Morgunblaðið - 23.09.1982, Side 34

Morgunblaðið - 23.09.1982, Side 34
34 MOBOUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982 BALLETTSKOLI EDDU SCHEVING Skúlatúnl 4 Ballett fyrir byrjendur og framhaldsnemendur. All- ir aldurshópar frá 5 ára aldri. Innritun og upplýsingar { síma 76350 kl. 10—12 f.h. og 14 19 a.h. SKÓLARNIR BYRJA... AF ÞVÍ TILEFNI BJÓÐUM VID SVEFNBEKK Á KR 1.985 SKRIFBORD Á KR 1.526 Metsölublad á hverjum degi! Minningarorð: Geir Sigurðsson Fæddur 18. maí 1902 Dáinn 14. september 1982 I dag verður borinn til hinstu hvíldar gamall sveitungi og heim- ilisvinur. A slikum stundum fer ekki hjá því að manni verði hugs- að til þess hve lifið sem okkur er léð, er í raun og veru stutt og hvað við eigum margt ógert þegar kaliið kemur. Geir Sigurðsson var fæddur í Rauðholti í Hjaltastaðaþinghá í N-Múlasýslu. Faðir: Sigurður Einarsson fæddur 4. október 1851 að Staka- hjalla í Hjaltastaðaþinghá. Sonur Einars Jónssonar og Ingibjargar Sigurðardóttur er þar bjuggu, nú er þetta býli komið í eyði fyrir mörgum árum. Móðir: Sigurbjörg Sigurðardótt- ir fædd 14. mars 1864 á Horni í Nesjahreppi í A-Skaftafellss. For: Sæbjörg Jónsdóttir og Sigurður Þorvaldsson, vinnuhjú þar. Hjaltastaðaþinghá er fögur og búsældarleg sveit. Um síðustu aldamót var mikill menningar- og framfarahugur í héraðinu. Barna- uppfræðslan var með ágætum eft- ir þeirra tíma hætti. Tónlistarlíf var gott og lestrarfélagið stóð í blóma. Bindindisfélagið örvaði unga fólkið til dáða og mun þar hafa verið byggt eitt fyrsta sam- komuhús á Fljótsdalshéraði. Bún- aðarfélag hafði starfað alllengi og snemma á 19. öld hófust þeir handa um áveitur og skurðgröft. Þetta hvatti unga bændasyni til þess að afla sér menntunar á sviði landbúnaðar. í þessu umhverfi sleit Geir Sigurðsson barnsskón- um. Heimilið í Rauðholti var mannmargt, börnin urðu 9 á 14 árum. Það varð því þungur róður fyrir einyrkjahjón og marga munna að fæða. Börnin hjálpuðu til strax og kraftar leyfðu, og eins og þá var títt, var þeim komið í burtu til snúninga. Geir var aðeins sex ára gamall þegar honum var komið í fóstur til vandalausra. Hafa það vafalítið verið erfið spor fyrir lítinn dreng að hverfa frá föður- og móðurknjám og eiga þangað ekki afturkvæmt. Hjónin í Dölum í Hjaltastaðaþinghá, Jón- ína Jónsdóttir og Þórarinn Ólafs- son fóstruðu Geir næstu árin. Þeg- ar hann var 12 ára andaðist móðir hans og stuttu síðar fóstri. Hann var þó áfram í Dölum og átti þar fast heimili þó hann ynni og um sinn í Eydölum í Breiðdal. Hugur Geirs stóð alla tíð til jarðræktarstarfa og skepnuhirð- inga. Hann stefndi því að því með öllum ráðum að komast á búnað- arskóla til þess að læra og kynnast nýjungum á því sviði. Arið 1923 þegar hann var 21 árs settist hann á skólabekk á Hvanneyri. Námið veittist honum auðvelt og var það ekki síst fyrir það hve næmur og samviskusamur hann var. Um vorið er hann hafði lokið prófi úr yngri deild skólans, var hann ráð- inn til jarðvinnslustarfa, en þó einkum til plæginga í Borgarfirði. Um sumarið var hann svo við heyskap. Þannig vann hann fyrir skólagjaldi næsta vetrar og árið 1924 settist hann í eldri