Morgunblaðið - 05.10.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1982
29
Ég er sjálfs mín
herra og ann frelsinu
„Það var óskemmtilegt að tapa
skákinni, — vegna atburðanna í
Belgrad 1977. En nú er ég reiðu-
búinn að takast á við hvern sem
er; þarfnast kannski meiri and-
legs undirbúnings."
SOVÉSKI stórmeistarinn i skák, Boris Spassky, er íslendingum að góðu
kunnur frá því hann háði einvigi sitt við Bobby Fischer hér á landi árið
1972. Hann missti heimsmeistaratitilinn í hendur Bobby Fischer i „ein-
vigi aldarinnar", en ávann sér virðingu íslenzku þjóðarinnar með fram-
komu sinni. Hann sneri til fslands á nýjan leik fyrir fimm árum og bar þá
sigur úr býtum i viðureign við Tékkann Vlastimil Hort i áskorendaein-
vígi. Og hann er nú í þriðja sinn staddur hér á landi. Nú mætir hann
Friðriki Ólafssyni stórmeistara i lokuðu einvígi. Blaðamaður Mbl. ræddi
við Spassky áöur en hann gekk til einvígisins við Friðrik Ólafsson í gær.
— Nú eru tíu ár liðin síðan þú
beiðst lægri hlut fyrir Bobby
Fischer. Og í fyrsta sinn á ferli
þínum tókst þér ekki að komast í
kandidatakeppni. Er Boris
Spassky ekki lengur meðal al-
sterkustu skákmanna heims?
„Ég geri mér fyllilega grein
fyrir því, að bestu ár mín í skák-
inni eru að baki. En ég er síður
en svo niðurbrotinn, þó það
kunni að hljóma undarlega. Frá
því ég settist að í Frakklandi
fyrir sex árum hefur mér aukist
sjálfstraust frá ári til árs. Ég
hef verið að laga mig að breytt-
um aðstæðum — aðlaga mig að
lifnaðarháttum Vesturlandabúa.
Ég hef búið vestan járntjalds í
sex ár og mér líður nú vel —
mjög vel. Ég held mér í góðri
æfingu, leik tennis daglega. í
Sovétríkjunum hafði ég það
mjög gott miðað við almenning
— í Frakklandi lifi ég fremur
fábrotnu lífi. Ég hef ekki mikla
peninga milli handanna, en hef
það sem er öllu öðru dýrmætara
— frelsi. Ég er sjálfs mín herra
og ann því frelsi sem mér hefur
áskotnast.
Ég komst ekki í kandidata-
keppnina, það er rétt. En hvort
það þýðir að ég sé á niðurleið
ætla ég að láta ósagt um. Mér
finnst ég betur í stakk búinn, að
takast á við sterka skákmenn við
skákborðið í dag en undanfarin
ár. Ég ætla til að mynda ekki að
líkja því saman, hve miklu betur
ég er á mig kominn nú, en þegar
ég tefldi áskorendaeinvígi við
Lajos Portisch í Mexíkó 1980 og
tapaði á jöfnu vinningshlutfalli.
Báðir hlutum við 7 vinninga, en
Portisch komst áfram á því, að
vinna fyrstu skákina.
Ég bar sigurorð af Vlastimil
Hort hér á landi 1977 en þegar
ég lít til baka, þá hefði ég betur
tapað. Ég tefldi illa gegn Viktori
Korchnoi í Belgrad og tapaði. Ég
er betur á mig kominn í dag og
því hef ég ekki áhyggjur þó mér
hafi ekki tekist að komast áfram
í Mexíkó. Þvert á móti — mér
líður betur, en ef ég þyrfti að
vera að undirbúa mig undir
kandidataeinvígi. Það má segja
að það sé millibilsástand hjá
mér. Ég mun nota tímann til
þess að ná mér á strik á nýjan
leik og tefla af djörfung."
