Morgunblaðið - 23.09.1982, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982
47
íslandsmótið í 1. deild hófst í gær:
Öruggur sigur FH gegn
1. deildar nýliðunum
„ÞESSI leikur gefur ekki rétta
mynd af getu liösins, viö getum
baett okkur verulega, þaö sóst
best á því, að um tíma vantaöi
okkur aöeins herslumuninn aö
standa verulega í FH-ingunum.
Viö fundum aldrei rétta taktinn í
leik okkar og gegn FH, sem er eitt
af toppliðum landsins, gengur
slíkt ekki,“ sagöi Gunnar Einars-
son, þjálfari og leikmaöur Stjörn-
unnar í Garöabæ, en félagiö
gekkst undir 1. deildar eldskírn
sína austur é Selfossi ( gær-
kvöldí. Þar mætti liöið FH í fyrsta
leik íslandsmótsins í handknatt-
leik og fór Hafnarfjarðarliöiö meö
sigur af hólmi, skoraói 26 mörk
gegn 21 marki Stjörnunnar. Staó-
an í hálfleik var 13—10 fyrir FH.
Þar meö fékk FH þann stökkpall
sem liðið leitaði eftir fyrir kom-
andi baráttu, Stjarnan sat hins
vegar eftir meö sárt enniö og
engin stig, en sýndi þó á köflum
nóg til að gefa til kynna aö liöiö
geti spjaraö sig í 1. deildinni í
vetur.
FH-ingarnir byrjuöu ekki sérlega
gæfulega, fengu víti eftir tæpar 20
sekúndur, en Kristján Arason
brenndi af. Gunnar Einarsson fyrr-
um FH-ingur skoraöi síöan fyrsta
mark leiksins og þó FH svaraði
meö tveimur mörkum, voru
Stjörnumenn frískir og héldu for-
ystu fram í 4—3. Þá settu FH-ingar
Lárus skoraöi
tvö mörk
WATERSCHEI, lió Lárusar Guó-
mundssonar, sigraói Differdange
frá Luxemborg 7—1 í Evrópu-
keppni bikarhafa í gærkvöldi.
Lárus skoraðí tvö mörk í leiknum.
Staöan í hálfleik var 5—0.
Pálma Jónsson til höfuös Gunnari
Einarssyni og riölaöi þaö mjög leik
Stjörnunnar. Þó var jafnt á öllum
tölum upp í 7—7, en þá var fyrri
hálfleikurinn hálfnaöur. Þá kom af-
drifaríkur kafli hjá Stjörnunni, eöa
öllu heldur fyrirliöanum Magnúsi
Andréssyni. Hann var tvírekinn út
af á nokkrum mínútum og
FH-ingar nýttu sér þaö til hins ýtr-
asta, breyttu stööunni á örfáum
mínútum í 11—7. Allt til leikhlés
geröi Stjarnan svo ekki betur en
að hanga í FH.
Þaö var góö barátta hjá
Stjörnumönnum framan af síöari
hálfleik, þeir fundu glufur í vörn
FH. Nokkrum sinnum minnkuðu
þeir muninn niöur i 2 mörk og aö
minnsta kosti einu sinni var mögu-
leiki aö sníöa muninn niöur í eitt
mark. En vörnin og markvarslan
brást meöan vel gekk í sókninni.
Um miöjan hálfleikinn var staöan
20—18 fyrir FH og þá kom aftur
afdrifaríkur kafli hjá nýliöunum.
Hans skoraöi fallegt mark fyrir FH,
en Valgaröur var rekinn af leikvelli
og Stjarnan fékk víti. Eyjólfur
Bragason skaut í stöngina úr vítinu
og Pálmi bætti marki viö fyrir FH,
18—22. Enn fékk Stjarnan vfti, en
Haraldur Ragnarsson varöi skot
Gunnars Einarssonar. Gunnar fékk
knöttinn aftur í sömu sókn, í
dauðafæri og enn eitt vítiö, en
Haraídur varöi aftur, nú frá Eyjólfi.
