Morgunblaðið - 23.09.1982, Síða 14

Morgunblaðið - 23.09.1982, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982 1_ „Kauprán“ vinstri flokkanna og skerðing lífskjara eftir Lárus Jónsson, alþingismann Aðalatriði bráðabirgðalaga ríkis- stjórnarinnar er skerðing verðbóta á laun 1. des. nk. Þetta kemur ekki á óvart. Segja má að slík verð- bótaskerðing hafi orðið að einu allsherjar bjargráði vinstri flokk- anna svonefndu eftir að Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur- inn unnu kosningamar 1978 á slagorðinu „kjósið ekki kaupráns- flokkana'* og „samningana i gildi". Hinn 1. desember kemur til framkvæmda þrettánda „kaup- rán“ þessara flokka frá því að þeir unnu kosningasigur sinn vorið 1978. Þessi skerðing verðbóta nemur samtais 48,19%. Gífurleg verðmætaaukning sjávarvöru- framleiðslu og aflaaukning hefur orðið á þessu timabili en kaup- máttur sigið jafnt og þétt og sam- kvæmt spá Þjóðhagsstofnunar mun hann minnka um 6% á næsta ári vegna bráðabirgðalaganna. Verðbólgan er enn milli 50 og 60% eins og hún hefur jafnan verið sið- asta áratug þegar vinstri stjórnir hafa setið að völdum. Er ekki kom- inn tími til að læra af reynslunni? Prettánda „kaupránið“ Allir stjórnmálaflokkar hafa staðið að löggjöf um afnám eða lækkun umsamdra visitölubóta á laun og þannig í reynd viður- kennt að slíkar aðgerðir séu réttlætanlegar sem neyðarúr- ræði. í framkvæmd felur þessu afstaða einnig í sér að stjórn- málaflokkarnir gera sér grein fyrir ágöllum vísitölukerfisins. Alþýðuflokkurinn og einkum Al- þýðubandalagið hafa reynt að skapa sér sérstöðu í þessum efn- um gagnvart launþegum. Þeir unnu kosningar 1978 með mestu blekkingum sem um getur í stjórnmálasögunni einmitt með því að lofa kjósendum beint og óbeint að standa órofa vörð um verðbótakerfið á laun. Þeir fundu upp og notuðu hugtakið „kauprán" um slíka verðbóta- skerðingu. Eftir kosningarnar 1978 mynduðu þessir flokkar ásamt Framsókn vinstri stjórn. Sú rík- isstjórn hóf feril sinn með „kaupráni" 1. des. það ár. Þetta „kauprán" átti að bætast með ýmsu móti. Þessi ríkisstjórn beitti sér fyrir setningu svonefndra „Ólafslaga" á Al- þingi. í þessum lögum felast ákvæði um kerfisbundið „kaup- rán“. Framfærsluvísitala er lækkuð þegar út eru reiknaðar verðbætur á laun skv. ákvæðum Ólafslaga. Eftir kosningarnar 1979 var núverandi ríkisstjórn mynduð og enn hefur „kauprán- inu“ verið haldið áfram af fullri hörku. Síðasta afrekið eru nýsett bráðabirgðalög og þar er í engu reynt að dylja hvað gert er. Það er ekki minnst á „slétt skipti" né einhverskonar ívilnun í stað 12,1% 7,5% Kaupmáttur kauptaxta (breyling í •/• frá fyrra ári) 79 77 78 -0,1% 80_______81_ 82 83 (spá) 0% {J 4,9% -1% U -6% vinstri úrræði: Pólitíska afskiptasemi, hækkun skatta, aukin ríkisumsvif, höft, boð og bönn o.s.frv. við hliðina á visitölukrukki og „kaupráni". Höfuðmarkmiðið átti að vera að koma verðbólgunni niður í sama stig og í nágrannalöndunum (10%) og vernda kaupmátt launa. Reynslan er ólygnust. Allt hefur þetta verið unnið fyrir gýg og þessi vinstri úrræði orðið okkur þungbærara heimilisböl en flesta óraði fyrir. 