— Því var haldið fram eftir
millisvæðamótið í Mexíkó í
sumar, að þú hefðir ekki verið
nægilega vel að þér í byrjunum.
„Já, það er rétt — byrjanir eru
mín veika hlið. Þar hef ég dreg-
ist aftur úr, því þróunin er ör. A
næstunni mun ég einbeita mér
að þeim og þá kemur í ljós hve
miklum styrkleika ég næ.“
— Þú þurftir að sigra Ivanov í
síðustu skák þinni í Mexíkó til
þess að komast áfram og áttir
vænleg færi, en tókst ekki að
knýja fram sigur.
„Ivanov var heppinn. Mig
skorti aðeins herzlumuninn til
að sigra. En ég fann ekki vinn-
ingsleið og Ivanov varðist vel —
en ég fór síðar yfir skákina og þó
sigur virtist vera í stöðunni, þá
fann ég hann ekki við rannsókn-
ir.“
— Þú hefur nú yfirgefið Sov-
étríkin og sest að í Frakklandi —
hvers vegna?
Ég var látinn gjalda þess
að hafa tapað titlinum
„Ég lenti í útistöðum við sov-
ésk yfirvöld eftir einvígið í
Boris Spassky á Hótel Loftleiðum.
Mynd Kristján Einarsson
Friðrik hefur að vísu aldrei
unnið mig við skákborðið
— Þá komum við að einvíginu
við Friðrik Ólafsson. Áttu von á
harðri keppni?
„Þetta verður ekkert blóðbað
— Friðrik hefur að vísu aldrei
unnið mig við skákborðið, en ég
er þess fullviss að hann mun
berjast af hörku. Við erum ekki
lengur upp á okkar besta, en ég
er fullur sjálfstrausts. Mér hefur
vaxið ásmegin með hverju árinu
sem liðið hefur síðan ég fluttist
vestur fyrir járntjald. Ég geng
ekki með þær grillur, að ég muni
gersigra Friðrik — það getur allt
eins farið, að Friðrik nái sér á
strik. Hann getur sigrað mig. Nú
eru 23 ár síðan við tefldum fyrst
— það var í Moskvu og ég vann
Einvígi Friðriks Ólafssonar og Boris Spasskys hófst á Hótel Loftleiðum í
luktum dyrum.
Reykjavík 1972. Eg fékk ekki
lengur að ráða hvaða mótum ég
tæki þátt í erlendis og var undir
mikilli pressu frá sovéskum yfir-
völdum — ég var látinn gjalda
þess að hafa tapað titlinum. í
fjögur ár átti ég í harðri baráttu
við sovésk stjórnvöld. Ég ein-
angraðist, skildi við konu mína,
Larissu, — ég var einn og yfir-
gefinn og átti mjög erfitt upp-
dráttar.
Árið 1974 hitti ég Marínu, nú-
verandi konu mína. Hún reynd-
ist mér vel — og við felldum
hugi saman. Ég hafði barist
fyrir því, að fá að búa utan Sov-
étríkjanna. Ég fékk leyfi árið
1976 til þess að flytja til Frakk-
lands. Þetta var síður en svo
auðveld barátta — sovéska kerf-
ið refsar fólki fyrir slíka bar-
áttu.
Síðan hef ég verið að laga mig
að vestrænum háttum — mér
líður mun betur nú og ég er
frelsinu feginn. Nú er svo komið
að ég tek vestræna lifnaðarháttu
fram yfir þá sovésku. En árlega
fer ég til Sovétríkjanna og heim-
sæki vini mína, ættingja og
börn. Ég legg mikla áherzlu á
góð samskipti við sovésk stjórn-
völd. En það er mér mikilvægt,
að vera ekki háður sovéskum
stjórnvöldum — að geta farið
allra minna ferða og notið frels-
isins.