Eftir þetta fjaraöi kraftur Stjörnu-
manna út og þeir misstu FH-inga
enn lengra fram úr sér. Mest náöi
FH 6 marka forystu er staöan var
26—20 undir lok leiksins, en
Stjarnan lagaöi stööuna lítiö eitt
meö því aö eiga síöasta oröiö.
FH-ingar voru vel aö sigrinum
komnir, þeir voru ákveönari,
snarpari og samhentari, sterkari á
öllum sviðum. Fjórir leikmenn báru
þó nokkuö af í liöinu, sérstaklega
Óttar Mathiesen og Pálmi Jóns-
son. Óttar lék sér oft að vörn
Stjörnunnar og Pálmi geröi einnig
stórlaglega hluti í sókninni auk
þess sem hann sá um að taka
Gunnar Einarsson úr umferö og
geröi þaö óaöfinnanlega. Kristján
Arason skoraöi grimmt framan af,
var tekinn úr umferð, en Hans
Guömundsson tók þá upp merkiö
og átti stórgóöan leik. Þá var
markvarsla Haraldar oft ágæt.
Þaö mátti margt finna aö leik
nýliöanna þó svo aö margt gott
hafi þar einnig sést. Til dæmis var
varnarleikurinn gersamlega i mol-
um, leikmenn virkuöu sumir þungir
og samheldni var í lágmarki. Sam-
fara því var markvarsla Brynjars
léleg. Eyjólfur var drýgstur aö
skora, en geröi sín mistök, helst aö
Guðmundur Þórðarson, Magnús
Teitsson og Gunnlaugur Jónsson
kæmust vel frá sínu, en sá síöast-
nefndi lék einhverra hluta mjög lít-
iö.
Mörk Stjörnunnar: Eyjólfur
Bragason 8, 3 víti, Guömundur
Þóröarson 4, Gunnlaugur Jónsson
3, Ólafur Lárusson 2, Magnús
Teitsson 2, Heimir Karlsson og
Gunnar Einarsson eitt hvor.
Mörk FH: Óttar Mathiesen 7,
Kristján Arason 7, 2 víti, Hans
Guðmundsson 5, Pálmi Jónsson 5,
Sæmundur Stefánsson og Guö-
mundur Magnússon eitt hvor.
Víti í súginn: Haraldur varöi tvö viti
og Stjarnan brenndi því þriöja af.
FH brenndi einnig af einu víti.
Brottrekstur: Stjörnumenn í sam-
tals 6 mínútur (Magnús fyrirliði
Andrésson í öllum tilvikum),
FH-ingar í 4 mínútur.
Dómarar: Kalli Jó. og Bjössi Krist-
jáns. Þeir voru góöir, en heföu
mátt reka út af af meiri grimmd,
brotin veröskulduöu þaö nógu
fjandi oft. __ gg
England og Danmörk
skildu jöfn, 2—2
DANIR og Englendingar geröu
jafntefli, 2—2, er liöin léku fyrri
leik sinn í Evrópukeppni lands-
liöa í gærkvöldi í Kaupmanna-
höfn. Danska landsliöiö sýndi
stórleik og þaö var aöeins snilld-
ar markvarsla Shiltons sem kom
í veg fyrir aö Danir sigruöu (
leíknum. Fimm sinnum varöi
Shilton meistaralega þrumuskot
Dana úr góðum færum og fjórum
sinnum bjargaöi hann meö út-
hlaupum er Danir voru komnir (
gegn um ensku vörnina. Þessi
leikur var síöur en svo uppörf-
andi fyrir Bobby Robson, hinn
nýja framkvæmdastjóra enska
landsliösins, en hann var aö
stjórna enska liöinu í fyrsta sinn.
• Þorgils Óttar var besti leikmaður FH-liösins í gærkvöldi er liðið lék
sinn fyrsta leik í íslandsmótinu.
