Morgunblaðið - 23.09.1982, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.09.1982, Blaðsíða 32
32 Ít-JT MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982 HELO SAUNA Höfum ávallt fyrirliggjandi saunaofna og klefa á mjög hagstæöu verði. Benco, Bolholti 4, sími 21945 1x2 4. leikvika — leikir 18. september 1982 Vinningsröð: 1 1 X — 212 — 122 — 221 1. vinningur: 12 réttir — kr. 148.135,00 75499 (1/12, 4/11) 2. vinningur: 11. réttar — kr. 2.645,00 875 9649+ 66759 75493 90264 876 18484 67870 75933+ 91310 7084 60502 71398 76511 91951 7726 64443 71510 77034 95510 Kærufrestur er til 11. október kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyöublöð fást hjá umboös- mönnum og á skrifstofu Getrauna í Reykjavík. Vinnings- upphæöir geta lækkað, ef kærur veröa teknar til greina. Handhafar nafnlausra seöla(+) veröa aö framvísa stofni eöa senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. GERA MÁ RÁD FYRIR VERULEGUM TÖFUM Á GREIÐSLU VINNINGA FYRIR NÚMER, SEM ENN VEROA NAFNLAUS VIO LOK KÆRUFRESTS. GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK BÁTAR „TERHI 415“ Hraögengur bátur meö stýringu og fyrir allt aö 35 Hp vél. (Aðeins 1 bátur til). TERHI-bátarnir eru ósökkvanlegir og viðurkenndir af Sigl- ingamálastofnun ríkisins. ATH. ÞETTA ERU SÍÐUSTU BÁTARNIR Á GÖMLU VERÐI. Vélar & Taeki ht TRYGGVAGATA 10 BOX 397 REYKJAVlK SfMAR: 21286 - 21460 Hvað þýðir, „að setj- ast í helgan stein“? eftir Guðjón B. Baldvinsson Þessi spurning leynir á sér. Innihald hennar er drýgra við- fangsefni en í fljótu bili virðist. I frétt frá öldrunarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna gefur að lesa: „Hinum öldruðu skal einnig sjá fyrir upplýsingum um, hvað það hefur í för með sér að setjast í helgan stein, þannig að þetta breytingaskeið geti orðið sem léttbærast. Þrátt fyrir víðtækt at- vinnuleysi í mörgum löndum, at- vinnuleysi, sem oft kemur verst við þá ungu, á ekki almennt að lækka eftirlaunaaldur. Hinsvegar á einstaklingum að vera kleift að fara fyrr á eftirlaun, ef þeir óska þess.“ Mbl. 18. sept. sl. Þessar setningar, og raunar fleiri í fregn þessari, gefa ástæðu til umfjöllunar á ýmsa vegu. Hér og nú skal þó aðeins drepa á eitt atriði, upplýsingagjöf um það að „setjast í helgan stein". Við skulum ekki treysta því að ríkisstjórn sjái algerlega um upp- fræðsluna. Fleiri aðilar þurfa að koma til, sveitarfélög, samtök þeirra er fást við málefni aldr- aðra, stéttarfélög og þeir öldruðu sjálfir. Við skulum rétt aðeins svipast um af „hinum helga steini" og gá að hvað það myndi vera helst, sem fræða þarf um. Vitanlega þurfa ekki allir fræðslu um öll þau atriði, sem nefnd verða, og væntanlega veldur það ekki misskilningi. Efnahagsafkoma Flestum mun verða hugsað til fjárhagsafkomunnar. Aldurs- mörkum til ellilauna fylgja ýmis- leg réttindi, sem fólk þarf að vita um. Auk eftirlauna frá Trygginga- stofnun koma til ýmsar uppbætur þaðan, síðan eftirlaun úr sjóðum launþega, afsláttur á ýmsum gjöldum o.fl. o.fl. sem fólk veit ekki almennt um. Heilsufar Margir eru alltof hirðulausir um heilsu sína. Aldrinum fylgir sú skylda að leita ráða um heilsu- gæslu sína. Láta athuga hvernig háttað er blóðrás, hjartastarf- semi, meltingu, gigt, sjón, heyrn o.s.frv. Hvernig er auðveldast að afla þeirra upplýsinga, sem heim- ilislæknirinn lætur ekki í té. Þarf kannske ráð sérfræðings t.d. um mataræði, hentuga hreyfingu o.s.frv. Atvinna eða tómstundavinna Hvernig er háttað líðan á vinnu- stað, og er þá ekki aðeins átt við líkamlega heldur og andlega, þ.e. hvort aðstæður og andrúmsloft á vinnustaðnum sé á þann veg, sem viðkomandi unir við, og ef eitt- hvað skortir á um æskilegan að- búnað, hvort og hvernig megi úr bæta. Er atvinnan í veði og er unnt að lagfæra það með einhverj- um hætti? Er áhugi fyrir tóm- stundaiðju og þá hvort til þyrfti að koma nokkur leiðbeining eða