Ég kunni ekki að meta
baráttuaðferðir Korchnois
— Sovéski útlaginn Viktor
Korchnoi hefur átt í stríði við
sovésk stjórnvöld og nýlega
fengið fjölskyldu sína úr landi.
Ykkur lenti saman í einvíginu í
Belgrad. Hvert er þitt viðhorf til
Korchnois?
„Ég fagna því, að fjölskylda
Korchnois hefur fengið að fara
úr landi, en ég hef ekki verið
sammála gjörðum Viktor
Korchnois. Ég er þess fullviss að
hann hefði getað náð samkomu-
lagi við sovésk stjórnvöld með
öðrum hætti.
Hvað persónuleg samskipti við
Korchnoi snertir þá lít ég ekki á
hann sem óvin — fyrir mér er
Korchnoi einskisverður og það er
kannski enn verra. Ég kunni
ekki að meta baráttuaðferðir
hans í einvígi okkar í Belgrad —
persónulegt stríð hans. Fischer
var duttlungafullur, en hann
barðist heiðarlega — 100% heið-
arlega. Korchnoi beitti þvingun-
um, hann ásakaði mig um að
svindla á sama tíma, og hann
hafði í frammi furðulegustu
uppátæki. Það vita allir sem mig
þekkja, að ég hef aldrei haft
rangt við. ÖIl einvígi Korchnois
hafa endað með hneyskli á einn
eða annan hátt.
Ég tefldi við hann í Sviss fyrir
ekki löngu og þá vildi hann sætt-
ast við mig. Ég hafnaði boði
hans og þá ásakaði hann mig um
að vera undirlægja Moskvu-
valdsins — að Moskva bannaði
mér að vingast við hann. Eins og
Moskva hafi eitthvað yfir mér að
segja nú. Það er fráleitt."
— Þú tapaðir fyrir honum í
Sviss. Var það sár ósigur?
gær. Þeir tefla fjórar skákir að baki
Mynd Mbl. RAX
eftir að hafa beitt spánskri byrj-
un.“
Styð eindregið
framboð Friðriks
— Innan skamms verðui
gengið til forsetakosninga í Luz-
ern í Sviss á þingi FIDE. Hverja
telur þú möguleika Friðriks?
„Það er erfitt að meta — Flor-
enzio Campomanes er skæðui
keppinautur. Einvígi þeirra ei
svipað og einvígi heimsmeistara
og ákoranda. Allir þekkja til
heimsmeistarans — hann berst
fyrir opnum tjöldum, en áskor-
andinn er ávallt óskrifað blað.
Svo tel ég vera nú. Ég styð ein-
dregið framboð Friðriks Ólafs-
sonar.“
— Teflir þú í sovésku sveit-
inni á Olympíuskákmótinu í
Luzern?
„Nei, ég hef ekki fengið boð
um það — tefldi ekki heldur á
Olympíuskákmótinu á Möltu. Ég
tel þetta raunar fyrir bestu. Ég
hef rétt til að tefla fyrir Frakk-
lands hönd, en vil það ekki að
svo stöddu. Það gæti spillt fyrir
samskiptum mínum við Sovét-
menn. Ef til vill tefli ég næst
fyrir Frakklands hönd.“
Fischer varð heimsmeistari
á íslandi en glataði
sjálfum sér
— Nú eru 10 ár síðan þú tap-
aðir HM—titlinum til Bobby
Fischers. Hvaða tilfinningar
berðu til hans nú?
Rætt við Boris Spassky, fyrrum heims-
meistara í skák, sem nú teflir fjögurra skáka
einvígi við Friðrik Ólafsson
„Ég mun ávallt meta og virða
Bobby Fischer. Hann varð
heimsmeistari á íslandi, en glat-
aði sjálfum sér. Honum hefur
reynst það um megn að snúa aft-
ur til skákgyðjunnar. Ef til vill
gerði ég honum bjarnargreiða
hér á landi — ég gat haldið af
landi brott að loknum 2 skákum
og haldið titilinum. Ég gerði það
ekki — ég gaf honum færi á að
ljúka einvíginu en í kjölfar sig-
urs síns hefur Bobby Fischer
horfið af sjónarsviðinu.
