Morgunblaðið - 29.10.1982, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 29.10.1982, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1982 55 Ávallt fólk innan um sem flýtur með straumnum ... Vilhjálmur Sigurðsson skrifar: „Ágæti Velvakandi. Félagsmálaráðherra undirrit- aði sl. sumar samning um þátt- töku okkar í norrænum vinnu- markaði og er ekkert nema gott eitt um það að segja. Það kemur t.d. íslendingum er sækja vinnu á Norðurlöndum til góða á allan hátt, og sömuleiðis Norðurlanda- búum sem vilja vinna hér á landi. En vonandi er þetta samstarf eingöngu bundið við Norður- landabúa, en ekki hina svonefndu gestaverkamenn, sem úir og grúir af á Norðurlöndunum. Sem betur fer hafa ísland og Finnland að mestu verið laus við þetta fólk. sem Danir, Svíar og Norðmenn vilja nú helst losna við, en sitja uppi með. Þó að meirihluti þessa fólks komi í því skyni að vinna og styrkja fjölskyldur sínar í Tyrk- landi, Indlandi og ýmsum Araba- löndum, þá er ávallt innan um fólk sem flýtur með straumnum, eiturlyfjasalar og neytendur, for- hertir sakamenn og jafnvel hryðjuverkamenn. Til dæmis var Tyrki sá er sýndi páfa banatil- ræði búinn að vera víða í Evrópu, m.a. í Þýskalandi, Frakklandi og Danmörku, svo að vitað sé, sem gestaverkamaður, og var samt margdæmdur í sínu heimalandi. Norðurlönd eru því miður opin og eftirlit lítið. Það er víst svo, að hafi gestaverkamaður unnið í einu Norðurlandanna, er honum opin leið til hinna. Ef svo er, þá býður það ákveðinni hættu heim. Þennan leka verða fulltrúar okkar í Norðurlandaráði að setja fyrir. Norðurlandabúar eru að sjálf- sögðu alltaf velkomnir hingað til lands, en smæð samfélags okkar gerir það að verkum, að landið þolir ekki að allt fyllist hér af gestaverkafólki. Við viljum held- ur ekki eiturlyfjasala eða hryðju- verkamenn. Ég vona því að stjórnvöld hér séu vel á verði; sömuleiðis útlendingaeftirlit og verkalýðsfélög. Með vinsemd og virðingu." Er ekki eitthvert ósamræmi þarna? K.S. skrifar 17. október. „Ágæti Velvakandi. Ég sé í dálkum þínum í dag, að ellilífeyrisþegi kvartar und- an því, að í Reykjavík fáum við gamla fólkið ekki afslátt á far- gjaldi með SVR fyrr en sjötug. Mér finnst þessi kvörtun mjög réttmæt, þar sem 67 ára og eldri Kópavogsbúar fá frítt með vögnum þar — og þar með einnig í Reykjavík með skiptimiðum! Þeir sem hafa afsláttarmiða í Reykjavík geta ekki notað þá í Kópavogi og verða þar af leiðandi að borga fullt gjald. Er nú ekki eitthvert ósam- ræmi þarna? Reykvíkingar, 67 ára og eldri, borga fullt gjald í Kópavogi, en 67 ára Kópa- vogsbúi fær frítt bæði þar og með skiptimiða í Reykjavík. Vill nú ekki einhver sem kann skýringu á þessu láta frá sér heyra um þetta? Með vinsemd á ári aldr- aðra.“ í sláturtíö: Notum sem best gæðafæðistímann Karl Karlsson skrifar: „Velvakandi. Sláturtíð hefur staðið yfir um allt land. Hér í Reykjavík eru margar ömmurnar og langömm- urnar, sem hafa verið að hjálpa dætrum sínum og tengdadætrum og öðrum nákomnum eða tengd- um, ungum frúm, við sláturgerð. Það er gott, því slátur er góður og hollur matur. Ég minnist þess, að oft var á mínu æskuheimili, á haustin, steikt lifur eða þá svið, auk blóðmörs og lifrarpylsu og kart- öflurnar komu beint úr pottinum á diskinn. Og þannig á það að vera. Ég gæti vel hugsað mér að fá á haustin steikta lifur með hjörtum og nýrum einu sinni í viku, og svið einu sinni í sömu viku. Að sjálfsögðu ekki til lengdar. Ég er hvorki læknir né nær- ingarsérfræðingur, en ég veit, að í lifur eru nauðsynleg næringar- efni. Og svo er það grænmetið, gott og nýtt á þessum tíma árs. Not- um það mikið. Það er hollt. Not- um þetta yfirstandandi gæðafæð- istímabil, bæði á heimilum okkar og á vistheimilunum. En hér kemur svo dálítil saga um svið: Ég ætlaði nú í sláturtíðinni að fá mér hreinsuð svið í búð hér í Reykjavík. En það gekk ekki auð- veldlega. Ég hringdi í stóra og góða búð, þar sem mér hefur þótt gott að versla. Og svarið var þetta: „Hreinsuð svið höfum við ekki fyrr en eftir sláturtíð." Ég hringdi í aðra búð og fékk sama svar. Og svo hringdi ég í þá þriðju, þrátt fyrir skrefagjaldið. Svarið var þetta: „Við höfum hreinsuð svið á fimmtudögum og föstudögum." Sem sagt, það er mögulegt að fá hreinsuð svið í Reykjavík í sláturtíð. Gott og vel. Notum sem best gæðafæðistím- ann.“ GÆTUM TUNGUNNAR í orðunum hvass og frost eru hljóðin a og o bæði stutt. Þess vegna er framburður eins og í kassi og kostur (en ekki hvas:s og fro:st, eins og Englendingur kynni að bera þessi orð fram og stundum heyrist). , Hjaríanlegar þakkirfæri ég öllum sem glöddu mig með skeytum, gjöfum og heimsóknum á 75 ára afmæli mínu þann 23. okt. Guð blessi ykkur öll. Sigurbjörg Ögnwndsdóttir, Miðtúni 88. Loðdýraræktendur Hudsons Bay London heldur námskeiö í flokkun líf- dýra í samvinnu viö Refabú Blárefs hf., í Krísuvík, sunnudaginn 7. nóv. og hefst kl. 1.00. Leiöbeinandi veröur Blake Mundell frá Dalchonzie Minkfarm Ltd., Skotlandi. Væntanlegir þátttakendur tilkynni vin- samlegast þátttöku í síma 91-44450. Skúli Skúlason, f.h. Hudsons Bay London. Blaðburóarfólk óskast! Vesturbær Garöastræti Austurbær Lindargata 39—63. Laugavegur 1—33. Þingholtsstræti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.