Morgunblaðið - 05.10.1982, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 05.10.1982, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1982 47 Aðförin að sjálfseignarstofnunum: „Ríkið hefur engan fulltrúa í stjórnum þessara stofnana“ — segir í yfirlýsingu Félagsmálaráðuneytisins Morgunblaöinu hefur borizt eftirfar- andi yfirlýsing frá félagsmálaráöuneyt- inu: í tilefni tveggja blaðagreina sem birst hafa í Morgunblaðinu þ. 1. og3. október sl. varðandi þrjár stofnanir fyrir þroskahefta vill félags- málaráðuneytið taka fram eftirfar- andi. Stefnt er að því að þrjár sólar- hringsstofnanir fyrir þroskahefta verði færðar af svonefndu dag- gjaldakerfi yfir á fastar fjárveit- ingar. Stofnanir þær, sem um ræðir eru þessar: Skálatún í Mosfellssveit, Sól- heimar í Grímsnesi og Sólborg Ak- ureyri. Rekstur þessara stofnana hefur hingað til að fullu verið fjármagnað- ur með daggjöldum úr ríkissjóði, sem eru greidd út frá Trygginga- stofnun ríkisins til viðkomandi stofnunar. Daggjaldanefnd sjúkra- húsa fjallaði um upphæð daggjalda þangað til lög nr. 47/1979 um aðstoð við þroskahefta tóku gildi þ. 1. janú- ar 1980. Samkvæmt 22. gr. þeirra laga skulu daggjöld ákveðin fyrir stofn- anir, sem ekki eru í eigu hins opin- bera af stjórnarnefnd um málefni þroskaheftra sbr. gr. 3 sömu laga. Samkvæmt þessari grein hefur stjórnarnefnd um málefni þroska- heftra fjallað um daggjöldin á 2ja og 3ja mánaða fresti og hefur starfs- maður daggjaldanefndar unnið að útreikningi þeirra. Eins og fyrr er getið er rekstrar- kostnaður greiddur að fullu og öllu úr rikissjóði í formi daggjalda til fyrr- nefndra stofnana. Þrátt fyrir þessa staðreynd hefur ríkið engan fulltrúa í stjórnum þess- ara stofnana né önnur tök á að fylgj- ast með innri stjórnun þeirra og rekstri, eins og nú er háttað. Stjórnir stofnananna ráða starfs- fólk og ákveða laun þeirra. Markmið og hlutverk þessara stofnana eru engan veginn skýr og afdráttarlaus, þar sem skipulagsskrár þeirra eru áratuga gamlar. Sólarhringsstofn- anir þær sem hér um ræðir hafa gegnt mikilvægu hlutverki meðan engin önnur úrræði voru til varðandi þjónustu við þroskahefta. Vafalaust verður svo enn næstu ár. Hins vegar er óhjákvæmilegt að endurskoða hlutverk þeirra og markmið og sam- ræma þau þeirri þróun, sem nú á sér stað í kjölfar laga um aðstoð við þroskahefta. Þar sem félagsmála- ráðuneytið fer með yfirstjórn mál- efna þroskaheftra samkvæmt lögun- um um aðstoð við þroskahefta taldi ráðuneytið eðlilegt að fram færi at- hugun á mögulegum rekstrarbreyt- ingum sólarhringsstofnana fyrir þroskahefta og sama rekstrarform yrði viðhaft þar og gildir um aðrar þær stofnanir, sem ráðuneytið er að koma á fót í samræmi við lögin s.s. sambýli, vinnustaði, meðferðarheim- ili, leiktækjasöfn o.s.frv. Þetta er í meginatriðum ástæðan fyrir því að hinn 20. janúar sl. skipaði félags- málaráðherra nefnd til að endur- skoða rekstur og skipulag nokkurra sólarhringsstofnana með það fyrir augum að kanna m.a. hvort æskilegt væri að færa þær stofnanir sem reknar væru á daggjöldum yfir á fastar fjárveitingar. I nefndinni áttu sæti: Þórður Ingvi Guðmundsson fulltrúi í félagsmála- ráðuneyti, formaður, Davíð A. Gunnarsson forstjóri ríkisspítal- anna, Edda Hermannsdóttir fulltrúi í fjárlaga- og hagsýslustofnun, Egg- ert Jóhannesson formaður Lands- samtakanna Þroskahjálpar og Ingi- mar Sigurðsson deildarlögfræðingur i heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu. Meðal þeirra stofnana sem nefnd- in skyldi skoða voru m.a. Sólheimar í Grímsnesi, Tjaldanes í Mosfellssveit, Sólborg á Akureyri, Skálatún í Mos- fellssveit og Kópavogshælið. Nefndin hélt allmarga fundi, þar á meðal fundi með forráðamönnum Solheima, Sólborgar, Tjaldaness, Skálatúns og Kópavogshælis. Nefndin lauk störfum í lok júlí sl. og skilaði félagsmálaráðherra grein- argerð sinni. Nefndin gerði ítarlegar tillögur og var það einróma niður- staða hennar að frá og með næstu áramótum yrðu Sólborg á Akureyri, Skálatún í Mosfellssveit og Sólheim- ar í Grímsnesi færð af kerfi dag- gjalda yfir á kerfi fastra fjárveit- inga. Ennfremur var sú tillaga gerð að frá og með næstu áramótum yrði öllu starfsfólki áðurnefndra stofn- ana greidd laun á vegum launadeild- ar fjármálaráðuneytis. Nefndin gerði sömu tillögur til heilbrigðisráðherra hvað varðar Tjaldanesheimilið og hefur heil- brigðisráðuneytið unnið að fram- kvæmd tillagnanna hvað þá stofnun varðar. Rekstur Kópavogshælisins hefur um nokkurt skeið verið fjármagnað- ur með rekstrarframlagi samkvæmt fjárlögum. