Morgunblaðið - 05.10.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1982
11
Vonarland:
Góðar gjafir til
sundlaugarbyggingar
AÐALFUNDUR Styrktarfélags van-
gefinna á Austurlandi var haldinn í
Egilsbúð, Neskaupstað, sunnudag-
inn 5. sept. sl.
Á fundinum kom fram að fjár-
hagur félagsins er góður og sam-
þykkt var að leggja áherslu á
framhald byggingar sundlaugar-
innar við Vonarland. Samkvæmt
því, sem forstöðumaður heimilis-
ins, Bryndís Símonardóttir, upp-
lýsti, verður sundlaugin mjög
kærkomin heimilisfólki Vonar-
lands, sem nú er 10 að tölu.
Listasafn Einars
Jónssonar:
Selja Konunginn
og steypa í eir
LISTASAFN Einars Jónssonar
hefur á morgun, miðvikudag, sölu
á afsteypum af lágmynd Einars
Jónssonar, Konungurinn í Thule.
Lágmyndin er gefin út í 200 ein-
tökum og kostar kr. 3000 eintakið.
Konungurinn í Thule er 42 sm í
þvermál.
Fjármagnið sem fæst fyrir af-
steypur af verkum Einars
Jónssonar er notað til þess að
steypa gipsverk hans í eir og er
unnið skipulega að því verki að
sögn Ólafs Kvarans forstöðu-
manns Listasafns Einars Jóns-
sonar. Stefnt er að því að koma
eirafsteypum fyrir í garði safns-
ins og opna hann almenningi, en
vonir standa til að hægt verði að
hefjast handa við það verk
næsta sumar.
Undanfarið hefur heimilisfólk
Vonarlands notið þess velvilja
sveitarstjórnar Egilsstaða að fá
sundlaug staðarins til afnota, eftir
því sem aðstæður hafa leyft.
í skýrslu formanns kom fram að
málefni þroskaheftra á Austur-
landi hafa notið sérstakrar fórn-
fýsi og velvilja almennings. Gjafir
sem borist hafa bera þess gleggst
vitni.
Á liðnu sumri heimsóttu samtök
austfirskra kvenna í Reykjavík
átthagana og færðu við það tæki-
færi SVA kr. 25. þúsund, sem
renna skulu til sundlaugarbygg-
ingarinnar og sömuleiðis kr. 5
þúsund frá Fáskrúðsfirðingafélag-
inu í Reykjavík. Fyrir þessar höfð-
inglegu gjafir flytur stjórn SVA
alúðarþakkir.
Á fundinum skýrði formaður
svæðisráðs, Guðmundur Magnús-
son, fræðslustjóri, frá stöðu mála
þroskaheftra í fjórðungnum og
Bryndís Simonardóttir lýsti fyrir-
komulagi sambýlis fyrir þroska-
heftra, sem töluverð reynsla er
komin á hérlendis og hefur gefist
vel.
Úr stjórn félagsins gengu Aðal-
björg Magnúsdóttir, sem gegnt
hefur formannsstarfi undanfarin
6 ár og Guðmundur Magnússon,
fræðslustjóri. I þeirra stað voru
kjörin sr. Davíð Baldursson, Eski-
firði, og Sigríður Halldórsdóttir,
kennari, Egilsstöðum.
Aðrir í stjórn eru: Hulda
Bjarnadóttir, Neskaupstað,
Kristján Gissurarson, Eiðum, og
Björg Blöndal, Seyðisfirði.
í fundarlok þágu gestir kaffi-
veitingar í boði bæjarstjórnar
Neskaupstaðar.
Hafnarfjörður
— Norðurbær
Nýkomiö til sölu 4ra herb. mjög falleg og vönduð
endaíbúö á efsti hæö í 3ja hæöa fjölbýlishúsi á róleg-
um staö viö Laufvang. Stórar suöur svalir.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 50764.
Raðhús — tvær íbúöir
Svo til nýtt, glæsilegt endaraöhús viö Bakkasel um
265 fm.
Á jarðhæðínni er: 3ja—4ra herbergja íbúö, geymsiur
9«.
Á aöalhæöinni er: stofur meö arni, eldhús meö
borökrók, búr, snyrting, forstofuherbergi, þvotta-
herb. og forstofur.
Á efri hæö eru: svefnherbergi, sjónvarpsskáli og bað
meö kerlaug og sturtuklefa. Frábært útsýni af öllum
hæöum. Teikning til sýnis. Hluti hússins laus fljótlega.
Steypt bílskúrsplata.
Árni Stefánsson, hrl.
Málflutningur. Fasteignasala. SuAurgötu 4. Simi 14314.
Kvöldsími: 34231.
Espigerði
Vorum aö fá til sölu 4ra—5 herb. ca. 105 fm íbúö
á 2. hæð í lítilli blokk viö Espigeröi. íbúöin skiptist
í stofu, hol, 3 svefnherb., baöherb., eldhús, búr og
þvottaherb. Suöur svalir. Góö íbúö.
