Morgunblaðið - 06.10.1982, Síða 7

Morgunblaðið - 06.10.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982 39 arleysið á tungumálasviðinu. Hinsvegar er brugðið á alls konar leiki og gaman og einhver ósköp drukkin af límonaði og gosdrykkj- um. Var þar kátt lið samankomið og þegar haldið var úr hlaði hjá Radio Peking hlupu stelpurnar í útvarpskórnum á eftir bílnum og veifuðu í kveðjuskyni. Tónleikar kórsins okkar fóru fram í gífurlega mikilli tónleika- i höll við Torg hins himneska friðar á laugardag, sunnudag og mánu- dagskvöld. Salurinn var þéttsetinn áhorfendum öll kvöldin. Var kórn- um geysivel fagnað öll kvöldin og í sjálfu sér var það mikið ævintýri fyrir hinar ungu stúlkur kórsins að syngja fyrir fólk af allt öðru menningarsvæði, fólk með allt annan smekk en við höfum í Evr- ópu. Fyrstu tónleikarnir voru filmaðir og teknir upp á segulband fyrir útvarpið, sem flutti tónlist- ina frá Hafnarfirði tvívegis. Sjón- varpið sendi út langa dagskrá með söng kórsins og munu íslenskir kraftar ekki hafa fengið fleiri áhorfendur en einmitt Kór Öldu- túnsskólans í það skiptið. Búdda er guð margra Kínverja, og Búddahof eru víða til. Mest þeirra er Himnahofið í Peking. Þar færðu keisarar fyrri alda fórnir og báðu guð sinn um ríku- lega uppskeru. Hér ríkir eins og víðar kyrrð og friður þrátt fyrir aragrúa gesta. Fegurð hofsins er mikil en byggingar þarna eru í uppbyggir.gu og viðgerð eins og margar aðrar fornminjar land- sins. Veggur einn hringlaga er merkilegur fyrir þær sakir að hljóð virðist ferðast um hann ofur auðveldlega. Þannig getur maður talað inn í vegginn þannig að ann- ar í töluverðri fjarlægð heyrir það sem talað er hinum megin. Þannig talar fólk saman við vegginn þráð- laust. Mun þetta einstakt og í rauninni óútskýranlegt fyrirbæri. Keisarans hallir skína... „Það kvað vera fallegt í Kína, keisarans hallir skína ... hvítar við safírsænum ...“, kvað Tómas Guðmundsson í kvæði sínu í Vest- urbænum. Og það er mikið rétt hjá skáldinu góða. Keisarahallirn- ar eru merkileg mannvirki. Þær standa að baki Hliði hins himneska friðar í miðri Peking. Hér bjuggu 24 keisarar Ming- og Quing-ættanna á árunum 1368 til 1911. Hallirnar eru á 72 hektara svæði og í þeim eru meira en 9000 herbergi. Umhverfis hallirnar er 10 metra hár múr og 50 metra breitt síki þannig að óvinir vald- hafanna hafa ekki átt gott með að sækja að þeim. Keisarahallirnar bera eins og margt annað vott um feiknarlegt bruðl við hirðina. í það minnsta þrjár bygginganna hvíla á sjö metra háum marmaragrunni. Hvert hús fyrir sig gegndi sínu sérstaka hlutverki. I Höll hinnar æðstu samræmingar, níu hæða byggingu, hinni stærstu í Kína sem byggð er úr viði, gefur að líta hásæti á tveggja metra hárri upp- hækkun. Stendur hásætið á sex listilega útskornum súlum, en á milli þeirra eru drekar málaðir með gullmálningu. Horfi maður upp til lofts kemur í ljós að enginn flötur er ómyndskreyttur, í loftinu hátt yfir hásætinu eru gullnar myndir sem sýna dreka, þessa sér- stöku kínversku dreka, sem leika þar með perlur. Minnir það á keis- araveldið að leik með fjöregg fá- tækrar þjóðar. í þessari höll fóru fram allar meiri háttar uppákom- ur við hirðina. í annarri höll fóru fram æfingar fyrir ýmsar seremóníur, í enn annarri voru embættismenn til- vonandi látnir gangast undir próf. Þannig virðist hver bygging hafa gegnt sínu tiltekna hlutverki. Innandyra eru húsgögn í þung- um, gömlum stíl. Manni finnst í raun að þau séu orðin nokkuð lúin sum hver, enda frá síðustu öld eða enn eldri. Allir gripir sem varð- veist hafa eru af dýrustu gerð með innlögðum steinum og ornament- um. I þessum dýru húsakynnum keisaranna bjuggu hundruð ætt- ingja keisaranna og þúsundir þjónustumanna og kvenna þeirra. Keisarahallirnar voru lokaðar almenningi og máttu menn jafn- vel ekki nálgast rammgerða