Morgunblaðið - 31.10.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.10.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982 Vöruskiptajöfnuður: Óhagstæður um 2.384 milljónir króna Vöruskiplajöfnuður landsmanna var óhagstæður um liólega 2.384 milljónir króna fyrstu níu mánuói Svarfaðardalur: Vinnuvökunni lýkur í dag Dalvík, .10. oklóbcr. VINNUVAKA kvenfélajranna í Svarf- aóardal, á Dalvík «)> ÁrskÓKsslrönd stendur yfir þessa heljji. Ilún hófsl á foslud;i'V kl. Ifi.OO ng stóó fram á nólt. Konurnar byrjuðu aftur um há- dejrið í daK, cn vinnuvakan fer fram að Húsahakka í Svarfaðardal. Henni lýkur í dau með því að haldinn verð- ur basar í Víkurröst ok hefst hann kl. 16.00. Þar verða til sölu allir þeir munir sem unnir voru á vinnuvök- unni og má þar nefna saumaða muni, föndurdót af ýmsu tani, mál- aða Klerplatta ok síðast en ekki síst mariískonar hakkelsi. Allur átíóði af vinnuvökunni rennur til Systrasels á Akureyri. — Kréttaritarar. Leiðrétting ORD féll út í forsíðufrctt Morgun- hlaðsins um kosningarnar á Spáni í |{a‘r, með þtúm afleiðingum að fréttin breyttist talsvert. í miðri frétt stóð að Manuel Fratja hefði verið ótvíræður sigurvegari kosninganna, en átti að vera annar ótviræður .sigurveKari, oj{ hljómar setningin því svo: „Annar ótvíræður sitturvetíari kosnint>anna er Manuel Fraga og flokkur hans, hið hægri sinnaða Bandalag alþýðunnar, sem kemur til með að verða sterkasti stjórnarandstöðuflokkurinn, með 105 þingsæti." ársins, en verðmæti innflutnings á þessu tímahili var liðlega 8.041 millj- ón króna. Verðmæti útflutnings var hins vegar tæplega 5.697 milljónir króna. í septembermánuði var vöru- skiptajöfnuðurinn óhagstæður um tæplega 297 milljónir króna, en þá var verðmæti innflutnings liðlega 1.145 milljónir króna, en verðmæti útflutnings hins vegar liðlega 848 milljónir króna. Þessu til samanburðar má geta þess, að vöruskiptajöfnuður lands- manna var óhagstæður um tæp- lega 540 milljónir króna, fyrstu níu mánuði ársins í fyrra, en þá var verðmæti innflutnings á um- ræddu tímabili liðlega 5.027 millj- ónir króna, en verðmæti útflutn- ings hins vegar liðlega 4.487 millj- ónir króna. I útflutningi vegur ál og ál- melmi þyngst, en verðmæti þess fyrstu níu mánuðina í ár var tæp- lega 542 milljónir króna. Til sam- anburðar var verðmæti þessa út- flutnings liðlega 433 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Innflutningur fyrir Islenzka ál- félagið vegur þyngst í innflutn- ingstölum, en verðmæti hans fyrstu níu mánuðina í ár var tæp- lega 450 milljónir króna, saman- borið við tæplega 330 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þá má nefna, að innflutningur skipa fyrstu níu mánuðina í ár var um 253 milljónir króna, en á sama tíma í fyrra var verðmæti skipa- innflutnings um 42 milljónir króna. Við samanburð á utanríkis- verzlunartölum 1981 verður að hafa í huga, að meðalgengi erlends gjaldeyris í janúar-september 1982 er talið vera 51,0% hærra en það var sömu mánuði í fyrra. „Lyklabörn“ fjöl- menn í Reykjavík NÆSTUM þriðja hvert barn í Reykjavík á aldrinum 7—12 ára sem á útivinnandi foreldra er svokallað lyklaharn, eða á eigin vegum að meira eða minna leyti meðan for- eldrarnir eru í vinnu. Þessar upplýs- ingar koma fram í skýrslu jafnrétt- iskönnunar í Reykjavík. Samkvæmt þeim