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17, s. 26600
Ragnar Tómasson hdl.
15 ár í fararbroddi
1967-1982
Farmennirnir á Öskju gerðu hlé á vinnu sinni í góðviðrinu í gsr og tóku sér stöðu frammi fyrir myndavél
Kristjáns Einarssonar Ijósmyndara Mbl. Frá vinstri: Njáll Guðmundsson, Snorri Júlíusson og Jón Ólafsson.
Samningar undirmanna á kaupskipum:
Sæmilegustu samningar
EINS OG kunnugt er var verkfalli
undirmanna á kaupskipum frestað
eftir að samningar tókust með
deiluaðilum á fostudaginn á
grundvelli sáttatillögu Guðlaugs
Þorvaldssonar sáttasemjara.
Samningarnir voru þó undirritaðir
með þeim fyrirvara að félagar í
Sjómannafélagi Reykjavíkur sættu
sig við þá, og stendur atkvæða-
greiðsla þeirra nú yfir og mun hún
væntanlega taka u.þ.b. hálfan
mánuð.
Helstu atríði nýja samningsins
eru 8% grunnkaupshækkun, ásamt
breytingum á vinnutímastyttingu
sem þýðir rúmlega 10% launa-
hækkun til viðbótar. Launin
hækka svo aftur um 3% 1. janúar
'83. Yfirvinnutaxti hækkaði um 8%
og orlof hækkar úr 8,33% í 8,71%
eftir 5 ár og í 9,47% eftir 8 ár.
Önnur atriði samningsins eru
m.a.: stytting á úthaldstíma, far-
menn fá aukinn hlífðarfatnað og
breytingar voru gerðar á skyldu út-
gerðar til að senda mann heim í frí
í langferðum.
En hvernig leggjast þessir samn-
ingar I farmenn? Mörg farskip-
anna héldu úr höfn um helgina en
Mbl. leitaði svara hjá nokkrum
farmönnum á Öskju sem voru við
störf í Reykjavíkurhöfn I gærdag:
„Ég er ánægður með samning-
ana,“ sagði Njáll Guðmundsson
háseti, „ég segi það alveg eins og
er. Við fengum talsverða hækk-
un á grunnkaupi og yfirvinnan
hækkaði úr 100 kr. í 108 kr. Svo
fáum við aukin hlífðarföt, t.d.
þrjá galla á ári í stað tveggja
áður, og einnig sérstaka skó með
stáltá."
Það kom fram í samtali Mbl.
við Guðmund Hallvarðsson,
formann Sjómannasambands
Reykjavíkur, að þessir nýju skór
með stáltánni væru mikið örygg-
isatriði fyrir sjómenn. Skýrsla
sjóslysanefndar sýnir að yfir 10
ára tímabil hafi 126 farmenn
slasast ofanþilja eftir að hafa
runnið til á þilfarinu.
Snorri Júlíusson, trúnaðar-
maður var feginn því að ekki
kom til langs verkfalls.
„Það hefur enginn efni á því
að vera í verkfalli lengi í okkar
— aÖ mati
farmanna
á Öskju
stétt,“ sagði Snorri, „því er ég
mjög feginn að fór sem fór.“
— Voru menn óánægðir með
að byrja strax að vinna eftir að
samkomulagið náðist á föstu-
daginn?
„Menn voru ekki óánægðir
með að byrja að vinna í sjálfu
sér; heldur það að ekki skyldi
kosið um samningana áður. En
svo sáu flestir að sér, því það
nær auðvitað engri átt að bíða
eftir úrslitum kosninganna, sem
gætu tekið hálfan mánuð.“
— Hver er afstaða farmanna
almennt til þessara samninga?
Teljið þið að þeir verði sam-
þykktir?
„Ég býst fastlega við því,“
sagði Jón Ólafsson, „og vona það
líka. Við fengum ekki allar okkar
kröfur í gegn, en þetta eru þó
sæmilegir samningar.“
«
Bæklingur með kjúklingauppskriftum
Fuglæsláturhúsið ísfugl, Mos-
fellssveit og Móar fuglabú, Kjal-
arnesi, hafa gefið út í samvinnu
við Vörukynningu sf. bækling um
kjúklingauppskriftir og leiðbein-
ingar.
Inngang ritar Jón Ottar
Ragnarsson matvælafræðingur
og svarar spurningunni: „Hvers
vegna kjúklingar?"
Þessi bæklingur er jafnframt
sá fyrsti í röð bæklinga sem
koma munu út mánaðarlega
með völdum uppskriftum og
leiðbeiningum um matargerð.
Ritstjóri er Páll Kristjáns-
son.
Margar skýringarmyndir eru
í bæklingnum sem er 16 síður að
stærð, prentaður í Prentsmiðj-
unni Eddu.
Bæklingurinn „Kjúklingar —
uppskriftir og leiðbeiningar"
fæst í flestum matvöruverslun-
um og bókaverslunum landsins.