vegg- ina umhverfis keisaraborgina. Fékk borgin því nafnið Forboðna borgin. Inni fyrir lifðu keisarar og fólk þeirra í iðjuleysi og sællífi. Keisaraekkjan Ci Xi sem áður greindi frá vegna byggingarafreka hennar við Sumarhöllina var síð- ust í röð stjórnenda landsins. Hún heimtaði að matseðill dagsins innihéldi 100 rétti, lágmark. Það var nóg fæða til að halda lífinu í 5000 bændum í landi hennar, en þá ríkti hungursneyð í landinu eins og fyrr og reyndar síðar. Um þetta leyti höfðu 1,3 milljónir bændafólks í norðurlandinu látist af völdum matarleysis. Þetta var undir stjórn næstsíðasta keisar- ans, Guang Xu, en hann hélt veg- lega brúðkaupsveislu, sem kostaði álíka og framfærsla þriggja millj- óna bænda í heilt ár. í dag brauðfæðir þetta risastóra land sig sjálft. Greinilegt er að Kínverjar láta sér líða vel, enda þótt þeir séu áratugum á eftir vestrænum þjóðum í ýmissi upp- byggingu. Frá því að landið varð alþýðulýðveldi árið 1949 hefur tek- ist að útrýma hungurvofunni, sem öldum saman hafði vofað yfir íbúum landsins. Þetta er stórvirki mikið. Þegar keisara- og lénsveld- inu hafði verið steypt af stóli 1911 breyttist ekki mikið í þessu efni fyrst í stað. Kínversk borgaraöfl stóðu að þeirri byltingu og upp- gjöfin var formlega undirrituð í Höll sálrænnar ræktunar í keis- arahöllunum miklu. Fyrri keisari fékk að búa í híbýlum sínum undir vernd næstu 13 árin. Meðan Sjang-kai-sjek stýrði landinu frá 1927 fór keisaraborgin í órækt mikla. Eftir byltinguna 1949 var hafist handa um að fegra og bæta hina Forboðnu borg og síðan hefur hún verið almenningseign og er stöðugt unnið við endurbætur. Á Torgi hins himneska friðar Á einkaferðum okkar íslensku ferðalanganna um borgina kom- umst við að ýmsu skemmtilegu. Frá Vináttuhótelinu okkar var haldið af stað með leigubíl, sem hótelið útvegar. Leigubíll í Kína kostar ekki stóra peninga. Maður tekur bíl og lætur bílstjórann bíða tímunum saraan. Kínverjarnir vilja síður að gestir þeirra lendi í vandræðum. Leigubíla fær maður ekki úti á götu og strætisvagna- og sporvagnakerfið kann maður ekki á. Tungumálaerfiðleikarnir eru líka algjörir, þannig að það er eins gott að vita af traustum og góðum bíl og bílstjóra sem bíður. Fyrst af öllu var haldið á Torg hins himneska friðar. Þegar kom- ið er eftir hinni miklu breiðgötu Changan, blasa við Hlið hins himneska friðar og torgið víðáttu- mikla, Tian An Men. Efst trónir mikil mynd af Maó formanni en baka til sér i háu þökin á höllum keisaranna. Maó er góðlátlegur og mildur á svip eins og gjarnt er um Kínverja. En hann átti líka aðrar hliðar og grimmari, ella hefði hon- um ekki tekist að ná þeim tökum á þjóðmálunum sem hann náði. Eftir miklar myndatökur af þessu frægasta hliði heims er haldið yfir Changangötu, þrætt á milli reiðhjóla á fljúgandi fart og yfir á torgið stóra, sem rúmar milljón manns, þegar samkomur eru haldnar hér. Það vekur strax athygli hversu hreinlegt allt er. Þar er varla sígarettustubb að finna, hvað þá meira. Verður manni þá hugsað til Reykvíkinga, sem ekki ganga ýkja snyrtilega um borgina sína og brjóta gler á borgarstrætum eins og það sé ekk- ert tiltökumál. Annað sem við tök- um eftir er furðusvipurinn á fólki, þegar það ber okkur augum. Margir snúa sér við og góna á okkur. Enn aðrir vilja eignast mynd af sér með íslendingunum. Kínverjar virðast vera mestu áhugamenn veraldar um ljós- myndir. Þeir eru „vopnaðir" ágæt- um kínverskum myndavélum, sem ekki kosta stóra peninga, en eru umfram allt einfaldar að gerð. Þeir taka yfirleitt svarthvítar myndir og framkalla filmuna strax og henni er lokið og þurrka hana síðan á ferðalagi sínu. Maó formaður var ekki til sýnis Ógleymanlegt var það, þegar við gerðum hlé á göngu okkar við grafhýsi Maós formanns við »nda torgsins. Þar hópuðust að okkur tugir forvitinna Kínverja. Haukur