Morgunblaðið - 23.09.1982, Síða 21

Morgunblaðið - 23.09.1982, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982 21 Kveðja frá Norræna félaginu Það var ógleymanlegur dagur og fögur minning að eiga um vorn látna forseta, þegar þess var kostur að fara með þeim bræðrum Kristjáni og Hirti og konum þeirra Halldóru og Sigríði í það unaðsland Vatnahverfi í Eystri byggð á Grænlandi í ágústmánuði á liðnu sumri. Skjótt hefur sól brugðið sumri og komið hausthljóð í vindinn. Kristján Eldjárn var einhver sá maður sem best var að biðja bónar allra sem ég hef kynnst. Ætíð var mér tekið með ljúfri lund og léttri og minnist ég þess ekki að hann léti mig nokkru sinni synjandi frá sér fara. Alla jafnan voru þetta óskir um að taka á móti fólki eða koma á fundi og tala, en betur máli farnir en hann voru fáir eins og kunnugt er. Ég minnist þess eitt sinn að ég hafði hitt fræðimann af Álandi, dr. Dreyer, sem skrifað hafði um doktorsritgerð Kristjáns. Hann langaði að eignast ritgerðina áritaða af höfundi. Ég færði þetta í tal við Krist- ján. Hann tjáði mér að „Kuml og haugfé" væri svo til ófáanleg með öllu þótt gull væri í boði. „En ég skal gera annað," sagði hann að bragði og brosti. „Ég á hér eintak af „100 árum í Þjóðminjasafni". Ég skal skrifa á það ef þú vilt, svo að þú getir veitt honum nokkra úrlausn." Þetta lýsir nokkuð þessum ljúflingi, sem ekki vildi láta neinn bónleiðan frá sér fara. Við sem erum að leitast við að vinna að norrænum málum söknum sannarlega vin- ar í stað og er þá nú síðast að minnast drengilegs stuðnings Kristjáns við Græn- landskynningu okkar á liðnu vori og að- stoð í Grænlandsferð sem hann átti drjúg- an þátt í að gera eftirminnilega. Engan grunaði þegar hann talaði yfir okkur Islendingum við Hvalseyjarkirkju — fleiri íslendingum en nokkur maður hefur ávarpað siðustu sex aldir eða svo þar um slóðir — að hann myndi allur um mán- uði síðar. Við getum svo sannarlega tekið undir með Stefáni G. er hann segir í Helgaerfi: Hreifur fram á hinstu stund hann um mein sitt þagði faldi sína opnu und undir glöðu bragði. Norræna félagið og allir þeir er láta sig norræn samskipti varða sjá á bak hollvini og biðja allar góðar vættir að styrkja Hall- dóru, börn þeirra og venslafólk í miklum harmi heillar þjóðar. Hjálmar Ólafsson Jón Ögmundarson, Hólabiskup, var upp fæddur með ísleifi biskupi Gissurarsyni. Segir sagan, að jafnan þá er menn ræddu um þá menn, er vænir voru eða hagir eða að öðru vel, hafi hann mælt, „Svo var ís- leifur fóstri minn. Hann var manna vænstur, manna hagastur, allra manna beztur." Þá mæltu þeir: „Hver gat nú hans?“ Hann svarar: „Þá kemur mér hann í hug, er ég heyri góðs manns getið. Hann reyndi ég svo að öllum hlutum." Þessu líkt mun vissulega fara vinum Kristjáns Eldjárns, að þeir muni hans minnast, hvenær sem mannkosti eða mannvit ber á góma, svo vel gerður maður var hann og heill í lífi sínu, starfi og öllum háttum. Á þessari saknaðarstund, þegar Krist- ján Eldjárn hefur verið burtu kallaður um aldur fram frá margháttuðum störfum og áhugaefnum, er erfitt að meta þann missi, sem íslenzk þjóð og menning hafa orðið fyrir. Þó ber nú öðru fremur að þakka hið ómetanlega lífsstarf hans sem fræði- manns, safnvarðar, rithöfundar og