Morgunblaðið - 23.09.1982, Síða 26

Morgunblaðið - 23.09.1982, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982 „Tilgangslaus mótmæli“ segir Thatcher: Víðtæk samúðarverkföll ollu víða óþægindum Lundúnum, 22. Heptember. AP. KOLANÁMUMENN, verkamenn í stáliðnaði, starfsmcnn við sjúkraflutn- inga og starfsmenn almenningsfarartækja voru á meðal þeirra hundruða þúsunda meðlima verkalýðsfélaga, sem tóku þátt í því að ganga út úr fyrirta kjum sínum um allt Bretland í mótmælaskyni við ríkisstjórn Margaret Thatcher í dag. Mótmælin, sem stóðu frá klukkustund og allt upp í sólar- hring ollu mjög víða óþægindum. Víða um landið var efnt til mót- mælagangna og sú fjölmennasta var í miðborg Lundúna. Þar gengu 120.000 manns að Hyde Park í „anda kjötkveðjuhátíðar" og héldu þar stóran útifund. Lögregla segir á hinn bóginn að helmingi færri hafi tekið þátt í göngunni. Samúðarverkföll þessi, sem reyndar eru bönnuð með lögum frá 1980, voru til þess að styðja 750.000 manns starfandi í stétt hjúkrunarfólks í vinnu hjá ríkinu. Undanfarna fjóra mánuði hefur hjúkrunarfólk farið í verkfali af og til víðs vegar um landið til þess að reka á eftir kröfum sínum um hærri laun. Leiðtogar bresku verkalýðsfé- laganna, sem hafa 11 milljónir manna innan sinna vébanda, skipulögðu þessi verkföll og sögðu í dag að þau hefðu fengið mjög góðar undirtektir um land allt. Leiðtogar prentiðnaðarins og hjúkrunarfólks tilkynntu enn- fremur í dag, að von væri á frekari verkföllum. Vinna var aðeins með eðlilegum hætti í 40 þeirra tæplega 200 kola- náma, sem eru víðs vegar um landið. Flestar hafnir voru lokað- ar. Flest sjúkrahús landsins urðu að miða við neyðarþjónustu ein- vörðungu og aðeins 18 þeirra 75 sjúkrabifreiðastöðva, sem eru í „Það var ríkisstjórn sósíal- demókrata, sem sá um samninga við Grænlendinga um sama mál- efni á sínum tíma og hefur London störfuðu eðlilega. Greip stjórnin til þess að biðja sjúkra- bifreiðir hersins að vera til taks. Margaret Thatcher, sem nú er í opinberri heimsókn í Kína, sagði í dag að samúðarverkföll þessi væru ekki til neins. Thatcher fékk víða kaldar kveðjur og á strætis- vagni í Skotlandi mátti lesa eftir- farandi borða: „Haltu þig frá Skotlandi, við höfum ekki efni á eggjunum." Var þar vísað til þess að Skotar hefðu ekki efni á að kaupa egg til að grýta í forsætis- ráðherrann. kannski ekki af þeim sökum get- að annað en gert svipað sam- komulag við okkur Færeyinga," sagði Hilmar Kass. Vilja byggja risastórt kjarnorkuver Nýju I)elhí, 22. Neptember. Al\ SKYRT var frá því í útvarpi í Nýju Delhí i dag, að Sovétmenn hefðu boðið Indiru Gandhi, sem nú er i opinberri heimsókn i Moskvu, að reisa 1.000 megawatta kjarnorkuver i Indlandi. Orkuver þetta, ef af byggingu þess yrði, yrði helmingi stærra en sams konar orkuver, Tarapur, sem reist var af Bandaríkjamönnum skammt frá Bombay. Tarapur- orkuverið, sem er 420 megawött að stærð, líður nú fyrir skort á elds- neyti vegna deilu Indlands og Bandaríkjanna um varúðarráð- stafanir, sem dregist hefur á lang- inn. Forsetinn spáir friðsöm- um lyktum San Pedro Sula, Hondúras, 22. september. FORSETI Hondúras, Roberto Suazo Cordova, spáði því í dag að umsátrinu um hús verslunar- ráðsins í borginni, þar sem skæruliðar hafa haldið tveimur ráðherrum og 80 kaupsýslu- mönnum i gíslingu í fimm daga, myndi Ijúka á friðsamlegan máta, að því er talsmaður hans sagði. Á hinn bóginn bárust eng- ar fregnir af þvi að eitthvað mið- aði í samningaviðræðunum við skæruliðana. Forsetinn flaug í dag yfir byggingu verslunarráðsins. Að sögn talsmanns hans sagðist forsetinn ekki sjá lausn á vandamálinu, en efaðist ekki um að því lyki á friðsamlegan hátt „innan skamms tíma“. Er forsetinn var nánar