Morgunblaðið - 05.10.1982, Síða 38

Morgunblaðið - 05.10.1982, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1982 + Móöir okkar og tengdamóöir. HAFLfN björnsdóttir, andaöist laugardaginn 2. október. Regína Ingólfsdóttir, Egill Jónsson, Níels Ingólfsson, Svanhvít Hafsteinsdóttir, Björn Ingólfsson, Rósa Jónasdóttir, Ásgrímur Ingólfsson, Unnur Sigtryggsdóttir. + Móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, GUÐLAUG BJÖRNSDÓTTIR OLSEN, andaðist aö Hrafnistu aðfaranótt 3. október. Anna Olsen, Halldór Snorrason, Borgþór Olsen, Þórunn Kristjánsdóttir, Ásgeir Olsen, Unnur Ólafsdóttir, Vigdís Daníelsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eíginkona min, móðir, tengdamóöir og amma, MARÍA BÁRA FRÍMANNSDÓTTIR, til heímilis aó Holtsgötu 19, Njarövík, lést sunnudaginn 3. október 1982. Altreó Georg Alfreðsson, Hervör Lúöviksdóttir, Óskar Guöjónsson, Erna Lína Alfreösdóttir, Bjarni Kristjánsson, Kristín Bára Alfreösdóttir, Þóröur Ólafsson, Alfreö G. Alfreösson jr., barnabörn. t Útför fööur okkar, gIsla EIRfKSSONAR, Laugavegi 4, fer fram frá Dómkirkjunni, þriöjudaginn 5. október kl. 13.30. Kristín Gísladóttir, Gylfi Gíslason. + Útför fööur okkar, ÞORBJÖRNS KAPRASfUSSONAR, fer fram frá Akureyrarkirkju miövikudaginn 6. október kl. 13.30. Sigtryggur Þorbjörnsson, Guöbjörg Þorbjörnsdóttir, Haukur Þorbjörnsson. Sonur okkar og bróöir, EIRÍKUR VALBERG, Kambsvegi 34, sam andaöist 26. september veröur jarösunginn frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 6. október kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á líknarstofnanir. Guöný og Samúel Valberg, Aöalbjörg Valberg, Lárus Valberg, Kristmundur Valberg, Ingibjörg Valberg. + Eiginmaöur minn, GÍSLI FRÍMANNSSON, Sólvallagötu 54, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 6. október kl. 3 e.h. Guörún Pótursdóttir. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem auösýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengda- fööur, sonar og afa, HARÐAR HAFLIDASONAR, Grundargeröi 22, og heiöruöu minningu hans. Ingibjörg Árnadóttir, Auður Haröardóttir, Þorvaldur Árnason, Guórún Haröardóttir, Axel Sölvi Axelsson, Kristjána Haröardóttir, Haftiöi Báróur Harðarson. Björk Harðardóttir, Kristjana Guöfinnsdóttir og barnabörn. Sigríður Jóns- dóttir — Minning Fædd 8. júní 1906 Dáin 29. september 1982 I dag kveðjum við í hinsta sinn hana ömmu á Laugavegi, eins og hún Sigríður amma okkar var ævinlega kölluð. Hún er nú farin í hið langþráða ferðalag yfir móð- una miklu, þar sem hún hefur fengið aftur þann kraft sem ávallt í henni bjó. Undanfarin ár átti amma við mikil veikindi að stríða og því hef- ur verið heldur hljótt á Laugaveg- inum, þar sem við skemmtum okkur svo vel áður. Sérstaklega eru okkur minnisstæð jólaboðin sem hún hélt okkur börnunum. Þar var farið í leiki og spilað á spil og alltaf tók amma þátt í þessu með okkur. Henni var líka ýmis- legt til lista lagt, hafði unun af söng og var mikil handavinnu- manneskja, auk þess sem hún málaði hinar fallegustu landslags- myndir, sem prýddu heimilið. Það er ekki ætlun okkar að rekja lífshlaup hennar hér, heldur viljum við aðeins þakka fyrir allar samverustundirnar. Það er sárt að kveðja ástvin en þó getur dauðinn verið líkn fyrir þá sem þurfa að þjást. Við vitum að ömmu líður betur nú og yfir því gleðjumst við. Blessuð sé minning hennar. Guðmundur og Tryggvi í dag fer fram útför Sigríðar Jónsdóttur, Laugavegi 132 hér í borg, er andaðist 29. fyrra mánað- ar í öldrunardeild Landspítalans að Hátúni lOb. Sigríður var fædd 