þjóð- höfðingja. Þegar litið er yfir glæsilegan feril Kristjáns Eldjárns, verður mér efst í huga, hversu heilsteyptur maður hann var á alla lund og hve miklu jafnvægi hann hafði náð í lífi sínu og verkum. Hann var hvort tveggja í senn sannur fulltrúi þess bezta í íslenzkri sveitamenningu og hámenntaður vísindamaður á alþjóðavettvangi. Allt sem hann vann, ritstörf, rannsóknir og opinber embættisverk, bar merki um og auðgaðist af samtvinnun þessara tveggja þátta. Skarpur skilningur, öfgalaus gagnrýni og mannleg hlýja voru þau einkenni, sem mér fannst setja sterkastan svip bæði á verk hans og afstöðu til manna og málefna. Honum var eiginlegt að feta hinn gullna meðalveg, leitandi hins sanna í hverju efni, réttsýnn og umburðarlyndur í dóm- um um samferðamenn sína. Kristján Eldjárn sóttist ekki eftir því að verða kjörinn forseti íslands. Til þess gekk hann fyrir eindregin tilmæli fjölda manna, sem staðfest voru af yfirgnæfandi fylgi meðal þjóðarinnar. Hins vegar kom brátt í ljós, að hann átti til að bera þá eiginleika, sem bezt mega prýða höfðingja lítillar þjóðar: vitsmuni, hófsemd og góðvild. Varð hann því íslendingum í forsetatíð sinni bæði fyrirmynd og lærifaðir. Þegar Kristján Eldjárn lét af embætti að eigin ósk fyrir tveimur árum, miklu fyrr en margir hefðu kosið, var ástæða til að vona, að hann gæti enn átt drjúgan starfsdag fyrir höndum og verið áfram í forystuhlutverki á sviði íslenzkra fræða. En örlögin hafa ráðið þessu á annan veg, og autt stendur nú rúm þess manns, sem einna ástsælastur hefur orðið með þjóð- inni á okkar tíð. Megi fordæmi hans og trúmennska verða þeim sem við taka til eftirbreytni. Sjálfur á ég og fjölskylda mín Kristjáni Eldjárn meira að þakka en hér verði upp talið. Á sárri skilnaðarstund flytjum við frú Halldóru, börnum hans og ástvinum öllum dýpstu samúðarkveðjur. „Orð eru til lítils, við vitum það,“ stóð í bréfi til okkar hjónanna haustið 1979. Þetta bréf var skrifað af svo mikilli hlýju og mannkærleika að það var eins og sól- argeisli í myrkrinu, bjartari og hlýrri en orð fá lýst. Bréfið var frá forsetahjónun- um á Bessastöðum, frú Halldóru og dr. Kristjáni Eldjárn. í rökkri haustkvöldsins, þann 14. þessa mánaðar, dró ég fram þetta bréf, enn á ný, en nú vildi ég gera svo mörg orð, sem þar er að finna að mínum og beina þeim til fjölskyldunnar að Sóleyjargötu 1. Orð eru lítils megnug á þessari stundu og mér er um megn að koma þeim saman sem skyldi. „Nú grætur mikinn mög, Minerva tára- gjörn“ mælti skáldið á Bægisá um látinn prest á Tjörn. Mér finnast þessi orð eiga vel við í dag og þessvegna minnist ég þeirra. Hún kom eins og reiðarslag yfir þjóðina, fregnin á öldum ljósvakans að morgni þess 15. september um að dr. Kristján Eldjárn væri látinn. Hann sem þjóðin hafði elskað og virt að verðleikum, valið til æðsta emb- ættis og verið stolt af. Nú er hið Ijúfa, fágaða og hámenntaða glæsimenni horfið okkur, langt um aldur fram. Dr. Kristján var ósvikinn meiður af sterkum hlyn skálda og fræðimanna sem hæst hafa borið í þjóðlífinu. Hann var gæddur óvenjulega mörgum góðum hæfi- leikum. Hann var skáld, rithöfundur, mik- ill fræði- og vísindamaður og hafði ein- stakt vald á íslenskri tungu. Vandfundinn er sá, sem betur kunni að haga