spurður við hvað hann ætti með þessu svaraði hann þvi til að hann teldi deiluna myndu leysast á næstu þremur eða fjórum dög- um. Millisvæðamótið: Kasparov og Beljavsky standa bezt Moskvu, 21. Heptember. AP. GARRY Kasparov frá Sovétríkjun- um komst einn í efsta sætið á milli- svæðamótinu i Moskvu með því að sigra Rúmenann Florian Gheorghiu í tólftu og næstsíðustu umferð móts- ins. Kasparov hefur þar með hlotið átta vinninga og að auki biðskák við Filippseyinginn Rodriguez. Næstir koma Kúbumaðurinn Garcia og Mikhail Tal, fyrrum heimsmeistari, með sjö og hálfan vinning. Að öðru leyti urðu úrslit í tólftu umferð sem hér segir: Christiansen, Bandaríkjunum, vann Rodriguez, en jafntefli varð hjá Tal og Quinteros, Argentínu, svo og hjá Garcia og Svíanum Anderson. Skákir Murei, ísrael, og Sax, Ungverjalandi, Gellers, Sov- étríkjunum, og Velimirovic, Júg- óslavíu, og Beljavskys og Van der Wiels, Hollandi, fóru allar í bið. Þá gaf Garcia biðskák sína við Beljavsky úr tíundu umferð. Staðan á mótinu er nú þessi: 1. Kasparov 8 v. og biðskák. 2. -3. Garcia og Tal 7'A. 4. Andersson 7 v. og biðskák. 5. Beljavsky 6'A v. og 3 biðskákir. 6. Geller 6‘/2 v. og biðskák. 7. Christiansen 5% v. 8. Sax 5 v. og biðskák. 9. Velimiroivc 4'/2 v. og 3 biðsk. 10. Gheorghiu 4‘k v. og biðskák. 11. Murei 3'k og 3 biðskákir. 12. Van der Wiel 3Vi v. og biðskák. 13. Rodriguez 3 v. og 2 biðskákir. 14. Quinteros 2'k v. og biðskák. Deilan um yfírráð yfir auðæfum á hafsbotni: Færeyingar taka tilboði Dana um samningaviðræður horshofn, Færeyjum. 22. september. Frá Jógvan HINN NÝI forsæti.sráðherra Dana, l’aul Schliiter, hefur boðið færeyskri viðskiptanefnd til við- ræðna um „hafsbotnsmálið" þann 12. október næstkomandi. Formaður nefndarinnar, Jógvan Sundsteion, formaður færeyska iagaþingsins, hefur tilkynnt að danska forsætisráðuneytinu hafi verið tjáð að nefndin hygðist þekkjast boðið. Fyrir skömmu sendi lands- stjórnin í Færeyjum bréf til for- sætisráðuneytisins danska þar sem greint var frá því, að hún væri ekki sátt við þá lausn á „hafsbotnsmálinu", sem fyrrum ERLENT Argc, fréttaritara Mbl. forsætisráðherra, Anker Jörg- ensen, hafði komist að. Sú lausn fól í sér að Færeyingar skyldu hafa sama yfirráðarétt og Grænlendingar. Það vildu Fær- eyingar ekki samþykkja. Viðskiptanefnd þessi hefur skýrt forsætisráðuneytinu frá því að frá hennar sjónarhóli séð sé umrætt svæði í umsjá Færey- inga og því eigi yfirráðaréttur og allar ákvarðanir að vera alfarið í höndum þeirra. Þessi skoðun nýtur mikils stuðnings á laga- þinginu. Formaður markaðsnefndar lagaþingsins, Hilmar Kass, sagði aó ekki hefði verið mögulegt að komast nær settu marki á með- an fyrrverandi ríkisstjórn var við völd í Danmörku. Nú þegar ný stjórn hefði tekið við væri það e.t.v. ljós í myrkrinu og meiri möguleiki á að ná sani- komulagi, sem Færeyingar gætu sætt sig við. Vísar fréttum Amnesty á bug New Vork, 22. Heptember. AP. FERDINAND E. Marcos, forseti Filippseyja, neitaði í dag alfarið ásök- unura Amnesty International um aukin morð og pyntingar pólitískra fanga og segir fréttir samtakanna vera stórlega ýktar. í viðtali við CBS-fréttastofuna bandarísku sagði að sumir fang- ar gætu hugsanlega hafa sætt slæmri meðferð, en að um víð- tækar pyntingar og að 1.000 manns hefðu verið drepin á síð- asta ári væri fráleitt. Marcos sagði ennfremur að þeim opinberu starfsmönnum, sem staðnir væru að pyntingum, væri refsað. Sagði Marcos, að hann gæti líkt „pyntingunum á Filippseyjum við lögregluofbeld- ið í Bandaríkjunum". WHSB ******* 5*ö«ttoS CHAKirr ?© ** » ** W fytobgf&thii Símamynd/ AP. Frá kröfugöngunni, sem efnt var til í miðborg Lundúna i gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.