fram- haldsdeildina. Þarna kynntist hann Þorgils Guðmundssyni frá* Valdastöðum í Kjós, en hann var ráðsmaður og íþróttakennari við skólann. Geir var alla tíð léttur á fæti og lipur í hreyfingum, hann fékk því góða dóma hjá íþrótta- kennaranum. Vorið 1925 útskrifaðist hann með ágætiseinkunn frá Hvann- eyri. Eftir það hvarf hann austur á land og vann þar næstu 4 árin við ræktunarstörf. Sumarið 1929 fékk Geir bréf frá Þorgils Guð- mundssyni íþróttakennara, þar sem hann fer þess á leit við fyrr- verandi nemanda sinn, að koma suður til Reykjavíkur og æfa fim- leika er sýna eigi á Alþingishátíð- inni á Þingvöllum sumarið 1930. Þessu áhugaverða boði tók Geir, þó svo hann yrði að bera nokkurn kostnað af svo löngu ferðalagi. Er til RVK kom hófust æfingarnar og fimleikasýningin fór svo fram á Þingvöllum 1930, við góðar undir- tektir áhorfenda og ógleymanleg- an orðstír fimleikafiokksins. Þetta var mesta gæfuár í lífi Geirs því um þetta leyti hafði hann ráðið sig hjá Lorens Thors á Korpúlfsstaði og þar kynntist hann Bobbu, sem átti eftir að vera sólargeislinn í lífi hans næstu 30 árin. Bobba hét í raun og veru því virðulega nafni Þorbjörg Jóhannsdóttir og var fædd 9.04.1910 á Kirkjubóli í Múlasveit í Barðastrandasýslu. Hún var dóttir hjónanna: Guðrún- ar Mikkelínu Bæringsdóttur f. 2/9 1877 í Múlasókn, Barðaströnd og Jóhanns Sigurðssonar f. 29/12 1867 í Reykhólasveit, Barðaströnd. Það var fallegt í Kirkjubólshlíð- inni en lífsbaráttan var hörð og margir hafa orðið að láta undan síga í baráttunni við vetrarhörk- ur, strjálbýli og erfiðar verslunar- ferðir á árabátum til Flateyjar sem var nærtækasti verslunar- staðurinn. Ómegðin var mikil á þessu harð- býla landi Kirkjbóls. 14 urðu börn- in með tveimur konum og komust 12 til fullorðinsára og eru á lífi 10 þeirra. Ungri að aldri var Bobbu komið út í Skáleyjar á Breiðafirði til Kristínar Einarsdóttur og Skúla Bergsveinssonar og þar var hún í fóstri til 16 ára aldurs. Þrátt fyrir fagurt útsýni og fjölbreytt eyja- störf, þráði Bobba að skoða heim- inn og fyrsti áfangi í þeirri för var RVK. Þar vann hún á ýmsum stöðum, svo sem hjá Eiríki Kristó- ferssyni skipherra og á Reynistað við Skerjafjörð hjá frú Guðlaugu er var kennari að mennt og merkileg kona og Elís kaupmanni og fyrrverandi kaupfélagsstjóra á Djúpavogi. Þetta voru stórmynd- arleg heimili og taldi hún þau hafa verið sína skóla. Síðan lá leið hennar að Korp- úlfsstöðum. Hjá Lórens Thors vann Geir í 10 ár og var þá ýmist á Korpúlffstöðum Arnarholti eða í Melshúsum og líkaði vel. í október 1932 gengu þau í hjónaband Geir og Bobba og þrátt fyrir kreppuna bjargaðist allt. Svo kom árið 1940 með hernám íslands, þá fékk her- inn Arnarholt til afnota og bú- skapur breyttist og drógst saman hjá Lórens Thors. Það vor fluttu Geir og Bobba að Urriðakoti í Garðahreppi með börnin sín sem þá voru orðin þrjú. Þar voru þau í tvö ár. En þá fékk Geir ráðs- mannsstöðu á Setbergi og var þar til ársins 1947 að hann fékk Hval- eyri við Hafnarfjörð til ábúðar. Þar undu þau hag sínum vel þó að þá þegar væri farið að bera á heilsuleysi Bobbu. Eftir 12 ára búsetu á Hvaleyrinni bauðst þeim góð