Morgunblaðið - 05.10.1982, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1982
íiefc/nAíífi
ást er...
... ad hugsa um
litla skrattann sinn.
TM Raa U.S Pat Off -all rigWs reserver)
• 1982 Los Angetes Times Syndicate
Þið látið alltof mikið með þennan
hund ykkar.
Með
morgrmkaffinu
Eru þetta einu mótorhjólin sem þið
hafið hér?
HÖGNI HREKKVÍSI
aLEGSEnJ EKKI ÖHDin...é<5 X AP TA-PA
Seðlabanki íslands:
Svar við fyrirspurn
Hrafns Bachmanns
Velvakanda hefur borist svar
Seðlahanka Islands við fyrirspurn
Hrafns Bachmanns hér í þættin-
um hinn 30. sept.:
„Nokkuð ber á því, að misskiln-
ings vilji gæta meðal almennings
um reglur skattalaga varðandi
skattlagningu sparifjár, þ.m.t.
spariskírteina ríkissjóðs.
Fyrirspurn Hrafns Bachmann,
kaupmanns í Kjötmiðstöðinni, i
Velvakanda hinn 30. september sl.
gefur tilefni til að vekja athygli
hans og annarra á ákvæðum nú-
gildandi iaga um tekjuskatt og
eignarskatt nr. 75/ 1981 (áður nr.
40/1978, varðandi skattalega
meðferð vaxta og verðbótatekna,
en orðalag áminnstrar auglýs-
ingar bankans um skattfrelsi
þeirra tekna er sótt í nefnd lög.
I þessu sambandi er rétt að taka
orðrétt nokkur ákvæði laga
75/ 1981, sem fjalla um þetta efni:
„Frádrátlur manna frá tekjum utan
atvinnurekstrar
30. gr.
Frá tekjum manna skv. II kafla
laga þessara, sem ekki eru tengdar
atvinnurekstri eða sjálfstæðri
starfsemi, má draga:
B
1. Vaxtatekjur afföll og gengis-
hagnaður skv. 8. gr. enda séu
tekjur þessar ekki tengdar at-
vinnurekstri eða sjálfstæðri
starfsemi.
Skattskyldar eignir
74 gr.
5. Skuldabréf og önnur slík verð-
bréf skal telja til eignar á nafn-
verði að viðbættum áföllnum
vöxtum og verðbótum á höfuð-
stól. Séu hlutabréf eða önnur
verðbréf skráð á opinberu
kaupþingi skal telja þau til
eignar á kaupþingsverði síðasta
kaupþingsdags fyrir lok reikn-
ingsárs.
78 gr.
Heimilt er mönnum að draga
frá eignum sínum, sbr. 73. gr., inn-
stæður sínar í bönkum, sparisjóð-
um og innlánsdeildum samvinnu-
félaga, svo og verðbréf, sem hlið-
stæðar reglur gilda um samkvæmt
sérlögum, að því marki sem inn-
stæður þessar og verðbréf eru um-
fram skuldir, enda séu eignir þess-
ar ekki tengdar atvinnurekstri eða
sjálfstæðri starfsemi."
Af ofangreindu leiðir m.a., að
við skattlagningu vaxta- og verð-
bótatekna eru allar vaxta og verð-
bótatekjur manna af kröfum eða
inneignum, þ.á m. af sparifé í
bönkum og sparisjóðum og spari-
skírteinum ríkissjóðs, sem ekki
eru tengdar atvinnurekstri eða
sjálfstæðri starfsemi þeirra, frá-
dráttarbærar að fullu við ákvörð-
un tekjuskattstofns. í þessu felst,
að ekki kemur í neinu tilviki til
skattlagningar á vaxta- eða verð-
bótatekjum af sparifé manna utan
atvinnurekstrar, en hér er um all-
verulega rýmkun á skattfrelsi
þessara tekna að ræða frá því sem
var samkvæmt eldri skattalögum.
Hins vegar eru tekjur þessar
ávallt framtalsskyldar þrátt fyrir
skattfrelsið.