upplýsingum sem þarna koma fram er sá tími sem börnin sjá um sig sjálf mis- langur eða frá kiukkutíma og upp í meira en hálfan vinnudag dag- lega. Fjöldi barna á aldrinum 7—12 ára, sem eiga útivinnandi foreldra og könnunin nær til, er 226, en af þeim sjá 71 þeirra, eða rúmlega 31 af hundraði, um sig að meira og minna leyti meðan foreldrarnir eru í vinnu. Algengast er að börn- in séu í skóla meðan foreldrarnir eru báðir að vinna, en einnig er algengt að annað foreldrið sé allt- af heima þegar hitt er í vinnu og sinni þannig barnagæslunni. Sölutregða á áli Ljósm. Mbl. Kristján. Vegna sölutregðu á áli hafa birgðir hlaðist upp á athafnasvæði ÍSAI, við Straumsvík. Samkvæmt upplýsingum Einars Guðmundssonar, söluframleiðslustjóra, er gert ráð fyrir því að á svæðinu verði um 40 þúsund tonn um næstu áramót, en birgðir hafa aldrei verið meiri. Kins og sjá má á meðfylgjandi mynd, er farið að stafla upp áli á svæðinu á milli Keflavíkurvegarins og kerskálans, og sagði Einar að það væri gert vegna þess að allt annað pláss væri fullt. Sykurinnflutningur hefur dregizt saman um 13% í ár — Innflutningur á vindlingum og tóbaki hefur aukizt um 22% INNFLUTNINGUR á strásykri og molasykri dróst saman um liðlega 13% fyrstu átta mánuði ársins í magni talið. í ár hafa verið flutt inn 5.588,4 tonn, en á sama tíma í fyrra höfðu verið flutt inn 6.430,0 tonn. Innflutningsverðmætið í ár er tæp- lega 27,9 milljónir króna, saman- borið við liðlega 34,4 milljónir króna í fyrra. Samdrátturinn er því um 19%, og er m.a. tilkominn vegna lækkandi sykurverðs á heimsmark- aði. Innflutningur á kaffi jókst um tæplega 6% fyrstu átta mánuði ársins, en á þessu ári hafa verið flutt inn 1.668,4 tonn, samanborið við 1.574,2 tonn á sama tíma í fyrra. Verðmætaaukning inn- flutningsins milli ára er aðeins 6,3%, en verðmæti innflutningsins í ár er tæplega 55,5 milljónir króna, samanborið við 52,2 millj- ónir króna á sama tíma í fyrra. Fyrstu átta mánuði ársins jókst innflutningur á vindlingum og öðru tóbaki um liðlega 22% í magni talið, en alls voru flutt inn 363,8 tonn í ár samanborið við 297,9 tonn á sama tíma í fyrra. Verðmætaaukning innflutnings- ins milli ára er liðlega 60%, en verðmæti innflutningsins í ár er liðlega 53,4 milljónir króna, sam- anborið við liðlega 33,3 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þá má geta þess, að innflutning- ur á litsjónvörpum dróst saman um 16,4% fyrstu átta mánuðina í ár. A þessu ári hafa verið flutt inn 4.360 litsjónvörp, samanborið við 5.215 tæki á sama tíma í fyrra. Innflutningsverðmætið í ár er lið- lega 16 milljónir króna, saman- borið við tæplega 13,5 milljónir króna á sama tíma í fyrra, eða 18,2% meira. Höfn, Hornafirði: Um níu þúsund tunnum af síld landað í gær llöfn, Mornafiröi, 30. oklóbcr. í DAG var landað um 9.000 tunnum af síld. Síldarsöltunarstöð FH tekur á móti 5.300 til 5.500 tunnum, en þar af fara um 250—300 í frystingu. Hjá söltunarstöðinni starfa um 90 manns. Hjá söitunarstöð Stemmu hf. verður tekið á móti 3.500 til 3.600 tunnum og hjá Stemmu starfa um 80 manns. Verður saltað hér á Höfn sleitu- laust í dag og á morgun. Jafnvel er búist við meira magni en að fram- an greinir, en þetta er eingöngu það sem búið var að tilkynna snemma í morgun að bærist á land. Einar Sjómannaþing: „Sjómenn einir bera byrði minnkandi aflaa ATVINNU- og kjaramálanefnd 13. þings Sjómannasambands íslands gerði eftirfarandi ályktun: Mjög alvarlegar horfur eru nú með atvinnuöryggi og fjárhagslega afkomu sjómanna, eftir hrun loðnustofnsins og minnkandi þorskafla. 