Morgunblaðið - 06.10.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982
43
Hörkukeppni á Atla-mótinu
BADMINTONFÉLAG Akraness
hélt um helgina 2. og 3. október
annað minningarmótiö um Atla
Þór Helgason sem lést af slysför-
um haustið 1980. Mót þetta heitir
Atla-mótið. Kiwanisklúbburinn
Þyrill Akranesi gaf veglega far-
andgripi til að keppa um og á
mót þetta að fara fram á hverju
ári.
í mótiö á Akranesi voru aö
þessu sinni mættir allir bestu bad-
mintonmenn íslands og á laugar-
daginn var leikiö fram í úrslit en
úrslitaleikirnir síöan á sunnudegin-
um.
í einliöaleik karla léku til úrslita
þeir Broddi Kristjánsson TBR og
Víöir Bragson ÍA. Broddi fór nokk-
uö létt í gegnum fyrri umferöirnar
en tapaöi þó lotu á móti Indriöa
Björnssyni TBR. Víöir þurfti aö
hafa aðeins meira fyrir hlutunum
og lenti fyrst í oddaleik viö Harald
Kornelíusson TBR en vann þó
nokkuö örugglega tvær seinni lot-
urnar eftir aö hafa tapaö þeirri
fyrstu. Þá lenti hann einnig í mikl-
um hörkuleik viö Þorstein
Hængsson TBR en sigraöi einnig
þar í þremur lotum. Broddi sigraöi
síðan örugglega í úrslitum meö
15—3 og 15—7.
i einliöaleik kvenna sigraöi
Kristín Magnúsdóttir TBR en hún
lenti í oddaleik viö Elísabetu Þórö-
ardóttur TBR og einnig viö ís-
landsmeistarann Þórdísi Edwald í
úrslitum og vann þar meö 11—2,
8—11, 12—9.
j tvíliöaleik karla sigruöu þeir
Víöir Bragason ÍA og Sigfús Árna-
son TBR þá Brodda Kristjánsson
og Guðmund Adolfsson TBR í úr-
slitum meö 17—14, 9—15, 15—4.
i tvíliöaleik kvenna sigruöu þær
nöfnurnar Kristín Magnúsdóttir og
Kristin Kristjánsdóttir TBR þær
Þórdísi Edwald og Ingu Kjartans-
dóttur TBR i úrslitum meö 15—9
og 15—2 og í tvenndarleik sigraöi
Kristín M. einnig ásamt Brodda
Kristjánssyni. Þau sigruöu í úrslit-
um þau Vildisi K. Guömundsdóttur
KR og Sigfús Árnason TBR meö
15—14 og 15—8.
Akraprjón á Akranesi gaf fallega
ullarjakka og ullarpeysur öllum
sem sigruöu í tvíliöaleik á þessu
móti og eru því verölaun í þessu
móti þau veglegustu sem um getur
á íslandi.
Helgi ráðinn
framkvæmdastjóri
KKÍ, körfuknattleíkssambandið,
hefur ráðið nýjan framkvæmda-
stjóra. Er það hinn góókunni
knattspyrnumaöur úr Breiðablíki,
Helgi Helgason. Að eigin sögn
mun hann vera við á skrifstofu
KKÍ frá hádegi og fram undir
kvöldmatarleyti, en sennilega
veröi best að ná í sig á skrifstof-
unni eftir að bankar og sparisjóð-
ir hafa lokað.
Kðrluknaltielkur
HIVI á Spáni 1982
— og saga Hm-keppninnar
í knattspyrnu
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur
hf. hefur gefið út bókina „HM á
Spáni 1982 — og saga heims-
meistarakeppninnar I knatt-
spyrnu, eftir Sigmund Ó. Stein-
arsson blaðamann. Eins og nafn
bókarinnar ber meö sér fjallar
hún um heimsmeistarakeppnina í
knattspyrnu allt frá því að hún fór
fyrst fram í Uruguay árið 1930 til
keppninnnar sem fram fór á
Spáni sl. sumar.
Fyrsti kafli bókarinnar fjallar
um þátttöku islendinga í heims-
meistarakeppninni I knattspyrnu
en íslendingar hafa fjórum sinn-
um tekiö þátt í undankeppninni,
1958, 1974, 1978 og 1982. Sagt er
frá leikjum fslendinga í keppninni
• Forsíða bókarinnar er litprent
uö og er hin glæsilegasta.
og birtar fjölmargar myndir úr
þeim.
Saga heimsmeistarakeppninnar
er síöan rakin í bókinni og sagt frá
mörgum eftirminnilegum leikjum
og leikmönnum í keppninni. Koma
þar fjölmargir eftirminnilegir kapp-
ar viö sögu, svo sem Pele, Garr-
incha, Eusebio, Gerd Muller og
Kempes.
j bókinni er síðan ítarlega fjallaö
um heimsmeistarakeppnina á
Spáni sl. sumar. Sagt er frá öllum
leikjum í keppninni og ýmsum at-
vikum, auk þess sem fjallaö er um
frægustu leikmenn keppninnar.
Formála bókarinnar skrifar einn
af þeim leikmönnum sem voru í
eldlínunni á Spáni í sumar, Eng-
lendingurinn Bryan Robson, sem
er einn dýrasti leikmaöur ensku
knattspyrnunnar. Segir hann m.a.
svo í formálsoröum sínum:
„Ég vil aö lokum geta þess aö
þaö er mikill heiöur fyrir mig aö fá
tækifæri til aö rita formáia í bók
um HM og þá sérstaklega um
fyrstu heimsmeistarakeppnina,
sem ég tek þátt í. Bækur um HM,
þar sem finna má úrslit frá ieikjum
í HM frá upphafi, umsagnir um
helstu leiki og atburöi, eru ómet-
anlegar fyrir knattspyrnuunnend-
ur. Ég hef lesiö margar bækur um
HM og hef alltaf haft gaman af. Ég
vona aö þiö lesendur góöir, eigið
eftir aö njóta áömu ánægju.“
Bókin „HM á Spáni 1982 — og
saga heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu" er sett, umbrotin,
filmuunnin og prentuö hjá Prent-
stofu G. Benediktssonar, en bók-
band annaöist Arnarfell hf. Höf-
undurinn, Sigmundur Ó. Stein-
arsson, hannaöi bókina sem prýdd
er miklum fjölda mynda.
• Hinn kunni íþróttafréttaritari Sigmundur örn Stainarsaon með hina
nýútkomnu bók sína HM á Spáni. Þetta ar önnur bókin sem örn og
Örlygur gefa út eftir Sigmund. Sú fyrri var Ásgeir Sigurvinsson. Sig-
mundur dvaldi á Spáni síðastliðið sumar og fylgdist með heimsmeist-
arakeppninni í knattspyrnu.
■
verið
velkomin í
myndatöku
| LJOSMYNDAÞJONUSTAN
^^Laugavegi 178 — s. 85811.
I tilefni árs aldraðra er
mér sérstök ánægja aö
bjóöa öllum 70 ára og
eldri ókeypis myndatöku.
Á hamingjustund ríkir há-
tíöarstemmning á stofunni
hjá mér.
CcJourcy^rt ‘Photo
Vandaöar
stofumyndir
Gjafa-
myndatökur
aldraðra
Ekta strigamyndir, Barr-
okk-rammar, Innrömmun.
Mikiö úrval.
Þau vaxa, dafna og breyt-
ast.
Þessvegna er það svo
gaman aö eiga góöa
Ijósmynd.
Þaö er góöur siöur aö láta
taka mynd af börnunum
meö jöfnu milliblli.