Morgunblaðið - 31.10.1982, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 31.10.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982 7 Boðskapur þessa sunnudags fjallar um bænina, hversu ein- læg, óaflátanleg bæn geti miklu áorkað. Biðjið án afláts, það er ekki til einskis. Hér er þó ekki verið að boða neina „hókus-pókus-aðferð“, sem kemur með kraftaverk á færi- bandi, en hitt engu að síður, að það er til einhvers að biðja. Hverjum, sem opnar sig fyrir hjálp Guðs og krafti, gefur hann það, sem honum er fyrir bestu og mögulegt er. Þar sem ekki er hægt að uppfylla allt, sem um er beðið, þar er örugglega gefið annað í staðinn, eitthvað sem hjálpar til að bera mótlætið og jafnvel breytir böli í blessun, þar sem rétt er við tekið og á málum haldið. Þannig er boðskapur kirkj- unnar, og hún segir jafnframt, að lífið og reynsla þess sanni hann. En rödd kirkjunnar er ekki alltaf gaumur gefinn. Við lifum á öld, sem leggur mest upp úr efnislegum gæðum. Meðan hægt er að njóta þeirra, er víða lítið um annað hugsað og þeir ekki mjög margir, sem beina huganum að óáþreifanlegum hlutum eins og bæn og trú. Þó gera sumir undantekningu, þeg- ar þekkt nöfn fylgja, er styðjast við eigin reynslu, ekki síst ef það eru þekkt nöfn úr heimi raunvís- indanna, sem fást fyrst og fremst við hinn efnislega heim. Eitt slíkt nafn er Alexis Carr- el, fransk-amerískur skurðlækn- ir og Nóbelsverðlaunahafi í læknisfræði. Ég hef lesið eftir hann tímaritsgrein, þar sem hann segir athyglisverða hluti, og ætla ég að endursegja kjarn- ann úr boðskap hans hér. Carrel segir: Bænin færir lífi okkar geysilegan styrk og lífskraft. Ahrif hennar á sál og líkama eru eins greinileg og áhrif kirtla- starfseminnar, afl hennar eins raunverulegt og aðdráttarafl jarðarinnar. Bænin er eina aflið, sem virðist geta sigrað eða upp- hafið, það sem við köllum nátt- úrulögmál. Og þegar hún orsak- ar á áhrifaríkan hátt algjöra breytingu á lífi og aðstæðum manna,' þá köllum við það kraftaverk. Bænin er í dag meiri nauðsyn en nokkru sinni fyrr, segir Carrel. En þessi uppspretta innra og ytra afls, hún er mörg- um týnd um þessar mundir, gleymd eða ófundin, þegar þeir þó þurfa hennar mest við. — Ef hún yrði hreinsuð af allri vantrú og öðru, sem dregur úr mætti hennar, og notuð sem sjálfsagð- ur hlutur af djörfung og einlægu Biðjið og yður mun gefast trausti, mundi hún geta breytt miklu í lífi mannanna og orðið þeim til mikillar blessunar. Til að nota hana þurfa menn hyorki að vera miklir hugsuðir né verð- launahafar. Hún er alveg eins á valdi hins venjulega manns og honum ætluð ekki síður. Að reynslu Carrels er sýnilegur árangur af bænalífi þeirra, sem trúa á mátt bænarinnar og not- færa sér hann, meira líkamlegt þol, aukið siðferðilegt þrek og andleg orka. Þetta er óvenjuleg yfirlýsing og vegna vísindalegrar stöðu Carrels er hún líka óvenjulega sterk. En trúlega reka sig fáir á það sem læknarnir, hve efní og andi eru nátengd hugtök, og þeir efast fæstir lengur um andlegar orsakir ýmissa vefrænna sjúk- dóma. Þar af leiðir, að ekki ætti síður að vera hægt að leita við þeim lækninga að andlegum leiðum. Þetta eru íhugunarverð- ir hlutir, sem segja okkur hik- laust, að efnishyggjan sé þegar úrelt orðin. Þess vegna á og hver einasti maður að geta kinnroða- laust gengið til móts við sína andlegu þörf á vegum bænar og trúar. Bænin er ekki sérkristið fyrir- bæri. Hún er það atriði, sem sameinar alla trúmenn. Hvar sem traust er til á afli æðra manninum sjálfum, þar stígur upp bæn. Hér er þó