8. júní 1906 í Kalastaðakoti á Hvalfjarðar- strönd. Foreldrar hennar voru Jón Sigurðsson bóndi þar og hrepp- stjóri og kona hans Soffía Pét- ursdóttir. Jón faðir Sigríðar var fæddur 1852 á Fiskilæk, sonur Sigurðar Böðvarssonar smiðs og bónda þar, f. 1813, og konu hans Halldóru, f. 1823 Jónsdóttur stúdents og dbrm. á Leirá, f. 1798 d. 1862, Árnasonar. Jón var vinsæll og hjálpsamur, varð auðugur og kynsæll. Böðvar faðir Sigurðar og afi Jóns í Kalastaðakoti, var f. 1772 d. 1852 og var Sigurðsson. hann bjó á Hofsstöðum í Hálsasveit og síðar á Skáney í Reykholtsdal og var járn- og koparsmiður. Hann þótti sérstakur dugnaðar- og greiða- maður og hálparhella þeirra er bágt áttu. Kristleifur á Kroppi segir frá honum í þáttum sínum. Niðjar hans eru margir ög má finna mikinn fróðleik um fólk þetta í Borgfirskum æviskrám. Jón faðir Sigríðar bjó fyrst í Melkoti í Leirársveit áður en hann fluttist að Kalastaðakoti. Þar bjó hann í yfir þrjátíu ár. Jón bætti mjögjörð sína að ræktun og bygg- ingum og gekkst fyrir stofnun búnaðarfélags i sveitinni. Hann var hreppstjóri í áratugi, for- svarsmaður sveitar sinnar og hjálpsamur nágrönnum. Hann var hagsýnn fjáraflamaður og komst í góð efni. Með ráðskonu sinni, Guðrúnu Jóhannesdóttur, átti hann einn son er upp komst, Halldór, f. 1892, kaupmaður í Reykjavík, d. 1945. Kona Jóns 1907 var Soffía Pét- ursdóttir, fædd 1870. Foreldrar, Pétur Guðmundsson og kona hans Guðrún Jónsdóttir og voru á Akranesi. Pétur drukknaði ofan um ís á Skorradalsvatni í desem- ber 1885. Ætt Soffíu er rakin í Fremra-Hálsætt II bindi. Soffía var áður gift Narfa Narfasyni, þau bjuggu á Heynesi. Skildu. Þau áttu fjögur börn er upp komust. Elst þeirra, og sú eina af hálf- systkinum Sigríðar sem enn er á lífi, er Petrína Narfadóttir sem verður níræð í næsta mánuði, f. 13. nóv. 1892. Jón og Soffía bjuggu í Kala- staðakoti til 1919 að þau fluttust til Reykjavíkur með bðrn sín tvö, Sigríði og Stefán 10 ára. Jón og Soffía dóu sumarið 1936, Jón d. 18. júlí og Soffía 16. ágúst. Stefán, eina alsystkini Sigríðar, er kaup- maður í Hafnarfirði, var lengi í bæjarstjórn. Á fermingaraldri fluttist Sig- ríður til Reykjavíkur og þar átti hún heima æ síðan. Hún giftist vorið 1923, tæplega sautján ára Guðmundi búfr. Jóhannssyni frá Sveinatungu, kaupmanni og bæj- arfulltrúa. Hann var sonur Jó- hanns Eyjólfssonar bónda og al- þingismanns, þess er byggði 1895 fyrsta íbúðarhús úr steinsteypu í sveit á íslandi, í Sveinatungu. Guðmundur fórst í bifreiðarslysi 1. september 1931, þrjátíu og átta ára. —Hálfþrítug varð Sigríður ekkja með tvö ung börn, Jón sex ára og Ingibjörgu tæpra fimm ára. Sigríður giftist öðru sinni í des- ember 1934 Felix Ottó Sigur- bjarnasyni sjómanni og síðar verkstjóra hjá Reykjavíkurborg. Felix var fæddur í Reykjavík, son- ur Sigurbjarna Guðnasonar vél- stjóra er lézt haustið 1918 í Eng- landi úr spönsku veikinni frá sjö börnum og það elsta 16 ára, en Felix þá 10 ára. Hann varð því snemma að fara að sjá fyrir sér, því ekki var auður í búi alþýðu- fólks í þá daga. — Það var ekki heldur um mikinn auð að ræða er þau Sigríður og Felix hófu búskap, mitt á kreppuárunum, nema börn- in hennar tvö, — óskabörnin. En Sigríður hafði bakhjarl sem var betri en ekki, þar sem voru for- eldrar hennar. Þau Felix og Sig- ríður eignuðust einnig sín óska- börn. Hörð og Soffíu og tíminn gekk sinn gang. Vorið 1940 fluttust þau að Laugavegi 132 og þar var síðan heimili þeirra. — Börnin stofnuðu eigin heimili í fyllingu tímans og fluttust á brott, — en einn var sá staður er oft var