13. þing SSÍ bendir á að með minnkandi afla og breyttri afla- samsetningu hafa tekjur sjó- manna dregist verulega saman og þeir einir þurft að bera þá byrði. Þingið bendir á að á undanförnum árum þegar afli fór vaxandi var fiskverð oft skert af hálfu stjórn- valda. Þingið krefst þess að skerð- ingin verði bætt að fullu. Einnig er það krafa þingsins að haldið verði fast við þá stefnu sem hefur verið viðhöfð á þessu ári, að fisk- verð hækki aldrei minna, hverju sinni, en sem nemur verðbótum á laun. 13. þing SSÍ gerir sér grein fyrir því, að eins og nú er komið verður ekki hjá því komist að ströng stjórn sé höfð á fiskveiðum og vinnslu. Þingið fagnar því að stjórnvöld hafa í vaxandi mæli haft samráð við samtök sjómanna um mótun fiskveiðistefnu og skor- ar jafnframt á stjórnvöld að auka slíkt samstarf eins og kostur er. Miðað við stærð nýttra fiski- stofna, styður þingið ákvörðun stjórnvalda um stöðvun innflutn- ings notaðra fiskiskipa, þess skal gæta að eðlileg endurnýjun eigi sér stað. Þá ber að leita eftir nýj- um og fleiri verkefnum fyrir flot- ann. Enn er olíuvandinn að hluta til leystur á kostnað sjómanna með síendurteknum lagasetningum Al- þingis um olíugjald, sem skerðir hlutaskiptakjör sjómanna, í stað þess að viðurkenna þá staðreynd að þarna er um að ræða vandamál allrar þjóðarinnar. Nú hafa níu sinnum verið sett lög um tíma- bundið oliugjald og falla núgild- andi lög úr gildi um næstu áramót og er það krafa þingsins að það verði ekki endurnýjað. Heildarkjarasamningur fiski- manna hefur nú verið laus frá 1. sept. sl. Ljóst er að knýja verður á um ýmsar úrbætur á samningnum á næstunni. Síðustu kjarasamn- ingar tengdust mjög ýmsum kröf- um á hendur stjórnvöldum um fé- lagslegar umbætur til handa sjó- mönnum, svo sem um aukin lífeyr- isréttindi og aukinn orlofsrétt. Séra Jón Thoraren- sen áttræður í dag ÁTTRÆÐUR er í dag séra Jón Thorarensen, fyrrverandi sókn- arprestur í Nessókn og Hruna- prestakalli. Jón var vígður sókn- arprestur í Hruna 1930 og varð fyrsti prestur í Nessókn í Reykja- vík, þegar hún var sett á laggirnar árið 1941. Hann verður staddur á heimili sínu í dag. Varðarfundur á miðvikudag Landsmálafélagið Vörður held- ur félagsfund miðvikudaginn 3. nóvember næstkomandi, en þar verður kosin uppstillingarnefnd sem siðan mun gera tillögu um næstu stjórn Varðar, fyrir næsta aðalfund félagsins. Aðalfundurinn verður að lík- indum haldinn um eða fyrir miðjan nóvember, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Arna Sigfússyni, framkvæmda- stjóra Fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík. Gestur fundarins nk. miðviku- dag verður Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokks- ins, og mun hann flytja ávarp. Fundurinn hefst klukkan 8.30., og verður haldinn í Valhöll, Háa- leitisbraut 1. Forsetinn 1 Khöfn í einkaerindum FORSETI íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, fór í gærmorg- un til Kaupmannahafnar í einkaerindum. Forsetinn verð- ur fram á föstudag í Dan- mörku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.