810% Samfals sker&ing verbbótivísitolu frá l.des. 1978 : 48,19% 1des. 78 tmars tjúni tsept tdes '80 429% 220% [] 054% P i.ium l.mars Tjúni 1 sept. 1des. 82 kaupránsins. Nú er gengið hreint til verks. Á meðfylgjandi mynd má sjá „kaupráns“-feril þessara tveggja ríkisstjórna. Þær hafa skert verðbætur á laun 13 sinnum samtals um 48,Í9% á fjórum ár- um eftir allt brigslið í garð ríkis- stjórnar Geirs Hallgrímssonar og svardagana um að koma samningunum i gildi. Kjararýrnun í góðærinu Nokkrar grunnkaupshækkanir hafa að sjálfsögðu orðið á þess- um árum en verðbótaskerðingin hefur verið þeim mun meiri. Niðurstaðan er sú að þegar mestu „vinir launþega" hafa ráð- ið lögum og lofum í landinu og íhaldsúrræðin þá væntanlega lögð á hilluna hefur orðið mikil kjararýrnun eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Þetta hefur gerst þrátt fyrir mestu veltiár sem komið hafa í sjávarútvegi í sögu þjóðarinnar á þessu tíma- bili. Hver er svo árangurinn? Að svo miklu leyti sem þessar ríkisstjórnir hafa reynt að stjórna efnahags- og atvinnu- málum þjóðarinnar á þessum tíma hafa þær notað margvísleg Ragnheiður hlaut alþjóðleg verðlaun fyrir grafíkverk Eitt af grafíkverkum Ragnheiðar. ÍSLENZKA grafíklistakonan Ragnheiður Jónsdóttir hlaut á 6. alþjóðlega grafikbiennalinum, sem opnaður var 12. ágúst í Fred- rikstad í Noregi, verðlaun fyrir myndirnar sem hún átti þar. Al- þjóðlega dómnefndin var skipuð fulltrúum frá Noregi, Spáni, Sov- étríkjunum, Colombiu og Japan. Þetta er í þriðja sinn sem Ragnheiður hlýtur alþjóðleg verðlaun fyrir grafkiverk sín. 1976 hlaut hún verðlaun á al- þjóðlegum biennali í Frenchen í Þýzkalandi og 1978 á alþjóðleg- um biennali í Ibiza Spáni. Lista- konan hefur á undanförnum ár- um tekið þátt í fjölda slíkra al- þjóðlegra biennala í Englandi, Frakklandi, Þýzkalandi, Spáni, Ítalíu, Austurríki, Júgóslavíu, Finnlandi, íslandi og Japan og sömuleiðis í sýningum í Banda- ríkjunum, Þýzkalandi og Pól- landi auk Norðurlanda. Ragnheiður býr í Garðabæ og vinnur þar grafíkmyndir sínar. Hún er fædd 1933 og nam í Reykjavík, Kaupmannahöfn og í París hjá S.W. Heyter í Atalíer 17. Fyrstu einkasýninguna hélt hún í sýningarsal MR í Reykja- vík 1968 og eru einkasýningar hennar síðan orðnar 25 talsins, bæði á íslandi og víða erlendis. Minna má á grafíkseríuna í 6 myndum, sem hún vann fyrir Listahátíð 1980 og nefndi „Ég er ...“ og myndir og hönnun á Úrvali úr ljóðum Halldórs Laxness í tilefni af 80 ára af- mæli skáldsins. Haustmót TR hefst á sunnudaginn HAUSTMÓT Taflfélags Reykjavíkur 1982 hefst næstkomandi sunnudag, 26. september, og verður teflt í húsa- kynnum félagsins að Grensásvegi 44—46. í aðalkeppninni verður þátttak- endum skipt í flokka með hliðsjón af Eló-skákstigum, sem Skáksamband- ið lét reikna í júní sl. Tefldar verða ellefu umferðir í öllum flokkum. í efri flokkunum verða tólf keppend- ur, sem tefla einfalda umferð allir við alla, en í neðsta flokki verður teflt eftir Monrad-kerfi. Umferðir verða þrisvar í viku, á sunnudögum kl. 14 og á miðvikudög- um og föstudögum kl. 19.30. Bið- skákadagar verða inn á milli. Lokaskráning í aðalkeppnina verður laugardag, 25. september, kl. 14-18. Keppni í flokki 14 ára og yngri á haustmótinu hefst laugardag, 2. október. Tefldar níu umferðir eftir Monrad-kerfi, umhugsunartími 40 mínútur fyrir hvorn keppanda. Keppnin tekur þrjá laugardaga, þrjár umferðir í senn. Bókaverðlaun verða a.m.k. fyrir fimm efstu sæti. Haustmótið er jafnframt meist- aramót Taflfélagsins og hlýtur sig- urvegari í efsta flokki titilinn „Skákmeistari Taflfélags Reykja- víkur 1982“. Björn Þorsteinsson hef- ur oftast orðið skákmeistari Taflfé- lags Reykjavíkur, alls fimm sinnum, en Gunnar Gunnarsson hefur fjór- um sinnum borið sigur úr býtum. Núverandi skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur er Jóhann Hjartarson. Ragnheiður Jónsdóttir í vinnustofu sinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.