðið - 23.09.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982 5 Fólk hlustar þegartalað er um frið — segir Vigdís forseti að Bandaríkjaferðinni lokinni „ÞAÐ MÁ SEGJA, að ég hafi verið á höfðingjaferðalagi um Bandaríkin," sagði Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, í samtali við Morgunblaðið skömmu áður en vél Flugleiða frá Chicago lenti með forsetann og fylgd- arlið hennar á Keflavíkurflugvelli á miðvikudagsmorgun. „En ég hitti mikið af venjulcgu fólki, bæði í móttökum íslendingafélaga og islenskra viðskiptaaðila. Einnig sátu margir boð Reagans i Hvíta húsinu og í New York, Seattle og Minneapolis hitti ég mikið af háskólafólki. Ég sagði í flestum viðtölum sem ég gaf, og þau voru mörg, að ég vildi endilega fara aftur til Bandaríkjanna, skoða náttúruna og kynnast landinu betur. Maður verður að hafa komið til Bandaríkjanna til að geta opnað um þau munninn." Þetta var fyrsta ferð Vigdísar forseta til Bandaríkjanna. Hún hafði margsinnis ætlað sér til Bandaríkjanna áður en hún hlaut kosningu, en eitthvað kom ávallt í veg fyrir að hún kæmist. Öryggisverðir fylgdu henni hvert fótspor á hennar fyrstu ferð og hún gekk um á rauðum dreglum, gisti á bestu hótelum og borðaði besta mat. En hún sagði, að fólkið sem hún hitti hefði ekki verið svo ólíkt því fólki sem hún hefði hitt ef hún hefði farið á eigin vegum. Hún hitti mikið af menningar- og menntafólki með áhuga á listum og bókmenntum eins og hún sjálf. Hún sagðist nú skilja nafngiftina „wheat basket" eða hveitikarfan betur eftir að hafa flogið í margar klukkustundir yfir óendanlega víðáttu og oft hefði ekki sést einn óræktaður blettur. Vigdís forseti talaði mikið um frið og undirbúning framtíðar- innar fyrir börnin í Bandaríkja- ferðinni. Henni fannst hún alls ekki vera að hætta sér of nærri stjórnmálum með að gera það þótt friðarmál séu hápólitísk efni í Bandaríkjunum. „Þegar talað er um frið, byrjar fólk strax að hlusta," sagði hún. „Það vissu allir hvað ég var að tala um. Við vitum öll að við verðum að halda friðinn í heiminum, við erum bara ekki sammála um hvernig best er að gera það. En fréttir af nýjum uppfinningum, t.d. í læknisfræði, sýna, að hinn MorRunbladid/ólafur K. Magnússon Forseti Islands, Vigdís Finnbogadóttir, kveður Sverri Hauk Gunnlaugsson sendifulltrúa og Guðnýju Aðal- steinsdóttur konu hans. skapandi mannsandi getur leyst margar gátur og hann hlýtur að finna leið út úr þeim ógöngum sem heimurinn er kominn í. Hann hlýtur að geta brúað þetta ósamræmi í skoðunum án þess að við þurfum að berjast." Bandaríkjaferðin var farin til að opna norrænu menningar- kynninguna Scandinavia Today í Washington DC, Minneapolis, New York og Seattle. Vigdís for- seti flutti setningarræðurnar fyrir hönd allra Norðurland- anna. Hún var gagnrýnd í danska blaðinu Politiken fyrir fyrstu ræðuna sem hún flutti í Kennedy Center fyrir að hafa farið út fyrir ræðutextann, sem öll löndin höfðu samþykkt fyrir- fram, og tala um þjóðirnar átta, en ekki löndin fimm. Hún bætti Færeyjum, Grænlandi og Lapp- landi inn í ræðuna þegar hún talaði um menningu allra Norð- urlandanna. Vigdís forseti sagð- ist ekki taka gagnrýni sem þess- ari alvarlega. Greinina hefði væntanlega þreyttur, svangur og óánægður blaðamaður skrifað. Hún sagðist ávallt hafa lagt áherslu á sérstaka menningu allra þjóðanna þegar hún starf- aði í ráðgjafanefnd Norður- landaráðs um menningarmál og þetta hefði ekki verið nein ný hugdetta hjá henni. Hún sagðist ekki hafa orðið vör við óánægju hjá hinum Norðurlöndunum með ræður hennar og sjaldan hefði hún verið ausin slíku lofi og í ræðu sem danski sendiherrann flutti í hádegisverði háskólans í Seattle. Vigdis forseti og hið íslenska fylgdarlið forsetans í Bandaríkj- unum fóru og vottuðu frú Hall- dóru Eldjárn og fjölskyldu henn- ar samúð sína á miðvikudag. Heimdallur með fund 1 kvöld: Efnahagsstefnur Thatchers og Reagans HEIMDALLUR, félag ungra sjálf- stæðLsmanna í Reykjavík, gcngst fyrir fundi í kvöld og verður þar fjallað um efnahagsstefnu Reagans Bandarikjaforseta og Thatchers, for- sætisráðherra Breta. Frummælend- ur verða þeir Vilhjálmur Egilsson hagfræðingur og Hannes Gissurar- son sagnfræðingur. í samtali við Morgunblaðið sagði Árni Sigfússon formaður Heimdallar, að hér væri um að ræða eitt þeirra fræðslukvölda í fundarformi sem Heimdallur myndi efna til á næstu mánuðum. Að þessu sinni yrði fjallað um efnahagsstefnu Reagans og Thatchers og reynt að draga fram hver helsti munurinn væri. Myndi Vilhjálmur, sem er nýkominn frá námi í Bandaríkjunum, fjalla um stefnu Bandaríkjaforseta, en Hannes, sem stundar nám í Bret- landi, um stefnu forsætisráðherra Bretlands. Árni sagði að fundurinn væri opinn öllu sjálfstæðisfólki, sem vildi kynna sér þessi mál nánar. „Skilnaður“ frumsýndur í næstu viku LEIKRIT Kjartans Ragnarssonar, Skilnaður, sem frumsýna átti 17. september, verður að öllum líkind- um ekki frumsýnt fyrr en seinnipart næstu viku. Ástæða þess að fresta varð frumsýningunni er sú, að einn lcikenda slasaðist. Er nú bara beðið eftir að hann nái sér. Sigurður Flosason Sigurður Valgeirsson Jóhann G. Jóhannsson Tómas R. Einarsson Sveinbjöm I. Baldvinsson ÍÍIiSii Si

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.