Morgunblaðið - 23.09.1982, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 23.09.1982, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982 Evrópukeppnin: Fram með lang yngsta liðið — sjö 2. flokks leikmenn léku með ÞAÐ ER ekki nokkur vafi á því aö Fram teftdi í gærkvöldi fram yngsta liöinu sem nokkru sinni hefur tekiö þátt í Evrópumóti í knattspyrnu. Alls voru sjö annars flokks leikmenn í liði Fram í gærkvöldi. Allt efnilegir leikmenn en alla skortir þá bæöi meiri reynslu og líkamsstyrk. Leikurinn í gær hefur eflaust veriö góöur skóli fyrir þá flesta. Þetta eru þeir leikmenn sem eiga eftir aö hefja merki Fram á loft á rtýjan leik í knattspyrnunni, koma liöinu i 1. deild og sjálfsagt eiga þeir eftir aö leika marga Evrópu- leiki í framtíöinni. I gærkvöldi vant- aöi reynda leikmenn í liö Fram eins og Guömund Baldursson, mark- vörö, Trausta Haraldsson og Hall- dór Einarsson. Þá var Hafþór Sveinjónsson ekki meö þar sem hann var í leikbanni. Þaö munaöi um minna fyrir Framliöiö. Ef aldur Marteins Geirssonar er undanskilinn í liöi Fram þá var meöalaldurinn í liöinu 19 ár. — ÞR • Guðmundur Torfason reynir skot aö írska markinu. Ljósm.: Kristján Einarsson Yfirburðir enskra Tveir knattspyrnulandsleikir í undir 21 árs aldursflokknum fóru fram í fyrrakvöld. England og Vestur-Þýskaland áttust viö á Brammal Lane í Sheffield og hafói enska liöiö athyglisveröa yfirburði. 3—1 uróu lokatölurnar og þótti sá sigur í minnsta lagi. Garry Owen hjá WBA skoraöi fyrsta markiö á 13. mínútu, en Justin Fashanu bætti ööru marki við á 51. mínútu. Owen var síöan aftur á feröinni á 73. mínútu, er hann skoraói úr víti. Rudi Völler skoraði eina mark Þjóöverja tíu mínútum fyrir leikslok. Þá mættust Wales og Noregur á Ninian Park í Cardiff og lauk þeim leik án þess aö mörk væru skoruö. Aö sögn fréttaskeyta voru þaö heimamenn sem hrósuöu happi, því Norðmenn höföu yfirburði í leiknum, geröu raunar allt nema aö skora. Áhorfendur voru aöeins tæplega 700. • Marteinn Geirsson hefur náó aó skjóta þrumuskoti aó marki Shamrock, en markvörðurinn náói aö verja. Ljósm. Kristján Einarsson Unglingalió Fram réð ekki við írana EKKI fór þaó svo þetta haustió aó íslenskir knattspyrnuáhugamenn fengju aó sjá mark skoraó af ís- lensku líöi í Evrópukeppninni í knattspyrnu. Fram, sem lék í gærkvöldi gegn Shamrock Rov- ers frá írlandi í UEFA-keppninni í knattspyrnu, fetaói í fótspor ÍBV og Víkings og tapaði leik sínum án þess aó skora mark. írska liöiö sigraði Fram meö þremur mörk- um gegn engu. Staöan í hálfleik var 2—0. Sigur íranna var verö- skuldaöur. Þeir voru allan tímann fljótari á knöttinn og höfóu mun meiri knattleikni til aö bera en hinir ungu leikmenn Fram. Liö Fram náói þrátt fyrir tapió oft góöum leikköflum og sköpuóu leikmenn sér oft ágætis mark- tækifæri en eins og svo oft í leikj- um íslenskra liöa gegn erlendum tókst ekki aö koma knettinum í net andstæóinganna. Lengst af í fyrri hálfleiknum var jafnræöi meö liöunum. Mikil bar- átta var í leikmönnum en ekki tókst leikmönnum aö skapa sér veruleqa hættuleg marktækifæri. Fram- 0:3 S-Rovers Fram fékk fyrsta markiö á sig á 30. mínútu leiksins. Þá kom góö sending fyrir mark Fram. Friörik markvöröur freistaði þess aö bjarga meö úthlaupi en missti knöttinn yfir sig. Knötturinn datt niöur fyrir fætur R. Murphy sem þakkaöi fyrir sig meö því aö skora örugglega af stuttu færi. Besta marktækifæri Fram kom þremur mínútum síöar en Marteinn Geirsson átti þrumuskot frá víta- teigshorninu aö marki Rovers sem markvöröurinn bjargaði naumlega. Mínútu áöur en flautaö var til leikhlés skoruöu iranir sitt annaö mark. Buckiey braust i gegn á kantinum og gaf snilldarlega vel fyrir markiö. Þar kom Campell á fullri ferö og sendi knöttinn í netið meö þrumuskalla. Var þetta glæsi- leqasta mark leiksins. i síöari hálfleiknum böröust leikmenn Fram vel og náöu aö