Morgunblaðið - 29.10.1982, Page 6

Morgunblaðið - 29.10.1982, Page 6
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1982 „Vinnum flesta undirbúningavinnu sjálfar, en látum bora fyrir okkur í þessar hnetur til aö þær festist betur í aðventukransinn." Guðrún og yngsti sonurinn af þrem, Haukur Árni. Litid inn til Guörúnar Geirsdóttur Þó enn sé langt til jóla eru jólaskreytingar og jóla- stemmning farin að setja sviþ sinn á nálægar stór- borgir. Þeir forsjálustu hér á landi eru ef til vill farnir aö kaupa eina og eina jóla- gjöf svo lítið ber á til að minnka desemberútgjöld- in. Núna eftir helgina verð- ur fyrsta jólaskreytingin sett út í glugga Rajnma- gerðarinnar samkvæmt venju og er þá ekki mjög langt að bíða þess að Reykjavík fari aö komast í jólabúning. Námskeiö í jólaföndri eru farin af stað é nokkrum stöðum í bæn- um. M.a. hjá versluninni Handíð og íslenskum Heimilisiönaði. Fyrir skömmu litum við þó inn í eitt hús í Breiðholtinu, en þar var Guðrún Geirsdóttir aö undirbúa námskeið í jólaföndri sem hún og móðir hennar, Árný Guð- mundsdóttir, hafa staöið fyrir á undanförnum árum. Þær Guörún hafa veriö meö jólaföndursnámskeið síöastliöin fimm ár, og kennir hjá þeim margra grasa, þarna má sjá jóla- sveina og alls kyns jóla- skreytingar. Viö spyrjum Guörúnu hvaðan hún fái hugmyndirnar aö þessu föndri. Hún segir aö hug- myndirnar fæöist jafnan út frá þeim efnum sem þær eru aö vinna meö. „Viö er- um t.d. nýbúnar aö búa til þessar fígúrur hérna," segir hún og bendir á nokkra skemmtilega karla og kerl- ingar. „Þessi litli jólasveinn í pappírskörfunni fæddist hérna fyrir skömmu." Þær Guörún og Árný sníöa til allt efni sem þarf, prjóna fötin sem fígúrurnar klæöast í prjónavélum til aö auövelda þeim sem eru á námskeið- unum vinnuna. „Viö erum meö þessi námskeið hérna frá októberlokum og fram í fyrstu vikuna í desember.“ Þátttakendur eru aöallega konur og margar þeirra koma aö sögn Guörúnar ár eftir ár. „Þetta er flest mjög auövelt, þaö geta í raun allir föndraö hérna hjá okkur sem hafa á annað borö ein- hvern tíma fest á tölu. Viö leggjum áherslu á aö hlut- irnir veröi varanlegir frá ári til árs og endist lengur en ein jól,“ segir Guörún, „Viö undirbúum allt efniö sjálfar, fáum eingöngu lítilsháttar aöstoö annarstaöar frá.“ Viö spyrjum Guörúnu hvort hún geti gefiö okkur einhverjar einfaldar föndur- hugmyndir. „Þaö er t.d. hægt aö gera margar skemmtilegar skreytingar úr saltdeigi, en það er búiö til úr tveim bollum af hveiti, einum bolla af fínu salti og einum bolla af vatni. Deigiö er síðan hnoöaö og flatt út og hægt aö búa til alls kyns skreytingar, ýmist á jólatré eöa skornar eru út myndir sem límdar eru á pappír og þær síöan settar á vegg. Þetta skraut má gjarnan lita meö vatnslitum eöa þekju- litum, sumir lakka reyndar yfir þetta á eftir.“ Guörún segir okkur einnig frá skemmtilegri nýjung sem frændur okkar á Norður- löndum eru mikið meö um þessar mundir, en þeir skrifa aftan á jólakort og klippa þaö síöan niöur í púsluspil og senda þaö þannig til viðtakanda. Þaö er síöan ágætis dægradvöl aö raöa brotunum saman og fá þannig upplýsingar um frá hverjum kortiö er. Það er virkileg jóla- stemmning þarna hjá Guö- rúnu eins og meöfylgjandi myndir sem Emilía Ijós- myndari tók bera meö sér. Audrey Hepburn var afar vinsæl leikkona hér á árum áður og skapaöi sér sinn eigin stíl eða slíkur stíll var búinn til fyrir hana á hvíta tjaldinu. Nú hafa þeir, sem áhrif hafa á tískuna rifjað upp gamla tímann, dregið upp föt, sem líkjast þeim, sem hún klæddist fyrir 25 árum, klætt ungar fyrirsætur sem líkjast Audrey í þennan fatnað og segja svo: „Þetta er le Style Audrey," eins og þeir kalla þessa tískulínu. Þegar Audrey Hepburn kom fyrst fram á sjónarsviöiö á sjötta ára- tugnum, þá skar hún sig úr þeim kvennafans sem vinsælast var af kvikmyndahúsagestum um þær mundir. En þaö voru barmamiklar og breiömjaöma Hollywood-dísir eins og Marilyn Monroe, Sophia Loren, Gina Lollobrigida, Jane Mansfield og Brigitte Bardot. Audrey Hepburn sem var afar grannvaxin og nánast flatbrjósta en meö ákaflega fallegt og tjáningar- fullt andlit, varö því aö skapa sér sinn eigin sííl. Þetta heppnaöist og hún varð ein vinsælasta leikkona hins vestræna heims næstu tvo áratugi. Hún lék meðal annars í kvikmyndinni Roman Holiday áriö 1953 og hlaut Óskarsverölaun fyrir leik sinn. Á næstu árum á eftir lék hún í kvikmyndum eins og Funny Face, Nun’s Story, Breakfast at Tiffanys og fór meö hlutverk Lizu Doolittle í söngleiknum May Fair Lady. Fatnaöurinn, sem Audrey Hep- burn klæddist á þessum árum bæöi í kvikmyndum og í einkalífi, ein- kenndist af því aö hann var afar tískulegur, en franskir tískuhönnuö- ir voru gjarnan fengnir til aö hanna fatnaöinn á Audrey Hepburn. Þaö eru eflaust hæg heimatökin hjá einhverjum að finna föt sem líkj- ast þessum í klæöaskápnum hjá mömmu eöa ömmu eöa þá hægt er aö finna svipaöan fatnað í verslun- um, sem versla með gömul föt. Hringskorin pils, þröngar rúllu- kragapeysur meö breiöu belti eöa þröngar síðbuxur meö klauf á hlið- inni, víðar peysur, svartir sokkar, hanskar og baröastórir hattar eöa slæður bundnar um höfuö eöa háls og ekki má gleyma sólgleraugun- um. Hér sjáum viö sýnishorn af fatnaöi í stíl Audrey Hepburns. Audrey Hepburn ásamt Fred Astaire í kvikmyndinni Funny Face.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.