Helgason skólastjóri reyndi eftir megni að ná sambandi við fólkið. „Bing-daó“, sagði hann og benti á okkur hin. Þessi orð þýða í raun íseyjan á kínversku og er nafnið á landinu okkar. Greinilega trúðu Kínverjar því ekki að við kæmum frá íseyju og mátti greina furðu- svip á andlitum þeirra. Haukur endurtók þá þetta um íseyna og hryllti sig kröftuglega um leið. Vakti sá leikur mikinn hlátur, jafnt meðal kínverskra sem ís- lenskra áhorfenda. Haukur leyfði líka viðstöddum að kíkja í myndavélina sína’ og þótti fólki það hin besta skemmt- un. Hópurinn í kringum okkur stækkaði óðum, varð enn stærri en sá sem sást kringum Azkenasí í sjónvarpinu á dögunum. Varð- maður frá grafhýsinu sá ástæðu til að koma og kanna hvað um væri að vera. Þegar hann sá að allt mundi í friði og spekt brosti hann bara og hélt aftur á sinn stað. Grafhýsið höfðum við ætlað að skoða. Það var því miður lokað en þarna hefur Maó látinn verið til sýnis fram undir þetta. Heyrði ég að núverandi valdhafar væru á móti allri persónudýrkun af þessu tagi. Einhver útlendingur frá Afr- íku sagði líka að senn mundi myndin af formanninum á Hliði hins himneska friðar líka hverfa. Ekki veit ég sönnur á þessu, en látum tímann skera úr um hvað verður. Við torgið mikla standa margar byggingar frá nýrri tímum, ekki síður stórbrotnar en hallir keisar- anna. Áður var sagt frá hinni mikiu Höll fólksins, þar sem ís- lenski hópurinn hafði átt ánægju- legan kvöldverð með forráða- mönnum menningarmála í Pek- ing. Gólfrými hinnar nýju hallar er meira en samanlagt gólfpláss keisarahallanna. Þarna er og minnismerki um Hetjur fólksins, gerð úr 17 þúsund granít- og marmarasteinum. Á minnis- merkinu standa orð Maós for- manns: Hetjur fólksins eru ódauð- legar. Þarna við torgið er mikil bygging, Sögusafn Kína, þar sem skoða má fornar minjar allt aftan úr grárri forneskju til okkar daga. Hinar fornu minjar Forboðnu borgarinnar og hin nýju hús við torgið mynda skrítna en þó góða heild hvernig sem á það er litið. Torgið sjálft er 40 hektarar að stærð eða tveir kílómetrar á kant. Ekki er mikið stressið á þessum miðpunkti Kínaveldis. Margt fólk er á ferli, enda þótt rigningar- skúrir vofi yfir og hrelli fólk öðru hvoru. Hér er fátt eitt boðið til kaups. Helst eru það fjölmargir ljósmyndarar sem bjóða þjónustu sína, blaðasölur og gosdrykkja- búðir. Fólk er á ferli með eigin myndavélar og áreiðanlega er eng- inn blettur í heiminum þar sem eins ótt og títt er smellt af mynda- vélum og einmitt hér. Lúxusvarningurinn er falur í hinu nýja Kína Litlu börnin eru einatt með í för, foreldrar með eitt barn er al- geng sjón. Hér á landi er það fyrirskipað að fjölkyldur eigi að- eins eitt barn. Það er upphafið að aukinni velgengni landsmanna að takmarka barneiginir svo sem framast má verða. Litlu börnin eru klædd á nokkuð óvenjulegan hátt. Klofstykkið á buxum þeirra er opið, þannig að sinna má þörf- um barnanna á ofur einfaldan hátt, en bleyjustandið óþekkt hjá kínverskum mæðrum. Á annarri ferð um aðalversl- anahverfi Peking kemur í ljós að Kínverjar hafa sitthvað til sölu í verslunum sínum. Verðlag allra hluta er hátt miðað við kínversk laun, lágt miðað við okkar vest- rænu. Mikið ber á allskyns lúxus- vöru, sjónvarpstækjum, segul- bandstækjum, ljósabúnaði hvers- konar, raunar eru hér alls konar vörur, sem við ófróðir höfðum fyrirfram álitið að fyndust ekki í Kína. Dagarnir týnast einn af öðrum. Áður en varir erum við komin að lokadegi þessarar ævintýraríku heimsóknar. Við höfum verið heppin. Heppin að fá tækifæri til að heimsækja það góða fólk, sem við höfum mætt, að kynnast ein- staklega fögru landi. Aldrei fyrr hefur verið dekrað annað eins við okkur og hér í Kína. Allt hefur þetta verið sem ljúfur draumur. Hugmyndir okkar um fjölmenn- asta land veraldar hafa gjör- breyst. Óljós tíðindi