byggja upp ágætis sóknarlotur úti á vellinum en þaö gekk frekar illa aö skapa hættuleg marktækifæri er inn í vítateiginn var komiö. Þeg- ar líöa tók á leikinn sóttu leikmenn Fram mun meira en irsku leik- mennirnir vöröust vel og náöu svo stórhættulegum skyndisóknum. Sitt þriöja mark skoruöu írarnir svo á síöustu mínútu leiksins. Tommy Gaynor sendi boltann í netiö eftir mikinn darraöardans og einleik inni i vítateig Fram. Atkvæöamesti leikmaður Fram í þessum leik var Marteinn Geirs- son. Hann vann allan tímann mjög vel og var sterkur í varnarleiknum. En þar mæddi mikiö á honum. Aörir leikmenn voru jafnir aö getu. Leikmenn Shamrock Rovers voru frískir. Þeir voru fljótir á boltann og sýndu oft ágætis tilþrif. Ágætis veöur var meöan leikurinn fór fram í gær. Áhorfendur á leiknum voru 445 talsins. Dómari var frá Belgíu og skilaöi hann hlutverki sínu vel. — ÞR. Pólverjar refsa ólympíumeistara JACEK Wszola, Ólympíumeistari í hástökki 1976 og einn vínsælasti íþróttamaóur þeirra leika, hefur verið settur í eins árs keppnis- bann í heimalandi sínu, Póllandi, af ýmsum ástæöum. Wszola er refsað m.a. fyrir aó koma ekki strax heim eftir frjáls- íþróttakeppni í Stuttgart í V-Þýzkalandi í ágúst, eins og hann hafói fengið fyrirmæli um. Eftir Stuttgart-mótió hélt Wszola til Belgíu og Lúxemborgar, þar sem hann keppti á mótum. Meginástæöan er þó sögö sú, aö á nýafstöönu Evrópumeistara- móti í Aþenu neitaöi Wszola aö klæöast þeim íþróttaskóm, sem pólska frjálsíþróttasambandiö lagði honum til. Sambandiö haföi gert samninga við Adidas, sem sér pólska frjáls- íþróttahópnum fyrir öllum klæön- aöi á þessu ári, en Wszola var sjálfur á mála hjá Tiger-skófram- leiöandanum. Neitaöi Wszola aö klæöast Adidas-skóm i hástökks- keppninni, og notaöi Tiger-skóna sína. Hann stökk 2,21 í undan- keppninni og tryggöi sér öruggt sæti í úrslitakeppninni, þar sem hann þótti líklegur sigurvegari. Þegar úrslitakeppnin fór fram næsta dag bólaöi hins vegar hvergi á Wszola, hann haföi veriö sendur heim meö fyrstu flugvél fyrir óhlýðnina. Sama uröu tveir aörir pólskir frjálsíþróttamenn að þola. Vægast sagt eru ástæöurnar fyrir útilokun Wszola frá keppni undarlegar, og eins þaö aö honum skuli meinaö af þessum ástæöum aö taka þátt í úrslitakeppninnH Aþenu. Wszola veröur þó að bíta í þetta súra epli, þar sem hann get- ur ekki um frjálst höfuö strokiö, frekar en flestir landar hans aðrir. Á mótinu í Aþenu neituöu ýmsir brezkir frjálsíþróttamenn, þ.á m. David Moorcroft, heimsmethafi í 5.000 metra hlaupi, og Steve Cram, sigurvegari i 1.500 metrum, aö klæöast landsliösskyrtum, sem báru merki Adidas, sem þurfti aö borga brezka frjálsíþróttasam- bandinu 20 þúsund sterlingspund, eöa jafnviröi hálfrar milljónar króna, til þess aö brezkir lands- liösmenn klæddust Adidas-vörum á þessu ári. Moorcroft og Cram klæddust heldur skyrtum meö nafni Nike, sem sá þeim fyrir keppnisskóm, og hefur Adidas-fyrirtækiö í hyggju aö stefna brezka frjálsíþróttasam- bandinu, og þar meö þessum kempum tveimur, fyrir rétt í Lund- únum. — égés. • Þessi ungi maöur, sem þið sjéiö é miöri myndinni, lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Hann er ekki eins og margir myndu halda viö fyrstu sýn eitthvert lukkutröll liðanna fré Sevilla é Spéni. Salvador Cast- elo Noles, 11 éra gamall, hefur öölast dómararéttindi og þaö í fyrstu deild éhugaknattspyrnu- manna. Eiginlega ætlaöi Salv- ador sjélfur aö veröa knatt- spyrnumaöur, en svo tók hann þé ékvöröun: „Ég verö aö vinna meira meö kollinum." Hann skréði sig é dómaranémskeið og auövitaö var gert grin aö þeim litla og hlegiö aö honum í fyrstu. Síðan fór hann (próf eins og aórir þátttakendur og fékk hæstu einkunn og hefur þegar þetta er skrifað dæmt tvo leiki í áhugamannadeildinni spænsku, einnig meö góöum vitnisburöi eftirlitsdómara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.