jörð. Það var Hjarðarnes á Kjalarnesi í Kjósarsýslu. Þetta var árið 1959. Þau slógu til og þar með eignaðist ég þessa indælu, traustu nágranna, sem hafa reynst okkur sannir vinir í gegn- um árin. Geir var vel látinn á Kjalarnesi, sat í hreppsnefnd og voru falin ýmisleg trúnaðarstörf. Hann var hvers manns hugljúfi er kynntist honum og glaður í góðra vina hópi. Þorbörg andaðist 18. júlí 1961 á sjúkrahúsi. Hún hafði átt við langvarandi veikindi að stríða, en verið með betra móti og átti að fá að fara heim til ástvina sinna þennan dag. En lofaðu engan dag fyrr en um sólarlagsstund. Geir bjó áfram í Hjarðarnesi með aðstoð barna sinna. Hann var mikið snyrtimenni og fórst vel úr hendi allt er að heimilishaldi laut og yngsta syninum, sem enn var barn að aldri, reyndist hann sem besta móðir og föðurhlutverkið var ekki afrækt heldur. Arið 1968 keypti Skúli, elsti son- ur Geirs jörðina írafell í Kjós og þangað flytur fjölskyldan um vor- ið. Þar hafa feðgarnir búið félags- búi síðan. Geir hefur unnið fullan vinnudag og séð um fjósverkin, þar til á síðasta ári að hann kenndi þess sjúkdóms er bar hann ofurliði. Geir átti mikið og gott bókasafn og las mikið. Skúli er giftur Hólmfríði Vil- hjálmsdóttur frá Hrolllaugsstöð- um á Langanesi og eiga þau tvær dætur og tveimur sonum Hólm- fríðar hefur Geir reynst eins og hann ætti í þeim hvert bein. Á undanförnum árum hafa oft dvalið börn um lengri eða skemmri tíma á írafelli, þeim hef- ur Geir verið eins og besti afi, og á kvöldin hafa þau safnast saman við sjónvarpið hans.þar sannaðist máltækið, þröngt mega sáttir sitja. Því þar var hver lófastór blettur setinn. Önnur bðrn Geirs og Þorbjargar eru: Óttar ráðunautur hjá Búnað- arfélagi íslands, hann var giftur Línhildi Björnsdóttur en hún and- aðist fyrir nokkrum vikum. Sigríð- ur fóstra. Sævar trésmiður í Borg- arnesi, giftur Halldóru Jónsdóttur frá Kjóastöðum í Biskupstungum. Sigurður rafvirki í Borgarnesi, giftur Guðríði Þorvaldsdóttur frá Bíldsfelli í Grafningi. Ég votta börnum hans og öðrum ástvinum innilega samúð okkar hjónanna. Hulda Pétursdóttir Útkoti Merkjasöludagur Menningar- og minningarsjóðs kvenna HINN árlegi merkjasoludagur Menningar- og minningarsjóðs kvenna verður laugardaginn 25. sept. nk. Tilgangur sjóðsins er að vinna að menningarmálum kvenna, m.a. með því að styðja konur til framhaldsnáms. Alls hafa 516 konur hlotið styrk úr sjóðnum. Merkjasalan hefur um árabil verið ein helsta fjáröflunarleið- in til stuðnings sjóðnum, þar sem leitað er til almennings í landinu um aðstoð. Það er því ekki síst undir því komið hvern- ig til tekst með þessa fjáröflun, hversu mikið fé sjóðurinn hefur handbært til styrkveitinga hverju sinni. Aðalverkefni sjóðsins nú er að safna æviminningum, svo hægt sé að gefa út fimmta hefti æviminningabókarinnar, sem trúlega verður líka síðasta heft- ið. Enn vantar margar greinar og vill 8tjórnin hvetja fólk til að minnast látinna ættingja og vina með þessum hætti. Kvenfélög sjá um merkjasöl- una, hvert á sínum stað um allt land. Merkin kosta 10 kr. og sölulaun verða greidd. FrélUtilkynning.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.