orðum og rita fágað mál sem dr. Kristján Eldjárn. Allar ræður hans, hvort sem þær voru fluttar til þjóðarinnar af forsetastóli eða við önnur tækifæri, voru fluttar og fram- settar af einstakri snilld. Það er ofar mínu gripi að fjalla um vísinda- og fræðirit sem eftir hann liggja, það munu mér færari menn gera. En ógleymanlegar eru stund- irnar þegar hann leiddi þjóðina um sali Þjóðminjasafnsins, þá látlausú og greinar- góðu leiðsögn aftur í móðu aldanna skildu allir og hann glæddi áhuga fólksins á þeim gersemum, sem þar er að finna og voru í hans umsjá. Ég ætla ekki í þessum fáu fátæklegu orðum að rekja æviferil þessa mæta bróð- ur, né heldur tíunda öll þau trúnaðarstörf sem hann var valinn í vegna mannkosta sinna. En mig langar til þess að minnast góða og drenglundaða mannsins, sem hvergi mátti vamm sitt vita og vildi öllum gott gera. Hann var óvenjulega skemmti- legur og fróður, svo af bar. Á vinafundum hrókur alls fagnaðar og leiðándi í samræð- um svo allir höfðu yndi af að hlýða á orð hans. Mig langar til þess að minnast lið- innar tíðar og þakka samferðina fyrr og síðar. Feður okkar, fóstbræðurnir frá Tjörn í Svarfaðardal, voru nánir vinir og fjölskyldurnar tengdar órofa vináttubðnd- um. Systkinin frá Tjörn, Þórarinn, Sess- elja, Ingibjörg og Ólöf voru eins og óað- skiljaniegur hluti minnar fjölskyldu og það var oft glatt á hjalla þegar þau komu til okkar, enda óvenjulega skemmtilegt og gott fólk. Nú er Sesselja ein eftir, hana þarf ekki að kynna, hún er þjóðkunn. Hlýir straumar streyma til hennar þessa daga úr öllum áttum, þar sem hún nú dvelur eins og drottning á Hrafnistu. Sesselja er góður fulltrúi sinnar kynslóðar og stolt ættmenna sinna. Hún stendur nú eins og klettur úr hafinu og ber harm sinn eins og hetja. Dr. Kristján var henni afar kær og hlýr eins og besti sonur. Ég minnist margra vinafunda á heimili fjölskyldu minnar og á Bessastöðum og síðar á Sól- eyjargötu 1, en þar hafði fjölskyldan frá Bessastöðum búið sér fagurt heimili. Þar vildu þau njóta friðsældar einkalífsins í fögru umhverfi. „Mér finnst eins og ég hafi alltaf átt heima hér,“ sagði dr. Kristján eitt sinn við mig og leiddi mig um hin fögru húsakynni. Loksins gat hann helgað sig ritstörfum og fræðistörfum, sem hann vann að af kappi. „En skjótt hefir sól brugðið sumri". Eldingu laust niður af himnum ofan og Guð kallaði hann til sín. Bóndasoninn úr Svarfaðardal, vísinda- manninn, ritsnillinginn, fyrrum þjóð- minjavörð og forseta lýðveldisins, kveður þjóðin með virðingu og þökk í dag. Frú Halldóru og börnunum, systkinum hins látna og öllum ættingjum flyt ég ein- lægar samúðarkveðjur frá mér og minni fjölskyldu með þökk fyrir liðna tíð. Jóhannes R. Snorrason Svo segir í Hungurvöku að þegar Gissur biskup ísleifsson andaðist þá þótti drjúpa ísland eftir fráfall hans. Slíkt hefur stöku sinnum síðar gerst í sögu okkar lands, en sjaldan eða aldrei svo sannlega sem nú, er fregnin barst um skyndilegt fráfall Krist- jáns Eldjárns. Hann var ekki aðeins virtur og dáður forseti, heldur átti hann og fleiri persónulega vini heldur en nokkur maður annar með okkar þjóð. Hann hafði ferðast margsinnis um land allt, fyrst sem þjóð- minjavörður og síðan sem forseti íslands, og hvar sem hann fór