þaðan getum við vegið og metið að eigin smekk héðan í frá. Alls kyns fréttir fá á sinn ankannalegan svip. Við lás- um t.d. einhvers staðar eftir heim- komuna að í Peking væru til tvö píanó. Fréttir sem þessar fá að sjálfsögðu ekki staðist, jafnvel þótt menningarbyltingin hafi séð um píanóbrennur fyrr á árum. Hér höfum við kynnst menn- ingu, mjög frábrugðinni okkar. Raddirnar í kínversku óperunni gleymast ekki, svo skrækar og hjáróma. Eflaust fannst Kínverj- um raddir stúlknanna úr Kór Öldutúnsskóla skrítnar líka. En það var gaman að sjá óperuna og heyra það sem þar fór fram, sitja innan um fólk utan af götunni, sem mætir í óperuna með bitann sinn, ótilhaft, en hingað komið til að skemmta sér. Sama er að segja um tónleika kínverska sjóhersins, sem voru stórbrotnir. Okkur fannst sú tónlist a.m.k. 40 ár göm- ul vestræn tónlist, en skemmtunin var jafn góð þrátt fyrir það. Lík- lega á enginn sjóher i heimi annað eins úrval af skemmtikröftum. Heim — Eða út á akrana? Á Pekingflugvelli eru sömu ró- legheitin og fyrr. British Airwa- ys-breiðþota er lent til að taka hópinn og flytja hann til London. I raun er þetta nokkuð sögulegt flug, því þetta er í fyrsta sinn sem félaginu leyfist að taka farþega á þennan hátt, þ.e. milli Peking og Hong Kong. Var það ágætri sam- vinnu Útsýnar og dansks um- boðsmanns British Airways að þakka að samningar tókust við kínverska aðila um flugið. Að vísu vildi kínverska flugfélagið ekki taka gilda miða BA og krafðist þess að gefa út eigin miða á flugið. Stóð Haukur Helgason þar í samningum ásamt BA-manninum í Peking. Samningagerðin fór fram á kínverska vísu með túlk- um, og hægt og rólega komst mál- ið í höfn, og höfðum við reyndar aldrei neinar áhyggjur af að öðru vísi færi. Á flugvellinum kvöddum við kínverska vini okkar og samfylgd- armenn með miklum trega. Þar voru margir helstu menningar- málamenn borgarinnar mættir, þó að langt sé á flugvöllinn. Einhvern veginn fylltist maður söknuði strax. Egill Friðleifsson, sá ágæti stjórnandi og aðalhvatamaður að ferðinni miklu, hafði haft það í flimtingum að ekki sakaði þó við yrðum eftir í Kína. Mundi hann þá nota tækifærið og fara út á akr- ana til vinnu með kínverskum „bræðrum og systrum". Þá fyrst myndum við upplifa Kína til fulls. í þessu voru eflaust sannleiks- korn, en spurning hversu lengi við myndum duga í hinni vægðar- lausu sól. Og nú var haldið heim á leið. Lent í Hong Kong eftir 3ja tíma flug, farið í fríhöfn þar. I næsta nágrenni við flugvöllinn sást ljósadýrð verslanahverfis Kow- loon sem við vorum farin að þekkja nokkuð vel. Síðan er flugi haldið áfram, horft á óskarsverð- launamynd um breska hlaupa- garpa á Ólympíuleikum, hlýtt á stereóútvarp, borðað og hvílst. Við fljúgum á móti nóttunni. Svefninn sígur á mannskapinn, og þeir voru víst nokkrir í hópnum sem „sváfu af sér“ Indland allt, vöknuðu ekki í lendingu eða flugtaki, né heldur, þegar æðislegur hitinn barst inn í flugvélina í Bombay. Rétt fyrir lendingu í Róm er vakið til morg- unverðar. Á Rómarflugvelli sjáum við fyrstu skímu dagsins. Loks er lent í London, og þar verðum við að bíða í hálfan sólarhring eftir íslensku vélinni heim. Það þarf því ekki neinn að undra að þegar heim á Keflavíkurflugvöll var komið, var það víst efst í huga flestra að komast í eigið rúm, enda liðnir nær tveir sólarhringar frá því við höfðum kvatt rúmin okkar á Vin- áttuhótelinu í Peking. Staddur í hlýrri rigningunni á Keflavíkurflugvelli minntist ég þess skyndilega að í Kínaferðinni hafði ég ekki upplifað „menning- arsjokkið" sem ég átti að verða fyrir í Kína að sögn sérfróðra manna. Innst inni vonaði ég að ég yrði bara ekki fyrir því fyrirbæri í mínu eigin landi. Hvort það varð eða ekki, það er svo önnur saga, og mætti um það fjalla í löngu máli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.