Mbl. tekur upp
stjörnugjöf
VEGNA þess hversu umfang ís-
landsmótsins í handknattleik er
oröið mikið, sjá íþróttafrétta-
menn Mbl. sig tilneydda til aö
breyta tilhögun einkunnagjafar-
innar. Sem slík veröur hún nú
felld niður, þess í staö veröa leik-
mönnum gefnar stjörnur. Alls
geta fimm leikmenn hvers liðs
fengið stjörnur, einn á möguleika
á þremur stjörnum, tveir eiga
möguleika á tveimur stjörnum og
aðrir tveir á einni stjörnu. Sá leik-
maður sem i lok móts státar af
flestum stjörnum er þar með leik-
maður mótsins aö mati Mbl. Rétt
er aö taka fram, aö viðkomandi
fréttamenn Mbl. meta hverju
sinni hvort ástæöa er til aö nýta
stjörnugjöfina í botn, þ.e.a.s. ef
lið leikur illa, er engin kvöö á
blaöamanni aö grafa upp fimm
leikmenn til stjörnugjafa.
Kannski veröskulda ekki svo
margir leikmenn stjörnu. Þessari
nýjung er ýtt úr vör meö stjörnu-
gjöf fyrir leik FH og Stjörnunnar,
en hún er svona:
Stjarnan: Magnús Teitsson, 2
stjörnur, Guömundur Þóröarson,
ein stjarna, og Eyjólfur Bragason,
ein stjarna.
FH: Óttar Mathiesen, 3 stjörnur,
Pálmi Jónsson, 2 stjörnur, Hans
Kristjánsson, 2 stjörnur, Kristján
Arason, 1 stjarna, og Haraldur
Ragnarsson, 1 stjarna.
- 8K
Víkingur leikur báða
leikina í Færeyjum
SAMNINGAR hafa tekizt milli
handknattleiksdeildar Vfkings
og Vestmanna, fþróttafélags f
Færeyjum, um aö leikir félag-
anna f Evrópukeppni meistara-
liöa veröi báöir leiknir f Færeyj-
um.
Aö sögn Jóns Kr. Valdimars-
sonar, formanns handknattleiks-
deildar Vikings, halda Víkingarnir
utan laugardaginn 9. október.
Fyrri leikurinn veröur sunnudag-
inn 10. október og verður leikið {
nýju íþróttahúsi f Tvöroyri á Suö-
urey og veröur þaö jafnframt
vígsluleikur hússins. Seinni leik-
urinn fer fram í Þórshöfn mánu-
daginn tloktóber.
r
Létt hjá Portúgal
Portúgal sigraöi Finnland
2—0 í 2. riðli Evrópukeppninnar
í knattspyrnu í gærkvöldi, leik-
urinn fór fram í Finnlandi og var
staðan í hálfleik 1—0. Annar
leikur Finna í keppninni og ann-
að tapiö. Hinn 32 ára gamli
Nene skoraöi fyrra markiö um
miöjan fyrri hálfleik, markvörö-
urinn varöi fyrst skot frá hon-
um, en sá „gamli“ náöi knettin-
um á ný og renndi honum f net-
iö. Síöara markið skoraöi svo
annar „öldungur", hinn 30 ára
gamli Olivera. Hann skoraði
mjög glæsilega, beint úr auka-
spyrnu af 30 metra færi.
í 6. riöli léku Austurríki og Alb-
anía. Leikurinn fór fram í Vín og
voru heimamenn í litlum erfiö-
leikum aö bursta gesti sína. 5—0
uröu lokatölurnar. Hagmayer og
Gasslich skoruöu í fyrri hálfleik,
en í þeim siöari komust Weber,
Brauender og Kola á blaö, en sá
síðastnefndi geröist sekur um
sjálfsmark.
Þá hefur Mbl. haft spurnir af
þremur vináttuleikjum. Vestur-
Þýskaland og Belgía mættust í
Múnchen og lauk leiknum án
þess aö mark væri skoraö. Þjóö-
verjar sóttu meira, en Belgar
vöröust vel. Bæöi liöin tefldu
fram sínum sterkustu liöum utan
aö Van Den Bergh lék ekki meö
Belgíu.