Að því marki sem vaxtagjöld
eru frádráttarbær við álagningu
tekjuskatts skerða vaxta- og verð-
bótatekjur af sparifé manna utan
atvinnurekstrar (þ.m.t. spariskír-
teini ríkissjóðs) ekki þann vaxta-
frádrátt á nokkurn hátt.
Skattfrjálsar vaxtatekjur
(þ.á m. vaxtatekur af sparifé)
samkvæmt núgildandi almanna-
fpyKK'ngalögum hafa ekki áhrif til
skerðingar á tekjutryggingu al-
mannatrygginga.
Jón fá l’álmholti skifar:
„Mig langar að koma á fram-
færi þökkum til Helgá Péturs-
sonar fréttamanns fyrir erindi
hans í útvarpi sl. laugardags-
kvöld, 2. október, um málefni
Ríkisútvarpsins. Það var sérleg-
ur fengur að þessu erindi vegna
reynslu höfundarins af svo-
nefndu frjálsu útvarpi í
Ameríku, þar sem frelsið snýst
helst um vöruviðskipti og val
milli hinna ýmsu sorta.
Erindi Helga leiddi áhuga
minn að öðru menningarfyrir-
tæki hér, sem ekki síður en út-
varpið hefur goldið fjármála-
stefnunnar í menningarmálun-
um. Þar á ég við Menningarsjóð.
Það, sem við vanalega köllum
menningu, skiptist í tvo megin-
þætti, varðveislu og sköpun.
Menningarsjóður ætti með réttu
að vera svo öflugur, að hann
gæti verið forystuafl á báðum
þessum sviðum.
Staðreynd er, að allstór hluti
íslenskrar bókaútgáfu er rekinn
með næsta líkum hætti og
myndbandaleigurnar eða frjálsu
útvörpin. Einstaklingar reka
fyrirtækin í gróðaskyni og hagn-
Við ákvörðun á eignarskatti
manna ber að telja sparifé, þ.m.t.
spariskírteini ríkissjóðs, til eign-
ar. Séu þessar eignir ekki tengdar
atvinnurekstri eða sjálfstæðri
starfsemi manna er heimilt að
draga þær aftur frá eignum að því
marki sem þær eru umfram skuld-
ir.
Um skattskyldu eða skattfrelsi
spariskírteina, svo og vaxta- og
verðbótatekna af þeim, hjá
mönnum, þar sem eignir þessar
eru tengdar atvinnurekstri eða
sjálfstæðri starfsemi manna og
tekjur af þeim á sama hátt tengd-
ar atvinnurekstri eða sjálfstæðri
starfsemi manna, gilda önnur
ákvæði laga nr. 75/1981, um
tekjuskatt og eignarskatt, sem
ekki er efni á að fara út í á þessum
vettvangi.
Framangreind túlkun á ákvæð-
um laga 75/1981 er byggð á
fréttatilkynningu fjármálaráðu-
neytisins um skattalega meðferð
sparifjár frá 30. maí 1980.
Seðlabanki íslands.
Jón frá Pálmholti
ast helst á að flytja inn ódýrt
drasl, stundum án þess að hafa
útgáfuleyfi eða greiða höfund-
arlaun, oghafa hrúgað þessu á
markaðinn, meðan íslenskir höf-
undar hafa unnið næstum kaup-
laust margir hverjir eða bitist
um smákökur.
Við höfum átt því láni að
fagna að eiga nokkra merkilega
menn, sem hafa af menningar-
áhuga tekið að sér það hlutverk,
sem Menningarsjóður hefði átt
að rækja. Má þar nefna fyrstan
Ragnar í Smára, en einnig Krist-
in E. Andrésson, og nú síðast
Sigurjón í Letri, og eflaust fleiri,
t.d. þá sem gáfu út tímaritið
Birting hér á árunum eða Lyst-
ræningjann. Fátæklegra væri
hér nú án þessara manna og
framhaldið ótryggt, nema
eitthvað verði gert. Þeir, sem
vilja veg íslenskrar menningar
sem mestan, ættu að stuðla að
eflingu Menningarsjóðs og vera
samtaka um að hefja hann úr
niðurlægingu sinni.“
Skrifið eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til
fbstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Þeir sem vilja veg íslenskrar
menningar sem mestan ættu að
stuðla að eflingu Menningarsjóðs