löðuðust menn að þessum gáfaða og hjartahlýja dreng. öll þjóðin grætur nú góðan vin. Þegar í bernsku kom í ljós, að hann var afbragð annarra ungmenna að greind og námfýsi. Hann lagði stund á vísindalega fornleifafræði fyrstur íslendinga; hann skildi nauðsyn þess að við eignuðumst lærðan þjóðminjafræðing og vildi taka til höndum þar sem þörfin var mest. Og hann kom til starfa á tímadegi. Skömmu eftir að hann lauk háskólaprófum var hann skipaður til embættis Þjóðminjavarðar, og rétt um sömu mundir var lokið byggingu hins nýja þjóðminjasafnshúss. Það kom í hlut hins unga minjavarðar að skipa forn- minjum þjóðarinnar hverjum á sinn stað í hinni glæsilegu byggingu, og þar laukst upp fyrir mönnum nýr heimur. Fáir höfðu áður gert sér ljóst hvílíka auðlegð við eig-" um í fornminjum okkar, og þær vekja stöðugt athygli og aðdáun erlendra jafnt sem íslenskra gesta sem fjölmenna til að skoða þær með þeim umbúnaði sem Krist- ján Eldjárn fékk þeim á sínum tíma. í rúma tvo áratugi stýrði hann Þjóð- minjasafninu með dugnaði og frábærri skyldurækni; og jafnframt annasömum embættisverkum tók hann margvíslegan þátt í menningarlífi þjóðar sinnar, meðal annars með ritstörfum og ræðuhöldum og alþýðlegri fræðslu í útvarpi og sjónvarpi. íslenskt mál lék honum á tungu, hreint og látlaust alþýðumál, flutt með þýðum og hreimfögrum raddblæ. En þegar minnst varði var hann sóttur út á akur hinna fornu fræða og kallaður til að gerast æðsti oddviti þjóðar sinnar. Hann var allra manna hógværastur og sóttist vissulega ekki eftir þessari upp- hefð. En æ fleiri skoruðu á hann uns hon- um varð ljóst, eins og hann sagði sjálfur, að þetta væri í raun og veru vilji þjóðar- innar. Allir þeir sem tóku með Kristjáni þátt í kosningabaráttunni, sem svo var nefnd, lúka upp einum munni um það að sá tími hafi verið ógleymanlegur. Því var líkast sem hlýr vorvindur færi um land allt. Sjálfsagt hafa legið til þess margar ástæð- ur hversu stuðningsmenn streymdu til Kristjáns, en þó hlaut það að vega þyngst á metunum að þetta var sá forseti sem fólkið vildi fá. Auðvitað var kosningin líka að öðrum þræði pólitísk eins og allar kosn- ingar á landi hér. En sjálfum var Kristjáni afar illa við það. Hann skildi vel, að forset- inn á að vera hafinn yfir lágkúru og eig- ingirni stjórnmálabaráttunnar; og að loknum kosningum lá við að hann bannaði okkur stuðningsmönnum sínum að fylgja sigrinum eftir með nokkurri nýrri póli- tískri hreyfingu. Og vilji hans var einnig okkar vilji. Um forsetastarf Kristjáns Eldjárns skal ekki fjölyrt hér, það þekkja aílir. „Ég breytist ekkert þótt ég verði forseti," sagði hann, „og ég hyggst ekki heldur breyta forsetaembættinu frá þvi sem það hefur verið mótað af hinum fyrri forsetum.“ Það mun allra manna dómur, að honum hafi tekist frábærlega að sigla hina réttu með- alleið: Hann var virðulegur forseti, há- menntaður og mælskur í ræðum; en hann var jafnframt alþýðumaður, norðlenskur bóndasonur sem aldrei sleit sundur rætur uppruna síns. Með þeim hjónum Kristjáni og Halldóru var jafnræði í þessu sem öðru; og frú Halldóra, sem er að eðlisfari kyrrlát kona og hlédræg, vann hug og hjörtu manna með hlýju sinni, rólegum, en gáfuð-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.