leitað til og heim- sóttur, Laugavegur 132. Þar komu barnabörnin og áttu sitt athvarf og áningarstað. Sigríður hafði við komu sína til Reykjavíkur, unglingurinn, gengið í Góðtemplararegluna, fyrst í barnastúku, og verið virkur og áhugasamur félagi ætið síðan. Ég sem þetta rita, kynntist þeim Fel- ix og Sigríði haustið 1939 er ég gekk í Góðtemplararegluna. Þau voru í þeim systkinahópi er bauð mig þar velkominn. Þá hófst sú kynning okkar í milli, sem varaði síðan óslitið meðan við máttum njóta samvista, án þess að þar bæri á nokkurn skugga. Þau voru einlæg og fórnfús í áhugastarfi og óspör á tíma sinn og frístundir í þágu reglustarfsins, en hún var starfandi á ýmsum stigum Regl- unnar. Þau voru bæði gefin fyrir hljómlist og höfðu góðar söng- raddir, sérstaklega þó Felix er hafði geysimikla og fallega rödd, en ótamda. Sigríður hafði gaman af leiklist og lék í smáleikjum á vegum Reglunnar, fyrr og síðar á árum m.a. í Leikfélagi templara er starfaði um árabil. Hún hafði yndi af ljóðum og las oft upp á fundum af góðum skilningi. Sigríður var viðkvæm í lund, með hneigð til angurværðar, sem hún þó duldi að jafnaði. Það sagði hún mér, að ekkert hefði verið sér meiri gleðigjafi í einrúmi en þaf að hafa yfir í huganum eða i hál. um hljóðum uppáhaldsljóð sín ug erindi úr þeim, en hún kunni fjölda ljóða og kvæðabrota. Sú er sameiginleg reynsla ljóðelskra manna og kvenna fyrr og síðar, og afsannar kenningu atómskálda, að ljóð séu ekki til að læra þau, held- ur til að lesa. Upprifjun ljóða og kvæða fluttu henni birtu í hugar- heim sinn og gáfu hlýrri gleði byr undir báða vængi og aukinn kraft til starfa. Sigríður var heiðursfé- lagi Stórstúkunnar og stúkunnar okkar, Andvara. Sigríður var listræn að upplagi, með sterka löngun til tjáningar á því er henni þótti fagurt. A efri árum þegar um hægðist, greip hún til þess um skeið, að fara að mála landslagsmyndir, til þess að flytja svolitla ögn af fegurð landsins inn til sín, og fékk til þess ofurlitla tilsögn. — En fyrst og fremst var Sig- ríður góð kona, er vildi ætíð koma til hjálpar þeim er minna máttu sín og fóru halloka, eða stóðu einir Patricia McFate heiðursgestur á haust- fagnaði Íslenzk-ameríska félagsins HAUSTFAGNAÐUR íslensk- ameríska félagsins verður að þessu sinni haldinn á Hótel Loft- ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. f minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu linubili. leiðum laugardaginn 9. október nk. Fiðlarinn Graham Smith verð- um meðai skemmtikrafta, en klarinettuleikarinn Finnur Eydal, Helena og Alli, koma að norðan til að leika fyrir dansi. í ár á degi Leifs Eiríkssonar verður Patricia McFate sérstak- ur getur félagsins á haustfagn- aði. McFate er nýkjörinn fram- kvæmdastjóri The American Scandinavian Foundation í New York. ASF stofnunin gegnir þýðingarmiklu hlutverki í menningarsamskiptum Banda- ríkjanna og Norðurlandanna. Sem framkvæmdastjóri ASF hefur Ms. McFate hönd í bagga með hinum fjölmörgu námsferð- um, námsstyrkjum og nám- skeiðum, sem náms- og mennta- menn njóta góðs af í sérskólum og háskólum Bandaríkjanna. Aðgöngumiðasala verður að Hótel Loftleiðum, fimmtudag- inn 7. október og föstudaginn 8. október kl. 18—19 báða dagana. Þar verður einnig tekið við borðapöntunum. Leiðrétting Á LAUGARDAGINN birtust hér í blaðinu minningarorð um Jónínu Kr. Eyvindsdóttur Dal í Borgarnesi. Þau mistök urðu að nafn hennar misritaðist. I fyrirsögninni stóð Eyjólfsdóttir. Biður blaðið að- standendur afsökunar á mistökun- um.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.