Búlgaría og Austur-Þýskaland
skildu jöfn, 2—2, í Sofíu, staöan
í hálfleik 1—1. Shravkov skoraöi
bæöi mörk Búlgara, en þeir
Dörner og Riediger svöruöu fyrir
Þjóöverja.
Ungverjar tóku á móti Tyrkjum
í Búdapest og tefldu fram miklu
tilraunaliöi. Dæmiö gekk upp,
Tyrkir áttu ekkert svar viö stór-
leik Ungverja. Lokatölur 5—0, en
þeir Budvari (2), Kiss, Bursca og
Bypoczic skoruöu mörkin.
Þaö var Trevor Francis sem
skoraöi bæöi mörk Englands, sitt í
hvorum hálfleik. Þaö fyrra kom á 8.
mínútu leiksins, en þaö siöara á
80. mínútu. Allan Hansen skoraði
fyrra mark Dana á 68. mínútu og á
síðustu mínútu leiksins jafnaöi
Jesper Olsen fyrir Dani eftir aö
hafa leikiö á þrjá enska landsliös-
menn.
Bestu leikmenn i enska liðinu
voru Shilton, Trevor Francis og
Graham Rix. Þá átti Kenny Sans-
om góöan leik. Hjá Dönum var
Jesper Olsen besti maöurinn.
Hann lék á miöjunni og átti mjög
góöan leik. Olsen leikur meö Ajax í
Amsterdam. Liöin voru skipuö
þessum leikmönnum:
Holland sigraði Irland
HOLLAND sigraöi írland 2—1 í 4.
riðli Evrópukeppninar f knatt-
spyrnu, en einmitt í þeim riöli
leikur ísland. Leikurinn fór fram í
Rotterdam og heimalíðiö haföi
1—0 forystu í hálfleik. Dick
Schoenaker skoraöi fyrir Holland
á 40. mínútu, en í fyrri hálfleik
haföi Holland mikla yfirburöi. Síö-
ari hálfleikurinn var jafnari og
Liam Brady haföi verið afar nærri
því aö jafna áöur en Ruud Gullit
skoraöi annað mark Hollands á
64. mínútu. Gerry Daly skoraöi
eina mark íra undir lok leiksins.
Áhorfendur voru 15.000.
Motherwell í kennslu-
stund hjá Celtic!
England: Peter Shilton, Russell EKKI gekk Búbba og félögum Motherwell — Celtic 0- -7
Osman, Phil Neal, Terry Butcher, hans hjá Motherwell allt í haginn Rangers — Kilmarnock 5- -0
Kenny Sansom, Ray Wilkins, er liöiö fékk í heimsókn gamla lið St. Mirren - — Aberdeen 1- -1
Bryan Robson, Graham Rix, Paul Jóhannesar, Celtic, á laugardag- Og staöan eftir þrjár umferöir er
Mariner, Trevor Francis og Tony inn. Celtic geröi sér lítið fyrir og þessi:
Morley (Rickey Hill). rótburstaöi Motherwell 7—0 og Celtic 3 3 0 0 11 1 6
Danmörk: Troels Rasmussen, stóð varla steinn yfir steini hjá Rangers 3 1 2 0 7 2 4
Ole Rasmussen, Soren Busk, Per heimaliöinu. Úrslit leikja í skosku Dundee 3 2 0 1 5 3 4
Roentved, Soren Lerby, Ivan Niel- úrvalsdeildinni uröu annars sem Dundee Utd. 3 1 2 0 2 0 4
sen, Jens Jarm Bertelsen, Allan hér segir: Aberdeen 3 1 1 1 5 4 3
Hansen, Jesper Olsen, Lars Bast- Dundee — Morton 2—0 Hibernian 3 0 3 0 1 1 3
rup og Preben Elkjær. Hibs — Dundee Utd. 0—0 St. Mirren 3 0 2 1 2 3 2