tilsögn um verklag, t.d. við bók- band, smíði, sauma, matargerð, sem karlmönnum af eldri kynslóð- inni væri mikil nauðsyn að kynna sér? Það gæti bjargað sjálfstæðu lífi okkar nokkur ár til viðbótar. Upplýsingar um hentuga fæðu eru mjög mikilsverðar, aldrinum fylgja ýmsar breytingar, sem vert er að hafa í huga. Bóklegt nám Margir eru þeir eldri menn, sem fóru á mis við skólalærdóm í æsku sinni. Ýmsir þeirra eiga löngun og andlegt þrek til að bæta við þá þekkingu, sem reynslan og lífið hefur veitt, og bæta við einhverri námsgrein sem þeim er hugleikið að kynnast, s.s. einhverju tungu- máii, sögu, landafræði eða ein- hverri svonefndri raungrein. Ferðalög Margt er þar á boðstólum, en meira virðist lagt upp úr utan- landsferðum heldur en þægilegum skoðunarferðum um okkar eigið land. Þó hefur Ferðaskrifstofa ríkisins skipulagt ferðir um ákveðna landshluta með það fyrir augum að unnt sé að fara hægt yfir. Kannske þyrfti að veita al- Stjórn Palme ræðst fyrst að atvinnuleysinu Stukkholmi, 21. septembtT. Krá (iuAfinnu Kagnarsdúttur, fréttaritara Mbl. HVAÐA afleidingar hafa stjórnarskiptin fyrir Svíþjóð næstu mánuði og ár, er spurning sem margir spyrja sig nú. „Það fyrsta sem við ráðumst á er atvinnuleysi," sagði Kjell-Olof Feldt verðandi fjármálaráðherra Svía í dag. „Við viljum sýna að Svíþjóð er búin að fá nýja stjórn og nýja stefnu.“ í haust hefja svo jafnaðarmenn umræður um launþegasjóðina við stjórnarandstöð- una, atvinnrekendur og launþega. Launþegasjóðirnir verða þó varla fullmót- aðir að því er talið er fyrr en í fyrsta lagi 1985, en ekki er ólíklegt að jafnaðarmenn reyni þó að byggja upp einhverja sjóði fyrr til styrktar iðnaðin- um. Jafnaðarmenn segjast reiðubúnir að hlusta á og ræða allar tillögur um sjóðina. Fjögur kosningaloforð munu jafnaðarmenn einnig efna í haust, en það er í fyrsta lagi að auka atvinnuleysisbætur. í öðru lagi að verðtryggja eftirlaunin. I þriðja lagi að auka ríkisstyrkinn til dagheimilisbygginga. Og í fjórða lagi að rífa upp ákvörðun fyrri stjórnar um að hætta greiðslu tveggja fyrstu veikindadaganna. Einnig er trúlegt að jafnaðarmenn komi á verðstöðvun í haust. Kosningaloforðin á að greiða með hækkuðum söluskatti. Hann á að hækka úr 17,7 prósentum í 19%, og með atvinnurekenda- skatti, sem hækka á um hálft pró- sent. Til að bæta barnafjölskyldum upp söluskattshækkunina mun nýja stjórnin hækka fjölskyldu- bætur. Um ríkisskuldirnar, sem nú eru 76 milljarðar sænskra króna, segir Kjell-Olof Felt: „Markmiðið er að minnka skuldirnar, en það er ekki útilokað að við, til að byrja með, höldum áfram að taka lán ef við getum notað peningana til að efla iðnaðinn." Samningarnir við hagsmuna- samtökin eiga sjálfsagt eftir að reyna á þolrifin í nýju ríkisstjórn- inni í haust. „Launþegarnir verða að gera sér grein fyrir að ef þeir stilla kröfum sínum í hóf, hverfa peningarnir ekki í auknum gróða eins og hjá fyrri stjorn, heldur verður þeim varið til að skapa nýja atvinnu- möguleika," sagði Kjell-Olof Feldt. Olof Palme lofar einnig að hafa nána samvinnu við stjórnarand- stöðuna og alla aðila, bæði á vinnumarkaði og annars staðar í þjóðlífinu í starfi hinnar nýju stjórnar. Hagsmunasamtökin hafa lýst yfir ánægju sinni með hina nýju stjórn og telja að nú muni samn- ingamálin ganga betur en í tíð borgarastjórnarinnar. Atvinnu- rekendur og forsvarsmenn iðnað- arins, sem fyrir kosningar beittu skeytum sínum að jafnaðar- mönnum fyrir launþegasjóðatil- löguna, segjast nú binda vonir sín- ar við að jafnaðarmenn hjálpi til við að halda launakröfunum niðri. í kauphöllinni stigu hlautabréf- in eftir kosningarnar, gangstætt því sem margir höfðu spáð. Aðrir telja að þeir sem óttuðust laun- þegasjóðina hafi verið löngu búnir að selja sín hlutabréf og að kaup- höllin hafi verið búin að aðlaga sig sigri jafnaðarmanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.