Árið 1974 barst sovéska skák-
sambandinu bréf, þar sem Bobby
Fischer bauð mér að ná fram
hefndum. En ég fékk engu að
ráða þar um — sovéska skák-
sambandið tók málið í sínar
hendur og ekkert varð úr einvígi
okkar á milli.“
— Síðan hafa einvígi um
HM-titilinn verið stormasöm.
Hverja telur þú helstu keppi-
nauta Anatoly Karpovs?
Kasparov er hættulegasti
keppinautur Karpovs
„Já — skákin varð að víkja
fyrir heiftinni í Baguio á Fil-
ippseyjum og Meranó í Italíu.
Skákin beið hnekki — þeir sem
unna skák urðu fyrir vonbrigð-
um og sjálfur varð ég fyrir mikl-
um vonbrigðum með þróun mála.
Vonandi er tímabil haturs að
baki — en þú spyrð um helstu
keppinauta Karpovs. Ég tel eng-
um vafa undirorpið, að Garry
Kasparov hættulegasti keppi-
nautur Karpovs. Skákstíll hans
minnir um margt á stíl Fischers
og Tals — hann er svona mitt á
milli þeirra. Hann hefur sókn-
dirfsku sína frá Tal og teflir
gjarna á ystu nöf. Hitt er svo, að
ólíklegt er að stund Kasparovs
renni upp nú — líklega er Karp-
ov enn of sterkur fyrir hann.“
Var sennilega öflugasti
skákmaöur heims á árunum
1964 til 1970
— Átján ára gamall varðstu
stórmeistari. Hvernig metur þú
styrkleika þinn nú í Ijósi liðinna
ára?
„Skákin hefur breyst mikið. Ef
vel á að vera, þá þurfa menn
helst tölvu í herbergið til þess að
varðveita upplýsingar um byrj-
anir. Meiri keppni er nú í skák-
heiminum, en frumlegheitin
hafa minnkað. Ég var latur á
sínum tíma, en praktískur. Ung-
um tókst mér að beisla hæfileika
mína og ná miklum styrkleika.
Staða mín í skákheiminum var
mjög sterk — ég hef sennilega
verið öflugasti skákmaður heims
á árunum 1964 til 1970. Árið
1971, ári fyrir einvígið hér á
landi, var Elobby Fischer líklega
orðinn sterkari. En ég held að ég
hafi verið betri fram að þeim
tíma.“
Ég er ekki kommúnisti —
hef aldrei verið kommúnisti
— Nú hefur þú búið um nokk-
urra ára skeið á Vesturlöndum
og hefur fylgst með heimsvið-
burðum; innrás landa þinna í
Afganistan og afskiptum þeirra
af Póllandi. Hvernig horfa þessi
mál við þér nú þegar þú ert vest-
an megin við járntjaldið?
„Þetta er athyglisverð spurn-
ing — og erfið. Þessir atburðir
þurfa í sjálfu sér ekki að koma á
óvart. Stefna sovéskra stjórn-
valda er vel þekkt. Við lifum á
öld mikilla harmleikja. Banda-
rískir valdhafar eru engir engl-
ar. I heiminum eigast við tvö
stórveldi — hugmyndakerfi og
smáþjóðir líða fyrir það. Ég er
ekki kommúnisti — hef aldrei
verið kommúnisti. Ég er miklu
fremur sovéskur þjóðernissinni.
Allir vita að stefna sovéskra
stjórnvalda er að útbreiða
kommúnisma um allan heim;
brjóta þjóðir undir vald sitt.
Þjóðernissinnar spyrna við fót-
um gegn þessari viðleitni. Samúð
mín er meðal þeirra hundruða
þúsunda sem þjást.“
Il.Halls.