Morgunblaðið - 23.09.1982, Page 31

Morgunblaðið - 23.09.1982, Page 31
31 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBÉR 'íM rnsr Frá blaðamannafundinum i Unglingaheimilinu ad Kópavogsbraut 17. Unglingaheimilið í Kópavogi 10 ára: Opin umræða stuðl- ar að fordómaleysi TÍU ár eru nú liðin frá því að Ungl- ingaheimili ríkisins í Kópavogi var stofnaö. Á þeim tíma hefur starf- semin þróast og tekið tölverðum breytingum. Það er nú starfrækt í fjórum deildum. Þær eru: Neyðar- athvarf unglinga að Kópavogs- braut 9, þar sem unglingum er ætl- uð vistun um skamman tíma. Með- ferðarheimilið aö Kópavogsbraut 17, sem er meðferðar- og skóla- heimili, þar sem 10 nemendur eru til vistar í einu. Svonefnt sambýli að Sólheimum 17, sem opnað var í fyrrasumar. Þar geta 6 unglingar búið og sótt þaðan skóla og vinnu. Deildarstjóri býr á heimilinu ásamt fjölskyldu. í fjóröa lagi er rekin unglingaráðgjöf í tengslum við fyrrnefnd heimili. Hún er einn- ig til húsa að Sólheimum 17. Henni er ætlað að þjóna öllu landinu, eins og heimilunum og þangað geta allir leitað, sem við einhvern svona vanda eiga að stríða, hvort sem það eru unglingarnir sjálfir, foreldrar eða aðrir sem með ungl- ingum vinna. A meðferðarheimilinu á Kópa- vogsbraut 17 hafa 144 unglingar búið á þessum 10 árum, 50 stúlk- ur og 94 strákar. í neyðarat- hvarfinu hafa 78 unglingar verið í skammtímavistun það sem af er þessu ári, í samtals 411 sólar- hringa. Er það mikil aukning frá því í fyrra, en þá voru unglingar þar í samtals 138 sólarhringa. Kristján Sigurðsson, forstöðu- maður Unglingaheimilis Ríkis- ins, sagðist vonast til, að með opinni umræðu væri hægt að stuðla að fordómaleysi gagnvart stofnuninni og að hún hefði áhuga á því að starfa fyrir opnum tjöldum, en þvi miður hefði borið töluvert á fordómum gagnvart henni meðal fólks. Hann sagðist líta svo á, að markmið stofnunarinnar væri að hjálpa þeim unglingum, sem af einhverjum ástæðum hefðu lent í þeirri aðstöðu, að hafa ekki fylgt með hópnum og sagðist Fordæma fjöldamorðin Núskínsólin i Karabískahaf inu fyrirfiá sem em filbúnir aðlakaþátfí nýjum ævirrtýrum! Þar er ströndin hvít, himininn heiður, hafið blátt, þar eru glæstir garðar, sundlaugar, golfvellir, tennisvellir, heilsuræktarstöðvar, strandbarir og barnaleikvellir. Þar eru veitingastaðir við allra hæfi, tónlist jafn fyrir eyru og fætur, næturklúbbar og spilavíti. Þar er hægt að komast á túnfiskveiðar og í regnskógarferð, kafa niður á kóralrifin, kynnast sögu spænskra landkönnuða og njóta hinnar stórkostlegu sólarupprásar. Þar er allt sem þarf í ævintýri! Brottfarir til Puerto Rico verða alla þriðjudaga í haust fram til 30. nóvember. Ferðirnar eru 1, 2 eða 3ja vikna langar. Ferðatilhögun: Flogið er til San Juan en skipt um vél í New York í báðum leiðum. Fulltrúi Flugleiða verður hópnum til aðstoðar á Kennedy- flugvelli. Gisting: Hægt er að velja um gistingu í hótelherbergjum eða íbúðum á El San Juan Hotel og El San Juan Tower en hvort tveggja er með því besta, sem þekkist í Puerto Rico - og þar er „standardinn" hár. Verð: Frá 12.463 fyrir 1 viku, 14.918 fyrir 2 vikur og 17.353 fyrir 3 vikur, miðað við gistingu í 2ja manna herbergi. Innifalið er flugfar, gisting, flutningur til og frá hóteli og íslensk fararstjórn. LjÓNmyndir Mbl. Kristján Kinarsson Kristján Sigurðsson, forstöðumað- ur Unglingahcimilisins. trúa því að það sé gagnleg aðstoð sem þessi stofnun veitti, sem þjóðfélagið ætti að bjóða upp á. Fjórum til fimm árum eftir að stofnunin tók til starfa, var unn- in skýrsla, þar sem reynt var að gera sér grein fyrir árangrinum af starfsemi stofnunarinnar. Fram kom að um 70% þeirra, sem höfðu verið þar til vistar, bjuggu við nokkurn veginn eðli- legar aðstæður. Kristján Sigurðsson sagði jafnframt: „Ég hef oft verið spurður, hvort ekki þyrfti fleiri eða stærri heimili, til þess að leysa þann vanda sem fyrir hendi er. Ég hef jafnan svarað og er sömu skoðunar enn, að stofnanir til vistunar unglinga séu fyrst lausn þegar engin ann- ar möguleiki er fyrir hendi og því beri að hafa stærð stofnana í lágmarki, til þess að jafnan sé annarra ráða leitað jafnframt. Ég er enn sannfærður um að Unglingaheimilið hefur aðstoðað marga unglinga og gerir enn, enda er unnið í þeim anda.“ MBL..'hefur borizt eftirfarandi frá Alþýðuflokknum: „Flokksstjórn Alþýðuflokks- ins lýsir hryggð sinni og samúð vegna fjöldamorðanna í Líbanon um leið og hún fordæmir verkn- aðinn og þá sem að honum standa. Ríkisstjórn ísraels hef- ur með árás sinni á Líbanon, ít- rekuðum vopnahlésbrotum og afskiptaleysi af fjöldamorðun- um fyrirgert þeirri samúð sem ísraelar hafa notið. Þeim ber tafarlaust að verða á brott úr Líbanon, en alþjóðlegar friðar- sveitir að taka upp öryggisgæzlu í landinu öllu.“ Þá hefur Mbl. borizt eftirfar- andi frá Alþýðubandalaginu: „Alþýðubandalagið fordæmir harðlega fjöldamorðin í flótta- mannabúðum Palestínumanna í Beirút og lýsir einlægri samúð með þeim sem eiga um sárt að binda vegna þessa ódæðis. Flokkurinn fordæmir stjórn- völd ísraels fyrir þá ábyrgð sem þau óumdeilanlega bera ásamt Bandaríkjamönnum á þessum hryðjuverkum bandamanna sinna. Jafnframt tekur Alþýðu- bandalagið undir kröfur þær, sem nú eru bornar fram víða um heim, að her ísraels verði á brott frá Líbanon og þjóðarrétt- indi Palestínumanna verði virt í verki, þ.á m. réttur til að stofna eigið ríki. Flokkurinn telur að ríkisstjórnin eigi að taka undir þessa meginkröfu Frelsissam- taka Palestínumanna á alþjóð- legum vettvangi og telur rétt að ríkisstjórnin leiti samráðs við ríkisstjórnir Norðurlandanna um aðstoð við Palestínumenn og samtök þeirra." URVAL FLUGLEIÐIR ÚtsÝn Samvinnuferdir-Landsýn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.