ekki frum- stætt fyrirbrigði á ferð, heldur frumlegt, til að sinna meðfæddri trúarþörf, sem myndast af því að Guð hefur skapað manninn til samfélags við sig. í dag er mikið talað um, að ekki megi raska jafnvægi í hinni sýnilegu sköpun, náttúrunni. Þá eyðileggjum við hana. En hitt er ekki síður nauðsynlegt að halda jafnvægi í hinni ósýnilegu sköp- un, trúarlegu og öðru andlegu lífi mannanna. Mikilvægast af öllu mun þó að halda jafnvægi milli hins sýnilega og hins ósýni- lega, hins efnislega og hins and- lega í lífi mannanna. Þessir hlutir verða aldrei í lagi, nema leið bænarinnar sé opin og greið. Stuðlum því að andlegri heill með því að iðka bæn okkar æ meir, æ reglulegar og af æ meiri innlifun og sann- færingu. Sköpum eftirkomend- um okkar auðveldari leið til lífshamingju með því að leiða þá fyrstu sporin á þessari braut og kenna þeim að þekkja þar leið- arsteina. Látum þá ekki blind- andi frá okkur fara í þessum efnum og þurfa að reka sig á til þess að skilja gildi bænar og trú- ar. Ég þakka þér, lesandi minn, samfylgdina hér í blaðinu nú um nokkurra mánaða skeið. Ég þakka einnig mörg hlý orð til mín töluð í þessari samfylgd. Mér finnst gott að mega ljúka henni með gömlum orðum og dýrmætum, sem ég bið þig að hugfesta: „Biðjið ofj yöur mun f?efast. Leitið of? þér munuð finna. Knýid á of? fyrir ydur mun upp lokiö verða.“ Við vorum að taka upp sendingu af bráðfallegum frönskum herraskóm Þetta eru sérstaklega vandaðir skór ( mörgum litum frá þekktum framleiðendum. Gæðavara, sem við eigum (takmörkuðu upplagi HERRA F’GARrÐURINN Aöalstræti 9 sími 12234 GENGI VERÐBRÉFA 31. OKTÓBER 1982 VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI Sölugengi pr. kr. 100.- RÍKISSJÓÐS: 1970 2. flokkur 9.379,64 1971 1. flokkur 8.225.56 1972 1. flokkur 7.133.13 1972 2. flokkur 6.041,03 1973 1. flokkur A 4.359,26 1973 2. flokkur 4.016,23 1974 1. flokkur 2.771,99 1975 1. flokkur 2.277,47 1975 2. flokkur 1.715,72 1976 1. flokkur 1.625,21 1976 2. flokkur 1.299,80 1977 1. flokkur 1.205,84 1977 2. flokkur 1.006.80 1978 1. flokkur 817,55 1978 2. flokkur 643,17 1979 1. flokkur 542,22 1979 2. flokkur 419,10 1980 1. flokkur 307,72 1980 2. flokkur 241,79 1981 1. flokkur 207,74 1981 2. flokkur 154,29 1982 1. flokkur 140,16 Meóalévöxtun ofangremdra flokka um- fram verötryggingu ar 3,7—5%. VEÐSKULDABRÉF ÓVERÐTRYGGÐ: Sölugengi m.v. nafnvextí 12% 14% 16% 18% 20% (HLV) 40% 1 ár 63 64 65 66 67 77 2 ár 52 54 55 56 58 71 3 ár 44 45 47 48 50 66 4 ár 38 39 41 43 45 63 5 ár 33 35 37 38 40 61 VEDSKULDABREF MEO LÁNSKJARAVÍSITÖLU: Sölugengi nafn- Ávöxtun m.v. vextir umfram 2 afb./ári (HLV) verðtr. 1 ár 96,49 2% 7% 2 ár 94,28 2% 7% 3 ár 92,96 2'/i% 7% 4 ár 91,14 2’/r% 7% 5 ár 90,59 3% 7% 6 ár 88,50 3% 7’/.%- 7 ár 87,01 3% 7'/.% 8 ár 84,85 3% 7Vi% 9 ár 83,43 3% 7%% 10 ár 80,40 3% 8% 15 ár 74,05 3% 8% VERÐTRYGGÐ HAPPDRÆTTISLAN , RÍKISSJÓÐS JTS'- B — 1973 2,851,48 C — 1973 2.553,05 D — 1974 2.216,18 E — 1974 1.515,96 F — 1974 1.515,96 G — 1975 1.005,61 H — 1976 958,22 I — 1976 729,11 J — 1977 678,42 1. fl. — 1981 135,84 Seljum og tökum í umboössölu verðtryggð spariskírteini Ríkis- sjóðs, happdrættisskuldabréf Ríkissjóðs og almenn veðskulda- bréf. Höfum víðtæka reynslu í veröbréfaviðskiptum og fjármálalegri ráögjöf og miðlum þeirrí þekkingu án endurgjalds. Verðbréfamarkaður Fjárfestingarfélagsins LæKjargötu 12 101 Reykjavik lónaóarbankahúsinu Simi 28566 Finnskir frakkar frá Trinet BflZIIII Hafnarstræti 15, sími 19566

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.