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu varðandi Kópavogshælið að rekstrarkostnaður þess hefði á árunum 1978—1981 hækkað hlut- fallslega minna en á þeim stofnun- um sem hér hafa verið til umræðu. Tillögur þessar voru til umfjöllun- ar í félagsmálaráðuneytinu og í framhaldi af þeirri umfjöllun var forráðamönnum Sólheima, Sólborg- ar og Skálatúns gerð grein fyrir helstu niðurstöðum nefndarinnar og afstöðu ráðuneytisins með bréfi 20. ágúst sl. Hinn 24. september sl. var síðan haldinn fundur með forráðamönnum Skálatúns, Sólborgar og Sólheima. Þann fund sátu auk fulltrúa frá fé- lagsmálaráðuneyti fulltrúar frá fjármálaráðuneyti. Á þeim fundi komu ekki fram athugasemdir eða mótmæli í þeim dúr að með þeim breytingum sem hér um ræðir, væri verið að leggja sjálfseignarstofnanir undir ríkið eða svipta þær sjálfræði og sjálfsstjórn. Stjórnarnefnd um málefni þroska- heftra hefur einnig fjallað um mál þetta og lýst fullu samþykki sínu enda telur hún að margnefnd breyt- ing „gæti orðið til mikilla bóta varð- andi rekstur þessara stofnana." I blaðaskrifum hefur komið fram sú skoðun að með því að færa launa- greiðslur frá skrifstofum Sólborgar, Skálatúns og Sólheima til launa- deildar sé ríkisvaldið einhliða að breyta ráðningarkjörum viðkomandi starfsmanna. I þessu sambandi þyk- ir rétt að undirstrika enn það sem áður er fram komið, að hið opinbera hefur að fullu og öllu staðið undir rekstri áðurnefndra stofnana þ.á m. launum sem eru um 70—80% af rekstrarkostnaði. Eftir því sem best er vitað taka starfsmenn laun sam- kvæmt samningum og ættu því ekki að verða breytingar þar á hvar svo sem útborgun launa fer fram. Einnig hefur komið fram, að sú ákvörðun að færa stofnanir af einu fjármögnunarkerfi yfir á annað, í þessu tilviki af daggjöldum yfir á kerfi fastra fjárveitinga, gangi í berhögg við lög. Ákvörðun um breytingar á fyrir- komulagi greiðslu rekstrarkostnaðar stofnana felst að sjálfsögðu í sam- þykki Alþingis á rekstrarframlagi samkvæmt fjárlögum til þar nafn- greindra stofnana. Hér er því um það að ræða að tillaga verður gerð um það í fjárlagafrumvarpi fyrir 1983 að Sólheimar, Skálatún og Sól- borg fái framvegis fastar fjárveit- ingar til reksturs. Alþingi tekur síðan endanlega ákvörðun í málinu. Hliðstæðar breytingar hafa verið gerðar á rekstrarfyrirkomulagi rík- isspítalanna með ágætum árangri að því er best verður séð. Hvað varðar umræður um þátt sveitarfélaga í rekstri sjúkrahúsa og annarra þátta heilbrigðisþjónust- unnar vill ráðuneytið upplýsa, að á þess vegum fer nú fram endurskoðun á verkaskiptingu ríkis- og sveitarfé- laga þar sem þessi mál eru m.a. til umfjöllunar. Ráðuneytið gerir sér vonir um að niðurstöður og tillögur um þau mál liggi fyrir hið fyrsta. Á því er mikil nauðsyn að friður og eindrægni ríki um þær stofnanir sem hér hafa verið til umræðu og hið mikilvæga starf sem þar er unnið. Það er von ráðuneytisins að þær upplýsingar sem hér hafa verið rakt- ar megi verða til þess að eyða tor- tryggni og misskilningi. Félagsmálaráðuneytinu, 4. október 1982. Jolly er bólstraö í krómsútaö nautaleður og meö formsteypta gúmmípúöa í sætum. Horn 283x228: Óseld eru: Brúnt, svart, naturgrænt. 3+2+1 sófasett, óseld eru: Rautt, grænt. 3+1+1 sófasett, óseld eru: Tan, rautt. Við skulum ekki vera í neinum vafa um þaö að hvergi er hægt að gera betri kaup í leðursófasettum í dag. Síðasta sendingin af Jolly leðursófasettum sem við fáum á þessu ári er nú nær uppseld. 3ja ára ábyrgð. PÚ ÞARFT ÉKKI AÐ FARA ANNAÐ HÚSGACNAHÖLLIN BlLDSHÖFOA 20 * 110 REYKJAVlK » 91-S1199 og 01410 L\i\ l)S hlOXI ST.A okkar pakkar og sendir hvert á land sem er. I sima 91-81410 færðu upplysingar um verð, gæði og afborgunarkjör. J

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.