Morgunblaðið - 29.10.1982, Side 17

Morgunblaðið - 29.10.1982, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1982 49 fclk í frétfum Salvador Dali í sviðs- ljósinu + í Perpignan í Frakklandi hefur Peter Moore, fyrrver- andi einkaritari Salvador Dali, höfðað skaðabótamál að upphæð 360.000 pund gegn hinum spænska list- málara. Moore, sem er breskur listaverkasali, höfð- aði mál gegn Dali síðastlið- ið sumar á þeim forsendum að hann hefði undirritað mörg listaverk sem hann í rauninni hefði ekki málað sjálfur, heldur aðrir lista- menn. Mál þetta hófst er Dali krafðist þess að 60 lista- verk eftir hann yrðu tekin af sýningu í Perpignan, þar sem sýnd voru verk eftir hann sem eru í eigu Moore. Dali fór fram á að verkin yrðu tekin af sýn- ingunni þar sem um fals- anir væri að ræða. Moore hefndi sín/6i'ðan með því að kæra Dali fyrir þær sakir, að þessi verk væru ekki fölsuð, heldur hefði Dali sett nafn sitt undir verkin, sem Moore fullyrð- ir að séu ekki máluð af honum sjálfum, heldur af öðrum listamönnum fyrir hann. Moore hóf síðan nýja málshöfðun í síðastliðinni viku, þar sem hann fer fram á skaðabætur vegna þess að brottnám Dalis á þessum 60 teikningum og málverkum muni koma til með að rýra sýningu sem hann hafði ráðgert að opna í Ziirich bráðlega. COSPER r £ri». COSPER — Hvað viltu svo að ég gefi þér í afmælisgjöf? Diana prinsessa af Wales á blaðamannafundi. Fatareikningar prinsessunnar + Miklum sögum fer af því í Bretlandi hversu mjög prins- cssan af Wales eyðir í föt. Hún var í þriggja daga verslunarferð um London í síðastliðinni viku og hafa nú birst í hverju blaðinu á fætur öðru listar yfir uppáhalds- verslanir prinsessunnar og hvað hún helst girnist þar, en hún var nú nýverið kosin ein best klædda kona Bretlands af einu vikuritanna þar. Samkvæmt fregnum úr blaðinu Sun, mun Díana hafa keypt meira en 50 ballkjóla og nærri 200 kjóla að auki á síð- astliðnu ári. Blaðið segir að fatareikningar hennar séu svimandi háir, og sé þar oft um að ræða allt að 1500 pund á viku ... Bess Truman kvödd Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekiö á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö notfæra sér viötalstíma þessa. Laugardaginn 30. október veröa til viðtals Páll Gíslason og Gunnar S. Björnsson. afsláttarkort Ákveðiö hefur verið að gefa fé- lagsmönnum Kaupfélags Hafn- firðinga kost á 10% afslætti út á afsláttarkort. Kortin gilda frá október til 18. desember, eitt kort fyrir hvern mánuð. Nýir félagar fá einnig að njóta þessara viðskiptakjara. Hægt er að gerast félagsmaður í verslunum og skrifstofu Kaup- félagsins á Strandgötu 28, Miðvangi og Carðaflöt Carðabæ. + Forsetafrú Bandaríkj- anna, Nancy Reagan, og tveir forverar hennar í emb- ætti, Betty Ford og Rosalynn Carter, votta Bess Truman virðingu sína við minningar- athöfn um hana. Hún lést 18. október síðastliðinn í hárri elli, 97 ára að aldri. Með félagskveðju og þökkum fyrir góð samskipti. Kaupfélag Hafnfiróinga L I Á €í> KARNABÆR DREIFING stdnorhf V- (.11 m ioni istarc.iöi I CAN’T STAND STILL Allir þekkja hann (sem röddina) úr EAGLES. Inniheldur m.a. I Stand Still, Johnny Can’t og Dirty Laundry Don HEniEV I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.